Sunnan undir Hádegishól eru leifar Hraunsholtsselsins, en þær hafa að mestu leyti verið skemmdar vegna framkvæmda við iðnaðarhverfið í Garðabæ. Annars er það merkilegt hversu sumir láta sig menningarverðmæti litlu skipta. Það hefði einhvern tímann verið kallað smáborgarahugsunar-háttur, vanþekking eða jafnvel heimska að fórna menningarverðmætum fyrir ekkert. Auðvitað eiga bæjarfulltrúar og aðrir fólksfulltrúar að hafa vit fyrir öðrum í þessum efnum. Tekið hefur verið úr hólnum að sunnanverðu, en þó má sjá votta fyrir selstóftunum ef vel er að gáð (6404906-2156032). Hið grætilega er að engin þörf virðist hafa verið fyrir raskið.