Kirkjan í Grindavík var á Stað í Staðarhverfi fram til 1909. Þá var hún flutt yfir í Járngerðarstaðarhverfi þar sem hún hefur verið síðan - að vísu á tveimur stöðum. Kirkjugatan frá Hrauni og Þórkötlustaðahverfi lá yfir norðanvert Þórkötlustaðanesið, um Gjána og framhjá Vatnsstæðinu að Rifsósi, eiðinu er lokaði Hópið af að utanverðu. Síðar, á fjórða áratug 20. aldar og síðar, var opnað inn í Hópið, rásin breikkuð og dýpkuð og eiðið þar með fjarlægt að mestu. Jafnan var gengið um ósinn væri hann fær. Sú leið var styttri. Kirkjuhóll (Kirkjuhólar) voru á vestanverðri Gjárbrúninni, þar sem fólkið að austan sjást fyrst frá Járngerðarstöðum. Skammt sunnar er Gjáhóll og sést hann enn - gróinn í kollinn.