Sveinn Þór Sigurjónsson, bjó í Traðarkoti í Brunnastaðahverfi, nú í Grindavík (73 ára). Þann 24. apríl 1943 var hann níu ára. Skömmu eftir hádegi þennan dag var hann skammt frá bænum er hann heyrði skyndilega hávaða og marga skýhnoðra á lofti yfir og nálægt Meeks-velli ofan við Keflavík. Loftvarnarbyssum Ameríkana hafði verið beint að þýskri flugvél, sem nálgast hafði völlinn. Síðan sá hann hvar þýskri flugvél var flogið lágt til austurs nokkru sunnar í Strandarheiðinni, nokkurn veginn í línu þar sem Reykjanesbrautin er nú. Eftir fylgdu tvær amerískar orrustuvélar. Frá þeim var skotið látlaust á þýsku vélina, sem beygt var til suðurs. Þá mun hún hafa lent í heiðinni, á stað sem Breiðagerðisslakki nefnist. Sjá meira undir Fróðleikur.