Eyjadalur gengur inn í Esjuna að norðanverðu, og snýr í suður-landsuður. Hlíðarnar eru háar og brattar með lausaskriðum. Sel hefur verið í miðjum dalnum vestanmegin árinnar, sem eftir honum rennur. Við selið gengur upp afdalur dálítill á snið suðvestur í vesturhlíð dalsins, og kalla menn dalinn þar Hrútadal, en Seltindur heitir milli dalanna. Hvergi í Eyjadal er eins fagurt og hér. Hér sést yfir hinn innra hluta dalsins; grashlíðar og hóla, en fjöllin gnæfa himinhá báðum megin (M. Grímsson 1848). Hermann Ingólfsson á Hjalla, fæddur að Eyjum, sagði seltóftirnar sjást enn vel neðan við Hrútadal. Um fjögurra km gangur væri að tóftunum. Gengið var frá bænum Sandi og haldið upp Eyjadal. Ætlunin var m.a. að skoða selsrústirnar í dalnum, þær sömu og Magnús Grímsson hafði lýst u.m.b. 160 árum fyrr.