FERLIR fer jafnan fyrirfram ákveðnar leiðir, að vísu vandlega undirbúnar. Gamlar frásagnir, lýsingar, mögulegar uppgötvanir eða annað eru jafnan hvatinn að ferðunum. Áður hefur undantekningarlaust verið samið um hið ágætasta veður á göngusvæðinu. Stundum hefur óálitlegt “gluggaveðrið” heima villt fólki sýn, en á göngustaðnum undrast það iðurlega umskiptin. Þá var komið að FERLIRsferð nr. 1111. Af því tilefni var ákveðið að fara í óhefðbundna göngu. Fólk, sem tekið hefur þátt í rúmlega ellefu hundruð gönguferðum við allar aðstæður öll árin – og lifað þær af – hlaut að geta nánast allt. Hafa ber í huga að FERLIR hefur aldrei tapað manni og enginn hefur slasast (a.m.k. ekki varanlega) í göngunum, en hins vegar hafa sumir fengið bata einhverra meina sinna og allir þátttakendur hafa notið hins undirliggjandi “mottós” félagsskaparins; “að vita meira, og meira, meira í dag en í gær”. Og hvað er meira virði í lífinu en heilsutengd þekking?