FERLIRsfélaginn, nú staðsettur í London, kom eftirfarandi boðum á framfæri: "Ég hitti mann í gær, sem lengi hefur verið með kartöflugarð í Skammadal milli Æsustaðafjalls og Helgafells. Hann telur mögulegt að aðra rúst (sel?) en þá sunnan í Helgafelli sé að finna í Æsustaðafjalli. Það á að vera lind í grennd við rústina, sem kartöflubændur fá vatn úr. Þangað á einnig að liggja stigi eða príla yfir girðingu." Haukur kom síðan með nákvæmari upplýsingar: "Hef nú spurst nánar fyrir um tóftina í Æsustaðafjallinu. Það á að vera einfalt að finna hana. Efsta gatan við kartöflugarðana nefnist A-gata. Tóftin á að vera til móts við hana miðja. Farið yfir prílu og þá eru innan við 100 m að henni. Þar á að vera laut og tóftin á að vera þar rétt við lind sem kartöflubændur taka vatn úr." Sjá meira undir Lýsingar.