Grindavíkurbær hefur gefið út ritið “Grindavík – sögu- og minjakort”.
Um er að ræða samantekt minjakortanna, sem sett hafa verið upp víðsvegar í bænum á undanförnum árum, unnin af Ómari Smára Ármannssyni fyrir Grindavíkurbæ með styrk frá Pokasjóði og Menningarráði Suðurnesja. Áður hefur Ferðamálafélag Grindavíkur gefið út samantekt um Húshólma og Seltanga í sama ritflokki. Það er von útgefanda að efnið, Sögu- og minjarkort Grindavíkur, sem hér er sett fram myndrænt og í texta, muni nýtast íbúum bæjarins, ferðamönnum og nemendum bæjarins við vinnslu námsefnis. Ritið er tilvalið til að taka með sér á göngu um sögusvið hinnar gömlu Grindavíkur, hvort sem um er að ræða í Þórkötlustaða-, Járngerðarstaða- eða Staðarhverfi. Rakin er þróun og saga hverfanna frá upphafi til nútíma. Sagt er frá einstökum minjum því tengdu jafnframt sem þær eru staðsettar á handgerð kort.
Leitendur geta þannig auðveldlega fengið innsýn í mannlífið í Grindavík í gegnum aldirnar og notið í leiðinni hins fagra umhverfis Grindavíkur.
Þótt kortin takmarkist að mestu við hið gamla sögusvið byggðarinnar er og fjölmargt að finna utan þeirra, s.s. minjar, jarðsaga og – mótun, gróður, dýralíf og nýbreytni í menningu og ferðaþjónustu á svæðinu.