Í Morgunblaðinu 1983 er fjallað um „Kirkjuklukku frá 13. öld…“. Þar mun vera um að ræða gamla kirkjuklukkan, sem var í Hrísbrúarkirkju, áður en hún var rifin og ný kirkja reist að Mosfelli:
Ævaforn kirkjuklukka frá Mosfelli [Hrísbrú]

Í gær kom einnig til Kjarvalsstaða ævaforn kirkjuklukka frá Mosfellskirkju [Hrísbrúarkirkju] í Mosfellssveit. Ekki er nákvæmlega vitað um aldur hennar að sögn Björns Th., hún mun ekki vera frá frumkristni á Íslandi, en þó líklega frá því á 13. öld eða í byrjun þeirrar 14.

Innansveitakrónika Halldórs Laxness – kápa.
Sést aldur hennar á lagi hennar, hún er útflá í laginu. Björn kvað uppruna óvissan, líklegast væri að hún væri þýsk, en gæti þó allt eins verið ensk eða frönsk. Klukkuna taldi dr. Róbert Abraham Ottósson, söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, hljómfegurstu klukku á landinu.
Klukka þessi kemur mjög við í Innansveitarkroniku Halldórs Laxness.
Er kirkja var lögð niður á Mosfelli og flutt að Lágafelli, vildu bændur á Hrísbrú ekki una því að kirkjuklukkan forna færðist þangað. Var hún því geymd á Hrísbrú uns aftur reis kirkja á Mosfelli, og þar er klukkan nú. — Ekki munu Hrísbrúingar þó vilja una við þá útgáfu, er Innansveitarkronika gefur um geymslustað klukkunnar á Hrísbrú, en ekki er ætlunin að blandast inn í þær deilur hér.
Björn Th. kvað þetta alls ekki elstu klukku á landinu. Sú elsta er geymd á Þjóðminjasafninu, og mun einnig verða á sýningunni nú. Það er klukka frá Hálsi í Fnjóskadal, frá því á 12. öld. „Sú klukka hefur hringt við eyrum Guðmundar biskups góða, er hann var að alast upp á Hálsi,“ sagði Björn Th.
Í Vísi 1962 birtist grein um Hrísbrúarklukkuna; „Klukkan kallar„:

Lágafellskirkja 1901.
Kátt tók að klingja og fast
klukkan, sem áður brast.
Alskærum ómi sló
út yfir vatn og skóg.
Mín klukka, klukkan þín
kallar oss heim til sín.– H.K.L.
Það geymast margar kynjasagnir í kristnum löndum. Um dularmátt kirkjuklukkna, hvernig þær orka ævilangt á mannlegar tilfinningar og mannleg örlög aftur á þær, líkt og klukkurnar séu gæddar lífi og sál.
Það kunna allir Íslendingar söguna af því, er Líkaböng Hóladómkirkju átti að hafa tekið að hringja sér sjálf, er lík Jóns Arasonar og sona hans voru flutt heim að Hólum. Tjéðlend frásögn hermir, að það hörmulega slys hafi hent, að fegursta stúlka þorpsins hafi fallið í mótin, þar sem verið var að bræða málminn í þorpsklukkurnar, og líkami hennar bráðnað þar. Sagan segir að fegurð hennar hafi orðið ódauðleg í hljómi klukknanna, sá hljómur sé ekki af þessum heimi.

Mosfellskirkja – Við Mosfellskirkju sumarið 1883, enskur ferðamaður í hársnyrtingu, til vinstri er íslenskur fylgdarmaður ferðafólksins sem fékk að gista í kirkjunni. Myndin er önnur tveggja ljósmynda sem til er af þessari kirkju sem komst á hvers manns varir fimm árum síðar eins og greint er frá í Innansveitarkroniku. Kirkjan var byggð úr timbri og var eina timburkirkjan sem staðið hefur á Mosfelli.
Mosfellskirkja árið 1883. Ljósmyndari: Walter H. Trevelyan. © Brennholt.
Í einum fegursta dal Íslands, við dyr höfuðborgarinnar, er nú verið að móta í málm og stein lokaatriði ævintýralegrar og ótrúlegrar sögu, sem hófst árið 1888. Klukknahljómur er upphafs- og lokastef þessarar ljóðrænu, rómantísku frásagnar, og jafnvel á atómöld eru menn veikari fyrir rómantík en menn vilja vera láta.
Hið umrædda ár, 1888, var tekin af kirkja, sem staðið hafði í dalnum um aldaraðir. En allmargir dalbúanna máttu ekki til þess hugsa að klukknahljómurinn hyrfi úr dalnum. Þeir hófu harðar mótmælaaðgerðar gegn kirkjuyfirvöldunum og náðu á sitt vald klukkuur gömlu kirkjunni, sem jöfnuð var við jörðu. Segir sagan að þeir myndu aldrei hafa látið hana af hendi og verið þess albúnir að verja hana með afli.

Svo mikið er víst, að kirkjuklukkan er enn í dag varðveitt Í dalnum, á næsta bæ við hinn forna kirkjustað, sem tákn löngunarfullrar þrár þessa byggðarlags, hvers byggðarlags og hvers hjarta, eftir „alskærum“ helgum hljóm, þrátt fyrir allt og allt.
Á bænum með kirkjuklukkunni ólst upp drengur, sem síðar varð forvígismaður sveitarinnar. Hann lézt fyrir fáum árum, ókvæntur og barnlaus stóreignamaður og hafði þá stofnað eignum sínum sjóð, sem verja skal til að endurreisa kirkju dalbúa á hinum forna kirkjustað. Nú er þessi einstæða kirkjubygging hafin. Og fyrsti gripurinn, sem kirkjan hefur eignazt, er gamla klukkan, hið eina sýnilega tákn gömlu kirkjunnar, sem aldrei tókst að ræna frá dalbúum. Til orða hefur komið að taka upp þá venju með nýju kirkjunni, að hringja klukkum hennar út yfir dalinn á sama tíma hvert einasta kvöld. Og það er trú ýmisa, að fengi gamla klukkan ekki að hljóma með, myndi hún hringja sér sjálf.
„Mín klukka, klukkan þín kallar oss heim til sín“.

Mosfellskirkja.
Kirkja stóð á Mosfelli í Mosfellsdal frá ómunatíð, þar til síðsumars árið 1888. Þá voru Mosfells- og Gufunesssóknir lagðar niður og sameinaðar Lágafellssókn og ný kirkja reist miðsvæðis, það er að segja á Lágafelli. Lágafellskirkja var vígð á fyrsta góudag 1889. Þar hafði ekki verið kirkja áður, en óljósar sagnir eru um bænahús þar á 17. öld.
Það mætti mikilli andúð í Mosfellssókn, er kirkjan þar var lögð niður. Dalbúar og Inn-Kjalnesingar vildu ekki missa Mosfellskirkju, en sóknarpresturinn, séra Jóhann Þorkelsson, síðar dómkirkjuprestur í Reykjavík, kirkjuyfirvöldin í Reykjavík og meirihluti sóknarmanna voru fylgjandi þeirri breytingu, sem gerð var, enda hnigu óneitanlega að því ýmis rök. En tilfinningar dalbúa voru andstæðar þeim rökum, og gekk svo langt, að ýmsir íbúar Mosfellsdals og Inn-Kjalnesingar höfðu fullan hug á að una henni ekki og fóru þess á leit við séra Þorkel Bjarnason á Reynivöllum, að hann gerðist kjörprestur þeirra. Af bréfum, sem fóru á milli, er ljóst, að séra Þorkell tók vel í þessa málaleitan, en til þessa kom þó ekki, og mun þessi „uppreisn“ hafa verið þögguð niður af biskupi og kirkjuyfirvöldum.

Hrísbrú – kirkjan eftir fornleifauppgröft.
Harðasta andstaðan gegn því að taka af kirkju á Mosfelli var á bæjunum í kring. Andstæðingar þeirrar nýskipunar náðu í sínar vörzlur klukku úr Mosfellskirkju, þegar hún var rifin, og munu hafa verið albúnir þess að verja gerðir sínar með afli, ef á hefði verið leitað.
Elínborg Andrésdóttir, býr nú á Hrísbrú, og þar tók ljósmyndari Vísis myndina af henni með hina sögufrægu og sigursælu kirkjuklukku á dögunum.
Þótt Mosfellingar töpuðu fyrstu orustunni í stríðinu fyrir kirkju sinni, hafa aldrei þagnað að fullu þær raddir, sem gerðu tilkall til þess að Mosfellskirkja yrði endurreist.
Fyrir þremur árum andaðist hreppstjóri Mosfellssveitar, Stefán Þorláksson í Reykjahlíð, og kom í ljós, er erfðaskrá hans var opnuð, að þessu kirkjumáli var borgið. Stefán hafði alizt upp á Hrísbrú með gömlu kirkjuklukkunni og undir áhrifamætti þeirra minninga, sem við hana og Mosfellskirkju voru bundnar. Hversu máttug þau áhrif hafa verið, má bezt marka af því, að Stefán, sem var 6-kvæntur og barnlaus stóreignamaður, stofnaði með erfðaskrá sinni sjóð af þorra eigna sinna og skyldi verja honum til að endurreisa kirkju á Mosfelli Þar með var hið mikla tilfinninga- og metnaðarmál dalbúanna komið í höfn.

Hrísbrú – fornleifauppgröftur;
Stefán lét eftir sig svo miklar eignir, að talið er að þær hrökkvi eigi aðeins fyrir byggingarkostnaði, heldur og fyrir viðhaldi og reksturskostnaði kirkjuhússins í framtíðinni. Meðal eigna þeirra, er Stefán arfleiddi kirkjusjóðinn að, er gróðrarstöð, þar sem einvörðungu eru ræktuð blóm og kirkjubyggingarsjóður rekur í samvinnu við garðyrkjumann, og má því með sanni segja, að blómin leggi sitt af mörkum til kirkjubyggingarinnar.

Mosfell – gamli bærinn og kirkjan.
Á sl. ári var efnt til verðlaunasamkeppni um teikningu að nýju kirkjunni og þrenn verðlaun veitt að tillögu dómnefndar, sem fjallaði um teikningarnar. Ekki var þó byggt eftir neinni verðlaunateikningunni, heldur eftir teikningu, sem Ragnar Emilsson gerði. Framkvæmdir við kirkjubygginguna hófust strax og klaki fór úr jörðu í vor. Nú hefur verið steyptur grunnur undir kirkjuna og verið er að slá upp fyrir kirkjuskipinu og kórnum. Nokkur hluti kirkjunnar er byggður inn í gamla kirkjugarðinn. Þar kom upp töluvert mikið af mannabeinum. Þeim var öllum safnað saman í stóra kistu, sem grafin var undir kórgólfi nýju kirkjunnar.

Mosfellsdalur – Hrísbrú fremst.
Stjórn dánargjafar Stefáns Þorlákssonar skipa sóknarpresturinn, sýslumaður og biskup landsins. Þá starfar og sérstök kirkjubyggingarnefnd, sóknarpresturinn, séra Bjarni Sigurðsson, formaður, og sést af því, hve mikið hvílir á hans herðum við þetta endurreisnarstarf.
Með honum eru í byggingarnefndinni Jónas Magnússon, safnaðarfulltrúi í Stardal, Ólafur Þórðarson, sóknarnefndarformaður Varmalandi, Ólafía Andrésdóttir, húsfreyja, Laugabóli, og Ólafur Ólafsson, læknir, Reykjalundi.
Mikil og almenn ánægja og áhugi ríkir fyrir þessari kirkjusmíði í Mosfellssveit, eins og allur aðdragandi þessa byggingarmáls hefur tilefni til, og mun vart ofmælt, að fáar nútímakirkjur á Íslandi eigi jafn sögulegan aðdraganda.
Hin nýja kirkja á Mosfelli á að rúma 110 manns í sæti. Hún stendur á brekkubrún og sér þaðan yfir dalinn. Grunnflötur forkirkjunnar myndar þríhyrning, forhliðin er þríhyrnd og allir fletir byggingarinnar þríhyrndir. Turninn verður 23 metra hár og víkur frá venju að því leyti, að hann rís upp af austurenda kirkjunnar, það er að segja upp af kórnum. Í samræmi við aðrar línur kirkjunnar, er turninn þrístrendur og opinn að nokkrum hluta.“ – E.Bj.
Í Morgunblaðinu 2004 er sagt frá „Kirkju að Hrísbrú nefnda í Eglu„:
Kirkjan að Hrísbrú er nefnd í Eglu, sbr. 89. kafla:

Hrísbrú; skáli og kirkja – tilgáta.
„Grímur að Mosfelli var skírður, þá er kristni var í lög leidd á Íslandi; hann lét þar kirkju gera. En það er sögn manna, að Þórdís hafi látið flytja Egil til kirkju, og er það til jartegna, að síðan er kirkja var gerð að Mosfelli, en ofan tekin að Hrísbrú sú kirkja, er Grímur hafði gera látið, þá var þar grafinn kirkjugarður. En undir altarisstaðnum, þá fundust mannabein; þau voru miklu meiri en annarra manna bein. Þykjast menn það vita af sögn gamalla manna, að mundu verið hafa bein Egils. Þar var þá Skafti prestur Þórarinsson, vitur maður; hann tók upp hausinn Egils og setti á kirkjugarðinn; var hausinn undarlega mikill, en hitt þótti þó meir frá líkindum, hve þungur var; hausinn var allur báróttur utan svo sem hörpuskel. Þá vildi Skafti forvitnast um þykkleik haussins; tók hann þá handöxi vel mikla og reiddi annarri hendi sem harðast og laust hamrinum á hausinn og vildi brjóta, en þar sem á kom, hvítnaði hann, en ekki dalaði né sprakk, og má af slíku marka, að haus sá mundi ekki auðskaddur fyrir höggum smámennis, meðan svörður og hold fylgdi. Bein Egils voru lögð niður í utanverðum kirkjugarði að Mosfelli.“
Í Mosfellingi 2005 er fjallað um „Fornleifauppgröft að Hrísbrú„:
Margir hafa velt vöngum um afdrif beina Egils

Stefán Þorláksson (1895-1959) hreppstjóri í Reykjadal í Mosfellssveit. Stefán var sonur Þorláks nokkurs, sem kallaður var Ösku-Láki og konu úr Eyjafirði, sem Sólrún hét. Hann ólst upp á Hrísbrú í Mosfellsdal.
„Egilssaga fjallar um þetta og víðar hefur það verið gert. Halldór Laxness stúderaði sögu Mosfellsdals á sínum tíma og færði í frásögn með sínum hætti í Innansveitarkróniku: „Kirkja hafði að öndverðu verið reist undir Mosfelli á þeim stað sem síðar hefur heitið Hrísbrú, og stóð þar uns skriða hljóp á túnið á 12tu öld; var þá flutt á hól einn leingra inn með fjallinu, Mosfellsstað sem nú heitir. Hrísbrú varð leigukot í Mosfellstúni vestan skriðunnar.
Þegar kirkjan var flutt fundust, að því er skrifað er, mannabein undir altarisstað í Hrísbrúarkirkju hinni fornu; voru þau miklu meiri en annarra manna bein og fluttu Mosdælir þau til Mosfells ásamt með kirkjunni og þóttust gamlir menn kenna þar bein Egils Skallagrímssonar.“
Í Skírni 1999 má lesa um „Kotunga í andófi„:
„Kannski birtast náin tengsl heilinda og andófs hvergi skýrar en í Innansveitarkroniku (1970). Hún er skopleg, hálf-heimildabundin lýsing á þrákelknislegu andófi bænda á Hrísbrú í Mosfellssveit gegn flutningi kirkju þeirra. Kergja Knúts gamla og Hrísbrúinga kallast á, en er ekki öll þar sem hún er séð. Erfiði var óþekkt Hrísbrúingum, þeir unnu öll sín verk áreynslulaust svo þeir sáust varla hreyfast, kunnu hvorki að flýta sér né vera of seinir og um sláttutíma var dengingarhljóðið í undarlegum samhljómi við næturkyrrðina, vakti góðar undirtektir fugla og er sú músík sem menn muna tíræðir. Hún minnir á eilífðarhljóminn í „Fugli ágarðstaurnum“. Þessir hæglátu menn brugðust ókvæða við þegar átti að taka niður Mosfellskirkju en kyndugt andóf þeirra var til einskis. Og þó ekki. Lengst inni í bænum var enn ein af þessum dularfullu og ójarðnesku konum sem víða bregður fyrir í sögum Laxness, Finnbjörg (nafnið á Boggu, ráðskonu Kjartans á Skáldstöðum), sem hafði hönd í bagga með öllum aðgerðum feðganna og andi hennar svífur yfir endurreisn kirkjunnar. Yfir rúmi hennar tifaði klukka með eilífðarhljómi.
Innansveitarkronika er einföld á ytra borði og virðist sundurlaus í byggingu. Hún rétt tæpir á söguþræði og bregður upp svipmyndum sem sögumaður í líki forvitins fróðleiksgrúskara tínir
saman. Um leið er sagan í andstöðu við hefðbundið form skáldsögunnar og leggur á borðið þá huglægni sem í frásagnaraðferðinni liggur. Sögumanni hefur tekist sá galdur að tengja fróðleiksatriði sem virðast lítilsverð. Samt er það svo að „heimildirnar“ sem virðast svo brotakenndar fá mál með sérstæðum hætti. Þegar upp er staðið blasir við margræð heildarmynd sem ekki er hægt að túlka á einn veg. Þess í stað eru margar raddir, mörg merkingarsvið í einni hljómkviðu. Innansveitarkronika er meðal annars, á sama hátt og „Fugl á garðstaurnum“, kýnískur útúrsnúningur á hugmyndafræði, stjórnkerfi, kennivaldi og auðhyggju. Í bakgrunni heyrist eilífðartónninn í túnslætti Hrísbrúarfeðga, klukku Finnbjargar og kvaki fugla.

Höfuðkúpa Egils Skalla-Grímssonar?
Haus Egils Skallagrímssonar breiðir tíma sögunnar yfir alla Íslandssöguna, bein hins heiðna skálds sem flutt voru í utanverðan kirkjugarðinn á Mosfelli herða kergjuna í Hrísbrúingum. Og í sögulok er sagan kölluð jarteinabók sem þýðir að hún er röð kraftaverka sem lyfta merkingunni yfir hið hversdagslega, gefur þannig til kynna að fleira búi undir. Sagan hefur innri byggingu áþekka Biblíunni, hnig og ris, ferli frá þjáningu til upprisu. Fuglinn sem Hrísbrúingar ólu hjá sér í tuttugu ár, erkikapítalistinn Stefán Þorláksson, var eins konar lausnari, því við lát hans reis ný kirkja á Mosfelli, hún var því rifin og endurreist. Klukkan og kaleikurinn eru trúarleg eilífðartákn. Þegar kirkjan er rifin er klukkunni sökkt til heljar, í forarpyttinn á Hrísbrúarhlaði, en hún rís upp aftur gljáfægð til að hringja Finnbjörgu til grafar og er loks sett upp í nýju kirkjunni. Kaleikurinn, graal sögunnar, er geymdur á rúmbotnum heilagra kerlinga, og hann birtist í þann mund sem lesandinn fer að undrast um hann og endar eins og klukkan, í nýju kirkjunni. Þannig er sagan full af trúarlegum vísunum og myndmáli en fáu slegið föstu um þann guðdóm sem yfir sögusviðinu svífur. Í lokin, þegar kirkjan er byggð og vígð, vefast þræðirnir saman eins og af hálfkæringi, hauskúpa Egils, Hrísbrúingar og sauðfé, kvakandi fuglar, gömlu kerlingarnar, kaleikurinn og klukkan, Íslandsklukkan með hljóm síðan úr fornöld. Og jarteinabókinni lýkur með því að spurning gömlu konunnar er endurtekin: „Getur nokkur nokkurntíma verið nokkrum trúr nema sjálfum sér“ – (Innansveitarkronika: 181-82).
Á vefsíðu Héraðskjalasafns Mosfellsbæjar má lesa eftirfarandi um Ólaf Magnússon á Hrísbrú:
Merkisbóndinn á Hrísbrú

Ólafur magnússon á Hrísbrú (1831-1915).
Ólafur Magnússon bóndi á Hrísbrú var einarður andstæðingur þess að Mosfellskirkja yrði rifin og kirkjuklukkan komst í vörslu hans eftir niðurrif kirkjunnar. Hún var geymd á Hrísbrú í meira en mannsaldur eða allt þar til ný kirkja var vígð á Mosfelli árið 1965.
Ólafur og Finnbjörg Finnsdóttir kona hans eru mikilvægar persónur í Innansveitarkroniku.

Hrísbrú – uppgröftur – skáli og kirkja.
Ljósmyndin af Ólafi er tekin í Austurstræti í Reykjavík snemma á 20. öld en engin ljósmynd hefur varðveist af Finnbjörgu.
Eyjólfur Guðmundsson frá Hvoli lýsir Hrísbrúarhjónunum þannig í endurminningum sínum: „Hvergi í Mosfellsdal hafði ég meira gaman af að koma en að Hrísbrú. Hjónin þar hétu Ólafur og Finnbjörg, kona roskin. Fyrst í stað voru þau nokkuð gróf og forneskjuleg, en glöð og gestrisin, þegar marka mátti. Það var ánægjulegt að bíða þar, meðan Finnbjörg hitaði ketilinn, og hlusta á Ólaf gamla. Var þá jafnan tilfyndnast það sem húsmóðirin lagði til málanna. Ekki var orðræðan hefluð né blíð, heldur oft stóryrt og krydduð velvöldum fornyrðum, stundum klúr.“
Ólafur barðist hatramlega gegn niðurrifi kirkjunnar að Mosfelli en varð að lúta í lægra haldi fyrir yfirvöldum árið 1888. Hann tók gömlu klukkuna úr kirkjunni til varðveislu og var hún geymd á Hrísbrú í meira en mannsaldur eða þangað til henni var komið fyrir í Mosfellskirkju sem vígð var árið 1965.
Ólafur og Finnbjörg voru hluti af aðalsögupersónum í bók Halldórs Laxness, Innansveitarkróniku.
Myndin af Ólafi er líklega tekin í kaupstaðaferð í Reykjavík kringum aldamótin 1900. Ekki er vitað til að mynd hafi varðveist af Finnbjörgu.“
Á vefsíðu Mosfellsbæjar má lesa eftirfarandi um kroniku Laxness – Innansveitarkronika – Einstök meðal verka Halldórs:

Hrísbrúarklukka í Mosfellskirkju.
„Innansveitarkronika er sérkennileg blanda af sagnfræði og skáldskap og einstök meðal verka skáldsins. Efniviðurinn er sóttur í Mosfellssveit og byggir m.a. á deilu sem varð vegna kirkjumála í Mosfellssveit á ofanverðri 19. öld. Þá náði sveitin niður að Elliðaám og kirkjur voru í Gufunesi og á Mosfelli. Kirkjuyfirvöld ákváðu hins vegar að leggja þær niður og byggja nýja kirkju miðsvæðis í sveitinni, að Lágafelli. Ekki voru allir hrifnir af þessum ákvörðunum, einkum var mikil andstaða í Mosfellsdal gegn niðurrifi Mosfellskirkju sem var alls ekki gömul bygging, byggð 1852. Ákvörðun yfirvalda varð ekki hnekkt, Mosfellskirkja var rifin árið 1888 og sama árið reis Lágafellskirkja af grunni. Hins vegar skiluðu einstakir gripir kirkjunnar sér ekki, menn söknuðu bæði kaleiks og kirkjuklukku sem var ævaforn. Kaleikurinn fannst seinna í fórum vinnustúlkunnar Guðrúnar Jónsdóttur en klukkan var geymd að Hrísbrú í tæp 80 ár. Að Hrísbrú ólst upp Stefán Þorláksson (1895-1959). Hann þekkti söguna um klukkuna og kirkjuna frá blautu barnsbeini og honum var endurreisn Mosfellskirkju mjög hugleikin þótt ekki þætti hann neinn sérstakur trúmaður. Sem fulltíða maður bjó Stefán Þorláksson lengstum í Mosfellsdal, bæði í Reykjahlíð og Reykjadal, hann komst vel í álnir og auðgaðist m.a. á sölu á heitu vatni. Samkvæmt erfðaskrá Stefáns skyldu eigur hans renna til endurreisnar Mosfellskirkju. Hún var vígð árið 1965 eins og greint er frá í síðasta kafla Innansveitarkroniku:
„4ða apríl 1965 þegar Mosfellskirkja hin nýa var vígð, gjöf Stefáns Þorlákssonar, ein fegurst kirkja og best búin sem nú stendur á Íslandi, þá bárust henni ýmsar veglegar gjafir. Flestar komu gjafir þessar frá ættmennahópum í sókninni, niðjum þeirra manna er fyrir eina tíð höfðu séð kirkju sinni er þeir trúðu á jafnað við jörð hér á hólnum.“
Fremst í Innansveitarkroniku getur höfundur þess sérstaklega að „Skírskotanir til nafngreindra manna rita skjala staða tíma og atburða þjóna ekki sagnfræðilegu hlutverki í texta þessum“. Þetta er vert að hafa í huga við lestur bókarinnar, Halldór færir til atburði og persónur í tíma og rúmi og aðlagar því verki sem hann er að skapa, og var þetta reyndar alþekkt aðferð úr verkum hans.
Eitt besta dæmið um slíkt í Innansveitarkroniku er 11. kafli bókarinnar sem heitir Sagan af brauðinu dýra. Þar segir frá vinnukonu prestsins á Mosfelli, Guðrúnu Jónsdóttur, sem hélt yfir Dalinn til að baka hverabrauð en villtist upp á Mosfellsheiði og fannst loks eftir nokkur dægur. Brauðið, sem henni hafði verið trúað fyrir, hafði hún ekki snert. Þessi kafli er nokkurs konar dæmisaga um að vera trúr yfir litlu en hér sækir Halldór hins vegar efniviðinn alls ekki í Mosfellsdal heldur á Suðurnes og var það allt önnur kona en Guðrún sem lenti í þeim hremmingum sem lýst er í bókinni.
Þrátt fyrir skáldsögulegt yfirbragð dregur Innansveitarkronika upp trúverðuga mynd af samfélaginu í Mosfellssveit á ofanverðri 19. öld. Þannig háttar til með fleiri skáldögur Halldórs Laxness, þær eru oft traustar heimildir um þá tíma sem þær gerast á.“
Guðrún Jónsdóttir

Guðrún Jónsdóttir frá Hamrahlíð (1854-1936). Ljósmyndari óþekktur. Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar úr safni Guðmundar Magnússonar.
Guðrún Jónsdóttir er þekkt persóna úr Innansveitarkroniku. Hún var fædd árið 1854 á bænum Hamrahlíð, sem var kotbýli í grennd við Blikastaði, og stundaði alla tíð vinnumennsku á ýmsum bæjum í Mosfellssveit.
Guðrún andaðist á Æsustöðum í Mosfellsdal árið 1936 og hvílir í Mosfellskirkjugarði.
Gripir úr eigu hennar eru varðveittir á bókasafni Varmárskóla.
Í Innansveitakroniku Laxness segir í 20. kapítula „Af haugbroti“:
„Þegar Finnbjörg var látin sendi Ólafur karl Andrés son sinn á fund sóknarprests Lágafellskirkju, þeirrar kirkju niðrí sveit sem var laungu orðin sóknarkirkja mosdæla að lögum. Kvaðst Ólafur vera orðinn of sjóndaufur til að grilla Lágafellspresta svo hann næði til þeirra að berja þá. Það var ennfremur í erindum Andrésar að tjá presti að faðir sinn væri í því ráðinn að grafa konu sína í mosfellskirkjugarði og réði lágafellsprestur því hvort hann hunskaðist þángað á tilteknum degi og kasta rekunum; að öðrum kosti mundi hann, Ólafur á Hrísbrú, gera það sjálfur. Er þar skemst frá að segja að ekki var tekið óljúflega í þetta mál af þartilbærum yfirvöldum.
Nú er lík húsfreyu hefur verið lagt í kistu og borið til skemmu og bærinn tómur og alt á enda kljáð, sagði Stefán Þorláksson, og líður að útfarardegi, þá kallar Ólafur bóndi á sonu sína og fósturson og leggur fyrir þá þraut.
Þess var áður getið hér á blöðunum að svöð hafi verið eigi allsmá fyrir framan hlaðstétt á Hrísbrú og hefði einginn mælt þeirra dýpt og ekki heldur verið augljós mörkin milli þeirra og fjóshaugs mikils ásamt með hlandfor sem þar vall og hafði ollið leingi. Hafði forin ekki verið tæmd til fullnustu svo menn ræki minni til. Nú bregður svo við að Ólafur bóndi sendir lið sitt í for þessa með verkfæri þau sem þurfti og lætur hefja austur og gröft; segir að eigi skal láta staðar numið fyren þeir komi niður á dýrgrip sem fólginn sé djúpt í hauginum.
Nú fara þeir til og brjóta hauginn og er gagnslaust að lýsa slíku verki hér svo lángt sem um er liðið og einginn maður veit leingur hvað hlandfor er á Íslandi. Mundi ekki svipað gilda um óþrifaleg verk einsog fyr var ritað um erfið verk? Áður fyr voru eingin verk kölluð sóðaleg nema þau sem unnin voru án vandvirkni af kæríngarlausum verkamanni og lýstu handbragði skussa og ómennis.
Hvort sem ausið var eða grafið leingur eða skemur í Hrísbrúarsvöð, þá er ekki að orðleingja það, nema seinast koma menn það lángt niður í þessari voðalegu torfæru að rekuna tekur niðri og saung í málmi þar sem hún snart við. Menn hafa hendur á gripnum og losa um hann og bera burt úr forinni og uppá dyrakamp. Nú velta þeir grip þessum fyrir sér uns þeim kemur saman um að kveðja til Ólaf bónda og spyrja hann ráða. Hann þreifar á gripnum innvirðulega um stund uns hann kennir að þetta er kirkjuklukka. Hann segir að þessa klukku skal þvo vandlega og síðan fægja. Þvínæst fór hann inní bastofu og fann kólfinn úr klukkunni á kistubotni húsfreyar sinnar.

Hrísbrúarklukka í Mosfellskirkju.
Stefán Þorláksson hefur sagt frá þeim morni er hann fór með Ólafi fóstra sínum í undanrás að Mosfelli að búa í haginn áður en líkfylgdin kæmi. Þetta var um sumarsólstöður. Gamli Rauður var sóttur í hagann og stendur á hlaðinu ærið vambmikill. Það var lagður á hann hnakkur fyrir utan opna skemmuna en þar hafði öllu drasli verið rýmt burt svo rúmt væri um kistuna. Synir Ólafs leiddu föður sinn útúr bænum en hann bar sjálfur klukkuna í fángi sér, og var klukkan fljót að fá aftur þá spansgrænu sem fylgir sönnum kristindómi.
Synir Ólafs héldu í ístaðið hjá föður sínum og hjálpuðu honum á bak þeim rauða. Síðan létu þeir klukkuna í fáng honum þannig að hann gat samt haldið sér í faxið á hestinum. Fóstursyni fólksins var síðan sagt að teyma undir gamla manni sem leið lá heim að Mosfelli og láta staðar numið þar á hólnum fyrir utan sáluhliðið í mosfellskirkjugarði. Sveitin var ekki meirensvo risin úr rekkju og vorfuglinn heiðló hljóp samsíða þeim yfir Skriðuna og blés í veika flautu en kólfurinn í klukkunni var laus og gall við með skjöllu málmhljóði þegar Rauður hnaut við steinvölu í götunni. Ólafur bóndi gerði sín ekki vart heima á Mosfellsbænum en lét fósturson sinn leiða sig að sáluhliðinu og bar enn klukkuna í fánginu. Hann sagði að binda skyldi Rauð við garðstaur svo hann færi ekki í túnið, því síðan hér hættu að vera mínir prestar beiti ég aldrei á Mosfellstún, sagði hann.

Hrísbrúarklukkan í Mosfellskirkju – upphengjan.
Þeir njörvuðu klukkuna með snærum við dyradróttina í sáluhliðinu. En með því ramböld vantaði sem bjalla verður að hafa svo hún leiki laus þegar tekið er í klukkustreinginn, og hríngíngin fái lángan tón af sveiflu, þá varð Ólafur á endanum að gera kólfinn lausan og dángla utaní klukkuna með honum. En þó hríngíng væri hljómlítil og ögn bundin var þetta þó klukknahljóð og hljómur Mosfellskirkju. Þegar líkfylgdin nálgaðist tók hann til að hríngja.

Þessa mynd tók Bjarki Bjarnason sumarið 1963, af sáluhliðinu í Mosfellskirkjugarði. Þann dag var jarðsett á Mosfelli, þótt engin væri þar kirkjan. Klukkunni, sem hafði verið varðveitt á Hrísbrú frá því á 19. öld, var ætíð hringt við greftranir á Mosfelli og krókurinn á sáluhliðinu var smíðaður sérstaklega fyrir hana.
Tveimur árum síðar var Mosfellskirkja hin nýja vígð og síðan hefur klukkan verið varðveitt þar. Í Innansveitarkroniku segir: „Það er einginn efi á því að þessi klukka geymir hljóm síðan úr fornöld. Presturinn sagðist ætla að hringja henni sjálfur við barnaskírnir af því hljómurinn í henni væri svo fallegur meðan hann væri að deya út.“
Hann linti ekki hríngíngu meðan kistan var borin um sáluhliðið. Hann hríngdi meðan fólkið var að tínast inní garðinn. Hann hríngdi meðan kistunni var sökt í jörðina og meðan presturinn var að kasta rekunum og fólkið að tínast burt frá gröfinni en rétti annars hugar þá höndina sem laus var þeim sem kvöddu hann og samhrygðust honum, uns fóstursonur hans sem sat á þúfu sagði honum að nú væri seinasti maður farinn og alt búið. Þannig hríngdi Ólafur kallinn á Hrísbrú alla sveitina inn í kirkjugarðinn á Mosfelli og útúr honum aftur.
Viku seinna fór Ólafur aftur sömu leið, að því sinni í fjórum skautum, að finna konu sína. Bogi sonur hans bar nú klukkuna á sjálfum sér fyrir kistu föður síns, festi hana í dyradróttina á sáluhliðinu einsog faðir hans hafði gert í vikunni á undan og hríngdi einsog faðir hans hafði hríngt uns lokið var, leysti síðan klukkuna af dyradróttinni og bar hana heim aftur að Hrísbrú.“
Á vefsíðu Lágafellskirkju, sbr. Mosfellskirkju er getið um „Teikningu af Mosfellskirkju„:
Teikning af Mosfellskirkju – erindi 15, mars 2015:
„Vegfarendur um Mosfellsdal veita athygli sérkennilegri byggingu sem vakir yfir byggðinni í dalnum á hinum forna kirkjustað, Mosfelli. Þetta óvenjulega guðshús, sem senn verður hálfrar aldar gamalt, er með athyglisverðari dæmum í þróunarsögu kirkjubygginga hér á landi. Sagan af því hvernig að kirkjuhúsið fékk á sig þessa mynd er ekki síður forvitnileg en aðdragandinn að byggingunni sjálfri. Svo vel vill til að fundargerðarbók byggingarnefndar hefur varðveist, samviskusamlega skráð af Jónasi Magnússyni í Stardal. Fundargerðirnar eru mikilvæg heimild um tilurð teikningarinnar af Mosfellskirkju, en flestum lýkur þeim með eftirfarandi orðum: „Fleira ekki tekið fyrir – fundi slitið. Síðan sest að kaffidrykkju í boði prestshjónanna á Mosfelli.“

Mosfellskirkja.
Alkunn er sagan af því hvernig það kom til að Mosfellskirkja var eldurreist fyrir 50 árum síðan. Kirkjurnar að Mosfelli og Gufunesi voru aflagðar og rifnar árið 1888 þegar sóknirnar voru sameinaðar. Ný, sameiginleg kirkja reis ári síðar á Lágafelli, misvæðis í byggðinni. Gamla Mosfellskirkjan, sú sem rifin var, var timburkirkja, smíðuð 1853 af Bjarna Jónssyni snikkara. Hann smíðaði tvær kirkjur í Grímsnesi sem enn standa, Mosfellskirkju og Búrfellskirkju.

Mosfellskirkja 2022.
Sameining sóknanna og niðurrif kirkjunnar á Mosfelli var andstæð vilja margra bænda í Mosfellsdal. Þessi saga er rauður þráður í seinni hluta Innansveitarkróníku Halldórs Laxness, en í þeirri bók er kirkjan að Mosfelli ein aðalpersóna verksins. Munaðarlaus drengur, Stefán Þorláksson að nafni, ólst upp á Hrísbrú þar sem klukka hinnar horfnu kirkju var geymd. Hann eignaðist jörðina Reykjahlíð árið 1933 og seldi hana Reykavíkurbæ 1947 ásamt heitavatnsréttindum. Á þessum og fleiri viðskiptum efnaðist hann vel og byggði sér íbúðarhúsið Reykjadal í Mosfellsdal, ásamt gróðurhúsum. Hann var hreppstjóri um skeið, framtakssamur og vinsæll í sinni sveit. Stefán, sem var ókvæntur og barnlaus, lést í júlí 1959. Í erfðaskrá gaf hann meirihluta eigna sinna til kirkjubyggingar að Mosfelli í Mosfellsdal.“
Sjá einnig HÉR.
Heimildir:
-Morgunblaðið, 57. tbl. 10.03.1983, Kirkjuklukka frá 13. öld…, bls. 24-25.
-Vísir, 112. tbl. 17.09.1962, Klukkan kallar, bls. 9 og 10.
-Morgunblaðið, 210. tbl. 05.08.2004, Kirkja að Hrísbrú nefnd í Eglu, bls. 6.
-Mosfellingur, 10. tbl. 19.08.2005, Fornleifauppgröftur að Hrísbrú, bls. 12-13.
-Skírnir 01.09.1999, Kotungar í andófi, bls. 278-281.
-Héraðskjalasafn Mosfellsbæjar – http://www.hermos.is/forsida/frettir/frett/2017/09/25/Olafur-Magnusson-1831-1915-fra-Hrisbru/
-Bókasafn Mosfellsbæjar – http://www.bokmos.is/laxnessvefur/kronikan/
-Innansveitakrinika – http://innansveitarkronika.is/kafli/20
-Egilssaga – 20. kafli.
-https://www.lagafellskirkja.is/kerfi/wp-content/uploads/2015/04/Mosfellskirkja.pdf

Mosfellskirkja.
Hrísbrú – kirkjuklukkan

Kolviðarhóll III
Birna Lárusdóttir skrifaði um „Ölfushrepp og Kolviðarhól“ í Bændarblaðið árið 2025:
Skáli Ingólfs í Skálafelli, fornleif með vísan í Landnámu. Þarna ku Ingólfur hafa haft geldneyti og ræktað korn á Gullakri.
„Lýsing Ölveshrepps eftir Hálfdan Jónsson lögréttumann frá 1703 er merkilegt plagg. Það er talið ritað að undirlagi Árna Magnússonar handritasafnara en kunnugt er að hann hafði mikinn áhuga á lýsingum örnefna og staðháttum og slíkt efni er einmitt uppistaðan í þessu riti. Hér er meðal annars sagt frá landslagi þannig að manni finnst nánast eins og hægt sé að ferðast með Hálfdani um héraðið fyrir 300 árum. Sagt er frá byggðarlögum, leiðum og ferjustöðum, kennileitum tengdum Íslendingasögum, slægjulöndum, upprekstri nauta á afrétt; frá „arnanna híbýli“ einhvers staðar við Gnúpastíg og síðast en ekki síst frá meintum skála Ingólfs Arnarsonar á Skálafelli og haugi hins sama á Ingólfsfjalli. Þannig vakir minning landnámsmannsins yfir landslaginu.
Hellisheiðarvegur – gamla þjóðleiðin.
Í lýsingunni er m.a. fjallað um afrétt Ölfushrepps en hluta hans þekkja líklega flestir í dag undir nafninu Hellisheiði þótt upphaflega hafi það heiti bara verið notað um háheiðina. Afrétturinn er ekki síst merkilegur fyrir það að þar lágu miklar og fjölfarnar samgönguæðar rétt eins og nú, enda liggur hann milli þéttbýlla byggða sem talsverð hreyfing var á milli m.a. vegna verslunar, ferða til og frá verstöðvum o.fl. Samgöngukerfið var þó auðvitað með allt öðrum hætti en nú og fáum hefði til dæmis dottið í hug að fara gangandi eða ríðandi um Svínahraun þar sem bílvegurinn liggur nú vestan við háheiðina, enda úfið og hrikalegt. Einn þeirra merkilegu staða sem Hálfdan nefnir og er til vitnis um gamlar ferðaleiðir er einmitt töluvert norðan við hraunið, þar sem aðalþjóðleiðin austur yfir heiði lá lengst af, meðfram hraunbrúninni og upp svonefnt Hellisskarð. Þetta er sæluhúsið undir Húsmúla. Um það segir Hálfdan:
Draugatjörn – sæluhúsið.
„Á norðanverðum Hvannavöllum, er strax taka til fyrir neðan skarðið, stendur sælhús (ei langt frá veginum) so kallað, hverju allt til þessa tíma Ölves innbyggjarar hafa uppi haldið vegfarandi fólki harla nauðsynleg á vetrartímanum til innvistar. Er og lofsvert, að þetta sælhús ei niður falli.“ Þetta er ein elsta heimild um sæluhús á Íslandi. Leifar hússins sjást enn vel, á litlum hól austan við svonefnda Draugatjörn sem leynist rúmum kílómetra fyrir vestan Hellisheiðarvirkjun. Þarna kúrir lágreist, grasi vaxin tóft uppi á hól við tjörnina og ef vel er að gáð sjást hlaðnar vörður bæði til austurs og vesturs frá henni.
Kolviðarhóll – fyrsta sæluhúsið.
Fátt er vitað um aldur hússins annað en að það var í notkun á tímum Hálfdanar (og hugsanlega löngu fyrr) og allt til ársins 1844 þegar nýtt sæluhús úr timbri var reist á Kolviðarhóli sem er austar, fast norðan við stöðvarhús Hellisheiðarvirkjunar. Metnaður manna fór ört vaxandi á næstu áratugum sem og krafan um öryggi á ferðalögum. Sigurður málari Guðmundsson setti raunar fram stórkostlegar hugmyndir að húsi á staðnum upp úr 1870, með háum turni sem ljós logaði í – eins konar vita. Þar vildi hann auk þess hafa veitingasölu, láta þeyta lúðra þriðja hvern tíma til að leiðbeina villtum ferðamönnum og hafa alpahunda til taks, m.ö.o. björgunarhunda.
Hellisheiðavirkjun.
Þessi hugmynd Sigurðar rættist ekki þótt tæpum 60 árum síðar risi raunar afar glæsilegt hús á Kolviðarhóli sem margir muna enn eftir, teiknað af Guðjóni Samúelssyni. Það var rifið árið 1977 en þá hafði Kolviðarhóll lengi verið úr alfaraleið eftir að vegurinn var fluttur sunnar á heiðina og húsið komið í skelfilega niðurníðslu.
Sennilega yrði Hálfdan lögréttumaður steinhissa ef við byðum honum að skjótast með okkur yfir heiðina í dag. Svæðið umhverfis þessa gömlu og fjölsóttu áningarstaði tekur sífellt á sig meiri mynd iðnaðarsvæðis. Hleðslur á borð við vörður hafa færst í bakgrunninn en við Kolviðarhól, þar sem áður var hægt að fá heytuggu fyrir fararskjótann, er nú hægt að fá hleðslu fyrir bílinn. Enn má vel rekja gömlu leiðina sem lá yfir háheiðina en þar sjást nú ekki bara vörðubrot og djúpar götur heldur hafa háspennulínur og aðveituæðar að stöðvarhúsinu tekið við sem ráðandi þættir í landslaginu.“
Gengið um Hellisskarð.
Á vefmiðlinum „https://midbaerselfoss.is/hus/kolvidarholl/ er m.a. fjallað um Hellisskarð, 1929-1977“:
„Fyrr á tímum kom Suðurlandsvegur í austurátt niður af Hellisheiði um svonefnt Hellisskarð og þar framhjá Kolviðarhóli. Varð hóllinn vinsæll áningarstaður fyrir ferðalanga og árið 1844 var reist þar sæluhús sem þótti versti hjallur. Árið 1877 var þar byggt reisulegra gistihús, oft nefnt Kolviðarhóll I, fyrir forgöngu framámanna í íslenskri menningu á borð við Sigurð Guðmundsson málara og Matthías Jochumsson skáld. Á allra vitorði var hve mikilvægt væri að geta leitað í öruggt hús á þessari mikilvægu þjóðleið.
Hálfri öld síðar þurfti enn að huga að húsakosti á Kolviðarhóli. Þá höfðu hjón ein tekið við bú- og gistirekstri, Valgerður Þórðardóttir (1871-1957) og Sigurður Daníelsson (1868-1935).
Valgerður Þórðardóttir (1871-1957).
Valgerður var frá Traðarholti í Stokkseyrarhreppi en hélt þaðan vorið 1903 í atvinnuleit til Austfjarða og lagði af stað fótgangandi til Reykjavíkur. Veður var vont á leiðinni yfir heiðina og því kærkomið að æja að Kolviðarhóli. Húsráðanda leist einkar vel á gestinn og bauð honum strax að taka við starfi matreiðslukonu staðarins. Valgerður krafðist hins vegar hærra kaups en þekktist, þegar því var hafnað bjóst hún til ferðar með orðunum „gott og vel, þá er því sleppt.“ Valgerður hafði þó rétt náð niður af hólnum þegar húsráðandi kom hlaupandi og sagðist ganga að launakröfunum. Upp frá því var hún kennd við Kolviðarhól.
Fjórum árum síðar festi Sigurður Daníelsson frá Herríðarhóli í Holtum kaup á Kolviðarhóli. Ráðskonan fylgdi með kaupunum enda kunn um sveitir fyrir einstaka atorkusemi og hjálpsemi í garð örmagna ferðalanga sem börðu dyra. Stuttu síðar gengu þau Sigurður og Valgerður í hjónaband.
Kolviðarhóll.
Árið 1925 þurfti sem fyrr segir að huga að endurnýja gistihúsið á Kolviðarhóli. Einstakur metnaður einkenndi uppbyggingarstarf þeirra hjóna og helsti arkitekt landsins ráðinn til að hanna húsið, Guðjón Samúelsson húsameistari ríkisins. Hann hafði þá gert tilraunir til að endurvekja burstabæjarstílinn með nýju byggingarefni, þ.e. steinsteypunni, og er Héraðsskólinn á Laugarvatni fagurt dæmi frá sama tíma. Þóttu burstirnar fara einkar vel á háreistum byggingum með fjallshlíðar í bakgrunni. Nokkurs nýnæmis gætti í hönnun Guðjóns fyrir Kolviðarhól. Í fyrsta lagi var miðburstin mjórri og örlítið lægri en hinar og í öðru lagi lá kvistur þvert í gegnum burstirnar þrjár.
Kolviðarhóll.
Sigurður málari hafði talað fyrir því á ofanverðri 19. öld að sæluhús á Kolviðarhóli ætti að státa af háum turni þar sem logandi ljós myndi vísa ferðalöngum veginn. Sá leit aldrei dagsins ljós en hér, á byggingu sem oft var nefnd Kolviðarhóll II, mátti láta ljós loga í efstu gluggum burstanna.
Kolviðarhóll.
Þetta varð 140 fermetra hús með kjallara, hæð og risi. Alls voru herbergin 20 talsins, sex í kjallara, önnur sex á miðhæð auk tveggja veglegra stofa og undir súðinni í burstunum voru átta svefnherbergi. Í kjallaranum var jafnframt miðstöðvarketill sem sá um að hita upp húsið og ljósavél fyrir raflýsingu. Þótti þetta allt nýstárlegur húsakostur enda nam kostnaðurinn 70.000 krónum sem þótti stórfé. Sigurður og Valgerður fjármögnuðu sjálf yfir 80% en fengu 12.000 kr. styrk úr ríkissjóði sem hefur greinilega litið svo á að mikilvægt væri að tryggja góðan húsakost við þessa mikilvægu þjóðleið.
Þetta glæsilega hús, við brún Hellisheiðar, stóð fullbúið 1929 og varð strax þekkt fyrir að standa opið öllum ferðalöngum um nótt sem nýtan dag; matur og drykkur í boði jafnt sem hestur og fylgdarmaður til taks.
Sigurður Daníelsson (1868-1935).
Eftir fráfall Sigurðar Daníelssonar 1935 annaðist Valgerður Þórðardóttir ein rekstur Kolviðarhóls en 1938 keypti Íþróttafélag Reykjavíkur húsið. Var ætlunin að byggja þar upp miðstöð æfingasvæðis fyrir vetraríþróttir ásamt því að þjónusta áfram ferðamenn.
Þessi áform gengu ekki eftir og því drabbaðist húsið smátt og smátt niður en varð vinsælt í skemmtanalífi breskra og bandarískra hermanna á hernámsárunum og í dagblöðum var slegið upp fyrirsögnum þar sem Kolviðarhóll var nefndur „miðstöð fyrir telpnaveiðar hernámsins.“ Öll starfsemi lagðist að lokum af árið 1952, húsið varð fyrir barðinu á þjófum og skemmdarvörgum og leit hóllinn og nálægar byggingar út eins og átaksvæði. Að lokum var Kolviðarhóll jafnaður við jörðu fyrir tilstilli borgarverkfræðings sumarið 1977, vakti verknaður þessi litla athygli en þó sló Tíminn upp frétt um málið 14. júlí þar sem klykkt var út með eftirfarandi vangaveltu: „Umhugsunarefni er hvort ekki sé þar verið að brjóta niður minjar sem eftirsjá er í.“
Heimildir:
-https://www.bbl.is/lif-og-starf/lif-og-starf/kolvidarholl-og-nagrenni
-https://midbaerselfoss.is/hus/kolvidarholl/
-Þorsteinn Jósepsson og Steindór Steindórsson: Landið þitt Ísland H-K. Reykjavík 1980.
-Kristinn Magnússon: Hengill og umhverfi. Fornleifaskráning. Skýrsla 2007.Lesbók Morgunblaðsins 31.3.2001.
Kolviðarhóll.
Fyrsti íbúi á Suðurnesjum – Njáll Benediktsson
Njáll Benediktsson skrifar um „Fyrsta íbúann á Suðurnesjum“ í Faxa árið 1989:
Skáli.
„Það er haft fyrir satt, að Steinunn gamla frændkona Ingólfs Arnarsonar landnámsmanns hafi verið fyrsti íbúi á Suðurnesjum. Ingólfur nam land í Reykjavík árið 874. Ingólfur helgaði sér allt land norðan vatna.
Gufuskálar – óskilgreind skálatóft á hól.
Ingólfur vildi gefa Steinunni gömlu frændkonu sinni allt land frá Hvassahrauni og suður, norðan megin við Faxaflóa, en Steinunn vildi heldur gera við Ingólf kaup. Taldi slíkt haldbetra er fram liði og borgaði skagann með hlut, sem „flekka“ var nefnd. Enginn veit með vissu hvað þessi hlutur var. Kannski var þetta vaðmálsflík eða prjónaflík? Það má geta þess að formenn notuð höfuðfat, sem náði yfir allt höfuðið og niður á herðar. Það voru aðeins göt fyrir augu, nef og munn. Þetta var kallað „flekka“. Svo breyttust þessar höfuöflíkur og allt andlitið kom fram, þá var farið að kalla þessar höfuðflíkur hettur og síðar lambhúshettur. Steinunn gamla mun hafa byggt sér skála á Steinum í Leiru, sem síðar hét Hólmur og enn síðar Stóri-Hólmur.
Steinunn gamla.
Steinunn gamla var dugmikil kona. Hún hafði fyrstu verstöð við Faxaflóa. Að vísu var hún búin að leyfa Katli gufu Örlaugssyni að byggja skála að Gufuskálum í Leiru og hafði hann þaðan útræði í tvo vetur.

Steinunn gamla vildi koma Katli gufu í burtu og fékk Ingólf frænda sinn í lið með sér. Fór þá Ketill inn í Gufunes við Reykjavík og síðar upp í Gufudal. Sennilega hafði Ketill gufa Örlygsson útræði á Gufuskálum á Snæfellsnesi. En Steinunn gamla hélt sinni verstöð við Faxaflóa.
Steinunn gamla var gift kona, þegar hún kom til íslands. Maður hennar hét Herlaugur Kveldúlfsson. Hann var bróðir Skallagríms Kveldúlfssonar. Herlaugur kom aldrei til íslands. Hann fórst í víking við England, eins og það var kallað.
Herlaugur og Steinunn gamla áttu tvo syni, sem vitað er um, annar hét Arnór og hinn hét Njáll. Sennilega hafa þessir bræður komið til Íslands þó ekki sé hægt að finna hvar þeir bjuggu. Það er eins og það vanti heila öld á spjöld sögunnar, frá 930-1030.
Gufuskálar – uppdráttur ÓSÁ.
Það er eins og eldgos hafi geisað á þessari öld á Suðurnesjum, sem valdið hafi mengun og mannflótta þaðan. Ég hefi verið að velta því fyrir mér hvort það gæti staðist, að Njáll Herlaugsson hafi getað átt son á Íslandi, sem skírður var Þorgeir og þessi Þorgeir hafi svo átt son, sem skírður var Njáll og þar sé kominn Njáll Þorgeirsson fyrrum bóndi að Bergþórshvoli í Landeyjum. Með vissu vitum við það, að Njáll bóndi á Bergþórshvoli var fæddur árið 935. Hann kafnaði inni í brunanum á Bergþórshvoli árið 1010, þá 75 ára gamall. Njáll var oft ráðagóður. Hann ætlaði að bjarga sér og Bergþóru konu sinni og breiddi yfir þau skinnhúðir. Ætlaði að verja þau fyrir hita á meðan bærinn brann. En þar feilaði Njáli. Það vantaði loft undir húðirnar, þess vegna fór sem fór.
Kannski er nú allt þetta draumarugl, sem ekki hefur við nein rök að styðjast.
Eitt er víst, Suðurnesjamenn góðir, að það er kominn tími til þess, að reisa Steinunni gömlu minnisvarða og staðsetja hann á klöppunum fyrir ofan Steina í Leiru. Gerðahreppur á býlið Steina. Það ætti að vera auðvelt að fá lóð undir styttuna. Nú á þessu ári 1989 ættu Njarðvíkurbær, Keflavíkurbær og Gerðahreppur að sameinast um að reisa Steinunni gömlu minnisvarða.“ – Garði 20. apríl 1989; Njáll Benediktsson.
Heimild:
-Faxi, 4. tbl. 01.04.1989, Fyrsti íbúi á Suðurnesjum, Náll Benediktsson, bls. 120-121.
-Faxi, 10. tbl. 01.12.1967, Skipstrand í Höfnum fyrir 85 árum – Rabbað við Friðrik Gunnlaugsson, 95 ára sækempu, bls. 156-163.
Leiran – uppdráttur ÓSÁ.
Fossvogur – skipsflak II
Á Vísindavef HÍ má lesa eftirfarandi um skipsflakið í norðanverðum Fossvogi austan Nauthólsvíkur:
Togarinn Óli Garða, GK 190.
„Skipsflakið sem liggur í flæðarmálinu í norðanverðum Fossvogi er af togaranum Óla Garða GK-190. Þar hefur það verið frá árinu 1953, þegar skipið var selt til niðurrifs, eftir að hafa slitnað upp af ytri bryggjunni í Hafnarfirði í miklu hvassviðri í október 1953 og strandað á skeri utan við Dysjarfjöru í Garðahverfi.
Samkvæmt upplýsingum úr fornleifaskrá fyrir Hlíðar – borgarhluta 3 í Reykjavík þá er skipsflakið í flæðarmálinu innarlega í norðanverðum Fossvogi af togaranum Óla Garða GK-190. Skip þetta mun hafa verið 49. togarinn í eigu Íslendinga, smíðaður í Lehe í Þýskalandi árið 1921 eða 1922 – heimildum ber ekki saman. Togarinn var upphaflega nefndur Otur RE-245 og gerður út af Otur h.f. í Reykjavík en seldur til Hrafna Flóka h.f. í Hafnarfirði árið 1938 og fékk þá heitið Óli Garða.
Óli Garða – flakið í Fossvogi.
Skipsflakið í flæðarmálinu innarlega í norðanverðum Fossvogi er af togaranum Óla Garða GK-190. Hann slitnaði upp af ytri bryggjunni í Hafnarfirði í miklu hvassvirði 1953 og strandaði á skeri utan við Dysjarfjöru í Garðahverfi. Tveimur árum síðar var Óli Garða seldur til niðurrifs og endaði í fjörunni í Fossvogi.

Óli Garða í Fossvogi.
Óli Garða komst nokkrum sinnum í fréttir íslensku blaðanna á árum seinni heimsstyrjaldarinnar enda var ýmislegt sem áhafnir skipa á þeim tíma þurftu að bregðast við til viðbótar við þær venjulegu áskoranir sem sjómenn gátu staðið frammi fyrir í störfum sínum.
Í maí 1940 fór Óli Garða í viðburðaríka siglingu með fisk til Bretlands. Við upphaf ferðar hjálpaði áhöfnin færeysku skipi sem hafði slitnað frá bryggju í Hafnarfirði í hvassviðri og var í mikilli hættu. Nokkrum dögum seinna, þegar Óli Garða var staddur um 35 sjómílur undan vesturströnd Skotlands, sigldu skipverjar fram á breskan flugbát sem hafði neyðst til að lenda á sjónum vegna bilunar. Þegar skipið kom að var sjö manna áhöfn flugbátsins búin að velkjast um í fjóra tíma og reyna að gera vart við sig án árangurs.
Fossvogur – skipsflak.
Áhöfninni var bjargað um borð, flugbáturinn tekinn í tog og dreginn til Tiree-eyju við norðvesturströnd Skotlands áður en haldið var áfram til Fleetwood þar sem aflinn var seldur. Þess má geta að áhöfnin á Óla Garða fékk síðar viðurkenningu frá bresku stjórninni fyrir þessa björgun.
Óvæntum uppákomum í ferðinni var þó ekki lokið því á heimleiðinni sigldi Óli Garða fram á línuveiðarann Jarlinn mitt á milli Vestmannaeyja og Reykjaness. Jarlinn, sem einnig var að koma frá Englandi, hafið misst skrúfuna og var ósjálfbjarga á reki. Óli Garða kom honum til aðstoðar og dró til hafnar.
Þetta var ekki í eina skiptið sem Óli Garða dróg skip til hafnar. Í mars 1942 aðstoðaði skiptið mótorbátinn Ægi sem hafði verið í miklum vandræðum í tvo daga eftir að leki kom að bátnum og illa gekk að sigla til lands. Óli Garða kom að bátnum um 35 sjómílur norðvestur af Öndverðarnesi, tók Ægi í tog og kom honum til hafnar.
Fossvogur – skipsflak.
Síðla árs árið eftir komst Óli Garða aftur í fréttir þegar hann lenti í árekstri við flutningaskip. Í frétt í Morgunblaðinu 30. desember 1943 segir:
Óli Garða var á leið til Englands, er áreksturinn varð. Var skipið statt alllangt undan Aberdeen, er áreksturinn varð milli þess og 4000 tonna flutningaskips. Flutningaskipið sökk. Óli Garða varð fyrir miklum skemmdum, en komst þó af eigin rammleik til hafnar. Ekkert tjón varð þó á skipshöfn Óla Garða, en ekki er fullkunnugt um, hvort tjón varð á skipshöfn flutningaskipsins.
Óli Garða í Fossvogi.
Enn voru sagðar fréttir af Óla Garða 1944 þegar áhöfnin kom togaranum Þorfinni til bjargar um 180 mílur út af Suðureyjum. Skipin tvö höfðu verið í samfloti á leið til Englands þegar Þorfinnur bilaði og varð ósjálfbjarga. Í Alþýðublaðinu 8. mars 1944 lýsir Jón Stefánsson skipstjóri Óla Garða atburðunum svona:
Veður var mjög slæmt, er Þorfinnur bilaði eða um 8 vindstig, en okkur tókst þó að koma vírum á hann. Veður var enn slæmt í heilan sólarhring, en síðan batnaði veðrið. Höfðum við skipið í eftirdragi í þrjá sólahringa, en komum því svo í höfn í Englandi og höfðum við þá farið með skipið um 400 mílna leið.
Óli Garða í Fossvogi.
Næstu árin er fátt fréttnæmt af Óla Garða fyrr en í október 1953. Þá er greint frá því í dagblöðum að togarinn hafi slitnað upp af ytri bryggjunni í Hafnarfirði í miklu hvassviðri og strandað á skeri utan við Dysjarfjöru í Garðahverfi. Á þessum tíma hafið Óli Garða legið í um tvö ár við bryggju. Um mánuði síðar má lesa frétt í Vísi þess efnis að Óli Garða hafi verið seldur til niðurrifs og sé nú uppi í fjöru í Fossvogi.
Í dag, meira en sjö áratugum eftir að togarinn var fluttur í Fossvoginn til niðurrifs, má enn sjá leifar hans þar.
Einhver kynnu að halda rétt heiti væri Óli Garðar og r-ið hafi gleymst hér. Svo er þó ekki samanber frétt í Alþýðublaðinu 30. desember 1938: „Skipið skiptir um nafn og heitir nú „Óli Garða“. Er það látið heita í höfuðið á öldruðum sjómanni í Hafnarfirði, sem lengi var í Görðum á Álftanesi, kunnur formaður, afburða aflamaður og hinn mesti sjósóknar.“
Sjá meira um skipsflakið HÉR:
Heimild:
-https://www.visindavefur.is/svar.php?id=73173&fbclid=IwY2xjawP9enhleHRuA2FlbQIxMABicmlkETFoZlVNdG1FczNhSndnUzk3c3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHo6L3t8R4r-aQA7yrDiO-fwD5gh8wFyc1T0p7az98VP_GbPFRi2kYR4_LceF_aem_HOSmMP66Cev8EEqL3eOWXA
Óli Garða í Fossvogi.
Kirkjan á Hrísbrú – var Egill rændur silfrinu?
Í Mosfellingi árið 2006 er fjallað um „Kirkjuna á Hrísbrú„. Ekki er úr vegi, að því tilefni, að fjalla svolítið um einn þekktasta íbúann þar sem og spurninguni hvað varð um silfursjóð hans á gamals aldri.
Kirkjan á Hrísbrú
Mosfellsdalur – Hrísbrú fremst.
„Undanfarin ár hefur staðið yfir fornleifauppgröftur að Hrísbrú í Mosfellsdal. Rannsóknin hefur leitt margt merkilegt í ljós m.a. um kirkju á Hrísbrú. Hrísbrú er ein af fimm jörðum í Mosfellsbæ þar sem heimildir eru fyrir að kirkja hafi staðið. Á tveimur jörðum stendur kirkja enn þann dag í dag, á Lágafelli og á Mosfelli. Hinar jarðirnar eru Suður-Reykir og Varmá.
Kirkjuna á Mosfelli mætti kalla aðalpersónu Innansveitarkroniku. Þar átti Egill Skallagrímsson að hafa geymt kistur sínar „sem sagan kallar silfurkistur af einhverskonar feimni en ég held áreiðanlega að hafi verið gullkistur.“ Þar hafa kirkjur verið reistar og rifnar aftur niður í gegnum aldirnar, nú síðast með þeim atburðum sem sagt er frá í Innansveitarkroniku. Í dag stendur þar kirkja sem vígð var árið 1965, teiknuð af Ragnari Emilssyni og byggð fyrir fé sem Stefán Þorláksson ráðstafaði til byggingar kirkju á Mosfelli eftir sinn dag.
Í Egilssögu segir að kirkja sem reist var á Hrísbrú er kristni var lögtekin hafi verið flutt að Mosfelli.

Í gegnum tíðina hafa verið nokkrar vangaveltur um hvar fyrsti bærinn á Mosfelli stóð. Kristian Kålund segir í verki sínu Bidrag til en historisktopografi sk Beskrivelse af Island, sem gefin var út 1877 að hann álíti að bærinn hafi upphaflega staðið á Hrísbrú ásamt kirkjunni. Síðan hafi bærinn verið fluttur að Mosfelli og kirkja á eftir. Sigurður Vigfússon ræðir þetta mál einnig í Árbók hins íslenska fornleifafélags 1884-1885, en kemst að annarri niðurstöðu en Kålund. Álítur hann, frásögn Egilssögu um kirkju á Hrísbrú, sem seinna var flutt að Mosfelli, rétta.
Um bæjarflutning og þar með nafnbreytingu var ekki að ræða. Í útgáfu sinni að Egils sögu (Rvk. 1933) telur Sigurður Nordal líklegast, að kirkjan hafi fyrst verið byggð fjarri bænum að Mosfelli, en seinna verið flutt að bænum og hjáleigan Hrísbrú byggð á gamla kirkjustaðnum.
Menn hafa leitt að því líkur að kirkja hafi staðið á Hrísbrú í um 150 ár. Hún var reist er kristni var lögtekin, þ.e. í kringum árið 1000.
Kirkja var hins vegar risin á Mosfelli í tíð Skapta prests Þórarinssonar sem uppi var um miðja 12. öld og því hafa menn ályktað sem svo að þá hafi verið búið að flytja kirkjuna frá Hrísbrú. Talsvert hefur verið skrifað um staðsetningu hinnar fornu Hrísbrúarkirkju. Um þetta segir Magnús Grímsson í Safni til sögu Íslands og íslenzkra bók mennta að fornu og nýju, sem gefin var út í Kaupmannahöfn og Reykjavík árið 1886:
Hrísbrú – skáli (fornleifauppgröftur 2008).
„Það er varla von, að nein viss merki sjáist nú Hrísbrúarkirkju, eptir hérumbil 700 ára tíma. En þó eru þar nokkur vegsummerki enn, sem styðja söguna. Skammt útnorðr frá bænum á Hrísbrú, norðan til við götu þá, er vestr liggur um túnið, er hólvera ein, hvorki há né mikil um sig. Það er nú kallaðr Kirkjuhóll. Stendur nú fjárhús við götuna, landsunnan megin í hóljaðri þessum. Þegar menn athuga hól þenna lítr svo út, sem umhverfis hann að vestan, norðan og austan, sé þúfnakerfi nokkuð, frábrugðið öðrum þúfum þar í nánd. Þetta þúfnakerfi á að vera leifar kirkjugarðsins (því kirkjan á að hafa staðið á hólnum) og er það alllíkt fornum garðarústum. Innan í miðju þúfnakerfi þessu á kirkjan sjálf að hafa staðið, og þar er varla efunarmál, að þar hafi til forna eitthvert hús verið. Eigi er hægt að ætla neitt á um stærð rústar þessarar …
Hrísbrú – fornleifauppgraftarsvæðið.
Tveir steinar sáust uppi á hólnum, sokknir í jörð að mestu; voru þeir teknir upp haustið 1857, og líta út fyrir að hafa verið undirstöðusteinar, óvandaðir og óhöggnir, en ekki alllitlir; má vera að þeir hafi verið í kirkjunni. Við upptekníng steina þessara sýndist svo, sem moldin í hólnum væri lausari og mýkri,(?) en í túninu fyrir utan hólinn. Það mun því efalaust, að kirkja Gríms Svertíngssonar hafi hér staðið. Annarsstaðar getr hún varla hafa verið á Hrísbrú, enda bendir og nafnið, Kirkjuhóll, á að svo hafi verið. Hefir þar og verið kirkjustæði allfagrt, en ekki mjög hátt.“
Á árunum upp úr 1980 fór fram fornleifaskráning í Mosfellsbæ á vegum Þjóðminjasafns Íslands. Þar er sagt frá einni sporöskjulaga rúst og tveimur ferhyrningslaga tóftum á Kirkjuhóli. Allar eru tóftirnar þó ógreinilegar. Um það segir skrásetjari: „Almennt má segja um Kirkjuhól, að hann er mjög rústalegur að sjá. Mjög erfitt er samt að koma öllu heim og saman. Er hólkollurinn allþýfður og eflaust má sjá það út úr þessu, sem menn langar helst til.“
Nú er sem sagt fengin niðurstaða í málinu. Þær fornleifarannsóknir sem stundaðar hafa verið á Hrísbrú undir stjórn Jesse Byock á undanförnum árum hafa leitt í ljós að kirkja var reist á Hrísbrú í frumkristni og að hún stóð á Kirkjuhóli.“ – Kristinn Magnússon, fornleifafræðingur.
Í Mosfellingi árið 2005 er fjallað um fornleifauppgröftinn að Hrísbrú:

„Margir hafa velt vöngum um afdrif beina Egils.
Egilssaga fjallar um þetta og víðar hefur það verið gert.
Á Hrísbrú, næsta bæ við Mosfell bjó Ólafur Magnússon bóndi ásamt fjölskyldu sinni; Fimmbjörgu konu sinni og sonum þeirra. Kirkjan í Mosfellsdal var fyrst reist á þjóðveldisöld þar sem nú heitir Hrísbrú, en var samkvæmt Innansveitarkroniku flutt að Mosfelli þegar skriða féll á túnið. Fornleifauppgröftur hefur staðið yfir á Hrísbrú frá árinu 1995 og hafa fundist leifar um hina fornu kirkju á svonefndum kirkjuhól.
Halldór Laxness stúderaði sögu Mosfellsdals á sínum tíma og færði í frásögn með sínum hætti í Innansveitarkróniku: „Kirkja hafði að öndverðu verið reist undir Mosfelli á þeim stað sem síðar hefur heitið Hrísbrú, og stóð þar uns skriða hljóp á túnið á 12tu öld; var þá flutt á hól einn leingra inn með fjallinu, Mosfellsstað sem nú heitir. Hrísbrú varð leigukot í Mosfellstúni vestan skriðunnar. Þegar kirkjan var flutt fundust, að því er skrifað er, mannabein undir altarisstað í Hrísbrúarkirkju hinni fornu; voru þau miklu meiri en annarra manna bein og fluttu Mosdælir þau til Mosfells ásamt með kirkjunni og þóttust gamlir menn kenna þar bein Egils Skallagrímssonar.“
Eins og flestir vita hefur staðið yfir á Hrísbrú í Mosfellsdal stórmerkur fornleifauppgröftur undanfarin sumur. Uppgreftrinum hefur verið stjórnað af fornleifafræðingnum Jesse Byock. Jesse er prófessor í norrænum fræðum við Kaliforníuháskóla og kom til íslands í fyrsta skipti fyrir um það bil 30 árum. Þess má geta að á síðasta ári veitti Alþingi honum íslenskan ríkisborgararétt.
Mosfellingur náði tali af Jesse á Brúarlandi þar sem fornleifafræðingarnir hafa haft aðsetur undanfarin sumur.
Hvenær hófst þú störf við uppgröftin á Hrísbrú?

„Árið 1995 gerði ég forkönnun að Mosfelli og á fleiri stöðum í Dalnum. Það var svo árið 2001 sem starfið hófst að fullum krafti á Hrísbrú með aðkomu og stuðningi Mosfellsbæjar að verkefninu“.
Ert þú ánægður með þann árangur sem hefur náðst fram að þessu?
Andrés Ólafsson fæddist þann 8. júní 1871 að Hrísbrú í Mosfellssveit. Að Hrísbrú ól hann allan sinn aldur, þar sem áður mun hafa verið Mosfell hið forna, eftir því sem sagan hermir. Þá jörð átti hann og nytjaði að mestu sinn búska, fyrst með foreldrum sínum, Ólafi Magnússyni, ættuðum úr Holtunum, og Finnbjörgu Finnsdóttur af Rangárvöllum. Eftir lát þeirra tók hann við forráðum allrar jarðarinnar og eignaðist hana alla síðar.
Andrés kvæntist Ólöfu Jónsdóttur (1873-1934) og áttu þau 8 börn, 2 syni og 6 dætur. Synirnir og ein af dætrunum dóu á unga aldri.
Andrés lést þann 12. febrúar 1956. Hann hvílir í Mosfellskirkjugarði eldri við hlið konu sinnar.
„Það er óhætt að segja að hann sé framar björtustu vonum. Síðastliðiðið sumar fannst kirkja sem að öllu líkindum er reist skömmu eftir Kristnitöku árið 1000. Um er að ræða stafkirkju, einstaka að því leyti að varðveist hafa betur en áður hefur sést stólpar og grunntré hússins, ásamt hleðslum. Þessi fundur er verulegur hvalreki fyrir byggingarsögu íslands, enda kemur í ljós að frágangur og vinnubrögð við byggingu benda til séríslenskra úrlausna við bygginguna sem ekki þekkjast á Norðurlöndum frá sama tímabili. Það er því Ijóst að fundur stafkirkjunnar er stórmerkur. Þá er ljóst að kirkjan hefur verið staðsett á stað sem fyrir kristnitöku hefur verið notaður við greftranir eða brennu látinna, því þar hefur fundist eina brunagröfin sem fundist hefur á Íslandi. Niðurstöður rannsókna sýna með óyggjandi hætti að maður hefur verið brendur á Hulduhól, skipslöguðum hóli sem liggur skammt frá kirkjugarðinum. Það er ekki ólíklegt að einn af fyrstu höfðingjum Mosfellsbæjar hafi verið brendur þarna.
Í garðinum kringum kirkjuna hefur fundist fjöldi beinagrinda. Frá því uppgröftur hófst höfum við fundið 22 beinagrindur sem m.a. hafa gefið okkur margvíslegar vísbendingar um lifnaðarhætti fólksins, það er t.d. um: næringu, sjúkdóma, ofbeldi og hvar fólkið er fætt, enda beinist rannsóknin ekki síst að lífsskilyrðum og siðum fyrir og eftir Kristnitöku.
Með því að beita hátæknilegum mælingum á ísótópum, sem er ný greiningartækni í fornleifafræði, er hægt að mæla í beinum og tönnum hlutfall næringar á fyrstu æviárum einstaklinga. Niðurstaða hefur leitt í ljós að sjávarnitjar voru greinilega mikil uppistaða í fæðu á þessum tíma í kringum 1000. Við höfum einnig getað rakið sjúkdóma eins og berkla og krabbamein frá þessum tíma og við höfum séð merki mikils ofbeldis.
Hauskúpa Egils Skallagrímssonar.
Þar vegur þyngst fundur okkar í fyrrasumar af hauskúpu sem bar greinileg einkenni þess að hafa orðið fyrir þungu höggi eggvopns. Enn fremur hefur verið rannsakað hvort einstaklingar eru fæddir hérlendis eða erlendis. Niðurstaðan er sú að að svo virðist sem að allir þeir sem bera bein sín í kirkjugarðinum á Hrísbrú hafi verið fæddir hérlendis.
Með samvinnu fjölda vísindamanna úr margvíslegum fræðigreinum, svo sem almennri líffræði, frjókornafræði, réttarlæknisfræði, sagnfræði, fornleifafræði, jarð- og landafræði hefur verið leitað eftir upplýsingum svo hægt sé að draga heildarmynd af búsetuskilyrðum frá þessum tíma, en það er meginmarkmið rannsóknarinnar.
Rannsóknir síðastliðinna fimm ára eru líka farnar að skila verulegum árangri, sem styrkir þekkingu manna á smáatriðum og heildarmynd af lífi á íslandi á landnámsöld. í sumum tilfellum er um að ræða þekkingu sem ekki hefur komið fram áður.“
Eigum við eftir að finna silfur Egils?
„Það er eðlilegt að spurningar sem tengjast Agli Skallagrímssyni og Egilssögu komi upp. Vísindamenn vilja gjarnan víkja sér undan óyggjandi svörum um slíkt, en samsvörun fundar á kirkju og kirkjugarði við stóra kafla í Egilssögu eru sláandi, því er ekki að neita. Nú í sumar var farið undir kirkjugólfið og þar finnst gröf, en kistan hafði verið fjarlægð, enda finnast leifar hennar. Sá sem í gröfinni hefur legið hefur greinilega verið stór og mikill eins og fram kemur í öllum lýsingum, enda gröfin sú stærsta af þeim sem við höfum fundið á Hrísbrú.“
Fundur skálans hefur vafalaust verið skemmtilegur endir á vinnu sumarsins?
„Það var ánægjulegt að finna þetta og án vafa er þessi viðbótarfundur til að styrkja þá skoðun mína að hér sé um einn merkasta fornleifafund seinni tíma að ræða, þegar horft er til þessa tímabils, ekki bara eftir íslenskum mælikvarða heldur einnig þegar horft er til heiminum. Það dæmi ég alla vega af viðbrögðum kollega minna víða úr heiminum. Þetta gerðist þannig að við vorum að fara að ganga frá eftir vinnu sumarsins þegar þessi bygging kom í Ijós. Ljóst er að hún hefur varðveist svo vel vegna skriðunnar sem féll á hana. Það hefur verið ótrúlegt að finna þetta allt og sjá á einum stað og ég tel það einstakt.“
Koma fleiri en fornleifafræðingar að þessum rannsóknum?
„Að þessum rannsóknum hefur hópur vísindamanna komið frá fjölda landa og má til gamans geta þess að nú eru þegar fjórir af þeim að gera doktorsritgerð vegna þessa verkefnis við Háskólann í Kaliforníu. Þessi hópur hefur verið afar samstilltur og frábært að vinna með. Af þessu leiðir að um er að ræða margþættar rannsóknir svo hægt sé að ná þeim árangri að varpa ljósi á líf og lifnaðarhætti á landnámsöld, á mörkum kristni og heiðni og rannsóknin skipar sér þar með í hóp með stærri fornleifauppgröftum.“
Í Ólafíu, riti Fornleifafræðingafélags Íslands árið 2007, er fjallað um „Valdamiðstöðina í Mosfellssdal – Rannsóknir á fornleifum frá tímum víkinga að Hrísbrú að Mosfelli“:
Niðurstöður:
Hrísbrú – uppgröftur – skáli.
Landslag frá heiðni til kristni Fornleifarannsóknir í Mosfellsdal hafa leitt í ljós verulegar sannanir á því að umtalsverð byggð hefur verið þar frá landnámsöld fram yfir kristnitöku, og áfram allt fram á 12. öld. Með rannsóknarniðurstöðunum er að myndast vel skrásett mynd af flókinni sambúð og samskiptum heiðinna manna og kristinna á fyrstu öldum Íslandsbyggðar. Á Hrísbrú hafa fornleifafræði og fornar ritheimildir hjálpast að við að sýna fram á mikilvægi staðbundinna minja, sem og rannsóknir á áþreifanlegum minjum í nánum tengslum við ritaðar miðaldaheimildir.
Mikilvægur þáttur í rannsóknunum á Hrísbrú hefur falist í því að skoða og skilja hvernig greftrunarsiðir og trúarbrögð hafa blandast við kristnitöku.
Uppi hafa verið margar tilgátur í víkingaaldarfræðum um hætti, menningarleg gildi og trúarhegðun Norðurlandabúa á þeim tíma þegar skipt var frá heiðnum sið til kristni. Margt bendir til þess að breyting hafi átt sér stað frá heiðni til kristni á sérstökum helgistöðum en lítið er um skýrar fornleifafræðilegar sannanir þessu til staðfestingar. Niðurstöður okkar á Mosfelli gætu skipt máli í tengslum við þessa alþjóðlegu umræðu.
Hrísbrú – fornleifauppgröftur.
Nálægð heiðinnar líkbrennslu á Hulduhól við kristna kirkju og kirkjugarð á Kirkjuhól sýnir einstaklega heillega mynd af trúarlegum greftrunarstað og veitir okkur tækifæri til að skoða hvernig eitt ákveðið samfélag á víkingaöld kristnaðist. Sú staðreynd að kirkjan á Kirkjuhóli hafi verið byggð svo nálægt hinni heiðnu hæð á Hulduhóli segir okkur margt um félagslega og menningarlega hætti á þessum tíma og það er afar sjaldgæft í dag að finna minjastað með tveimur jafnvel varðveittum grafhaugum. Rannsóknarniðurstöðurnar benda til þess að heiðið og kristið samfélag hafi búið hlið við hlið á tímum kristnitökunnar.
Niðurstöður fornleifarannsókna á Hrísbrú benda til þess að á landnámsöld hafi staðurinn verið bústaður höfðingja og staðsetning hans áhrifamikil í samfélagi og menningu íbúa Mosfellsdals.
Fornleifarnar á Mosfelli/Hrísbrú eru sérstaklega mikilvægar í sambandi við túlkun á Íslandssögunni vegna þess að fyrir rannsóknina höfðu aðeins verið til ritaðar heimildir um fólkið sem þar bjó.
Grímur Svertingsson er gott dæmi um þetta. Hann bjó þar við kristnitöku og var lögsögumaður á árunum strax eftir hana. Grímur var giftur Þórdísi, dóttur voldugs höfðingja frá Borg í Borgarfirði, og var einn af áhrifamestu mönnum á Íslandi á þeim tíma. Margir sagnfræðingar hafa lengi haldið því fram, og byggt það á rituðum heimildum, að margir voldugir höfðingjar á Íslandi, og þar á meðal Grímur, hafi tekið kristni til þess að halda völdum. Vegna þessa hafi margir höfðingjar reist kirkjur á jörðum sínum um árið 1000 til þess að fá vígða jörð á landareign sinni. En eru einhverjar sannanir fyrir þessu?
Egils saga segir frá því að Grímur Svertingsson hafi reist sér eigin kirkju og kirkjugarð að Hrísbrú í kjölfar kristnitökunnar. Áþreifanlegar fornleifar sem fundist hafa í rannsóknunum styðja þetta. Með byggingu kirkjunnar eftir kristnitöku staðfestu Mosfellingar, sú fjölskylda sem mestu réði á þeim tíma í dalnum, eignarhald sitt á landinu, sjálfsmynd sína og stöðu. Steinar og grafir að Hrísbrú sýna fram á miðpunkt í menningarlegu og raunverulegu landslagi á meðan áþreifanlegar minjar úr gröfunum veita okkur upplýsingar um heilsu og lifnaðarhætti, auk þess að staðfesta ofbeldi í samfélagi íbúanna á Mosfelli/Hrísbrú. Þessar áþreifanlegu minjar eru vitnisburður um tilraun voldugrar höfðingjaættar til þess að koma sér vel fyrir í breyttu trúarlegu og félagslegu umhverfi fyrstu tvö hundruð ár landnáms á Íslandi. Rannsóknir okkar benda til þess að landsvæðið hafi verið notað í trúarlegum tilgangi og til greftrunar bæði fyrir og eftir kristnitöku; bæði heiðnir og kristnir hafi viljað hafa forfeður sína nálægt sér.“
„Þriðjudaginn, 2. sept., fór eg af stað úr Reykjavík, síðara hluta dags, og upp að Mosfelli, var þar um nóttina. Hér kemr stax til Egils s. Skallagrímssonar, og síðan til landnáms pórðar Skeggja. Þetta þurfti eg að athuga betr. Grímr Svertingsson bjó að Mosfelli víst mestallan siðara hluta 10. aldar, og fram yfir 1000. Hann var ættstór maðr og göfugr og lögsögumaðr um hríð ; hann átti Þórdísi Þórólfsdóttur Skallagrímssonar; þegar Egill seldi af höndum bú að borg, fór hann suðr til Mosfells til pórdisar bróðurdóttur sinnar og var þar i elli sinni og andaðist þar, og hér fal Egill fé og koma hér fram í sögunni ýmsar staðlegar lýsingar.
Hrísbrú – fornleifauppgröftur.
Síra Magnús heitinn Grímsson, sem var prestr á Mosfelli, hefir skrifað ritgerð um þetta efni, „Athugasemdir við Egils sögu“ í Safni til sögu Íslands, Kaupmh. 1861, II. bl. 251—76. Ritgerð þessi er mikið fróðleg og skemmtilega skrifuð, og vel lýst mörgu landslagi á Mosfelli og þar í kring; þarf eg því ekki svo mjög að tala um það.
Hrísbrú – fornleifauppgröftur.
Síra Magnús heldr, að bœrinn Mosfell hafi í fyrstu staðið þar sem Hrísbrú nú er, sem er lítilfjörlegt kot, skamt fyrir utan túnið á Mosfelli, og að Grímr Svertingsson hafi búið þar; hann ímyndar sér, að bœrinn hafi verið fluttr — líklega einhvern tíma fyrir miðja 12. öld — frá Hrísbrú og þangað sem hann nú stendr, og hafi þá nafnið flutzt á þenna nýja bœ, enn nafnið Hrísbrú verið gefið þeim stað, þar sem hið forna Mosfell stóð; meðal annars um þetta bls. 255 og 260—261. Allar þessar getgátur byggir höfundurinn einkannlega á því, sem stendr í Egils s. Reykjavíkr útg. um flutning á kirkju þeirri, er Grímr Svertingsson lét byggja að Mosfelli, eða sem stóð þar sem síðar hét á Hrísbrú, og flutt var síðar heim að bœnum. Eg get nú ekki vel fallizt á alt þetta.
Mosfell hefir snemma bygzt, sem eðlilegt er, því að uppi í Mosfellsdalnum hefir verið mjög byggilegt. Landn. segir, bls. 53 : „Fiðr enn auðgi Halldórsson, Högnasonar, fór úr Stafangri til Íslands; hann átti Þórvöru dóttur Þorbjarnar frá Mosfelli Hraðasonar; hann nam land“ o.s.frv. Það má ætla, að bœrinn Mosfell hafi verið bygðr ekki miklu eftir 1000, þar sem landnámsmaðr átti dóttur Þorbjarnar, sem þar er fyrst getið, enn ekki sést það, hvort hann hefir fyrst bygt þar, svo að Mosfell getr verið enn eldra. Grímr Svertingsson að Mosfelli er oft nefndr, fyrst í Íslendingabók, og oft í Landnámu og Egils s. og ávalt er hann kallaðr „Grímr at Mosfelli“, þegar nefnt er, hvar hann hafi búið; Landn. mundi vissulega geta um það, hefði Mosfellsbœrinn fyrst staðið úti á Hrísbrú og það í hálfa þriðju öld, og síðan verið fluttr þangað, sem hann nú er.
Mosfell – Kýrgil fjær.
Öllum handritum ber saman um, að við þenna kirkjuflutning á Mosfelli hafi verið staddr Skafti prestr Þórarinsson, og öllum ber þeim líka saman um, að kirkjan, sem var ofan tekin, hafi verið sú kirkja, er Grímr Svertingsson lét byggja; þar af er þá ljóst, að kirkja Gríms hefir þá enn staðið, og hefir hún þá orðið um 150 ára gömul. Það má finna mörg dæmi þess, hvað hús stóðu ákaflega lengi bæði í fornöld og á miðöldunum. Þetta er og eðlilegt, því að annaðhvort bygðu menn af rekaviði, sem endist svo lengi, eins og kunnugt er, eða menn gátu valið viðinn í Noregi, þ.e. sóttu hann þangað ; þá voru ekki mjög sparaðir skógarnir ; menn bygðu og sterkt, þegar menn vildu vanda eitthvert hús. Það sýna þær leifar, sem bæði eg og aðrir hafa séð, og eins má sýna viðargœðin.
Tóft ofan við Kýrgil.
Eg hefi verið nokkuð langorðr um þetta efni, því að mér þótti þess þurfa sögunnar vegna, og mætti þó fleira tilfœra; enn eg skal vera því stuttorðari um, hvar Egill hafi fólgið fé sitt, og lofa einum sem öðrum að hafa sínar ímyndanir, getgátur og munnmælasögur. Þær geta verið mikið góðar, þar sem þær eiga heima, enn eg er þeirrar meiningar, að ekki verði á þeim bygt, þegar um rannsókn er að rœða. Höfundar Egils s. vita sjálfir einu sinni ekki, hvar Egill muni hafa fólgið féð, og vóru þeir þó nær því enn vér; enn þess er ekki von, því að Egill sagði það engum manni.
Hrísbrú – tilgáta af skála.
Sá, sem ritað hefir það handrit, sem liggr til grundvallar fyrir Kh.útg.=Rv.útg., getr til á þremr stöðum bls. 228. Eg skal geta þess hér, að hvorki Hrappseyjarútg. né handr. geta neitt um það, þegar Egill ætlaði að sá silfrinu að lögbergi; þau sleppa alveg þeim kafla ; eg verð að taka hér þenna stað einungis til þess að sýna, hvað öllu er hér rétt lýst, og sem sýnir hvað ritari sðgunnar hefir verið kunnugr, bls. 227—8: „Þat var eitt kveld, er menn bjuggust til rekkna at Mosfelli, at Egill kallaði til sín þræla tvá, er Grímr átti. Hann bað þá taka sér hest. „Vil ek fara til laugar, ok skulu þér fara með mér“, segir hann. Ok er Egill var búinn, gekk hann út ok hafði með sér silfrkistur sínar. Hann steig á hest.
Fóru þeir síðan ofan eptir túninu, ok fyrir brekku þá, er þar verðr,er menn sá síðast. En um morguninn, er menn risu upp, þá sjá þeir, at Egill hvarflaði á holtinu fyrir austan garð, ok leiddi eptir sér hestinn. Fara þeir þá til hans og fluttu hann heim. En hvártki komu aptr síðan þrælarnir né kisturnar, ok eru þar margar getur at, hvar Egill hafi fólgið fé sitt.“
Skv. framansögðu hafa margir ætlað, með allskyns margflóknum ályktunum að Egill hafi falið silfur sitt í nágrenninu og drepið þrælana tvo, en fáir virðast hins vegar gera ráð fyrir þeim möguleika, sem eðlilegri má telja; að þrælarnir (yngri og betur á sig komnir) hafi áttað sig á aðstæðum, stolið silfrinu, hrakið gamla manninn frá með svo niðurlægjandi hætti að hann hafi ekki viljað viðurkenna mistök sín, og þeir síðan látið sig hverfa með allt heila klabbið, bæði fjársjóðinn og farskjótana. A.m.k. virðist enginn hafa haft rænu á að leita, hvorki farskjótana þriggja og þrælanna í framhaldinu. Nýlega teknar grafir eða önnur ummerki í og með Mosfelli hefðu án efa vakið alveg sérstaka athygli á þeim tíma – ekki síst í ljósi þessa merka atburðar; (ályktun ritstjóra FERLIRs). Hvers vegna fór ekki fram rannsókn í framhaldinu, eða a.m.k. athugun, á atburðinum. Gallinn við frásagnar“sérfræðinga“ seinni tíma er að þeir voru svo meðvirkir sagnaskýringunum fyrrum að þeir sáu ekki til sólar. Meðaumkunin var öll Egils. Hér virðist vera um eitt merkilegasta óleysta sakamál Íslandssögunnar að ræða.
Ólafur Magnússon, bóndi á Hrísbrú.
Merkisbóndinn Ólafur Magnússon og Finnbjörg, eiginkona hans, bjuggu á Hrísbrú. Ólafur barðist hatramlega gegn niðurrifi kirkjunnar að Mosfelli, eins og fyrr er getið, en varð að lúta í lægra haldi fyrir yfirvöldum árið 1888. Hann tók gömlu klukkuna úr kirkjunni til varðveislu og var hún geymd á Hrísbrú í meira en mannsaldur eða þangað til henni var komið fyrir í Mosfellskirkju sem vígð var árið 1965.
Eyjólfur Guðmundsson frá Hvoli lýsir Hrísbrúarhjónunum þannig í endurminningum sínum: „Hvergi í Mosfellsdal hafði ég meira gaman af að koma en að Hrísbrú. Hjónin þar hétu Ólafur og Finnbjörg, kona roskin. Fyrst í stað voru þau nokkuð gróf og forneskjuleg, en glöð og gestrisin, þegar marka mátti. Það var ánægjulegt að bíða þar, meðan Finnbjörg hitaði ketilinn, og hlusta á Ólaf gamla. Var þá jafnan tilfyndnast það sem húsmóðirin lagði til málanna. Ekki var orðræðan hefluð né blíð, heldur oft stóryrt og krydduð velvöldum fornyrðum, stundum klúr.“
Ólafur og Finnbjörg voru hluti af aðalsögupersónum í bók Halldórs Laxness, Innansveitarkróniku.
Myndin af Ólafi er líklega tekin í kaupstaðaferð í Reykjavík kringum aldamótin 1900. Ekki er vitað til að mynd hafi varðveist af Finnbjörgu.
Heimild:
-Mosfellingur, Kirkjan á Hrísbrú, 12. tbl. 08.09.2006, Kristinn Magnússon, bls. 10.
-Mosfellingur, 10. tbl. 19.08.2005, Fornleifauppgröfturinn að Hrísbrú, bls. 12-13.
-Ólafía; rit Fornleifafræðingafélags Íslands, 2. árg. 01.05.2007, Valdamiðstöð í Mosfellssdal – Rannsóknir á fornleifum frá tímum víkinga að Hrísbrú að Mosfelli, bls. 84-105.
-Árbók Hins íslenska fornleifafélags, 01.01.1884, Rannsókn í Borgarfirði 1884, Sigurður Vigfússon, Mosfell, bls. 62-74.
-http://www.hermos.is/forsida/frettir/frett/2017/09/25/Olafur-Magnusson-1831-1915-fra-Hrisbru/
Hrísbrú – uppgröftur – skáli.
Jarðskjálftar á Reykjanesskaga
Stærsti jarðskjálfti á sögulegum tíma á Íslandi er gjarnan talinn vera skjálftinn á Suðurlandi 14. ágúst 1784. Stærð hans hefur verið metin 7,1. Þessi stærð er að sjálfsögðu ekki fengin með mælingum enda komu skjálftamælar ekki til sögunnar fyrr en rúmri öld síðar. Stærðin er fengin með því að bera áhrif skjálftans saman við áhrif annarra skjálfta á sama svæði sem mælingar eru til á. Það er einkum jarðskjálftinn á Rangárvöllum árið 1912 sem hefur verið notaður í þessum tilgangi. Hann mældist 7 stig að stærð og áhrifasvæði hans var nokkru minna en skjálftans 1784. Ætla má að byggingar hafi verið sambærilegar á Suðurlandi í báðum skjálftunum.
Margir bæir hafa hrunið í jarðskjálftum hér á landi.
Skjálftinn 1784 átti upptök í Holtum. Þar varð tjónið mest og í nágrenni Eystra-Gíslholtsvatns má finna sprungur sem telja má að hafi orðið til í upptökum skjálftans. Finna má vísbendingar um þetta upptakamisgengi til norðurs og teygir það sig í átt til Skálholts. Þar varð einmitt tilfinnanlegt tjón í skjálftanum. Varð það mönnum tilefni til vangnavelta um að flytja biskupsstólinn og Skálholtsskóla til Reykjavíkur.
Stærstu skjálftar á Íslandi sem mælst hafa eru skjálfti undan norðurströndinni 1910, fyrrnefndur skjálfti á Rangárvöllum 1912, og skjálfti sem varð fyrir mynni Skagafjarðar árið 1963. Allir mældust þeir 7 stig að stærð. Nýlegri skjálftar hafa mælst nokkru minni, til dæmis voru skjálftarnir 17. og 21. júní 2000 af stærðinni 6,5, sömuleiðis Kópaskersskjálftinn 1976.
Jarðskjálftar á Reykjanesskaga
Jarðskálftabelti landsins.
Í kjölfar atburða á Reykjanesskaga hefur Páll Einarsson, prófessor emeritus við Jarðvísindadeild, tekið saman yfirlit yfir jarðskjálftavirkni á svæðinu og byggir þar á nýlegri grein Sveinbjörns Björnssonar o.fl. höfunda.
Að sögn Páls byggja gögn fyrir árið 1900 á samantekt Þorvaldar Thoroddsen, meðan skýrsla Kjartans Ottóssonar er helsta heimildin fyrir tímabilið 1900-1930 og skýrslur Eysteins Tryggvasonar fyrir áratugina 1930-1960. „Frá 1960 er stuðst við lista frá International Seismological Centre, Veðurstofu Íslands og Sveinbirni Björnssyni o.fl. Eftir að mælitæki koma til sögunnar eru skjálftar á listanum einungis tilgreindir ef stærðin er 5 eða meira, eða ef þeir ollu tjóni, tengdust sprunguhreyfingum eða breytingum á hveravirkni.“
Sögulegt yfirlit
Jarðskálftasvæði Reykjanesskagans.
1151: „Eldur uppi í Trölladyngjum, húsrið og manndauði“.
1211: „Eldur kom upp úr sjó fyrir utan Reykjanes. Sörli Kolsson fann Eldeyjar hina nýju, en hinar horfnar er alla æfi höfðu staðið. Þá varð landskjálfti mikill hinn næsta dag fyrir Seljumannamessu og létu margir menn líf sitt. … og féllu ofan alhýsi á fjölda bæjum og gjörðu hina stærstu skaða.“
Arnarseturshraun – hrauntjörn frá því um 1240.
1240: „Landskjálftar miklir fyrir sunnan land. Sól rauð. Eldur fyrir Reykjanesi.“ Þetta er talið vera síðasta eldgosið í hviðu slíkra atburða á Reykjanesskaga. Hviðan er talin hafa byrjað stuttu eftir 870 AD og voru flest gosin hraungos (Kristján Sæmundsson og Magnús Sigurgeirsson, 2013).
1724: Jarðskjálfti í ágústmánuði. Hrapaði bærinn í Herdísarvík og maður fórst við sölvatekju undir Krýsuvíkurbjargi.
1754: Jarðskjálfti í Krýsuvík, og kom þar upp hver, 6 faðma víður og 3 faðma djúpur.
1785-1886: Jarðskjálftar fundust mörgum sinnum í Reykjavík og nágrenni, en ekki er getið um tjón. Sterkustu skjálftarnir voru 1868.
1879: „Allharðir landskjálftakippir á Reykjanesskaga um lok maímánaðar, harðastir voru þeir í nánd við Krýsuvík, sterk baðstofa á Vigdísarvöllum féll og í Nýjabæ við Krýsuvík flýði fólk úr húsum. Um sama leyti hófst eldgos á mararbotni fyrir utan Reykjanes nærri Geirfuglaskeri.“
Nýleg (2019) jarðskálftahrina á Reykjanesskaga.
1887: Jarðskjálftahrina gekk yfir Reykjanes og fundust margir kippir um Suðvesturland. Valahnúkur, sem Reykjanesviti stóð á, klofnaði og féllu úr honum stykki. Leirhverinn Gunna nærri Reykjanesvita breyttist töluvert.
1889: Sterkur jarðskjálfti olli minni háttar tjóni í Reykjavík og nærliggjandi byggðum. Nokkur hús hrundu á Vigdísarvöllum og í Krýsuvík.
1899: Skjálftahrina gekk yfir Reykjanes og varð tjón á vitanum. Við Gunnuhver opnaðist sprunga og breytingar urðu á hvernum.
Austurengjahver – myndaðist í jarðskjálfta 1924.
1900-1910: Vægir skjálftar fundust oft við Reykjanesvita á þessum árum. Umtalsvert tjón varð í janúar 1905 á Litla Nýjabæ, Vigdísarvöllum og Ísólfsskála.
1919: Reykjanesviti skemmdist í jarðskjálfta sem fannst víða á Reykjanesskaga. Nýr hver myndaðist á Reykjanesi.
1920: Skjálfti varð 14. maí sem líklega átti upptök í Krýsuvík, fannst í Reykjavík. Mældist 5,2 að stærð.
1924: Sterkur jarðskjálfti varð 4. september í Krýsuvík, fannst víða. Nýr hver, Austurengjahver, myndaðist, sprungur opnuðust og grjót hrundi úr fjöllum. Stærðin mældist 5,1.
1924: Í desember varð áköf hrina á Reykjanesi sem olli minni háttar tjóni á vitanum. Stærsti skjálftinn metinn 4,7 stig.
1925-1928: Tíðir jarðskjálftar fundust á Reykjanesi. Vitinn skemmdist 25. október 1926. Sprungur mynduðust í jörð og breytingar urðu á hverum.
1929: Hinn 23. júlí varð stærsti skjálfti sem vitað er að hafi orðið á Reykjanesskaga. Upptök hans voru nálægt Brennisteinsfjöllum, líklega á hinu svokallaða Hvalhnúksmisgengi. Stærðin var 6, 3 og skjálftinn fannst víða um land og olli umtalsverðu tjóni í Reykjavík og nágrenni.
Vegsummerki eftir jarðskálfta.
1933: Skjálfti sem varð 10. júní fannst víða á Suðvesturlandi. Upptökin voru líklega suður af Keili og vestan Núpshlíðarháls. Rétt við Vigdísarvelli hrundi og mikið rót varð á yfirborði jarðar, sprungur og viðsnúnir steinar. Mælingar erlendis gáfu stærð skjálftans tæplega 6 stig.
1935: Skjálfti 9. október átti upptök á Hellisheiði. Minni háttar tjón varð, en grjót hrundi úr fjöllum og vörður á Hellisheiði féllu á nokkru svæði. Mælingar gefa stærð um 6 stig.
1952: Skjálfti að stærð 5,2 átti upptök nærri Kleifarvatni. Hann fannst víða en olli engu tjóni.
Ummerki jarðskálfta.
1955: Skjálfti ad stærð 5,5, sem varð 1. apríl, átti upptök austarlega á Hellisheiði. Hann fannst víða en olli litlu tjóni.
1967: Kröftug skjálftahrina átti upptök á Reykjanesi 28.-30. september. Miklar breytingar urðu á jarðhitasvæðinu þar og sprungur mynduðust. Stærsti skjálftinn var af stærðinni 4,9 en alls urðu 14 skjálftar af stærðinni 4,0 og stærri. Skjálftarnir fundust víða en tjón var óverulegt.
1968: Jarðskjálfti af stærðinni 6,0 varð 5. desember og átti hann upptök í Brennisteinsfjöllum, líklega á Hvalhnúksmisgenginu, líkt og skjálftinn 1929. Brotlausn hans sýnir að hann varð vegna hægri handar sniðgengishreyfinga á misgengi með N-S stefnu. Skjálftinn fannst víða og olli minniháttar tjóni í Reykjavík.
Afleiðingar jarðskálfta innanhúss.
1973: Skjálftahrina gekk yfir Reykjanesskaga 15.-17. september. Fimm skjálftar voru stærri en 4, þar af þrír stærri en 5, sá stærsti 5,6. Virknin byrjaði í Móhálsadal, austan Djúpavatns og færðist síðan til vesturs, allt vestur að Eldvörpum. Stærsti skjálftinn varð vegna hægri handar sniðgengishreyfinga á misgengi með N-S stefnu.
1974: Jarðskjálftahrina varð 8. desember skammt undan ströndinni á Reykjanesi. Fjórir kippir voru á stærðarbilinu 4,0-4,5.
2000: Jarðskjálftinn 17. júní á Suðurlandi hleypti af stað röð skjálfta á flekaskilunum sem liggja um Reykjanesskagann, allt vestur að Núpshlíðarhálsi. Þrír skjálftanna voru stærri en 5. Sá stærsti (5,9) átti upptök undir Kleifarvatni. Vatnsborð Kleifarvatns féll um 4 metra á næstu vikum. Þá voru FERLIRsfélagar á göngu í Sveifluhálsi, en sakaði ekki.
Grindavík – jarðskjálftar í nóv. 2023.
2003: Jarðskjálfti að stærð 5,0 varð 23. ágúst og átti upptök nálægt Krýsuvík. Honum fylgdu margir smærri eftirskjálftar sem röðuðu sér á N-S línu.
2013: Skjálfti að stærð 5,2 með upptök skammt austan Reykjaness varð 13. október. Ekkert tjón varð en sprungur sem hreyfðust á svæði austan jarðhitasvæðisins gáfu til kynna færslur á vensluðum sniðgengjum með stefnur í norður og aust-norð-austur.
Sjá meira um jarðskjálfta á Íslandi fyrrum.
Heimildir:
-https://is.wikipedia.org/wiki/Jar%C3%B0skj%C3%A1lftar_%C3%A1_%C3%8Dslandi
-Eysteinn Tryggvason, 1978a. Jarðskjálftar á Íslandi 1930 – 1939. Raunvísindastofnun Háskólans, Skýrsla RH-78-21, 92 pp.
-Eysteinn Tryggvason, 1978b. Jarðskjálftar á Íslandi 1940 – 1949. Raunvísindastofnun Háskólans, Skýrsla RH-78-22, 51 pp.
-Eysteinn Tryggvason, 1979. Earthquakes in Iceland 1950 – 1959. Raunvísindastofnun Háskólans, Skýrsla RH-79-06, 90 pp.
-International Seismological Centre, 2014.
-Kjartan Ottósson, 1980. Jarðskjálftar á Íslandi 1900 – 1929. Raunvísindastofnun Háskólans, Skýrsla RH-80-05, 84 pp .
-Sveinbjörn Björnsson, Páll Einarsson, Helga Tulinius, Ásta Rut Hjartardóttir, 2018. Seismicity of the Reykjanes Peninsula 1971-1976. J. Volcanol. Geothermal Res., https://doi.org/10.1016/j.jvolgeores.2018.04.026.
-Þorvaldur Thoroddsen, 1899. Jarðskjálftar á Suðurlandi. Hið íslenska bókmenntafélag, Kaupmannahöfn, 197 bls.
-Þorvaldur Thoroddsen, 1905. Landskjálftar á Íslandi, II. Jarðskjálftar við Faxaflóa. Hið íslenska bókmenntafélag. Kaupmannahöfn. bls. 201-269.
-Þorvaldur Thoroddsen,1925. Die Geschichte der isländischen Vulkane, Det Kongelige Danske Videnskabernes Selskab, Köbenhavn 1925, 18+458 p.
-https://jardvis.hi.is/sogulegt_yfirlit_um_jardskjalftavirkni_reykjanesskaga
Yfirlit yfir styrk jarðskjálfta á Íslandi aftur til 1734.
Krýsuvíkurhellir – Bálkahellir
Farið var frá Bergsendum eystri að Krýsuvíkurhelli neðan Klofninga.
Við Krýsuvíkurhelli.
Mannvistarleifar eru bæði ofan við hellisopið og niðri í hellinum sjálfum. Þar er hlaðið skjól. Innan við það liggur rás út að gömlu bjargbrúninni og opnast þar út. Rásin er um 30 metra löng. Út um gatið er hægt að skoða bergið og nýrra hraun fyrir neðan. Til hliðar, innan við opið, er önnur rás, sem liggur um hraunssúlu og opnast yfir í hina efst í henni. Mikill steinbekkur er framan við súluna, sem skipt hefur hraunstraumnum um rásirnar.
Jarðfall norðan við Krýsuvíkurhelli var kannað, en einungis var hægt að komast stutt þar inn á hvorn veginn sem var. Mögulegt væri að forfæra gjót í hruni innan við eitt opið, en það myndi kosta talsverða vinnu. Rás gæti legið þaðan og upp í gegnum hraunið.
Við Bálkahelli.
Bálkahellir var nú skoðaður að nýju. Kom sú skoðun mjög á óvart. Fyrst var farið niður um neðsta jarðfallið og niður í hellinn. Farið var með jarðfallinu vinstra megin, en þar lækkað rásin nokkuð en hækkar að nýju uns gólf og loft koma alveg saman. Þarna undir vegg eru tvö stór hraundríli. Farið var til baka og niður aðalgönginn. Þau beygja fyrst til hægri og síðan aftur til vinstri. Þessi göng eru um 200 metra löng og ekkert hrun nema svolítið fyrst.
Hellirinn er mjög breiður og þarna á gólfum eru fjölmargir dropasteinar og hraunstrá hanga í loftum. Fara þarf varlega um göngin. Hraunnálar eru í lofti. Þessi hluti hellisins hefur varðveist mjög vel og full ástæða til að fara þarna mjög varlega. Um er að ræða einn fallegasta helli á Reykjanesi. Neðst beygir hann enn til hægri og þrengist síðan. Í þrengslunum tekur við samfelld dropasteinabreiða.
Í Bálkahelli.
Skoðað var að nýju upp rásina í neðsta jarðfallinu. Hún er víð og há uns hún lækkar og þrengist. Loks koma gólf og loft saman. Þessi hluti er um 40 metrar. Þá var haldið niður í miðrásina, á móti þeirri, sem skoðuð var áður. Hún lokast loks í þrengslum, en mikið er um fallega dropasteina og hraunnálar. Alls er þessi hluti hellisins um 100 metrar.
Loks var gengið upp úr miðjarðfallinu og upp aðalhellinn. Hann er víður og hár. Skammt fyrir ofan opið skiptist hellirinn í tvennt og hægt að fara umhverfis tvær breiðar hraunsúlur, en meginrásin er til hægri. Ekki er hægt að villast í Bálkahelli.
FERLIRsfélagar í Bálkahelli öðru sinni. (Ljósm. Júlíus)
Haldið var áfram upp rásina og yfir hrun, sem þar er ofarlega. Þá sést í efsta opið og bálkana beggja vegna, en af þeim mun hellirinn draga nafn sitt. Samtals er Bálkahellir um 450 metra langur, fyrst hár og víður, en nokkuð hrun, síðan hraunsúlur og syllur, dropsteinar og hraunstrá. Neðsti hluti hans þó sýnum fallegastur.
Að lokum var Arngrímshellir (Gvendarhellir) skoðaður, en frásagnir eru til um hellinn er hann var notaður sem fjárhellir á 17., 18. og 19. öld. Gamlar sagnir eru til af því. Hleðslur eru fyrir opum og er tótt framan við stærsta opið, það nyrsta. Inni í hellinum eru allmiklar hleðslur. Hellirinn er bjartur og auðvelt að skoða sig um þar inni, jafnvel ljóslaus.
Í Bjössabólum.
Á bakaleiðinni var skoðað ofan í nokkrar rásir. Ein var þeirra stærst, en rásin endaði í þrengslum. Önnur var yfir 300 m löng og er enn ókönnuð.
Ekki er vitað nákvæmlega um aldur þessara hrauna. Samkv. upplýsingum Kristjáns Sæmundssonar, jarðfræðings, er hraunið úr úr Stóru-Eldborg frá fyrri hluta nútíma, þ.e. töluvert eldra en 5000-6000 ára. Hitt úr Litlu-Eldborg er yngra. Það gæti verið kringum 5000-6000 ára.
Frábært veður.
Bálkahellir – uppdráttur ÓSÁ.
Jóhannes Reykdal eignast Setberg
Jóhannes Reykdal varð goðsögn í lifanda lífi. Hann fæddist að Vallakoti í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu 18. janúar árið 1874.
Jóhannes Reykdal (1874-1946).
Tvítugur að aldri hóf hann trésmíðanám hjá Snorra Jónssyni trésmíðameistara á Akurejmi og fjórum árum síðar silgdi hann til Kaupmannahafnar til frekara trésmíðanáms. Eftir þriggja ára dvö ytra flutti hann heim til Islands og ætlaði til Akureyrar en hann hitti unga konu, Þórunni Böðvarsdóttur og ástin varð til þess að hann festi rætur sunnan heiða.
Fyrstu árin sinnti Jóhannes húsbyggingum en fannst það ekki nóg. Hann vildi reisa verksmiðju við Lækinn í Hafnarfirði og er það fyrsta stórvirkið sem Jóhannes vann. Trésmiðjan var búin átta fullkomnum trésmíðavélum og staðsetningin var engin tilviljun, því Jóhannes virkjaði lækinn og fékk þar orku til að knýja vélarnar áfram.
Sjá meira HÉR, HÉR, HÉR, HÉR og HÉR.
Í „Húsakönnun fyrir Öldur í Hafnarfirði“ frá 2024 segir m.a. um húsið Lækjargötu 4 (á horni Brekkugötu og Lækjargötu):
Lækjargata 4 um 1950.
Þessi yfirlitsmynd sem tekin er af Hamrinum yfir Hafnarfjörð var gjöf til Hafnarfjarðarbæjar frá Friðriki Bjarnasyni tónskáld og Guðlaugu Pétursdóttur. Ljósmyndin er tekin á árunum 1925 til 1929. Til vinstri er neðsti hluti Brekkugötu og Trésmiðjan Dvergur. Til hægri er Hamarskotslækur og Austurgata. Fyrir miðri mynd eru húsin Grund og Hóll. Fremst má sjá Lækjargötu 4.
„Byggingarár: 1905. Fyrsti eigandi: Jóhannes Reykdal. Hönnuður: Ekki þekktur. Upphaflegur byggingarstíll: Timburhús – sveitserstíll. Upphafleg notkun: Íbúð. 1977: Tveir kvistir á suðurhlið sameinaðir í einn kvist.
Jóhannes Reykdal byggði húsið fyrir starfsfólk og lærlinga í trésmíðaverkstæði sem hann reisti á uppfyllinguálæknum árið 1902.Tésmiðjan var sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi þar sem vélarnar voru var drifnar með vatnskrafti.
Árið 1909 seldi eða gerði Jóhannes skiptisamkomulag við Halldór Halldórsson bónda á Setbergi. [Halldór var menntaður trésmiður og vann m.a. hjá Jóhannesi um stund í trésmiðju hans við Lækinn]. Skipt var á húsinu ásamt ræktunarlóð við húsið og öllu Setbergslandinu.
Samkvæmt fyrstu brunavirðingu voru 4 stofur og eldhús á hæðinni en 5 herbergi og eldhús í risi. Á lóðinni sem var að mestu matjurta- og túngarður var 20 fermetra gripa- og geymsluhús, sem nú hafa verið rifin.
Húsið hefur tekið litlum breytingum nema að anddyri sem snéri að Lækjargötu var fjarlægt svo hægt væri að koma fyrir gangstétt við götuna.
Finnbjörn Kristjánsson breytti kvistum á suðurhlið 1977 og 1985 voru byggðir skjólveggir.“ Núverandi íbúar eru Stan Zawada og fjölskylda.
Lækurinn á dögum Jóhannesar. Hús er urðu síðar við Lækjargötu (fremst) og Hverfisgötu. Brúin yfir lækinn er fyrir neðan Lækjarhvamm, sem er eina húsið fyrir utan Gerðið (Hraungerði), á þessu svæði vestan við Læk, sem búið er að byggja. Frá vinstri fremst er Lækjargata 10, byggt af Jóhanni Jónssyni skipstjóra sem drukknaði 1907, þá „Kassahúsið“ nr. 12, (þakið hækkað 1925), svo Geitháls nr. 14.
Einar Halldórsson (1910-1978), sonur Halldórs Magnúsar Ólafssonar (1869-1924) og Sigrúnar Jónsdóttur (1874-1953), eignaðist síðar Setberg að hluta. Eiginkona hans var dóttir Jóhannesar, Elísabet Reykdal (1912-2013).
Jóhannes Reykdal lést 1946, 72 ára að aldri. Hann bjó þá að Þórsbergi í Setbergslandi.
Jóhannes hafði áður byggt sér glæsilegt hús nyrst við Brekkugötu, en það brann 1930. Í brunavirðingu Brunabótafélags Íslands frá 1917 er húsinu lýst eftirfarandi: „Húsið er einlyft með porti og risi 2.40m. Lengd 8.15m, breidd 6.50, hæð 3.77, með 11 gluggum. Niðri er því skipt í 3 stofur og eldhús, stofurnar eru fóðraðar. Uppi er því skipt í 4 herbergi og eldhús. Allt húsið klætt innan með panel og málað. Raflýst og notað til íbúðar. Útveggir úr timbri, þak úr timbri og járnvarið. 11 gluggar eru á húsinu.
Hús Jóhannesar Reykdals við Brekkugötu – brann 1930.
Undir öllu húsinu [líkt og er að Lækjargötu 4) er kjallari úr grjóti, 1.50m á hæð með 4 gluggum, notaður til geymslu. Anddyri úr timbri, einlyft með veggsvölum og turni, lengt 2.30, breidd 1.30, hæð 3.14m. Klætt innan með panel og málað. Inngönguskúr úr timbri með vatnshallaþaki og einum glugga, 2 m á lengd, 1.50m á breidd og 2.80 á hæð. Húsið var mikil prýði en svo óheppilega vildi til að í maí mánuði árið 1930 kviknaði í því engin slys urðu á fólki þar sem það var mannlaust. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en húsið var svo illa farið að ákveðið var að auglýsa það til niðurrifs. Talið var að upptök eldsins hafi verið út frá á ofni sem kveikt hafði verið upp í fyrr um daginn.“
Heimildir:
-Kveikt á perunni, 1. tbl. 15.01.2004, bls. 6.
-Hafnarfjörður – Öldur Hafnarfirði; Húsakönnun 2024.
-Morgunblaðið, 23. tbl. 28.01.1978, bls. 35.
Hafnarfjörður 1954.
Hellaferðir – Björn Hróarsson
Björn Hróarsson skrifaði um „Hellaferðir“ í Helgapóstinn, ferðablað, árið 1987.
Björn Hróarsson við Snorra.
„Ísland er eitt af merkari eldfjallalöndum jarðar og óvíða getur að líta jafn margar gerðir eldfjalla og hrauna. hraununum er fjöldinn allur af hellum. Þeir eru af ýmsum stærðum og gerðum með strompum, afhellum, útskotum, fossum, veggsyllum, dropsteinum, hraunstráum og margs konar öðrum formum.
Þegar hraunár renna lengi í sömu stefnu myndast fyrst hrauntraðir og síðan í mörgum tilfellum hellar. Hraunið getur runnið langar leiðir í göngum undir storkinni hraunhellu. Þegar hraunrennslinu lýkur, slíkt getur bæði gerst er eldvirkni stöðvast eða ef hraunáin fær annan farveg, heldur streymið oft áfram niður göngin, þau tæmast og holrúm myndast. Ef þak holrúmsins er nægilega sterkt til að haldast uppi eftir kólnunina varðveitist hellirinn.
Í Víðgemli.
Margskonar hraunmyndanir eru í hellum og eitt af því sem gleður augað er dropasteinar sem myndast meðan hraunið er að storkna. Dropasteinar myndast hins vegar smátt og smátt vegna útfellingar efna eins og t.d. kaiks eða salts og finnast vart hér á landi. Ýmis form í hellum myndast við endurbráðnun hrauns. Slíkt gerist líklega vegna gasbruna við mikinn hita og þá lekur hið endurbráðna hraun oft niður veggi hellisins eða lekur niður úr loftinu og myndar stuttar keilulaga myndanir, gjarnan með glerjuðu yfirborði.
Dropsteinn í Snorra.
Í sumum heilum eru afar fagrar ísmyndanir sem eru hvað fegurstar eftir langa frostakafla síðla vetrar. Íssúlurnar geta orðið meira en mannhæðarháar. Vatnsdropar er falla úr hrauninu frá lofti hellisins frjósa er þeir koma niður í hellinn og ísdrjólar hlaðast upp. Er líður á sumarið og hlýnar bræða vatnsdroparnir sig inn í ísdrjólana, gera þá hola að innan og eyða þeim.
Í nágrenni höfuðborgarsvæðisins er fjöldi hella, enda Reykjanesskagi þakinn hraunum. Hraun á skaganum þekja yfir 1000 ferkílómetra og þar leynist fjöldi glæsilegra hella.
Þingvallasvæðið er einnig þakið hraunum er geyma nokkra skemmtilega hella. Hallmundarhraun, ofan byggða í Borgarfirði, hefur nokkra sérstöu meðal íslenskra hrauna, þar eru kunnir nokkrir stórir hellar. Stærstu og þekktustu hellarnir eru Víðgelmir, Surtshellir og Stefánshellir.
Víðgemlir.
Víðgelmir er talinn stærstur hraunhella á jörðinni, rúmmál hans er um 150.000 rúmmetrar sem samsvarar um 250 meðal einbýlishúsum.
Hraunmyndanir í hellum eru viðkvæmar og þola margar þeirra nær enga snertingu án þess að brotna. Samt eru flestir þeir hellar sem fundist hafa á liðnum árum alveg ósnortnir, þegar þeir finnast, þó þeir séu jafnvel 5.000—10.000 ára gamlir. Í hellunum er stöðugt veður, svipað hitastig árið um kring, alltaf logn og veðrun engin. Hellarnir haldast því óbreyttir þar til ferðafólk tekur að leggja leið sína þangað.
Tanngarðshellir.
Nær allir íslenskir hraunhellar sem frést hefur af eiga það sameiginlegt að vera stórskemmdir. Viðkvæmar hraunmyndanir hafa verið brotnar og fjarlægðar. Rusl af ýmsu tagi hlaðist upp og hellarnir sótast. Um þennan undraheim íslenskrar náttúru hefur umgengni verið með ólíkindum slæm.
Í hellinum FERLIR í Brennisteinsfjöllum.
Hraunhellar eru hluti af viðkvæmustu náttúru Íslands. Þar má lítið út af bera til að valda skemmdum. Fjölmargir hellar eru þess eðlis að þeir verða aldrei opnaðir ferðafólki. Aðrir eru stórir og ekki eins viðkvæmir þó glæsilegir séu.
Glæsilegir hraunhellar eiga það sameiginlegt að þar er margt að skoða en hellarnir eru það stórir að lítil hætta er á skemmdum og í þessum hellum er lítið af viðkvæmustu hraunmyndununum.“ – Björn Hróarsson
Heimild:
-Helgapósturinn, ferðablað 24.06.1987, Hellaferðir, Björn Hróarsson, bls. 14.
Búri – svelgurinn.
Hraunhóll undir Vatnsskarði
Í Náttúrufræðingnum 1975 fjallar Jón Jónsson, jarðfræðingur, um „Sandfellsklofagíga og Hraunhól efst í Kapelluhrauni undir Vatnsskarði“. Margir telja Kapelluhraun runna úr Hraunhól, en svo var ekki, enda hraunið úr honum um 5500 ára gamalt, en Kapelluhraunið (Nýjahraun/Bruninn) rann árið 1151. Hraunhóll var einn fegursti gjallgígurinn á gjörvöllum Reykjanesskaganum, en hefur nú verið gjörspillt af námuvinnslu.
Hraunhóll

„Eins og áður er sagt, hef ur hraunið runnið upp að eldri gíg, sem ber nafnið Hraunhóll. Þetta var stór og reglulegur gígur, einn hinn fegursti á öllum Reykjanesskaga, hlaðinn upp úr gjalli og hraunkleprum. Aðalgígurinn var um 250 m í þvermál, en inni í honum var lítill en alldjúpur hraungígur, vafalaust myndaður á lokastigi gossins. Skarð er í gíginn austan megin og þar hefur Sandfellsklofahraun runnið inn í hann eins og áður segir og myndað þar lítinn hraunpoll, sem orðið hefur að sléttu helluhrauni.
Nú er Hraunhóll svipur hjá sjón frá því sem áður var. Hann hefur orðið þeim að bráð, er rauðmalarnám stunda og hefur verið leikinn svo grátt, að nú er rúst ein. Hann var um árabil ein aðalnáman á þessu svæði og er nú svo komið, að búið er að grafa langt niður fyrir hraunin, sem upp að honum hafa runnið. Við það kemur í ljós, að hann hefur verið líklega vart minna en 40 m hár, áður en hraun tók að renna upp að honum.
Sýnið, sem áður er getið um, var tekið austan megin í gígnum, þar sem Sandfellsklofahraun rann inn í hann.
Kapelluhraun (rauðlitað).
Annað sýni var tekið norðan í hólnum, og hugði ég fyrst, að hraunið sem þar hefur lagst upp að Hraunhól, væri Kapelluhraun, en nú hefur komið í ljós, að svo er ekki. Þar má sjá, að um 25—30 cm þykkt jarðvegslag hefur verið komið utan á gíginn, þegar hraun eyddi þeim gróðri, er þar var fyrir. Gróðurleifarnar eru mosi og einhver kvistgróður og því væntanlega ekki ósvipað þeim gróðri, er þarna var fyrir, áður en maðurinn fór ránshendi um Hraunhól. Kolaða kvisti og sprota mátti tína úr jarðvegslaginu, en ekki var það meira en svo, að margra klukkustunda verk var það að fá nægilega mikið efni (um 20 g) í eina aldursákvörðun. Hvað þetta varðar, er sama að segja um bæði sýnin, sem tekin voru við Hraunhól. Sýnið, sem tekið var norðan í hólnum reyndist 2690 ± 60 C14 ára. Enn er ekki fullkomlega ljóst, hvaðan það hraun er komið, sem eyddi gróðrinum norðan í hólnum. Eins og ég nefndi áður hugði ég fyrst að það væri Kapelluhraun en að því slepptu Sandfellsklofahraun. Nú er hins vegar svo mikill munur aldurs þessara gróðurleifa, að dr. Ingrid U. Olsson telur, að ekki geti verið um samtímamyndun að ræða. Verður því spurningunni um, hvaða gos hafi verið að verki, þegar gróðurinn norðan í Hraunhól eyddist, ekki svarað að svo stöddu.
Hraunhóll og nágrenni.
Það er hins vegar ljóst, að gíghólar, sem hlaðnir eru úr nær eintómu gjalli, gróa ekki sérlega fljótt og er sjálfsagt ein meginorsök þess sú, að allt vatn hripar þar strax niður. Af þessu leiðir, að Hraunhóll hlýtur að hafa verið orðinn nokkuð gamall, þegar þessi hraun runnu upp að honum. Mætti því ætla, að hann væri vart yngri en 3500 ára gamall. Hraunið, sem úr honum hefur komið, er ólívín basalt hraun með töluverðu a£ 3—5 mm stórum ólívínkristöllum og eins feltspatdílum, sem ósjaldan eru 4—5 mm.
Annað, sem einkennir þetta hraun eru hnyðlingar, flestallir af sömu gerð og fundist hafa á Reykjanesskaga og víðar, en fundist hefur þar hnyðlingur með aðra samsetningu líka. Verður það ekki nánar rakið hér. Eins og getið var um í upphafi þessarar greinar eru Sandfellsklofagígir á sprungu með þá venjulegu stefnu norðaustur-suðvestur, svo er og um Hraunhól og má vel sjá þar að sprungan, sem hann er á, hefur opnast frá því að gosið varð og er ekki ástæða til að efast um, að sú gliðnun sé enn í gangi, þó hægt fari miðað við mannlegt æviskeið. Sama fyrirbæri má og sjá m.a. í Óbrinnishólum (Jónsson 1972) og raunar á fleiri stöðum á Reykjanesskaga. Er þá óneitanlega ekki fráleitt að spyrja: Hve mikla gliðnun þarf til þess að þarna gjósi á ný?
Hraunhóll og malargryfjur við Vatnsskarð.
Aðeins um 300 m suðvestur af Hraunhól er annar gígur, sem næstum hefur færst í kaf, þegar Sandfellsklofahraun rann. Ekki veit ég nafn á þessum gíg, enda var hann svo lítið áberandi, að litlar líkur eru á, að honum hafi nokkru sinni verið nafn gefið og líklega fáir veitt því athygli, að um eldgíg væri að ræða. Frekar en ekkert mætti í bili nefna hann Litla-Hraunhól. Ber það nafn þá vitni um ámóta hugmyndaauðgi og vel flest cnnur örnefni á Reykjanesskaga og orsakar ekki áhalla hvað það snertir.
Kapelluhraun og nágrenni – örnefni og gamlar leiðir (ÓSÁ).
Einnig Litli-Hraunhóll hefur verið grátt leikinn af nútíma vinnutækni og þar vægast sagt ljótur umgangur, en því miður er alltof víða pottur brotinn hvað þetta snertir á voru landi. Ekki sést nú neitt af því hrauni, sem úr Litla-Hraunhól hefur runnið, fremur en því, sem rann úr Hraunhól sjálfum, en sýni mátti ná úr gígnum. Kemur þá í ljós, að hraunið er að heita má eins úr báðum þessum gígum. Það er og snarlíkt eldra Óbrinnishólahrauni og Búrfellshrauni. Vott af gróðurleifum má sjá undir gjallinu í Litla-Hraunhól og sýnist jarðvegslagið þar vera mjög ámóta og í Hraunhól, en ekki hefur reynst mögulegt að ná nothæfu sýni úr LitlaHraunhól. Af ofangreindum ástæðum tel ég þó langlíklegast, að gosið hafi samtímis á þessum stöðum.
Varðandi aldursákvörðunina hér að framan skal þess getið, að hún er meðaltal af tveim, þar sem við aðra er notaður helmingunartími 5570 ár en við hina 5730 ár.“
Heimild:
-Náttúrufræðingurinn, 2. tbl. 01.03.1975, Sandfellsklofagígir og Hraunhóll, Jón Jónsson, bls. 188-191.
Hraunhóll – námuvinnsla og sóðaskapur.