Um Oddsmýrardal lá gömul leið frá Setbergi, bæði upp í Setbergssel undir Þverhlíð, að beitarhúsum er stóðu á Setbergshlíð, fjárhúsi í Húsatúni og eldri beitarhúsum undir Gráhellu í Gráhelluhrauni.
Líklegt má og telja að þar hafi þeir einnig farið er áttu leið um gömlu Selvogsgötuna. Sú gata liggur beint við er komið er að sunnan. Þá hefur verið farið um Klifið svonefnda neðan og á milli Sandahlíðar og Flóðahjalla annars vegar og Svínholts hins vegar. Gatan er áberandi um Klifið og mjög eðlilegur hluti af Selvogsgötunni. Þeir, sem fóru þá leiðina, hafa þá farið um Oddsmýrardal, aflíðandi upp Skarðið er skilur Setbergsholt frá Svínholti, á ská niður holtið og áfram inn á syðri Setbergsstíginn til Hafnarfjarðar.
Uppi á Sandahlíð eru fornar grónar markavörður í línu við Markastein og háa myndarlega vörðu í Smyrlabúðarhrauni. Skv. kortum eru suðurmörk Setbergs sýnd sunnan í Setbergsholti, Svínholti og Setbergshlíð svo ekki geta þær passað við þau mörk. Þær gætu því gefið til kynna norðurmörk Setbergslands, þ.e. við mörk Urriðakots.
Í örnefnalýsingu fyrir Setberg segir m.a. um þetta svæði: “En landamerkjalínan milli Setbergslands og upplands Garðakirkju lá úr hellunum norðaustur eftir Smyrlabúðarhraunsbarmi, norður í Markasteininn á Tjarnholtinu syðsta. Frá þessu hornmarki liggur línan um Efridal. Síðan um Seljahlíð [norðan Sandahlíðar] og þaðan í Flóðahjallavörðu. Þegar komið er fyrir Háanef og komið þar upp á holtið, er komið í Húsatún, og þar eru beitarhúsin frá Setbergi. Austan og ofan við Húsatún er Þverhlíð, en yfir hana liggur Kúadalastígur upp á Kúadalahæð og þar niður af eru Kúadalir. Þá er hér norðvestur af Sandahlíð; norðan í henni klapparhóll, nefndur Virkið.”
Oddsmýrardalur er nú að gróa upp eftir eyðingu undanfarinna ára. Búið er að planta mikið af trjám í dalnum og þar blómstrar beitilyngið fyrst í júlí. Þó má enn sjá hina gömlu götu liggja á ská í aflíðandi hlíðinni að sunnanverðu, niður í dalinn og eftir honum að Klifinu. Þegar á það er komið blasir Gráhellan við og minjarnar undir henni. Líklegt má telja að gatan hafi og verið leiðin þangað, en undir hellunni höfðu Setbergsbændur beitarhús, líklega áður en beitarhúsin á Setbergshlíðinni voru hlaðin skömmu eftir aldarmótin 1900.
Um Oddsmýrardal liggur bílslóði. Vestast liggur hann ofan í gömlu götuna.
Frábært veður. Gangan tók 1 klst og 1 mín.