Selgjá – selin
Í Selgjá [Norðurhellragjá] eru leifar a.m.k. 11 selja Álftanesbæja; Sandhúsa, Hliðs, Selskarðs, Miðhúss, Brekku, Svalbarðs, Sviðholts, Deildar, Mölshúss, Breiðabólastaða og Urriðakots. Í Jarðabókinni 1703 segir um selstöðu frá Sandhúsum: „Selstöðu á jörðin og hefur brúkað átölulaust þar sem heita Norðurhellrar.“ Í Örnefnaslýsingum má m.a. sjá eftirfarandi um selstöðurnar: (Ö) Selgjá: Grunn en allbreið gjá syðst […]