Selvogsgata

Í Morgunblaðinu 18. sept. 1995 fjallar Bolli Kjartansson um “Selvogsgötu – fornu þjóðleiðina”:

Selvogsgata

Selvogsgata, Hlíðarvegur og Stakkavíkurgata.

“Víða um land eru glögg merki um gamlar þjóðleiðir milli byggða. Dæmi um slíka leið í nágrenni þéttbýlisins á höfuðborgarsvæðinu er Selvogsgata. Nánar tiltekið er það leiðin milli Hafnarfjarðar og Selvogs í Árnessýslu. Þessi leið var skemmsta leið um 30 km frá fjörunni í Hafnarfirði og til strandar í Selvogi. Mun hér lýst leiðinni frá Kaldárseli og Valahnúkum og í Selvog.

1. áfangi: Kaldársel – Grindaskörð
Hér er miðað við að hefja gönguna við Kaldársel ofan Hafnarfjarðar og ganga norður fyrir Valahnúka. Þegar komið er vel austur fyrir Valahnúka liggur gatan um úfin hraun sem m.a. eru komin úr Grindaskörðum. Á þessari leið yfir hraunin í stefnu á Grindaskörð eru vörður við veginn, sem lagfærðar hafa verið eða endurhlaðnar fyrir nokkrum árum. Nú er Helgafell á hægri hönd en Húsfell á vinstri. Eftir klukkustundar gang frá Kaldárseli er komið á helluhraun og þar er gatan glögg.

Selvogsgata

Selvogsgatan gengin – FERLIRsfélagar á ferð.

Stefnan er í vestasta skarð Grindaskarða [Kerlingarskarð] sem er um það bil 5 suðaustur og er Selvogsgata alla leið í Selvog nokkurn veginn gengin í þá stefnu.
Forfeður okkar voru glöggir á beinustu og auðveldustu leið milli byggða. Þegar komið er upp í Grindaskörð er gott að líta yfir farinn veg og héðan er góð yfirsýn yfir innnesin og til Esju og Akrafjalls. Þennan áfanga frá Kaldárseli og í Grindaskörð má auðveldlega ganga á 2-3 klst.

2. Áfangi: Grindaskörð — Hvalskarð

Selvogsgata

Hvalskarð.

Í Grindaskörðum eru eldvörp á alla vegu. Úr Miðbollum hafa runnið hraun eftir landnám og náð í sjó fram milli Straumsvíkur og Hvaleyrarholts. Þegar horft er úr Grindaskörðum í stefnu á Selvog blasir Hvalskarð við. Þangað eru um 4—5 km og liggur Selvogsgata milli hrauns og hlíðar eins og víða á fornum þjóðleiðum.
Úr Grindaskörðum hallar nokkuð niður í sigdal þar sem Heiðin há er á vinstri hönd en hraunbreiða þekur sigdalinn. Þegar komið er niður í sigdalinn austan hraunbreiðunnar er komið að fallegri eldborg er ber nafnið Kóngsfell. Við Kóngsfell skiptu fjallkóngar úr Selvogi í leitir og þar af nafnið. Við Kóngsfell er kjörið að draga upp nestið og setjast niður smástund.
Hér er Selvogsgatan hálfnuð, þ.e. öll leiðin frá Hafnarfirði í Selvog. Héðan er um klukkustundar ganga í Hvalskarð og leiðin auðrötuð milli hrauns og hlíðar.

3. áfangi: Hvalskarð – Katlabrekkur

Strandardalur

Varða við Katlabrekkur.

Þessi áfangi er um 7 km og fer nú að halla undan fæti. Hér er Selvogsgatan nokkuð óglögg og vörður margar hálffallnar. Neðar verður leiðin aftur greinilegri og verður nokkur lækkun er kemur í Katlabrekkur vestan Urðarfells og stutt leið niður á láglendið í Selvogi.

4. áfangi: Katlabrekkur – Hlíð/Strandarhæð
Síðasti áfanginn eftir að komið er ofan af fjallinu er annaðhvort vestur með hlíðinni eða Hlíðarvatni og bænum Hlíð er þar stóð eða ganga í suður í stefnu á Vörðufell.

Selvogsgata

Selvogsgata/Kerlingarskarðsvegur.

Vörðufell er lág hæð, þar sem Selvogsmenn réttuðu og smalar hlóðu þar vörður ef þeir fundu ekki gripi sína. Brást þá ekki að gripirnir fundust. Hér er því gott að rifja upp sögur af séra Eiríki í Vogsósum, en héðan sést til Vogsósa við ósa Hlíðarvatns. Héðan sést einnig til Eiríksvörðu á Svörtubjörgum. Selvogsheiði er í austri héðan og Hnúkar tróna þar efst á heiðinni.
Á þessum slóðum eru margir hraunhellar og sumir notaðir af Selvogsmönnum sem fjárhellar.

Selvogsgata

Gengið um Selvogsgötu – björgunarskýlið.

Hér hefur stuttlega verið lýst Selvogsgötu frá Kaldárseli og í Selvog. Algengast er þó að ganga frá björgunarskýlinu neðan við Grindaskörð og í Selvog og er það um 6 klst. ganga á góðum degi.
Þessa leið er gott að ganga vor, sumar og haust. -Bolli Kjartansson

Hafa ber í huga að Selvogsgatan skiptist  neðan við björgunaskýlið; annars vegar í Selvogsgötu um Grindarskörð skammt austar og hins vegar í Hlíðarveg um Kerlingarskarð vestar. Selvogsgatan að sunnanverðu endar í Selvogi, en Hlíðarvegurinn endar ofan við Hlíðarvatn.

Heimild:
-Morgunblaðið 18. sept. 1995, Selvogsgata – forna þjóðleiðin, bls. 29.

Selvogsgata

Selvogsgata (Suðurferðavegur), Hlíðargata og Stakkavíkurgata/-stígur.