Slunkaríki
Í Smalaskálahæð ofan við Óttarsstaði við Hafnarfjörð er Smalaskálaker, rauðamalarhóll í jarðfalli Hrútagjárhrauns. Árið 1974 var komið þar fyrir „listaverki“. Það gerði Hreinn Friðfinnsson (1943 – 2024).
„Húsbyggingin“ (Das Haus Projekt) er þekkt verk eftir Hrein sem einnig varð til á 8. áratugnum. „Húsbyggingin“ byggir á sannri sögu eftir Þórberg Þórðarson í „Íslenskum aðli“, um sérvitringinn Sólon Guðmundsson á Ísafirði sem afræður að byggja hús þar sem innihliðin snýr út. Hreinn ákvað að taka þessa hugmynd upp og byggði húsið þannig að veggfóður þess og gardínur lágu utan á. Þegar húsinu hafði verið snúið við þurfti hið sama að gilda um heiminn fyrir utan, þ.e. öllu sem var úti fyrir þurfti nú að finna stað inni í húsinu. Sem listmunur er húsið lítils virði að mati listamannsins. Nauðsynlegt var að reisa það til þess að fullkomna þessa hugmynd, en það nægir að það sé til sem vitnisburður á ljósmyndaformi. „Mér líkar vel að uppgötva hið óvenjulega í hinu venjulega. Það er þetta sem ég fæst við, fyrst og fremst.“
Hreinn Friðfinnsson vann með nánast hvaða efnivið og hvaða miðla sem var, jafnt ljósmyndir, hús, fíngerðar teikningar og efnivið sem hann hafði fundið. Í þeim og með aðstoð þeirra rannsakar hann venjubundna skynjun, tilfinningar og skilning. Jafnvel smæstu verk hans og þau sem minnst ber á búa yfir mikilfenglegri hugmyndaauðgi og tilfinningu.“
Húsbyggingin í Smalaskálahæð var lítið hús sem var forsmíðað og síðan flutt í einingum. Þegar það var risið voru teknar af því sextán ljósmyndir úr ýmsum áttum, bæði ofan frá og neðan frá og myndaði ljósmyndasyrpan sjálft listaverkið.
Þegar þessi gjörningur var afstaðinn var hlutverki hússins sem listaverks í rauninni lokið en eftir stóð lítil bygging á röngunni, ef svo mætti segja. Hreinn vann verkið undir áhrifum frá kafla í bókinni Íslenskum aðli sem skáldið Þórbergur Þórðarson ritaði 1938 og fyrr er getið. Í einum kafla bókarinnar fjallaði Þórbergur um sérkennilegan mann sem hét Sólon og bjó rétt utan við þéttbýlið í Ísafjarðarkaupstað við Skutulsfjörð. Sólon byggði sér einkennilegt hús og lét bárujárnið snúa inn í húsið en setti veggfóður á útveggina. Veggfóður var nýjung á þessum tíma en bárujárnið hafði verið notað um árabil. Sólon var svo hrifinn af veggfóðrinu og vildi leyfa öllum íbúum staðarins að njóta fegurðarinnar með sér.
Það var því eðlilegt að hafa það utan á húsinu, sem gekk undir nafninu Slunkaríki. Samneft myndlistar gallerý hefur verið starfrækt á Ísafirði um nokkurra ára skeið og er það til minningar um þennan merka mann, sem var sennilega fyrsti íslenski konsept listamaðurinn, án þess að hafa hugmynd um það sjálfur.
Það sem nú (2020) er eftir af Slunkaríki er aðeins brak á víð og dreif um Smalaskálaker. Eftir að búið var að mynda húsið lét Hreinn það afskiptalaust, enda tilgangur hans aðeins að koma því á þennan stað og útbúa myndröð í anda SÚM-aranna.
Gjörningnum var lokið og síðan beið hússins að ummyndast með veðrinu sem lék um það og setti mark sitt á náttúruna allt í kring. Húsið var eins og sérkennilegur hlutur á sjálfu tunglinu, bygging í miðri náttúruperlu, enda er jarðfallið afar sérstakt og fallega mótað.
Húsið stóð af sér flest veður um árabil þó svo að myndirnar létu fljótlega á sjá eins og veggfóðrið, sem flettist af veggjunum. Hurðin fauk upp einn veturinn og losnaði eftir það af hjörunum.
Skotglaðir Hafnfirðingar notuðu húsið til að æfa hæfni sína, eins og þeir virðast hafa gert svo óralengi á þessum slóðum. Smám saman drukku spónaplöturnar sem mynduðu útveggina í sig regnvatnið og grotnuðu niður, en bárujárnið hélt húsinu uppi. Stoðirnar blöstu við og innan þeirra var bárujárnið heilt og óryðgað enda vel galvaniserað.
Stuttu eftir 2000 sprakk húsið í vindhviðu einn veturinn og dreifðust stoðir og járnplötur vítt og breitt um jarðfallið, en restin af húsinu varð að einni grautarhrúgu efst á gjallhaugnum. Eftir það stóð grunnurinn efst á haugnum í gjótunni ásamt spýtnadóti og öðru smálegu og má enn sjá brotin í Smalaskálakeri.
Laugardaginn 17. júlí 2010 voru einhverjir á ferð í Smalaskálakeri og kveiktu í því sem eftir var af Slunkaríki. Það sem viðkomandi aðilar gerðu var ekki bara skemmdarverk á listaverki sem var að veðrast með eðlilegum hætti, því eldurinn læsti sig í trjágróður, lyng, mosa og annan lággróður sem hefur verið að sækja í sig veðrið og vaxið þarna um langa hríð. Magnaðist upp mikið bál og varð að kalla út slökkvilið sem réð ekkert við eldinn. Þyrla Landhelgisgæslunnar var þá kölluð á vettvang til að hjálpa við slökkvistarfið og fór margar með sérstakann sekk sem notaður er til að sækja vatn í sjó eða stöðuvötn þegar erfitt er að athafna sig við slökkvistarf úti í náttúrunni.“
Á fimmtudaginn í síðustu viku (árið 2020) voru liðin 160 ár frá fæðingu Sólons Guðmundssonar sem var kenndur við Slúnkaríki á Ísafirði. Sólon var verkamaður, alþýðuskáld og húsasmiður, en Þórbergur Þórðarson gerði honum skil í Íslenskum aðli sem kom út árið 1938, sem fyrr sagði.
Þórbergur sagði það enn fremur einkennilegt um skáldskap Sólons, að hann brýtur iðulega af sér alla rímfjötra, auðsæilega til þess að geta gefið hugsun sinni víðara svigrúm og meiri nákvæmni í tjáningu og orðalagi.
Í stuttri færslu á Wikipediu kemur fram að Sólon hafi verið verkamaður og furðuskáld, einsetukarl og furðulegur í háttum. Hann var einna þekktastur fyrir bæinn sinn Slúnkaríkið sem stóð í hlíðinni fyrir ofan Krókinn á Ísafirði. „Sólon var alþýðumaður. Hann var niðursetningur sem barn og það er hvergi skráð hverra manna hann er,“ segir Elísabet Gunnarsdóttir sem rekur galleríð Úthverfu á Ísafirði og er mikil áhugakona um Sólon. „
Húsið hans vakti strax mikla athygli. „Það var með alls konar útskotum og skreyti. Byggt úr torfi og grjóti að neðan en timbri að ofan. Það var hægt að ganga hringinn og það voru fleiri en einn inngangur. Svo hengdi hann utan á þetta rellur og stormfleyga til að kljúfa vindinn. Hann málaði þetta svo með sérkennilegu munstri sem ég held að hljóti að hafa komið frá frumbyggjum, sem hann hefur kynnst í Ameríku.“ Þá hafi líka alltaf verið mikið af hljóðum í rellunum sem ætlað var að hræða burtu illa anda. Elísabet segist ekki vita hvaðan orðið slúnkur komi. „Hann samdi vísur sem hann kallaði sjálfur skrýtlur. Þar eru mörg furðuleg orð sem hann hefur búið til.“
Á sínum tíma var húsið rifið og í dag er lítið sem ekkert á svæðinu sem minnir á veldi Sólons Guðmundssonar í Slúnkaríki. „Hins vegar eru hugmyndir um að endurreisa húsið og fá til liðs við okkur nema í arkitektúr,“ segir Elísabet. Sólon var fátækur en naut engu að síður virðingar í samfélaginu á Ísafirði og var ávallt fylginn sér. „Þegar hann deyr 71 árs er jarðarförin mjög fjölmenn, eins og það væri verið að fylgja höfðingja til grafar.
Miklu síðar uppgötvar SÚM-arinn Hreinn Friðfinnsson Sólon þegar hann les um hann í Íslenskum Aðli og nýtir persónu og hans og hugmyndafræði sem innblástur í myndlist sína. „Þegar Sólon er orðinn gamall og þreyttur selur hann Slúnkaríki og byrjar að byggja sér elliheimili, sem hann kallar svo, lítinn kofa. Hann sneri öllu við í þessum kofa, bárujárnið var að innan og veggfóðrið að utan. Sjálfur sagði hann að veggfóðrið væri svo fallegt að það ætti að vera þar sem flestir gætu séð það.“ Hreinn heillaðist af þessari hugmyndafræði og byggði árið 1974 eins konar úthverft hús í Hafnarfjarðarhrauni, sem hann sagði hýsa allan heiminn nema sjálft sig. Hann hélt svo áfram með þetta verkefni og gerði þrjú hús til viðbótar, þar á meðal eitt í Frakklandi, og kallaði The House project og telst nú til hans frægustu verka.
Heimildir:
-https://bb.is/2020/08/solon-i-slunkariki/
-https://www.ruv.is/frett/2020/08/11/160-ar-fra-faedingu-solons-i-slunkariki
-https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2020-08-11-160-ar-fra-faedingu-solons-i-slunkariki
-https://is.wikipedia.org/wiki/S%C3%B3lon_Gu%C3%B0mundsson
–Hrauhttps://bb.is/2018/09/aetlar-ad-taka-saman-skrytlur-solons-gudmundssonar/navinir.is



















