Tag Archive for: Björn Þorsteinsson

Gísli á Hörðuvöllum

Björn Þorsteinsson, sagnfræðingur, skrifaði um „Mjóa veginn“ – veginn milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur“, í Alþýðublað Hafnarfjarðar árið 1962:
hafnarfjordur-231„Síðastliðið ár ferðuðust með strætisvögnum milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur rúmlega 900 þúsundir manna. (Áætluð tala eftir farmiðum: 915.829.) Sama ár fóru um 10 þúsund bifreiðir til jafnaðar á dag yfir brúna á Fossvogslæk. Mest umferð var um verzlunarmannahelgina í byrjun ágúst, en þá fóru um 15.600 bifreiðir á dag yfir lækinn. Um þann hluta vegarins hafa því farið rúmlega hálffjórða milljón ökutækja á árinu eða a.m.k. rúmlega 7 milljónir manna, ef gert er ráð fyrir, að hvert farartæki hafi a.m.k. tvo menn innanborðs, ekil og farþega, en það mun vera allt of lág tala. Strætisvagnarnir fara 50 ferðir fram og aftur alla virka daga, en þar við bætast aukavagnar kvölds og morgna. Þeir munu því fara um 100 einstakar ferðir milli borganna á hverjum sólarhring. Samkvæmt farmiðasölunni ættu að vera um 25 menn í hverjum vagni til jafnaðar. Þeir, sem fara um Fossvogsbrúna, eru auðvitað ekki nærri allir einungis á ferðalagi milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Leið margra liggur í Kópavog, suður á Álftanes, og býsna margir sækja á Suðurnesin, en þeir, sem að sunnan koma, eru sumir að koma úr Kópavogi. Samt sem áður mun það ekki of í lagt, að milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur ferðist rúmlega milljón manna á ári, eða nær sexföld tala allra Íslendinga.
reykjavik-245Vegurinn, sem á að anna allri þessari umferð, er fyrir löngu orðinn allt of mjór, auk þess sem hann er bæði holóttur, óþarflega hlykkjóttur og bráðhættulegur í frosti, snjó og regni. Það ætti alls ekki að taka yfir 12 til 15 mínútur að komast milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar á okkar dögum, en ferðalagið tekur venjulega um 25 mínútur og oft talsvert lengri tíma. Um milljón manns eyðir því um 10.000.000 mínútum eða 16.666 klst. og 40 mín, eða rúmum 20.833 átta stunda vinnudögum á ári í óþarfa silagang á þessari leið. Ef einhver heldur, að hér sé um hæpna útreikninga að ræða, þá er þess að minnast, að það er ekki ein milljón, heldur a. m. k. 7 milljónir, sem leggja að einhverju leyti leið sína um Hafnarfjarðarveginn, meðan jörðin er að silast sporbaug sinn í kringum sólina.
Slæmir vegir í þéttbýli eru dýrir á okkar tímum. Í hvert sinn, sem við silumst milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur, erum við að greiða vegatoll hinnar ólögðu brautar, án þess að þau útgjöld komi að nokkru gagni. En seinagangur er ekki að öllu leyti neikvæður. Hann gefur ferðamönnum m. a. tóm til þess að athuga umhverfið, þegar sessunauturinn er ekki allt of skemmtilegur og aðlaðandi.
vegur i hrauni-234Leiðin liggur úr Hafnarfirði, einhverju sérkennilegasta bæjarstæði hér á landi. Náttúran hefur gert frumdrætti að dálitlu listaverki upp frá höfninni, og það er vandmeðfarið eins og öll verk sinnar tegundar. Helztu hlutar þess eru hraun, lækur og hamar. Hvert þeirra býr yfir sérstökum töfrum, sem mannanna verk eiga að lúta, en ekki eyðileggja. Það er hægt að ganga þannig frá hlutunum í þessum bæ, að hraundrangarnir séu aðeins ljótir og leiðir farartálmar, sem skaga svartir og hálfbrotnir út í göturnar, gjóturnar séu óþverraholur, og lækurinn falli í óyndislegum sementsstokk til sævar. Þótt Hafnfirðingar kannist við slík fyrirbrigði og þekki hverfi, þar sem hverju húsinu er troðið að öðru, svo að eitt rekur sig á annars horn, og göturnar eru furðulegir krákustígir, þá blasir víðar við sjónum smekkvísi og umhyggja fyrir verkum skaparans. En bærinn á eftir að vaxa mikið. Það er ekki of í lagt, að á svæðinu Hafnarfjörður — Reykjavík muni búa um 180 þús. manns árið 2000, ef engin sérstök ógæfa sækir okkur heim. Það er jafnvel sennilegra, að um aldamótin muni búa á þessu svæði rúmlega 200 þúsundir manna. Hafnarfjörður mun eflaust eiga eftir að gera betur en tvöfaldast að íbúatölu á næstu 38 árum. Framtíðaráætlanir um skipulag bæjarins verður að gera á grundvelli þess, að hér rísi upp stórborg einhvern tíma. Hún mun m. a. teygja sig yfir hraunið meðfram nýja veginum, upp Setbergshlíðina og inn hraundalinn. Þar á lækurinn og umhverfi hans að vera mesta borgarprýðin, tjarnir og trjágarðar. — Einnig mun byggð þéttast um Jófríðarstaðaland frá Skuld og suður og austur dalinn meðfram Grænugrófarlæk.
hafnarfjordur-237Hér er ekki ætlunin að dveljast einkum við framtíðina, heldur hyggja lítið eitt að fortíðinni. Hafnarfjörður er með elztu verzlunarhöfnum á landi hér. Fjörðurinn verður aðalhöfn landsins á 15. öld og heldur því sæti að mestu fram á daga Skúla Magnússonar. Skúli gamli bjó í Viðey og vildi hafa innréttingarnar sínar, nýsköpunarfyrirtækin, sem hann stofnaði, sem næst sér. Það var upphaf Reykjavíkur. Við verðum að fyrirgefa honum staðarvalið, af því að honum gekk gott eitt tíl.
Hér í firðinum mun lútherskt kirkjuhald eiga upphaf sitt á Íslandi, hér sló fyrsti íslenzki kaupmaðurinn tjöldum og hér hófst rafvæðingin á Íslandi hjá honum Reykdal. Þótt Hafnarfjörður væri svo mikilvægur verzlunarstaður á 15. og 16. öld.
En Skálholtsstaður var höfuðsetur Íslands, meðan hér bjó frumstæð landbúnaðarþjóð í atvinnuefnum, en ekki stundinni lengur. Hefði biskupsstóllinn hins vegar staðið hér á Innnesjunum í landnámi Ingólfs, hefði hann orðið grundvöllur þeirrar borgar, sem Ísland skorti langan aldur. En stóllinn stóð á sínum stað, og það þurfti eitt mesta eldgos veraldarsögunnar að viðbættum ógurlegum jarðskjálftum til þess að hrekja hann til strandar, og á leiðinni liðaðist hann nær algjörlega í sundur.
maegnadys-231Hafnarfjörður var löngum verzlunarstaður án þess að vera svo mikið sem þorp, og hingað lágu koppagötur úr ýmsum áttum yfir hraunin allt til ársins 1873. Að innan lágu Gömlufjarðargötur, troðningar frá túngarðshorni á Hraunsholti að Sjónarhóli, og þaðan niður um Háaklif hjá hliðinu á Hellisgerði. Þar stendur nú hálfbrotinn klettur, Svensensklettur. Kletturinn er kenndur við skipstjóra, Svensen, sem lengi sigldi upp Hafnarfjörð á vegum Knudtzons. Þangað gekk hann til þess að skyggnast til veðurs og gá til skipa.
Þá var Kristinn Zimsen verzlunarstjóri hjá Knudtzon hér í Firðinum. Hann gekkst fyrir því, að vegur var lagður frá Sjónarhóli yfir Flatahraun inn í Engidal. Þetta varð svo konunglegur vegur, að hér eftir var talið 10 mínútna skokk milli fyrrgreindra bæja.
Kóngurinn kom í Fjörðinn ári síðar, en Hafnfirðingar reyndust mjög tómlátir, þótt hans hátign birtist á Mölinni. Yfir Háaklif var lagt siglutré milli kletta, skreytt birki og lyngi. Klettarnir voru svo háir, að það var vel reitt undir „lauftréð“. Kóngur hafði orð á því, að honum fannst sem hann hrapaði ofan í bæinn, þegar hann fór niður Háaklif.
dys arnarnesi-231Niðri á Mölunum var fólk í óðaönn að taka saman fisk. Kóngur gekk um sjávargötuna frá Linnetskletti og vestur að húsi Kristins Zimsens, sem eitt sinn var hús Bjarna Sívertsens. Við götu hans var engin skrúðfylking glápandi þegna, horfandi höggdofa á, hvernig kóngurinn hreyfði sig. Þó voru það ýmsir, sem veittu honum óskipta athygli. Börnin hættu leikjum sínum og fylgdust álengdar með hverju fótmáli hans. Meðal þeirra var Nielsina Abigael Ólafsdóttir, þá á 5. ári, en hún sagði löngu síðar Gísla Sigurðssyni frá konungskomunni til Hafnarfjarðar og hann mér. Níelsína giftist Daníel Daníelssyni dyraverði í stjórnarráðinu.
Á stakkstæðunum héldu menn áfram að rogast með börur sínar og taka saman fiskinn, rétt eins og ekkert væri um að vera í plássinu. Þó er þetta ekki öldungis rétt, því að maður nokkur vék af einu stakkstæðinu rétt hjá Knudtzonsbryggju, gekk í veg fyrir konung og bauð uann velkominn í plássið. Nafn þessa konungdjarfa Hafnfirðings mun með öllu gleymt, og ræðan var aldrei skráð. Hún var þýdd fyrir konung, og hann gaf þessum fullrúa hafnfirzkrar sjómannastéttar gullpening fyrir kveðjuna, en hann heigði sig og gekk aftur til vinnu sinnar við fiskinn.
Kristinn Zimsen bauð konungi inn, og Katinka, dóttir hans, færði honum blómvönd úr garðinum bak viðð húsið. Kóngur þáði glas af léttu öli. það voru veitingarnar, og tók stúlkuna á kné sér og þakkaði henni móttökurnar.
Konungur hvarf á braut upp Háaklif og hélt með föruneyti sínu n n veginn frá Sjónarhóli. Hann hafði öldungis óviljandi orðið til þess, að Hafnfirðingar kynntust vegabótum.
arnarneslaekur-231Hafnfirðingar voru svo hrifnir af nýja veginum, að á næsta ári höfðu þeir uppi allmikil áform um vegabætur. Þann 12. apríl kemur hreppsnefnd Álftaneshrepps til aukafundar, og segir svo m. a. í fundargerðarbókinni: „Á fundinum var fyrst rætt, hverjar uppástungur skyldi gjöra um, hvað vinna skyldi að þjóðveginum á næsta sumri. Var samþykkt af öllum nefndarmönnum, að góður vegur skuli lagður frá hinum nýja vegi, sem liggur ofan í Hafnarfjörð og suður undir Hvaleyri, og ætlar nefndin til þess 800 kr. þurfi, en skyldi upphæð þessi ekki fást öll, álítur nefndin óumflýjanlegt að gjöra við kafla þann, sem kallast Hamar, og nú til þess ætla 400 krónur. Einnig álítur nefndin mjög nauðsynlegt að leggja brú yfir mýrina frá trébrúnni á Hraunsholtslæk inn að Arnarneslæk, og ætlar nefndin, að til þess að gjöra góða brú mundi þurfa 1000 krónur, en að mikið megi bæta mýrina með 400—500 krónum. Var oddvita falið að semja uppástungu um þetta.“ Af fundargerðinni sést, að brýnustu vegabæturnar voru að ryðja braut yfir Vestur-Hamarinn, þar sem Vélsmiðja Hafnarfjarðar stendur, og „brúa“ Austurmýrina, sem nú kallast Hofstaðamýri. Að brúa merkir að gera veg, bera a. m. k. ofan í verstu svakkana í mýrinni. Talað er um trébrú á Hraunsholtslæk, en hvenær hún var gerð, er mér ókunnugt. Menn ætla að ráðast í talsvert og eru allbjartsýnir.
Alþingi fékk nokkurt fjárforræði með stjórnarskránni 1874, en afl þeirra hluta, sem gera skal, var þó af býsna skornum skammti. Hafnarfjardarhraun-234Lán voru ekki auðfengin, og lítið varð oft úr framkvæmdum, þótt viljinn væri góður. Árið eftir berst hreppsnefndinni beiðni frá Reykvíkingum um styrk til brúargerðar á Elliðaárnar. Hafnarfjörður hafði verið helzta verzlunarhöfn við Faxaflóa, og þangað höfðu bændur sótt í kaupstað hundruðum saman austan úr sveitum, þótt tekið væri að byggja upp Reykjavík. Brúargerð á Elliðaárnar var fyrirboði þess, að viðskiptaleið bænda mundi breytast, og hreppsnefndin synjaði um styrkinn. Þegar þetta mál er til umræðna, kemur fram, að Konungsvegurinn yfir Flatahraun liggi undir skemmdum. Veittar eru 300—400 kr. til þess að láta bera ofan í hann. Brúargerðin yfir Austurmýrina hefur auðsæilega strandað á féleysi, en margt kallar að. Álftnesingar þurfa að komast yfir mýrarfenin undan túninu á Selskarði, en þar „er ófær vegur“, og 400 kr. eru veittar til „brúargerðar“ þar. „Ef mögulegt væri að fá meira fé“, ákveður nefndin að ráðast á Hraunsholtið , láta ryðja þar „vegarbreidd og gjöra skurð við hlíðarnar“.
Til þess ætlar hún 200 kr., ef hægt er á einhvern hátt að höndla þá fjárhæð.
Voluleidi-231Árin líða, og lítið er hægt að framkvæma sökum fátæktarinnar. í 1000 ár höfðu menn búið á Íslandi án þess að leggja nokkurn vegarspotta, svo teljandi sé. Menn höfðu slarkað einhvern veginn yfir ófærurnar eða orðið til í þeim. Menn björguðust eða fórust; það er hið endalausa efni íslenzkra ferðasagna í gamla daga. Hver kaupstaðarferð var svaðilför víðast á landinu. Og menn þurftu ekki að leggja í langferðir til þess að lenda í lífsháskum. Féleysi, þróttleysi, klæðleysi, vegaleysi og allsleysi varð mörgum að fjörtjóni milli bæja, ef nokkuð varð að veðri, en mórum, skottum og illum vættum var kennt um ófarirnar. Álfhóll heitir klapparhóll á Digraneshalsi. Við hann er kennd Álfhólsbraut. Það er dálítill hlykkur á götunni hjá hólnum, af því að Finnbogi Rútur bannaði vegagerðarmönnum að brjóta byggð álfanna. Rétt sunnan við hólinn innan girðingar eru tættur sennilega af stekk. Þar í urðinni á að vera huslaður maður, sem varð úti á leiðinni milli Bústaða og Digraness. Þetta á að hafa verið ekki mjög merkilegur borgari á sinni tíð, og þess vegna var ekki fengizt um hann frekar.
Hábunga Garðaholts heitir Völuleiði. Undan útnorðurhorni girðingar á háholtinu vestan vegar er dys. Ekki á völva að hafa verið heygð þar að fornu, heldur mæðgur tvær, sem urðu þar úti á leið frá Bessastöðum að Görðum. Sagt er, að konan hafi farið að Bessaslöðum með unga dóttur sína, sem hún kenndi einum manni yfirvaldsins, en sá vildi ekki við kannast. Af þeim sökum féll sá grunur á, að móðirin hefði fargað barni sínu og sér sjálfri á þessum stað, lagzt fyrir og hætt að þreyta göngur milli góðbúanna.
Um 1912 verður maður úti frá Lásakoti í Skógtjarnarhverfi á leið austur með Völuleiði. Hjörleifur, faðir Ingimundar Hjörleifssonar í Ásbúðartröð 3, verður úti í Garðahrauni veturinn 1909—10.
gardar-231Það þurftu margir að greiða dýran vegatoll, af því að hér voru hvorki til brýr né vegir. Verstu mýrarsvakkarnir út á Álftanesið voru brúaðir á árunum eftir 1876, en árið 1879 er fyrst ráðizt í vegagerð yfir Hraunsholtið. Á næstu árum geisa fádæma harðindi hér á landi, en allt um það eru Garðhreppingar, sem voru orðnir sérstakt hreppsfélag, allathafnasamir við vegagerð. Árið 1881 kemst vegur yfir Hraunsholtið, og þá og á næsta ári munu gerðar brýr yfir Austurmýrina og upp Arnarnesið. Sá vegarkafli að Arnarneslæk var löngum nefndur „Mýrarbrú“. Arnarneslækurinn var þó óbrúaður enn um skeið.
Árið 1883 er tekið að leggja veg frá Hamrinum suður á Hvaleyri og hugsa fyrir brú á Kópavogslæk. Sú brú mun hafa komizt á 1884 eða 1885, og hefur sennilega einungis verið göngubrú í fyrstu. Um þær mundir eignast Garðahreppur nýja stétt embættismanna, vegabætarana, og bera þeir Magnús Brynjólfsson á Dysjum og Þorgils Halldórsson í Miðengi fyrstir þann titil. Hreppnum var skipt í umdæmi milli þeirra. Skyldi Magnús sjá um vegagerðina í Hafnarfjarðarhraunum, en Þorgils í Garðahverfi og uppbæjum.
Ekki urðu neinar stórbreytingar á vegamálum hreppsins við tilkomu þessara embættismanna. Af samgöngubótum fara heldur fáar sögur næsta áratuginn. Verkfærakostur manna var af mjög skornum skammti, venjulega ekki annað en skófla, járnkarl, haki eða mölbrjótur og handbörur. Árið 1899 samþykkir hreppsnefndin að kaupa Landssjóðsverkfæri fyrir kr. 17,50. — sautján krónur og fímmtíu aura — til hreppsvegasjóðs. Þá var „kirkjuvegurinn með sjónum fram að Görðum orðinn bráðófær“ og skyldi ráðizt í endurbætur á honum með 300 kr. lántöku.
Lítið var fengizt um vega- og gatnagerð í þorpinu sjálfu. Brú var gerð á Bruarhraunsklettur-231lækinn um 1785, að því er Gísli Sigurðsson telur. Sú brú var sunnan við Brúarhraunsklett. Annar brúarsporðurinn stóð á Brúarklöppinni, en hinn á eyraroddanum. Þetta mannvirki kom helzt að gagni á fjöru, því að á flóðinu var það umflotið sjó. Síðar er brúin færð, og stendur hún þá um skeið fram undan þeim stað, þar sem búð Olivers er nú. Þessar brýr voru gerðar og kostaðar af kaupmönnum. Í þriðja sinn er henni fundinn staður undan Einarsbúð, og það er sá brúarflutningur, sem vofir yfir 1902. Þegar brúin var færð, fylgdi því m. a. sá kostnaður að teygja veginn að henni. Hreppsnefndin leitaði til sýslunefndar um fjárstyrk til framkvæmda og fékk 500 kr. til vegagerðar niður í Hafnarfjörð, um þorpið og til búargerðar gegn tvöfaldri upphæð til sömu framkvæmda annars staðar frá. Það fé lagði hreppsnefndin til, og þá um vorið var í fyrsta sinn lagður „viðunanlegur akvegur“ ofan í Hafnarfjörð.
Sumarið 1902 var í fyrsta sinn hægt að komast með vagna niður í verzlunarstaðinn Hafnarfjörð, en ekki í gegnum þorpið. Á næsta ári var nýja brúin byggð á lækinn og hafizt handa um vegagerð í þorpinu. Þá varð það, að búendur í Brekkunni sunnan lækjar báðu hreppinn að leggja til land undir veg, sem þeir ráðgera að leggja beint upp Brekkuna (Illubrekku) milli sýslumannshússins og barnaskólans, „þar sem nú er mjór gangstígur“. Einnig báðu þeir um fjárstyrk til vegagerðarinnar. Þeir fengu landið, ræmu af lóð barnaskólans, og var heitið 20 króna virði í vinnu, sem hreppurinn útvegaði. Með þennan bakhjarl var einnig tekið að leggja Suðurgötuna. Þar með opnaðist akfær leið gegnum Hafnarfjörð, og árið eftir veitti landssjóður 2.800 kr. til vegagerðar milli Hafnarfjarðar og Vogastapa. Sá vegur átti langt í land, en þó var áfanga náð; Hafnarfjörður var kominn í vegasamband við umhverfið. Hitt var annað mál, að vegakerfið beindi brautir manna til Reykjavíkur, en ekki hinnar fornu hafnar við Faxaflóa.
Helztu heimildarmenn mínir eru þeir Gísli Sigurðsson lögregluþjónn og Adolf J. E. Petersen verkstjóri. – B. P.“

Heimild:
-Alþýðublað Hafnarfjarðar, 21. árg., jólablað, 1962, bls. 6-8.

Garðahverfi

Engidalsvegur aftan Fjarðarkaupa.

Brunntorfur

Eitt af því er vekur jafnan athygli þeirra sem aka um Krýsuvíkurveginn er myndarlegur skógur sunnan vegarins í og ofan við svonefndar Brunatorfur.

Brunatorfur -7

Almenningur ofan Straums.

Eftirfarandi fróðleik um skóginn í Brunatorfum er að finna í BS-ritgerð Kristbjargar Ágústsdóttur, Skógræktarsvæði í fortíð, nútíð og framtíð -skipulagstillaga-, sem hún vann í Landbúnaðarháskóla Íslands, Umhverfisdeild. Skógurinn, sem nú er orðinn hinn myndarlegasti og ágætasta útivistarperla í nágrenni Hafnarfjarðar, varð ekki til af engu. Hér má m.a. sjá hvað þurfti til.

„Ég vil þakka öllum þeim sem komu með mér í „Hraunið“ hvort sem var til að fá sér góðan göngutúr í fallegu umhverfi eða til að taka fyrir mig punkta á staðsetningartæki. Sérstakar þakkir fá viðmælendur mínir Kristinn Skæringsson, Arngrímur Ísberg og Bergljót Thoroddsen Ísberg. Þau lögðu til ómetanlegar heimildir bæði til verkefnisins og til mín persónulega. Að lokum vil ég þakka Ómari Smára Ármannssyni, Jónatani Garðarssyni, Áslaugu Traustadóttur og Þresti Eysteinssyni fyrir þeirra framlag til verkefnisins.
Nú á árinu 2006 eru 20 ár síðan Björn Þorsteinsson afi minn dó. Þessi ritgerð er tileinkuð honum og arfleið hans „Hrauninu“.

Björn Thorsteinsson

Björn Þorsteinsson í Brunatorfuskógi.

Fortíð – Upphaf og þróun
Í upphafi 6. áratugarins féll hluti jarðarinnar Straums, um 2000 ha, til Skógræktar ríkisins. Var það Bjarni Bjarnason skólastjóri Héraðsskólans á Laugarvatni sem gaf landið en á þessum tíma var hann á Laugarvatni og tók þar meðal annars þátt í stofnun Menntaskólans á Laugarvatni 1953. Straumur var landstór jörð og þar hafði verið fjárbúskapur til margra ára (munnleg heimild, Kristinn Skæringsson, 2. mars 2006). Landið var því mikið beitt, hrjóstrugt og ófrjótt, það kallaði á friðun og gróðursetningu. Svæðið kallast Almenningur og er sunnan við Kapelluhraun í Hafnarfirði. Í bók Hákonar Bjarnasonar, Ræktaðu garðinn þinn, sem fyrst kom út árið 1979 segir um þetta svæði: „Trjárækt hefst að nýju í Reykjavík, þegar Sigríður Bogadóttir, kona Péturs biskups Péturssonar, og Árni Thorsteinsson landfógeti flytja til bæjarins um og eftir miðja 19. öld. Létu þau sækja reyniviði suður í Almenninga og gróðursetja í garða sína“ (Hákon Bjarnason, 1987:14). Þessi tilvitnun sýnir að landið var áður gróðursælt. Svæðið var það fyrsta sem skógræktin eignaðist nálægt höfuðborginni. Það er enn í eigu Skógræktar ríkisins fyrir utan um 200 ha sem voru seldir (munnleg heimild, Þröstur Eysteinsson, 7. mars 2006).

Björn Thorsteinsson-2

Björn við Skilningstréð.

Skógræktin hóf árið 1953 að girða um 200 ha af svæðinu og var því lokið ári síðar (munnleg heimild, Kristinn Skæringsson, 2. mars 2006). Með nýjum skógræktarlögum sem tóku gildi 1955 var skógræktarstjóra heimilt að leigja land til einstaklinga, félaga eða stofnana innan girðinga Skógræktar ríkisins, gegn því að leigutakar gróðursettu barrskóg í landið. Þessi leigusvæði voru með erfðafestu og gerðir voru sérstakir samningar um þau (lög nr.3/1955). Þetta voru kallaðar landnemaspildur og fengu landnemar allar plöntur gefins en ekki mátti byggja á landinu.

Þrátt fyrir að svæðið í Straumi væri ókræsilegt til gróðursetningar voru fjórir félagar sem gerðu samning við skógræktina um leigu á landi. Þeir fengu hver 10 ha svæði í suðvestur hluta girðingarinnar. Þessir menn voru: Björn Þorsteinsson (1918-1986), Broddi Jóhannesson (1916-1994), Marteinn Björnsson (1913-1999) og Þorbjörn Sigurgeirsson (1917-1988). Það sem þessir menn áttu sameiginlegt, auk þess að vera tengdir fjölskylduböndum, voru hugsjónir þeirra, eldmóður og áhugi á náttúrunni. Farið verður hér yfir stutt æviágrip hvers og eins.

brunatorfur-7

Í Brunatorfuskógi.

Björn Þorsteinsson fæddist á Þjótanda í Villingaholtshreppi. Hann ólst upp á Hellu og í Selsundi undir Heklurótum. Hann tók doktorspróf árið 1971, var prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands en hafði áður kennt bæði við Menntaskólann við Hamrahlíð og Gagnfræðiskóla Vesturbæjar. Margar bækur og greinar voru gefnar út eftir hann meðal annars Íslandssaga til okkar daga sem kom út eftir andlát hans. Björn var einlægur sósíalisti og mikill hugsjónamaður, hann tók þátt í allskyns félagsstarfi meðal annars formaður í Tékknesk-íslenska vináttufélaginu og í Félagi íslenskra fræða sem og forseti Sögufélagsins. Vorið 1985 hlaut hann viðurkenningu fyrir ræktunarstörf sín í „Hrauninu“ frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fyrir merkilegt framlag til umhverfismála á höfuðborgarsvæðinu. Björn lést árið 1986, 68 ára gamall.

Broddi Jóhannesson

Broddi Jóhannesson (1916-1994).

Broddi Jóhannesson fæddist í Litladalskoti í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði. Hann lauk doktorsprófi í sálarfræði í Munchen 1940 og fór þá að kenna við Kennaraskólann. Árið 1962 tók hann við skólastjórastöðu við Kennaraskólann. Árið 1971 varð skólinn að Kennaraháskóla Íslands og varð Broddi rektor hans til ársins 1975. Broddi setti sitt mark á þróun kennaramenntunar á Íslandi með hugsjónum sínum og dug. Hann var mikill náttúrunnandi og náttúruverndarsinni löngu áður en talað var um menn sem slíka. Broddi lést árið 1994, 78 ára gamall.

Marteinn Björnsson fæddist að Orrastöðum í Torfalækjarhreppi í Austur-Húnavatnssýslu. Hann lauk prófi í verkfræði við Danmarks Tekniske Højskole árið 1944 og vann sem verkfræðingur meðal annars hjá Bæjarverkfræðingnum í Reykjavík og Almenna byggingarfélaginu en einnig var hann með sjálfstæðan rekstur. Lengst af starfaði Marteinn sem byggingarfulltrúi Suðurlands með aðsetur á Selfossi (1958-83). Í því starfi vann hann mikið brautryðjandastarf við gerð leiðbeininga um gæði bygginga. Marteinn lést árið 1999, 86 ára gamall.

Brunatorfur - 9

Í Brunatorfuskógi.

Þorbjörn Sigurgeirsson fæddist að Orrastöðum í Torfalækjarhreppi í Austur-Húnavatnssýslu. Hann var doktor í eðlisfræði og frumkvöðull greinarinnar á Íslandi. Hann var meðal annars forstöðumaður Eðlisfræðistofnunar frá upphafi hennar árið 1958 til ársins 1966 og stjórnaði uppbyggingu nýrrar verkfræði- og raunvísindadeildar við Háskóla Íslands. Þorbjörn starfaði fyrst og fremst sem tilraunaeðlisfræðingur og jarðeðlisfræðingur og varð þjóðkunnur á svipstundu fyrir hraunkælingu við eldgos í Heimaey árið 1973. Þorbjörn lést árið 1988, 70 ára gamall.

Í upphafi höfðu menn ekki mikla trú á að hægt væri að rækta skóg í „Hrauninu“ og var það í raun tilraunastarfsemi hjá Hákoni Bjarnasyni skógræktarstjóra að láta þá félaga hafa landið til að sjá hvort það væri hægt.

Borgin

Þorbjarnarstaðaborg.

Á Hákon að hafa sagt við Björn eitt sinn að þetta hafi gengið betur en hann hafði búist við þar sem hann hafði talið landið vera alltof þurrt. Í bók Markúsar Á. Einarssonar, Veðurfar á Íslandi, sést á korti að svæðið er í jaðri 1200 mm úrkomusvæðisins og því var oft rigning í „Hrauninu“ en þurrt í Hafnarfirði (munnleg heimild, Arngrímur Ísberg, 6. mars 2006). Þrátt fyrir að búið væri að girða svæðið var ekki friður fyrir sauðfé, þarna voru frekar og heimavanar kindur sem fóru í gegnum allar girðingar. Suðurhluti girðingarinnar var að auki lélegur, þoldi illa snjó og var til vandræða. Girðinguna var reynt að laga á hverju vori í stað þess að endurgera þar sem dýrt og erfitt var að komast að með girðingarefni og aðeins þá dró úr ágangi sauðfjár, nægjanlega til að í ljós kæmu ýmis fjölgresi sem ekki höfðu sést áður (munnleg heimild, Kristinn Skæringsson, 2. mars 2006).

Aðkoma Kristins Skæringssonar að „Hrauninu“ var tengd starfi hans hjá skógræktinni, fyrst sem starfsmaður í plöntuafgreiðslu og síðar sem skógarvörður Suðvesturlands.

Brunatorfur-80

Brunatorfuskjól.

Kristinn fylgdist með þeim félögum við skógræktarstörfin og gaf þeim ráðleggingar. Þegar fyrst var tekið jólatré í „Hrauninu“ fór Kristinn með Þorbirni suður eftir en Þorbjörn var tregur við að höggva tré sem hann hafði gróðursett. Það var aðallega stafafura sem var gróðursett enda landið rýrt og hentaði fyrir furuna. Einnig voru gerðar tilraunir með margar tegundir. Plönturnar voru til reiðu hjá skógræktinni svo lengi sem þeir tóku við og þeir voru dugmiklir, landið kallaði á það (munnleg heimild, Kristinn Skæringsson, 2. mars 2006).

Mikið var gróðursett í upphafi og þétt en ekki mikið klippt frá þar sem verið var að hugsa um skjólið. Eftir að Marteinn hóf störf á Suðurlandi árið 1958 og flutti á Selfoss fékk hann svæði fyrir austan og lagði áherslu á ræktun þess. Broddi gróðursetti heilmikið í „Hrauninu“ en fékk síðar land á Silfrastöðum í Skagafirði þar sem hann gróðursetti. Það voru því Björn og Þorbjörn sem sinntu „Hrauninu“ langmest. Þeir gengust upp í þessu og hrifu fólk með sér. Einn af þeim sem hreifst var Arngrímur Ísberg og fékk hann úthlutað svæði við hlið Marteins árið 1980 (munnleg heimild, Arngrímur Ísberg, 6. mars 2006).

Brunatorfur-8

Í Brunatorfuskógi.

Landið hafði verið ofbeitt í langan tíma og því illa farið. Það var ekki fyrr en uppúr 1980 sem girðingin varð loks fjárheld. Í gegnum árin gengu félagarnir um svæðið og báru á áburð en einnig voru gerðar tilraunir með lífrænan heimilisúrgang. Auk þessa var gróðursett lúpína í leirflög til að undirbúa jarðveg betur. Þessi vinna bar þann árangur að allskonar gróður fór að spretta sem enginn vissi að væri til staðar eins og blágresi og fleiri blómategundir (munnleg heimild, Bergljót Thoroddsen Ísberg, 6. mars 2006). Félagarnir reyndu að gróðursetja Bæjarstaðabirki en einhverra hluta vegna gekk það ekki, það þreifst illa og lognaðist út af. Náttúrulega birkið tók aðeins við sér þegar kindin, eða ókindin eins og „Hraunverjar“ kölluðu hana, fór en eftir árið 1990 tók það virkilega við sér. Einirinn tók einnig við sér og reis upp og burknar sýndu sig í hellisskútum. Fuglalíf er að auki orðið töluvert í „Hrauninu“ (munnleg heimild, Arngrímur Ísberg, 6. mars 2006).

Fornasel

Fornasel – vatnsstæði.

Stafafura er ríkjandi tegund í „Hrauninu“ en einnig má þar finna sitkagreni, rauðgreni, broddfuru, lindifuru (alpa-afbrigði), alaskaelri og þöll en ekki í miklum mæli. Mikið var reynt við lerki en því virtist ekki líka vel vistin, hvorki rússalerki né síberíulerki. Þar er einnig að finna tvo silfurreyni og töluvert af ilmreyni en hjónin Arngrímur og Bergljót týndu reyniber, dreifðu yfir birkikjarr og létu svo fuglana um afganginn. Einnig voru teknir sprotar af öspum og þeim stungið niður í leirflögin og gekk það vel. Aftur á móti þrifust ekki öll afbrigði. (munnleg heimild, Arngrímur Ísberg, 6. mars 2006). Í viðtali orðaði Arngrímur afraksturinn á þann hátt að: „þegar maður lítur yfir þessi ár sem við höfum verið þarna þá finnst mér að ávöxturinn hafi verið meiri og betri en maður bjóst við“.

Í ritgerðinni koma auk þessa fram tillögur og hugmyndir um nýtingu skógarins til framtíðar. Kristbjörgu er sérstaklega þökkuð afnotin af framangreindu efni.
Í Brunatorfum eru ýmsar fornleifar, bæði minjar og fornar götur.

Heimild:
-Kristbjörg Ágústsdóttir, Skógræktarsvæði í fortíð, nútíð og framtíð -skipulagstillaga-, BS-ritgerð v/Landbúnaðarháskóla Íslands,  Umhverfisdeild.

Brunatorfur-4

Í Brunatorfuskógi.