Færslur

Húsatóftir

Í bókinni “Mannfólk mikilla sæva – Staðhverfingabók“, sem gefin var út árið 1975, skrifuð af Gísla Brynjólfssyni, má lesa eftirfarandi um horfnu þurrabúðirnar í landi Húsatófta; Vindheima, Blómsturvalla, Dalbæjar og Hamra:

Vindheimar

Húsatóftir

Vindheimar.

Það var árið 1911, að Árni Jónsson á Húsatóftum seldi Magnúsi syni sínum í hendur þriðjunginn af sínum patri í Tóftum.
Á einum þriðja reisti hann sjáfstætt býli, sem hann nefndi Vindheima, og bjó þar með Vilborgu konu sinni og tveim börnum þeirra til vorsins 1919, að þau hjón fluttust til Reykjavíkur ásamt syni sínum Sigurði, mállausum.
En það er af Vindheimum að segja, að eftir að Árni fluttist þaðan 1919, að næsta ár er Jódís dóttir hans talin þar til heimilis með ungum syni sínum, Árna Vilberg.
Síðan stendur húsið autt – og þó.

Húsatóftir

Vindheimar – tóftir.

Austur í Járngerðarstaðahverfi er Templarahúsið sameiginleg miðstöð hverfanna þriggja fyrir mannfagnaði hvers konar. En þangað er klukkutíma gangur úr Staðarhverfi, Og ósjaldan um hraun að klöngrast, sé Rásin óvæð. Staðhverfingar bregða því á það ráð um sinn að fá Vindheimahúsið léð til samkomuhalds.
Að lokinni álfabrennu á þrettándanum og dansi kringum hana uppi á barðinu austur af Stað, er hlaupið við fót heim að Vindheimum. Ljós eru tendruð, nikkan tekin á kné og danssporin stigin af ungum og öldnum.

Húsatóftir

Vindheimar (Kristinn Reyr).

Á stundum er polkinn eða rællinn svo heillandi á Vindheimaballi, að pörin leiðast ekki til síns heima, fyrr en mál er að skinnklæðast, hrinda fram skipi og róa út á mið í skímu komandi dags.
Fleira verður og til tíðinda á Vindheimum þau ár. Þangað kemur ekki ómerkari “list um landið” en sjálfur Ingimundur fiðla. Segist ætla að halda samkomu, fyrst húsið sé falt – aðgangur 10 aura, takk. Auglýsingin berst eins og eldur í sinu frá manni til manns, bæ frá bæ. Og snillingurinn stillir sína strengi og strýkur þá töfraboga. Hann syngur sumpart með eða leikur aðrar listir fyrir troðfullu Vindheimahúsi.

Húsatóftir

Vindheimar – sjávargatan. Bærinn (tóftirnar) efst t.h.

Líkt og himneskur sendiboði með sakramenti snillinnar inn í fásinnið eitt vökubjart vor.
Að öðru leyti eru Vindheimar í eyði til 1925, að þangað flytur Sveinn Ásmundsson með ráðskonu, Gíslínu Jónsdóttur. Þau voru þar í eitt ar.
Tvær vetrarvertíðir – 1924 og 1925, reri Gísli silfursmiður Gíslason skipi sínu frá Húsatóftum og hafði bækistöð á Vindheimum.
Næst er getið um fólk á Vindheimum árin 1933 og 1934. Þá búa þar hjónin Benedikt Benediktsson og Anna Jónsdóttir. Þau fluttust til Reykjavíkur.
Þar með er sögu Vindheima lokið.

Dalbær

Húsatóftir

Dalbær.

Á árunum 1906 til 1964 voru byggð ekki færri en fimm tómthús í landi Húsatófta. Ber það í raun og veru ljósan vott um það, hve atvinnuástandið í plássinu var gott og hve björtum augum menn litu á framtíðarmöguleikana í Staðarhverfinu allt fram á fjórða áratuginn.
Fyrsta þurrabúiðin, sem hér verður nefnd, – Dalbær – reist árið 1906 af þeim Ingvari Hólmsteinssyni og Eydísi Þorsteinsdóttur. Dalbæ fylgdi tæpl. tveggja dagslátta land, tún og garður, sem gaf 15 tunnur af kartöflum árið 1916.

Húsatóftir

Dalbær – tóftir.

Þau Ingvar og Eydís eignuðust fjögur börn, sem upp komust; Guðrún, húsfreyja í Merki, Eydís á heima í Keflavík, en tveir synir dóu á besta aldri. Eyjólfur andaðist 31 árs úr lungnabólgu austur á Eskifirði 13. ágúst 1923 og Sveinn drukknaði 28 ára gamall þegar Björgvin fórst á Jángerðastaðasundi með allri áhöfn 14, mars 1926.
Ingvar Hólmsteinsson lést 14, sept. 1917, en Eydís ekkja hans bjó áfram í dalbæ næstu sjö árin. Þá fluttist hún til Guðrúnar dóttur sinnar í Merki þar sem hún var til dauðadags. Hún andaðist 30. des. 1936 og var þá komin yfir hálfnírætt.

Húsatóftir

Dalbær – tóftir.

Eftir Eydísi komu að Dalbæ Gunnsteinn Einarsson frá Húsatóftum með sinni ungu konu, Elsie Jónsdóttur, Helgasonar frá Hömrum. Þau byggðu steinhús það sem enn stendur í Dalbæ og mega heita þar síðustu ábúendur. Þau fluttust inn í Járngerðarstaðahverfi 1946. Guðsteinn Einarsson tók við hreppstjórastarfinu af föður sínum og hafði það á hendi til dauðadags. Einnig var hann oddviti hreppsnefndar um tíma. Hann var fróður um sögu Grindavíkur og minnugur á liðna atburði, eins og ritgerð hans í bókinni “Frá Suðurnesjum” ber með sér.
Eftirlifandi ekkja Guðsteins er Sigrún Guðmundsdóttir frá Ísólfsskála. Hún varð hreppstjóri að manni sínum látnum og er eina konan á Íslandi, sem gegnt hefur því embætti.

Blómsturvellir

Húsatóftir

Blómsturvellir.

Til forna var hjáleiga frá Stað, nefnd Blómsturvellir. Þegar úttekt var gerð á Grindavíkurhöndlun árið 1783, átti þar heima Jón nokkur Knútsson, en ekki er af honum önnur vitneskja en sú, að hann skuldaði versluninni 3 ríkisdali og 64 1/2 skilding. Og Blómsturvellir þeir fóru í eyði um aldamótin 1800 vegna sandágangs. Svo liðu rúmlega hundrað ár.
Þá gerðist það, að reist var þurrabúð með þessu fallega nafni í landi Húsatófta. Hún er fysrt nefnd í manntali árið 1914. Þá eru þeir einir taldir þar til heimilis bræðurnir Ólafur og Árni, synir Vilborgar og Árna á Húsatóftum. Þeir drukknuðu báðir með Magnúsi bróður sínum þann 8. apríl 1915.
Næsta ár er enginn talinn eiga heima á Blómsturvöllum.

Húsatóftir

Blómsturvellir (Kristinn Reyr).

En árið eftir, 1916, flytjast þau hjónin, ágústa systir þeirra bræðra og Pétur Jónsson frá Hópi, Grindavík, í Þessa þurrabúð ásamt sínu sínum Kristni, þá á öðru ári. Þau hófu búskap að Hæðarenda í Járngerðarstaðahverfi, fluttust skömmu síðar í Akrakot, en komu nú þaðan út í Hverfi, eins og kallað var, og tóku Blómsturvellina á leigu.
En með afsalsbréfum, dagsettum 17. nóvember 1917, gefur Árni Jónsson á Vindheimum dóttur sinni, Ágústu, Blómsturvallalóðina, 900 ferfaðma – en selur Pétri húsið, sem á henni stendur fyrir 810 krónur.

Húsatóftir

Blómsturvellir – útihús.

Næstu árin er Pétur formaður á áraskipi, sem hann gerir út á vetrarvertíð. Hann fluttist með fjölskyldu sína til Keflavíkur árið 1922.
Stóð húsið autt um skeið, en var síðan rifið og efniviður þess fluttur sjóleiðina með mótorbát til Keflavíkur. En ekki varð úr, að húsið yrði endurbyggt þar.
Eftir það er ekki talin byggð á Blómsturvöllum, í fagurnefndu þurrabúð úr landi Húsatófta.
En líta má nánar á grunn Blómsturvallahússins.
Hann var 4.60×5.20 metrar að meðtalinni veggjaþykkt 40 cm eða um 24 fermetrar. Auk þess anddyri eða viðbyggður skúr 3.30×3.30 – rúmir 10 fermetrar.
Að sögn var húsið úr timbri, alþiljað að innan í kross.

Húsatóftir

Blómsturvellir – tóftir.

Á lofti voru geymd skinnklæði. Í anddyri stóð olíufat með drykkjarvatni, er borið var í fötum úr brunni í Dalbæjartúni. Úr anddyri var gengið í eldhús – en þar inni eldavél. borð og skápar. En úr eldhúsinu mátti fara hringinn um herbergin þrjú. Eitt þeirravar stofa með kommóðu í horni, borði og stólum. Á vetrarvertíð bættust fjölskyldunni nokkrir vermenn – nefndir útgerðarmenn í daglegu tali. Og urðu þá tveir að deila með sér rekkju.
Um haustnætur var Blómsturvallakjallarinn – sem enn má greina rústir af, næstum fullur af eldilviði til vetrarins. matmæli voru einnig geymd þar.

Hamrar

Húsatóftir

Hamrar.

Svo lét sr. Brynjólfur magnússon um mælt í líkræðunni yfir Jóni vitaverði helgasyni, að hann hefði tekið sér það allnærri að fara frá Reykjanesi, “en þó bar hann harm sinn vel og í hljóði”.
Og eflaust hefur honum gengið betur að sefa særða lund sína vegna þess, að hann fékk ærið verk að vinna við að byggja yfir sína stóru fjölskyldu og koma sér fyrir á nýjum stað. Jón fékk útmælda 900 ferfaðma lóð hjá Einari á Húsatóftum og byggði sér þar lítið, pappaklætt timburhús og kallaði á Hömrum. Það var aðeins 28 fermetrar að falatarmáli. Fyrsta árið voru þar 11 manns í heimili. En hjartarúmið á Hömrum var nóg, ekki stóð á því. Aldrei leið Jóni betur, segir sr. Brynfólfur, “en er hann hafði hóp vina sinna kringum sig og var þá jafnan fremstur í gleðinni og skemmtilegur viðræðum”.

Húsatóftir

Hamrar – útihús.

Á Hömrum voru litlar sen engar landsnytjar utan kartöflugarður. Þó hafði Jón oftast nokkrar kindur en ekki aðrar skepnur. En hann stundaði sjóinn af kappi, var formaður á skipi, sem hann átti með öðrum, og aflaði vel og mun afkoman því hafa verið eftir hætti allgóð, a.m.k. eftir að börnin fóru að komast upp.
Árið 1930 fékk Jón Stað til ábúðar og fluttist þangað. Eftir hann kom enginn að Hömrum og eru þau Agnes og Jón því einu húsráðendur í þessari þurrabúð á Húsatóftum.

Heimild:
-Mannfólk mikilla sæva – Staðhverfingabók, 1975, Gísli Brynjólfsson, bls. 92-110.

Grindavík

Grindavík 2024.

 

Húsatóftir

Í “Staðhverfingabók” Gísla Brynjólfssonar segir m.a. um “Blómsturvelli“, fyrrum þurrabúð við Hústóptir í Grindavík:

Staðhverfingabók

Staðhverfingabók.

“Til forna var hjáleiga frá Stað, nefnd Blómsturvellir. Þegar úttekt var gerð á Grindavíkurhöndlun árið 1783, átti þar heima Jón nokkur Knútsson, en ekki er af honum önnur vitneskja en sú, að hann skuldaði versluninni 3 ríkisdali og 64 1/2 skilding. Og Blómsturvellir þeir fóru í eyði um aldamótin 1800 vegna sandágangs. Svo liðu rúmlega hundrað ár.
Þá gerðist það, að reist var þurrabúð með þessu fallega nafni í landi Húsatófta. Hún er fyrst nefnd í manntali árið 1914. Þá eru þeir einir taldir þar til heimilis bræðurnir Ólafur og Árni, synir Vilborgar og Árna á Húsatóftum. Þeir drukknuðu báðir með Magnúsi bróður sínum þann 8. apríl 1915.
Næsta ár er enginn talinn eiga heima á Blómsturvöllum.
BlómsturvellirEn árið eftir, 1916, flytjast þau hjónin, ágústa systir þeirra bræðra og Pétur Jónsson frá Hópi, Grindavík, í þessa þurrabúð ásamt sínu sínum Kristni, þá á öðru ári. Þau hófu búskap að Hæðarenda í Járngerðarstaðahverfi, fluttust skömmu síðar í Akrakot, en komu nú þaðan út í Hverfi, eins og kallað var, og tóku Blómsturvellina á leigu.
En með afsalsbréfum, dagsettum 17. nóvember 1917, gefur Árni Jónsson á Vindheimum dóttur sinni, Ágústu, Blómsturvallalóðina, 900 ferfaðma – en selur Pétri húsið, sem á henni stendur fyrir 810 krónur.
BlómsturvellirNæstu árin er Pétur formaður á áraskipi, sem hann gerir út á vetrarvertíð. Hann fluttist með fjölskyldu sína til Keflavíkur árið 1922.
Stóð húsið autt um skeið, en var síðan rifið og efniviður þess fluttur sjóleiðina með mótorbát til Keflavíkur. En ekki varð ur, að húsið yrði endurbyggt þar.
Eftir það er ekki talin byggð á Blómsturvöllum, í fagurnefndu þurrabúð úr landi Húsatófta.”

Pétur Kristinsson

Pétur Kristinsson.

Pétur Kristinsson er afkomandi Blómstursvallafólksins. Hann sendi vefsíðunni eftirfarandi fróðleik:
“Blómsturvellir: 17. teigur á Hústóftavelli – Saga af mannfólki mikilla sæva:
Eyðibýlið Blómsturvellir í Staðarhverfi í Grindavík, 3116 fm lóð með um 100 ára gömlum hlöðnum húsgrunni. Land þetta hef ég leigt Golfklúbbi Grindavíkur og er þar nú rauður 17. teigur Hústóftavallar.
Á þriðjudaginn, 16. júlí 2013, fórum við Sonja ásamt vinahjónum okkar, Ingibjörgu og Óla, á Húsatóftavöll til að leika þar golf – og við Sonja þar í fyrsta sinn í þeim erindagjörðum.
Í móttökunni í golfskálanum kynnti ég mig sem Pétur frá Blómsturvöllum – og var það eins og um var samið; ég boðinn velkominn til leiks ásamt gestum mínum. Hitti ég þar fyrir Harald varformann Golfklúbbsins og gat ég frætt hann nokkuð um lands- og atvinnuhætti þar á staðnum á fyrri hluta síðustu aldar.

Húsatóftir

Húsatóftir fyrrum – efri bærinn (Austurbærinn). Teikning Kristinn Reyr.

Hófst nú leikurinn á 1. teig þar sem fyrstu 9. teigarnir og brautirnar raða sér uppeftir og inneftir hrauninu, snyrtilega aðlagaðir hrauninu. Þó þessi ferð ætti að heita golfleikur þá fór fljótlega á stað annar leikur í höfðinu á mér: Minningar. Hér höfðu forfeður mínir í föðurætt lifað og starfað. Þarna á Húsatóftum stóð ég væntanlega á tóftum húsa langafa míns og ömmu, Árna Jónsonar (f. 1850) og Vilborgar Guðmundsdóttur (f. 1852), sem fluttu að Húsatóftum árið 1907 með sjö börnum sínum, 13-25 ára, en þau fluttu frá Krýsuvík þar sem þau höfðu búið sjö árin þar á undan og verið með allt að þúsund fjár þar. Þar áður höfðu þau búið að Sperðli í Landeyjum þar sem Ágústa amma mín fæddist (f.1891) og systkini hennar.

Krýsuvík

Krýsuvík – Suðurkot um 1900; tilgáta.

Það sem lokkaði langafa í Staðarhverfið frá rolluskjátunum í Krýsuvík var útræðið þaðan; útgerðin heillaði – og nóg var af sonunum til að gera út – en það varð langafa og ömmu dýrkeypt.
Kristinn Pétursson ReyrGolfið hélt áfram með góðum tilþrifum á stundum og minningarnar hlóðust inn sem truflaði einbeitinguna í sveiflunni – en hvað með það: Var ég ekki á ættargrund og þarf maður alltaf að fara í gegnum lífið sem þota hugsandi aldrei um úr hverskonar efnivið maður er sorfinn ?
Þannig að ég lét hugann áfram reika samhliða sveiflunni.
Í Arfavík, á 13. og 14. braut, þar sem brimaldan brotnar var útræði mikið og sjórinn stundaður af miklu kappi í tíð langafa. Þarna stóð hún langamma mín þann 8. apríl 1915 og horfði út í gráðið þar sem veðrið gekk upp smám saman og él setti niður um kring. Þar úti á sjó átti hún þrjá syni sem allir fórust þar ásamt sjö öðrum bátsverjum á tíæringi.
Hann faðir minn, Kristinn Reyr, orti þessi þrjú síðari erindi um frændur sína, þá Magnús, Árna og Ólaf:

„Þann apríldag.
…..Og enginn sá
hvað afa mínum
innifyrir bjó
þann apríldag
– er átti hann
syni tvo á landi
og syni þrjá
í sjó.“

Kristinn Pétursson

Kristinn Pétursson Reyr.

Já, svona er sagan hjá mannfólki mikilla sæva. Maður nánast lítur í sand við þessum örlögum forfeðra sinna.
En eins manns dauði er annars brauð: Þegar á 17. teig er komið hefst saga afa og ömmu, þeirra Ágústu Árnadóttur og Péturs Jónssonar (f. 1889) frá Hópi í Grindavík. Langafi hafði útmælt lóð, 1914, fyrir syni sína, þá Ólaf og Árna sem drukknuðu. Við fráfall þeirra gefur langafi ömmu lóð þessa, Blómsturvellir, þar sem þau hefja búskap með pabba, þá á öðru ári, árið 1916. Við lát ömmu, 1969, eignast ég svo Blómsturvelli. Þarna stóð ég nær hundrað árum seinna með golfkylfu í hönd á ættaróðalinu, húsatóftum, hlöðnum kjallara sem enn stendur að hluta og þar útundan hlaðinn grjótgarður sem afmarkaði kálgarðinn við húsið sem afi reisti á húsgrunninum, 4,60 x 5,20 metrar, krossþiljað þar sem gengið var inn í eldhús úr útiskúr, 3,30 x 3,30.

Blómsturvellir

Blómsturvellir, teikning Kristins Reyrs.

Úr eldhúsinu var gengið í hring í herbergin þrjú. Þessi húskynni voru því alls um 34 fermetrar auk eldiviða- og matvælakjallara og rislofts sem skinnklæði voru geymd. Á vetravertíðum bættust fjölskyldunni nokkrir vermenn – þá nefndir útgerðamenn – og urðu þá tveir að deila með sér sömu rekkju. Ekki veit ég hvernig henni Sonju minni myndi líka þess háttar búskaparlag nú!
Af 17. teig sló ég með fjarkanum mínum vænt högg og er ég viss um að pabbi, afi og amma hafi verið þar með mér í liði.

Blómsturvellir

Húsatóftir – loftmynd.

Húsatóftavöll kvaddi ég svo að sinni, glaður og hreykinn í senn að vera kominn í heimahaga forfeðrana. Á Húsatóftavöll kem ég aftur – og beztu þakkir til Golfklúbbsins þar.
Blómsturvellir, útskorið í kápu á gestabók eftir teikningu pabba. Einnig er þar merki Staðhverfingarfélagsins – einnig áður útskorið af honum.
Staðhverfingarfélagið gaf pabba gestabókina á sjötugsafmælinu hans.

Vindheimar

Vindheimar við Húsatóftir, teikning eftir Kristinn Reyr.

En þar er ekki sagan öll – því næstu hundrað árin fléttast svo saga þessara forvera minna og okkar systur minnar, Eddu, í Reykjavík, á Grettisgötu 49, sem lauk í janúar 2013 með því að það ættaróðal var selt:
Eftir hið mikla sjóslys og sonamissi er langafa og langömmu brugðið; þau höfðu árið 1911 útmælt sér lóð úr Húsatóftalandi, ein þriðja úr sínum parti sem þau nefndu Vindheima þar sem þau höfðu væntanlega ætlað að njóta efri áranna umvafin börnum sínum allt í kring og með útræðið til fengsælla fiskimiða við bæjardyrnar.

Grettisgata 49

Grettisgata 49.

Vorið 1919 flytjast þau til Reykjavíkur og kaupa hús á Grettisgötu 49. Þar búa þau fyrst en síðan í Björnshúsi á Grímsstaðaholti. Þar stundaði langafi grásleppuveiðar ásamt afadrengjum sínum og ók aflanum á hestvagni til sölu í bænum en einnig notaði hann hestvagninn til vöru- og búslóðaflutninga fyrir aðra í bænum. Vorið 1931 bregða þau svo búi sökum hrumleika. Langafi fór til Vilmundar sonar síns á Löndum í Staðarhverfi og lézt þar um haustið en langamma fluttist til Ágústu-ömmu á Grettisgötu 49 og andaðist þar í hárri elli 1940. Ágústa-amma lézt 1969, en hjá henni bjó ég oft í lengri og skemmri tíma á mínum uppvaxtarárum. Eftir lát ömmu tók Edda systir mín við búsforæðum á Grettisgötunni. Segja má að Grettisgata 49 hafi í tæp hundrað ár (1917-2013) verið griðastaður fjölskyldu minnar frá langafa og langömmu, ömmu, pabba, okkur Eddu systur, börnum okkar og barnabarnabörnum Eddu – eða í sjö ættliði samtals. Blessuð sé minning Grettisgötu 49. – Ritað hefur Pétur Kristinsson frá Blómsturvöllum.

Húsatóptir

Húsatóftir – örnefni og minjar; ÓSÁ.

Heimilda var leitað í Staðhverfingabók. Kristinn Reyr og Sigurður V. Guðmundsson komu ásamt Gísla Brynjólfssyni að ritun og hönnun bókarinnar ásamt fleirum.
Hér kemur svo skýringin á því af hverju langafi og hans fjölskylda fluttu frá Sperðli :
Fleiri blaðsíður eru í myndasafni mínu frá 3. sept 2015 og svo bókin sjálf á Bókasafninu í Hveragerði.
Tilurð þessara upplýsinga er að á árunum 2012-14, kynntist ég Stefáni Ólafssyni sem starfar hjá Fasteignum Ríkisins og Framkvæmdasýslunni vegna landamerkjadeilna við Kristinn Björnsson í Grindavík, sem á landskika þarna, en Stefán er frá Eystra Hóli, næsta bæ við Sperðil, og benti hann mér á bókina.
Blómsturvellir mínir eru númer 23 á meðfylgandi uppdrætti:
Þessi landamerkjadeila varð til þess að Fasteignir Ríkisins ákváðu við uppmælingu umdeildra landskika að “rúna af” um 600 FM og bæta við Blómsturvallarland. Þökk sé Ríkinu fyrir það!”

Heimildir m.a.:
-Mannfólk mikilla sæva – Staðhverfingabók; Gísli Brynjólfsson, 1975, bls. 97-99.
-Pétur Kristinsson.

Húsatóftir

Staðarhverfi – örnefni og minjar; uppdráttur ÓSÁ. Blómsturvellir eru nr. 23 á uppdrættinum.