Færslur

Reykjanes

Litur loftsins um sólsetur.
Þegar himininn er gráleitur og myrkur um sólsetur, eða slái á, hann grænum eða gul-grænum lit, er regn í vændum. Rautt sólarlag með skýjum, er verða myrkari, þegar fram á nóttina líður boðar einnig regn.

kalfatjarnarkirkja-231Baugur um sólina.
Með baug um sólina meinum vér hina stóru hringi, eða hringparta, er liggja um sólina. Þegar baugurlsést umísólina eftir gott veður, má búast við regni.

Kóróna.
Með kórónu meinum vér smáa hringi, er sjást oft um sólina eða tunglið. Þegar kórónan fer minkandi, bendir það á regn, stækki hún, er fagurt veður í vændum.

Regnbogar.
Regnbogi að morgni dags er álitinn boða regn; regnbogi að kveldi, fagurt veður.

Litur himinsins.
Þegar þykkur, djúpur blámi sést á himninum, jafnvel þótt hann sjáist gegnum skýjað loft, boðar það fagurt veður; verði bláminnfljósari (hvítari), er stormur í nánd.

Þoka.
Þokur benda á staðviðri. Morgunþoka er vanalega horfin um hádegi.

Skafheiður himinn.

Hvaleyrarvatn

Hvaleyrarvatn.

Þegar gufuhvolfið er óvanalega skírt, og mjög stjörnubert og þær sýnast eins og deplar, er regn í vændum.

Skýin.
Þegar vér athugum skýin, gefum vér gætur að, hvers konar ský það eru, hvernig þau hreyfast og hvernig þau eru í lögun. Ský þau, er menn oft nefna “hestatögl” köllum vér þráðaský (Cirri). Einkenni þeirra er, að þau sýnast eins og þunnur vefur, er hangir lauslega saman eins og tagl á hesti, eða þau sýnast fléttuð saman eins og hin fjarlægu ský, er mynda sólarhringina. Litlar, reglulega myndaðar þyrpingar af skýum þessum sjást oft fyrir stöðugu blíðviðri. En þráða-ský eru líka stundum fyrirboði storms. Þegar þau boða storm, eru þau vanalega þéttari (fleiri) og hliðar þeirra skörðóttar, og þá verða þau oftast að hvítleitum, löngum skýbakka. Ský þau er alment eru kölluð “baðmullarsekkir”, eða “þrumuhöfuð’, köllum vér skýja-þyrping (Cumulus). Þegar þau sjást um heitasta tíma dagsins, en hverfa með kvöldinu, er framhaldandi blíðviðri í vændum. Þegar þau aukast skyndilega, síga hægt niður í gufuhvolfið, og hverfa ekki undir kvöldið, mun brátt von á regni. Þegar sérstök smáský virðast eins og slitna frá þeim, má búast við skúrum. Ský þau er sjást vanalegast eftir miðnætti, sýnast liggja marflöt og taka yfir mikið svæði, boða fagurt veður. Lítil svört vindaský eru fyrirboði regns.

Heimild:
-Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar, 24. árg. 1918, bls. 5.

Jónsmessa

Sólsetur á Jónsmessu.