Færslur

Rósel

Við leit að Rósaseli (Róseli) utan Rósaselsvatna (-tjarna) ofan Keflavíkur var eftirfarandi lýsing m.a. höfð að leiðarljósi:
Rósel II“Róselsvötn heita einu nafni tjarnir tvær skammt ofan við Keflavíkurkaupstað, annað vatnið er innan flugvallargirðingar-innar. Þangað er nú byggðin sem óðast að teygjast. „Vötnin“ eru tjarnir kallaðar í daglegu tali manna á milli í bænum, og börn og unglingar greina á milli „Stóru-Vatna“ og „Litlu-Vatna“. Hin síðari tjörn er utan við flugvallargirðinguna og þornar hún upp í þurrkum á sumrin. Fyrri tjörnin er aftur á móti alltaf með vatni í. Nokkuð gras er á bökkum „Stóru-Vatna“ og eins vex einhvers konar vatnagróður í sjálfu vatninu. (Það skal tekið fram að þó tjarnir þessar séu aðeins tvær eru þær nefndar í fleirtölu þó ekki sé átt við nema aðra þeirra). Áður fyrr var tekinn þarna mór og hann fluttur niður í Keflavík, jafnt af konum sem körlum.
Eftir því sem ég veit bezt var þar Rosel Isíðast grafinn mór í kolaskortinum í stríðinu 1914-18. Um nafngift vatnanna er það helzt að segja að hún (Róselsvötn) felur í sér að þar hafi verið sel. Segir frá því í hinum óprentaða hluta Suðurnesjaannáls Sigurðar Sívertsens að Stóri-Hólmur í Leiru hafi haft þar í seli til forna líklega á 18. öld og fyrr. Mér vitanlega eru engar rústir sjáanlegar af kofum á staðnum en vera má að það leynist innan um þúfur og steina sem þar eru á víð og dreif. Róselsvötn eru vestur af Keflavík.”
Við skoðun á svæðinu norðvestan vatnanna komu rústir tveggja selstaða í ljós; Rósel I og Rósel II. Leifar fyrrnefndu selstöðunnar eru suðvestan við “Stóru-Vötn”. Þær virðast mun eldri, en þó má enn sjá móta fyrir hleðslum og rýmum þrátt fyrir gras og mosagróður. Síðarnefnda elstaðan er norðvestan við Vötnin.
Þar eru Rosel Itóftirnar mjög vel greinilegar og má sjá bæði búr og baðstofu sem og hliðsett eldhús. Stekkurinn er skammt norðar (útnorður).
Skógræktarmaður er dundaði við að planta trjám í gömlu Hvalsnesleiðina virtist undrandi er honum var bent á tóftirnar. Hann hafði verið að dunda á svæðinu meira og minna í 30 ár, en aldrei rekið augun í þær (enda kannski upptekinn við annað).
Norðaustan Róselsvatna má sjá hluta Hvalsnesleiðarinnar gömlu. Einkum athyglisvert er að sjá tvíþætt hlutverk hennar á kafla; annars vegar gömlu göngu- og reiðgötuna og hins vegar vagnveg. Á síðarnefnda kaflanum, sem ekki er ýkja langur, má sjá leifar tveggja hlaðinna brúa yfir mýrardrög. Í gömlu reiðgötuna hefur verið plantað trjám líkt og í selstöðuna suðvestan við Vötnin.

Heimild:
-Örnefni við Keflavík á Rosmhvalanesi (Suðurnesjum), [vélritað upp úr ritinu Faxa 1967 (janúar hefti ?) af Skúla Þór Magnússyni], eftir Ragnar Guðleifsson kennara í Keflavík – Örnefnastofnun Íslands.

Rósel

Rósel I og 2 – uppdráttur ÓSÁ.