Tag Archive for: Selfoss

Ölfusá

Á vestari bakka Ölfusár, við veginn að Hellisskógi, er skilti með yfirskriftina „Laugardælaferja„. Á því má lesa eftirfarandi fróðleik:

Laugardælaferja

Laugardælaferja – skilti.

„Á öldum áður var hér einn af þremur ferjustöðum yfir Ölfusá. Ferjumaður á báti ferjaði ferðalanga, á austur- eða vesturleið yfir ána, ásamt farangri þeirra og varningi. Hestar syntu hins vegar yfir ána, sem var erfitt, og stundum hættulegt, einkum að vetrarlagi. Þetta þótti ekki sérlega erfið leið að róa fyrir vana menn, en fjarlægðin milli bakka er um 130 metrar. Lendingarstaðurinn á hinum bakkanum var skammt ofan við lítinn klett sem sjá má í ánni. Þegar Ölfurárbrú hin fyrri var byggð árið 1891, við hlið núverandi brúarstæðis neðar á ánni, lagðist Laugardælaferjan af. Laugardælaferja var nefnd eftir bænum Laugardælum hinum megin árinnar.“

Laugardælaferja

Laugardælaferja – ferjustaðurinn.

Ölfusá

Á skilti neðan við brúna yfir Ölfusá að sunnanverðu má lesa um „Sérstæða hraunbolla„:

Selfoss

Selfoss – hraunbollar.

„Á syðri bakka Ölfusár, nálægt stöplum brúarinnar, eru sérstæðar jarðmyndanir. Þetta eru hringlaga hraunbollar, um 1-2 metrar í þvermál og nálægt hálfum metra á dýpt. Hér er líklega um að ræða fara eftir stórar grasfylltar loftbólur sem stigu upp í bráðnu hrauninu og storknuðu veggir bollanna áður en bólurnar sprungu á yfirborðinu. Hér er hugsanlega á ferðinni forstig hraundrýlis eða gervigígs. Jarðmyndanir þessar eru á náttúruminjaskrá. Vesturbrún Þjórsárshrauns hin mikla myndar bakka Ölfusár á þessu svæði. Hraunið er hið stærsta sem runnið hefur á jörðinni frá lokum síðasta jökulskeiðs ísaldar. Hraunið er um 8.700 ára gamalt. Sjá einnig skilti um endimörk hraunsins skammt austan við byggðina á Stokkseyri.“

Selfoss

Selfoss.