Tag Archive for: Sognrétt

Gljúfurhellir

Eftir að hafa skoðað Hvammsrétt og Sognrétt í Ölfusi var haldið að Gljúfurhelli.

Gljúfurhellir

Gljúfurhellir.

Í „Aðalskráningu fornleifa í Ölfusi: Áfangaskýrsla III„, má lesa eftirfarandi um Glúfurhelli:
“Gljúfurshellir: (Hellirinn) Sandsteinshellir ofanvert (norðaustur) í Neðragilinu vestanverðu. Notaður lengi sem fjárhús,” segir í örnefnaskrá. “Gljúfurshellir er í lækjargili austan bæjar um 100 m neðan þjóðvegar. Nýleg fjárhús standa við læk nokkru ofan við hellinn.” segir í bókinni Manngerðir hellar á Íslandi. Hellirinn er tæplega 550 m suðaustan við bæ og rúmlega 170 m vestan við nýleg fjárhús sem nefnd eru í Manngerðum hellum. Hellirinn sést ekki frá fjárhúsunum og ekki fyrr en komið er nær honum, hann er í gilinu norðanmegin.

Gljúfurhellir

Í Gljúfurhelli – manngerður að hluta.

Uppspretta er [var] í gólfinu innan við hellismunnann, en hún sést ekki lengur þar sem byggt hefur verið yfir hana. Hún rennur í lækinn sem er 3 metrum frá hellismunnanum. Litlir kindastígar liggja að hellinum beggja vegna við hann að norðan. Gilbotninn er grasigróinn, smáþýfður með villiblómum. Hellismunninn er tveim metrum ofan við lækinn.
Í bókinni Manngerðir hellar á Íslandi er hellinum lýst. Þar segir: «Hann er grafinn í sandsteinsvöluberg, lárétt lagskipt með víxillaga linsum. Hellirinn er allur á breiddina sem er 10-11 m en dýpt hans inn í bergið er 6 m fyrir miðju en 5 m til endanna. Lofthæðin er 2,0-2,5 m. Muninn er jafnvíður hellinum sjálfum 10×2,5 m en honum hefur verið lokað með hlöðnum vegg sem á eru dyr fyrir miðju. Lítið uppsprettuauga er í gólfinu innan við munnann og smáspræna rennur út um hann í aðallækinn. Leifar af jötum sjást með veggjum […].

Gljúfurhellir

Í Gljúfurhelli.

Hellirinn var hafður undir fé, en aflagður fyrir 20 árum. 70 ær voru við hellinn segir Gljúfursbóndi.» Litlu er við þessa lýsingu að bæta. Steypt hefur verið utan með hleðslunum og sést aðeins í þær fyrir ofan steypuna. «Örfáar unglegar áletranir eru á veggjum. Þar er m.a. hakakross» segir einnig í Manngerðir Hellar á Íslandi. Áletranirnar eru mjög ógreinilegar en tveir hakakrossar eru enn sjáanlegir. Steypustyrktarjárn og bárujárn eru í hellismunnanum, ekki sést lengur móta fyrir jötum.
Veggirnir eru mosavaxnir og gólfið er moldargólf með smásteinum. Hæð veggjar er fyrir dyrunum er 1,2 metrar en veggir hellisins eru aflíðandi.“

Gljúfurhellir

Gljúfurhellir – hlöðutóft.

Skammt sunnan veið hellinn er hlöðutóft. í fornleifaskráningunni segir um hana:
“Leifar af hlöðu eru við gilvegginn handan lækjarins á móti Gljúfurshelli. Þar hefur bergið verið lagað til þannig að sandsteinninn myndar vegg og gafl hlöðunnar,” segir í örnefnaskrá. Sunnan við lækinn, um 45 metrum sunnan við Gljúfurshelli eru tóftir hlöðunnar. Tveir veggir eru vel sjáanlegir, þeir sem voru klappaðir í bergið. Hlaðan er rúmlega 580 metrum suðaustan við bæ, sunnan við gilið.
Umhverfis tóftina er gróinn mói með grasi, fíflum, sóleyjum og hundasúru. Austan megin við hana er lítil laut, um 10×15 m. Lækurinn rennur 20 metrum frá norðurenda hlöðunnar þar sem hann er næstur henni.

Gljúfurhellir

Hlöðutóftin við Gljúfurhelli.

Hlaðan er 18×5 m stór og snýr í norður-suður. Aðeins eitt hólf sést á yfirborði og veggir eru aðeins sjáanlegir til suðurs og vesturs, þar voru þeir grafnir í sandsteininn. Steypt hefur verið ofan á sandsteinsveggina og hafa hlutar af steypunni fallið niður í grasið fyrir neðan. Allt efni úr hlöðunni hefur verið fjarlægt og rétt sést móta fyrir veggjarbroti til vesturs. Sandsteinsveggirnir eru 3 metrar þar sem þeir eru hæstir vestanmegin.“

Fje kafnar

Gljúfurhellir

Í Morgunblaðinu árið 1933 var lítil frétt: 

„Aðfaranótt fimtudags köfnuðu 53 ær í helli á Gljúfri í Ölfusi.
Aðfaranótt fimtudags s.l. kom fyrir atburður á Gljúfri í Ölfusi, sem mun vera sjaldgæfur þar um slóðir. Bóndinn á Gljúfri, Sigurður Benediktsson, hafði ær í helli, sem notaður hefir verið alla tíð sem fjárhellir. Hafði hann yfir 70 ær í hellinum.
Aðfaranótt fimtudags í síðastliðinni viku var skafbylur í Ölfusi. Þegar bóndinn kemur að fjárhellinum á fimtudagsmorgun, til þess að gefa ánum, voru dyrnar í kafi í snjó en fjeð alt inni í hellinum. Er hann kom inn í hellirinn var aðkoman ljót; 53 ær lágu þar dauðar, höfðu kafnað í hellinum yfir nóttina.
Tíðindamaður blaðsins í Ölfusi tjáði, að það hefði áður komið fyrir, að fent hafi fyrir þenna helli, en aldrei að sök komið fyr en nú.“

Heimild:
-Aðalskráning fornleifa í Ölfusi: Áfangaskýrsla III, 2020.
-Morgunblaðið, 30. tbl. 05.02.1933, bls. 3.

Gljúfurhellir

Gljúfurhellir – Mólækur fremst.

Sogn

Í „Skráningu fornleifa á Sogni í Ölfusi“ frá árinu 2025 segir m.a. um Sogn:

Sogn

Sogn – loftmynd.

“Jarðdýrleiki xx og so tíundast fjórum tíundum.” JÁM, 398.
1542: Þann 11.janúar 1542 var kveðinn upp dómur þriggja klerka og þriggja leikmanna um kæru Gissurar biskups Einarssonar í Skálholti á hendur Eyjólfi Jónssyni á Hjalla. Sakaði biskup Eyjólf m.a. um að hafa tekið sér fjögur kúgildi úr Sogni. DI X, 698 – 699.
1920: Heimatún 4.9. Fjárhústún 1.0 ha, alls 5.9 ha, allt slétt. Garðar 1250 m2.

“Bæjarnafninu Sogn hafa ýmsir velt fyrir sér og sett það í samband við norsku merkinguna Sogn (fjörður). Afi minn Ögmundur Ögmundsson bar það ævinlega fram Sodn eða Sotn.

Sogn

Sogn – túnakort 1920.

Í tilvitnun í handrit í Þjóðsögum Jóns Árnasonar III, bls. 48 er sagt að í handriti standi Soðn. Kannske er þarna á ferðinni eldri mynd af nafninu,” segir í örnefnalýsingu.
Í skýrslunni Hengill og umhverfi eftir Kristinn Magnússon segir: “ Bæjarhóllinn er um 50 m vestsuðvestan við hús Réttargeðdeildarinnar á Sogni. Þar sjást engar rústir en aðeins vottar fyrir hól í sléttuðu, grasi grónu túni. Hóllinn er um 45m í þvermál. […] Gamla bæjarstæðið á Sogni hefur verið sléttað. Enn stendur þó eftir áberandi hóll sem eflaust geymir leifar bygginga og mannvistarlaga frá þeim tíma er bærinn stóð á þessum stað..” Bær er sýndur á túnakorti frá 1920, suðvestarlega í heimatúninu. Hann er um 130 m vestan við núverandi byggingar á Sogni. Bærinn brann 1909 og í kjölfarið var hann fluttur, þó ekki fyrr en eftir 1920. Stafnar eldri bæjarins snéru til suðurs og þaðan víðsýnt yfir Ölfusforir.

Sogn

Sogn – tóftir Kots. Kot; (upp í Kot, uppi í Koti). Þar var bær (í byggð 1896). Mun hafa verið stutt í byggð og bjó þar Eyjólfur Símonarson. Þar stóð heyhlaða, sér enn fyrir.

Kálgarður var sunnan við bæinn. Jaðrar hólsins eru óskýrir og afmökunin á yfirborði líklega ekki fyllilega rétt sökum sléttunar.
Bæjargilið er fast vestan við hólinn. Svæðið er undir ræktuðu túni en það er hluti af athafasvæði fangelsisins á Sogni. Malarslóði er nú fast austan við vírgirðingu sem liggur yfir vesturhluta hans, meðfram Bæjargilinu. Sléttað var yfir bæjarhólinn og þar eru ekki byggingar á yfirborði. Hóllinn er sléttur, grasivaxinn og sést sem hæð í túninu. Hann er 50×30 m að stærð, 0,2-1 m á hæð og snýr austur-vestur. Það glittir í grjót í gegnum gras í norðausturenda hólsins, líklega úr bæjarhúsum.“

Sognrétt

Sognrétt

Sognrétt.

Í „Örnefnalýsingu fyrir Sogn“ segir m.a. um Sognrétt: „Réttarbali: Móbergsholt. Þar var fjárréttin, sér enn fyrir. Vestan hans er fjárhús nú.
Gegnum Réttarbalann sér fyrir gamalli götu og sporuðum klöppum og norðvestan hans er gamall flórvegur í mýrinni.“
Í framangreindri skráningu fornleifa segir: “Réttarbali: Móbergsholt. Þar var fjárréttin, sér enn fyrir. Vestan hans er fjárhús nú,” segir í örnefnaskrá.
Réttarbali er um 480 m suðaustan við bæ og um 40 m norðaustan við áðurgreint fjárhúsi. Tóftin er við rætur klettahryggar og efst á grösugum hól. Landið er vel gróið og hallar talsvert til austurs. Þegar því sleppir tekur við smáhæðótt graslendi með mosavöxnum rimum og eru lítil rofaborð sjáanleg hér og þar.

Sognrétt

Sognrétt – uppdráttur.

Réttin er 18×6 m að stærð og snýr ANA-SVS. Hún er ferhyrnd, einföld og auðveldalega má sjá 3-4 umför af stórgrýti í grjóthleðslum. Að vestan afmarkar 2-3 m hár klettarhryggur tóftina og eru dyr á norðausturhorni hennar. Mesta veggjahæð er 0,7 m og eru veggir 1 m breiðir. Austurveggur tóftarinnar er grafinn um 0,5 m inn í hól. Engin greinileg ummerki eru um að réttinni hafi verið skipt upp í smærri hólf því botn hennar er frekar sléttur og grasivaxinn. Tóftin er fremur vel varðveitt, en til austurs má sjá leifar grjóthruns úr tóftinni, bæði innan hennar og utan, sem tekið er að gróa yfir.“

Sogn

Sognabotnar.

Bæjargilið er fast vestan við hólinn. Svæðið er undir ræktuðu túni en það er hluti af athafasvæði fangelsisins á Sogni. Malarslóði er nú fast austan við vírgirðingu sem liggur yfir vesturhluta hans, meðfram Bæjargilinu. Sléttað var yfir bæjarhólinn og þar eru ekki byggingar á yfirborði. Hóllinn er sléttur, grasivaxinn og sést sem hæð í túninu. Hann er 50×30 m að stærð, 0,2-1 m á hæð og snýr austur-vestur. Það glittir í grjót í gegnum gras í norðausturenda hólsins, líklega úr bæjarhúsum.“

Í „Aðalskráningu fornleifa í Ölfusi: Áfangaskýrsla III“ frá árinu 2020 segir er samskonar lýsing á Sognréttinni.

Heimildir:
-Skráning fornleifa á Sogni í Ölfusi, 2025.
-Aðalskráning fornleifa í Ölfusi: Áfangaskýrsla III, 2020.
-Örnefnalýsing fyrir Sogn, Þórður Ögmundur Jóhannsson.

Ölfus

Sogn – Stóri-Hellir.