Leynidalaskjól
Leynidalir voru á norðausturmörkum Þorbjarnarstaða í Hraunum, vestan Ásbrautar og norðvestan Ásvallabrautar.
Í „Örnefnalýsingu Ara Gíslasonar um Þorbjarnarstaðir“ segir: „Suður af Hrauntungum er svo Fornasel, suður af því eru slakkar sem heita Vatnsstæði. Niður af þeim koma Kolbeinshæðir. Milli Hrauntungu og Kolbeinshæða heitir Brenna, þetta er skógardalur. Þar skammt niður af er svo
Rauðimelurinn fyrrnefndi. Svo tekur við hraunsvæði það sem heitir Kapelluhraun og í því er Kapella (Sjá árb. Fornleifafél.). Þetta er rétt ofan við gamla veginn, svo eru smákrókar norðan Kapellu sem heita Leynidalir“. Ari minnist ekki á fjárskjól í nefndum Leynidölum.

Í fornleifaskráningum hefur Alfaraleiðin (rauðlituð) millum Þorbjarnarstaða og Gerðis ekki verið skráð (einungis sögð „óljós“) – Herforingjarðaskort 1906.
Í „Örnefnalýsingu Gísla Sigurðsson um Þorbjarnarstaði“ segir: „Um Brúnaskarð eystra liggur alfaraleiðin upp á Kapelluhraun, en svo nefnist neðsti hluti Nýjahrauns, sem ofar kallast Bruninn og enn ofar Háibruni. Áður hefur verið getið um mosatekju í Kapelluhrauni. Landamerkjalínan liggur úr Þórðarvík suður og upp um Leynidali og síðan áfram upp austurbrún Brunans. Alfaraleiðin lá suðvestur eftir Brunanum“. Gísli nefnir heldur ekki fjárskjól í Leynidölum.
Í „Fornleifaskráningu vegna mats á umhverfisáhrifum háspennulína frá Ölkelduhálsi á Helguvík í Reykjanesbæ„, sem Bjarni Einarsson skráði árið 2009 er getið um þrjú fjárskjól í Leynidölum, svonefnd Leynidalaskjól.
Um fyrstnefnda fjárskjóllið segir m.a.: „Leynidalsskjól – fjárskjól: Í grasi grónum hraunbolla í svokölluðum „dal“ um 160 m norðan við Krýsuvíkurveginn, 2,5×11 m (A – V). Fornleifarnar eru í óröskuðum reit á milli vega [Ásbrautar]. Hlaðinn hefur verið 10 m langur tvískiptur garður úr hraungrjóti fyrir framan tæplega 11 m langan hraunskúta. Hleðslan er um 0,6 m breið og um 0,7 m há þar sem hún er hæst við inngang sem snýr mót NNA. Veggir eru mosavaxnir og gólf grasi gróið. Úr verður afmarkaður hellisskúti, tæplega 11 m langur, um 2,5 m djúpur og rúmlega 1 m hár, sem kjörið skjól fyrir hrakið fé. Í vestasta hluta skjólsins má greina leifar af þakhellum.“
Vitnað er í „Örnefnaskrá; Hraunin – Þorbjarnarstaðir, Gísli Sigurðsson skráði“, og „Fornleifaskráningu vegna tillögu að nýrri legu Krýsuvíkurvegar. Handrit; Byggasafn Hafnarfjarðar, maí 2004„.
Um annað fjárskjólið segir: „Leynidalsskjól – fjárskjól: Í grasi grónum hraunbolla (jarðfall), í svokölluðum „dal“, u.þ.b. 150 m norðan við Krýsuvíkurveginn. Fornleifarnar eru í óröskuðum reit á milli vega, innra mál fjárskjólsins er 3×7 m (NA – SV). Hlaðinn hefur verið garður fyrir framan og til hliðar að SA-verðu við rúmlega 11 m langan slútandi hraunskúta. Þannig hefur verið myndaður hellisskúti eða fjárskjól. Hleðslur veggja eru u.þ.b. 0,6 m breiðar og rúmlega 1 m háar.
Hæstar eru hleðslurnar við inngang sem snýr mót SV. Inngangur er tæplega 1 m á breidd. Veggir eru úr hraungrjóti sem eru orðnir áberandi mosavaxnir. Gólf skútans er allt gróið grasi. Athyglisvert er að unnar hellur hafa verið valdar til þess að mynda þak skútans að SA-verðu. Þar sem hraunskútinn er hvað hæstur er hæð hans rúmlega 1 m.“ Vitnað er til sömu heimilda og fyrr.
Um síðastnefnda fjárskjólið segir: „Leynidalsskjól – fjárskjól: Í grasi grónum hraunbolla (jarðfall), svokölluðum „dal“. Hugsanlega undir vegöxl sunnan við nýja Krýsuvíkurveginn eða mikilli mön úr timburflísum. Fjárskjólið er hugsanlega undir vegöxl sem nær upp að þaki skútans sem skjóli er í (eða undir mikilli mön). Lýsing þess hljóðar svo í „Fornleifaskráningu vegna hins nýja Krýsuvíkurvegar„:
„Fjárskjól 8×2,5 m að stærð (NV – SA). Hlaðinn hefur verið grjótgarður um 8 m á lengd fyrir framan slútandi hraunskúta. Þannig hefur verið myndaður hellisskúti eða fjárskjól. Veggir eru mosavaxnir u.þ.b. 0,5 m breiðir og rúmlega 0,5 m háir. Dyr snúa líkast til mót austri. Gólf skjólsins er allt grasi vaxið. Athyglisvert er að á NV-verðu hefur verið hlaðið fyrir gjótu. Minjarnar eru hugsanlega enn til staðar undir öxlinni, þóó ástandi sé líklega orðið lélegt.“
Bjarni getur um Vörðu efst í Leynidölum: „Um 6 m norður af jarðstrengshrygg, rétt norðan við rafmagnslínu (Ísallínu), um 100 m sunnan við fjárskjól, á mosavaxinni hraunbungu. Fornleifarnar eru í óröskuðum reit á milli vega, um 1 m í þvermál og um 1,2 m há. Úr hraungrjóti.“
Í „Fornleifaskráningu Hafnarfjarðar VIII – Ásland“ frá árinu 2021 er fjallað um tvö „Leynidalssskjól“.
Um hið fyrra segir: „Fjárskýli; lengd: 4.7 m, breidd: 3.7 m, vegghæð: 0.7–1.2 m, breidd veggja: 0.8 m. Í grasivöxnum hraunbolla um 130m vestan við húsið Eskivelli 19. Tvær veglegar hleðslur framan við þokkalega rúmgóðan skúta. Inngangur fyrir miðju.
Þakhellur liggja innan í skútanum en þær stóðu enn þegar skýlið var skráð árið 2004. Skútinn er fullur af rusli. Veggjahæð er frá 0.7 – 1.2 m og veggjabreidd er að jafnaði um 0.8 m.“
Um síðara fjárskýlið segir: „Fjárskýli; lengd 6.7 m, breidd 0.4 m, vegghæð 0.1-1.1 m, breidd veggja 0.4 m. Fjárskjólið er í hraunbolla um 70 m sunnan við götuna Suðurhellu. Tvær hleðslur framan við grunnan skúta í hrauninu. Vestari hleðslan er verr farin. Inngangur fyrir miðju og mosavaxið. Veggjahæð er frá 0.1 – 1.1 m og veggjabreidd er að jafnaði um 0.4 m. Engin hætta.“
Heimildir:
-Þorbjarnarstaðir – Örnefnalýsing Ara Gíslasonar.
-Þorbjarnastaðir – Örnefnalýsing Gísla Sigurðssonar.
-Fornleifaskráning vegna mats á umhverfisáhrifum háspennulína frá Ölkelduhálsi á Helguvík í Reykjanesbæ, Bjarni F. Einarsson 2009.
-Fornleifaskrá Hafnarfjarðar VIII – Ásland, 2021.
















