Strandarkirkja – skilti I

Strandarkirkja

Við bifreiðastæðið sunnan Strandarkirkju í Selvogi er skilti. Á því er uppdráttur af Selvogi með tilheyrandi örnefnum og minjum frá fyrri tíð. „Uppdrátturinn er byggður á örnefnalýsingum fyrir Selvogsbæina (Örnefnastofnun Íslands) og heimildum Þórðar Sveinssonar (f: 1930) frá Bjargi, Þórarins Snorrasonar (f: 1931) frá Vogsósum og Kristófers Bjarnasonar (f: 1930), d. 2010) frá Þorkelsgerði.

Strandarkirkja

Strandarkirkja – skiltið sett upp 2011.

Uppdráttur; Ómar Smári Ármannsson, Sérleg aðstoð; Jóhann Davíðsson, Vinnsla og prentun; Stapaprent.  Gert með stuðningi Sveitarfélagsins Ölfuss árið 2011. Höfunarréttur; Ómar Smári Ármannsson.“

Á skiltinu er eftirfarandi upplýsingar:

Strandarkirkja
„Strandarkirkja er vinsæl til áheita og um tilurð kirkjunnar hafa myndast helgisagnir sem vitna um þann lífsháska sem sjómönnum var búinn fyrir klettóttri og hafnlausri úhafsströnd.

Strandarkirkja

Strandarkirkja – skiltið endurnýjað 2026.

Kirkjan á Strönd er að stofni til frá árinu 1200. Núverandi kirkja er frá 1888. Hún var endurvígð eftir endurbætur 1968 og enn endurbætt og endurvígð í núverandi mynd 1996.“

Selvogur
„Í Selvogi var fyrr á öldum fjölmennt útvegsbændasamfélag þrátt fyrir takmarkað gróðurlendi og erfiðar lendingar. Byggðin var öll rétt ofan við ströndina eins og sjá má á uppdrættinum. Sveitin var lengst af fremur afskekkt og einangrað byggðarlag. Húsarústir, tættur og túngarðar gæjast hér upp úr jörðinni og gefa glögga sýn í búsetu- og atvinnuhætti fyrri alda.“

Biskupsstofa kostaði prentun skiltisins. FERLIR afhenti það endurgjaldslaust og hefur séð um viðhald þess.

Strandarkirkja

Strandarkirkja – skilti.