Dagbók lögreglunnar

Dagbók lögreglu

Fréttir hafa borist að til standi að sýna nýja þáttaröð á sjónvarpsstöðinni Sýn; „Dagbók lögreglu„.

Júlíus Sigurjónsson

Júlíus Sigurjónsson, fréttaljósmyndari Morgunblaðsins.

Dagbók lögreglunnar í Reykjavík var fyrst birt í Morgunblaðinu um 1990. Það var lögregluljósmyndari dagblaðsins, Júlíus Sigurjónsson, sem stakk upp í birtingunni í blaðinu eftir sérhverja helgi og seldi fréttastjóranum hugmyndina.
Eftir að Dagbókin hafði verið gerð aðgengileg með reglulegum hætti um nokkurra missera skeið á blaðsíðum Morgunblaðsins óskuðu aðrir fjölmiðlar eftir að fá aðgang að henni. Til þess að gæta jafnræðis var öllum áhugasömum fjölmiðlum í framhaldinu send Dagbókin til birtingar. Fleiri lögregluembætti fylgdu í kjölfarið og birtu úrdrætti úr sínum dagbókum í héraðsfréttablöðunum.

Ómar

Ómar á slysavettvangi – ljósm. JS.

Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn Forvarnadeildar (ágúst 1988 – júlí 1997) skrifaði Dagbókina reglulega fyrstu sjö árin, en eftir að hann var gerður að yfirmanni Fíkniefnadeildar embættisins og síðar Auðgunarbrotadeildar voru skrifin færð til varðstjóra Fangageymslu. Við það breyttust áherslunar talsvert, þ.e. að vera fyrst og fremst forvarnamiðaðar yfir í takmarkaðar og óljósar nánast óstaðsettar ómarkvissar frásagnir af einstökum atvikum helganna.
Sem fyrr sagði hafði „Dagbók lögreglunnar“ í upphafi ákveðið markmið, þ.e. að segja frá atvikum í raunverulegum störfum lögreglu frá degi til dags er gætu orðið öðrum til varnaðar, en ekki ætluð nánast „hálfvitum“ til skrumskælingar á raunveruleikanum…

Dagbók lögreglunnar

Dagbók lögreglunnar 1999…