Vatnsneshúsið

Vatnsnes

Málmskjöldur á endurgerðu Vatnsneshúsinu í Keflavík vakti athygli FERLIRs. En fyrst; tilurð nafnsins Vatnsnes. „Í slakka sem var suðvestur af bæjarhúsum Vatnsnessins var Vatnsnestjörnin. Nesið dregur trúlega nafn sitt af henni.

Vatnsnes

Vatnsnes er hús sem var í eigu Byggðasafns Reykjanesbæjar og staðsett er á Vatnsnesvegi 8. Húsið var byggt 1934-6 og er steypt. Húsið var gefið á sínum tíma til Keflavíkurbæjar til safnastarfsemi.

Vatnsnesbrunnurinn var rétt hjá þar sem tjörnin var [nú horfinn]. Litla-Vatnsnes, lítill bær, stóð í túninu ofan við Vatnsnesvíkina. Það hús stóð nokkurn veginn þar sem Hrannargata 1 er og Vatnsnesvegur kemur inn á Hrannargötu.
Vatnsnestúnið þótti stórt, það náði frá innri brún klettanna meðfram víkinni og líklega upp fyrir Baldursgötu og meðfram Vatnsnesveginum og var hluti þess hinum megin vegarins.“
Vatnsnes (einnig nefnt Stóra-Vatnsnes) er sögufrægt steinhús við Vatnsnesveg 8 í Keflavík sem var byggt á árunum 1934–1936. Húsið hefur nýlega verið gert upp og er í dag rekið sem viðburða-, funda- og gistihús í samstarfi við Hótel Keflavík.

Skjöldurinn

Vatnsnes

Vatnsnes – skilti.

Á Vatnsneshúsinu í Keflavik er skilti með eftirfarandi áletrun:
„Saga Vatnsness – Gamli bærinn var byggður árið 1891 af Guðna Jónssyni útvegsbónda og Helgu Vigfúsdóttur.
Vatnsneshúsið var byggt árið 1934 af Jóhanni Vigfúsi Guðnasyni óðalsbónda og Bjarnfríði Sigurðardóttur.
Vatnsnes var endurbyggt árið 2026 af Steinþóri Jónssyni hótelstjóra og Hildi Sigurðardóttur eigendum Hótels Keflavík.
Vatnsnes var formlega vígt í tilefni af 40 ára afmæli Hótel Keflavík 17. maí 2026.“

Saga hússins

Vatnsnes

Vatnsnes – túnakort 1919.

Vatnsneshúsið var, sem fyrr sagði, reist árið 1934 af útgerðar- og athafnamanninum Sigfúsi Jóhanni Guðnasyni og konu hans, Bjarnfríði Sigurðardóttur, og þótti mikið stórhýsi á sínum tíma.
Húsið var síðar gefið Keflavíkurbæ til safnastarfsemi og hýsti um árabil almennar sögusýningar og geymslur á vegum Byggðasafns Reykjanesbæjar. Það er nú í sameiginlegri eigu Reykjanesbæjar og eigenda Hótel Keflavíkur, sem sjá um rekstur þess. Það hefur verið fært til fyrri dýrðar og þjónar sem nokkurs konar móttöku- og menningarhús fyrir bæjarfélagið.
Á Vatnsnesi er boðið upp á aðstöðu fyrir fundi, ráðstefnur, veislur, menningarviðburði og tónleika, auk þess sem húsið er leigt út sem lúxusgisting.
VatnsnesBjarnfríður Sigurðardóttir, ekkja Jóhanns Guðnasonar, gaf Keflavíkurbæ húsið árið 1969 með sérstöku gjafabréfi með þeirri kvöð að húsið yrði nýtt fyrir minjasafn Keflavíkur og til varðveislu gamalla minja. Bjarnfríður lést árið 1974 og tók Keflavíkurbær þá við húsinu.

Í Morgunblaðinu 1980 er m.a. fjallað um „Byggðasafnið á Vatnsnesi: “
„Fyrsti vísir að byggðasafni á Suðurnesjum í Vatnsnesi í Keflavík hefur nú verið komið upp vísi að fyrsta byggðasafni á Suðurnesjum. Var húsið opnað til sýnis fyrir almenning 17. nóvember sl. Gefur þar m.a. á að líta myndir sem sýna þróun Keflavíkurbæjar og Njarðvíkur og ýmsa smærri muni. Stærri munur safnsins eru ennþá í geymslu þar sem húsrými í Vatnsnesi er ekki mikið.

Vatnsnes

Bjarnfríður Sigurðardóttir (1889–1974) var húsfreyja á Vatnsnesi í Keflavík og er helst þekkt fyrir að hafa gefið Keflavíkurbæ húseignina Vatnsnes undir byggðasafn.
Hún fæddist í Innri-Njarðvík árið 1889, dóttir hjónanna Sigurðar Jónssonar og Sigríðar Bjarnadóttur, og ólst upp í Ytri-Njarðvík.
Árið 1914 giftist hún Jóhanni Guðnasyni (1884–1946), óðalsbónda, útgerðarmanni og kaupmanni á Vatnsnesi. Þau bjuggu alla tíð á Vatnsnesi og reistu þar glæsilegt íbúðarhús á árunum 1934–1936. Jóhann lést í bílslysi árið 1946 og giftist Bjarnfríður ekki aftur. Þeim varð ekki barna auðið en ólu upp kjör- og fósturbörn.
Árið 1969 gaf Bjarnfríður Keflavíkurbæ húseignina Vatnsnes með sérstöku gjafabréfi í minningu eiginmanns síns og foreldra þeirra beggja. Gjöfinni fylgdi sú kvöð að húsið yrði nýtt sem minjasafn og til varðveislu gamalla minja.
Bjarnfríður lést þann 20. apríl 1974 og tók Keflavíkurbær þá formlega við húsinu, sem varð síðar hluti af starfsemi Byggðasafns Reykjanesbæjar.

Ungmennafélag Keflavíkur varð fyrst til þess að safna munum fyrir hugsanlegt byggðasafn og upp úr árinu 1940 var kosin nefnd innan félagsins til framkvæmda. Síðar afhenti nefndin bænum safn sitt til varðveislu og áframhaldandi uppbyggingar. Að ósk þjóðminjavarðar var fyrir nokkrum árum leitað samstöðu allra sveitarfélaga á Suðurnesjum um sameiginiegt safn. Þegar það tókst ekki tóku Keflavíkurbær og Njarðvíkurbær sig saman og ákváðu að ríða á vaðið og koma á fót byggðasafni fyrir bæjarfélögin tvö.
Húsið Vatnsnes, sem byggðasafnið er í og dregur nafn sitt af, er gjöf til Keflavíkurbæjar. Bjarnfríður Sigurðardóttir ánafnaði bænum húseigninni undir byggðasafn er hún lést 20. apríl 1974. Húsið er gefið í minningu manns hennar, Jóhanns Guðnasonar og foreldra þeirra beggja.
Njarðvíkurbær hafði einnig fengið gjöf, húsið Njarðvík í Innri-Njarðvík, með tilheyrandi úr búi þeirra hjóna Helga Ásbjörnssonar og Jórunnar Jónsdóttur er þar bjuggu síðast. Gefendur voru ekkja og born Eggerts Jónssonar frá Nautabúi. Njarðvíkurbær hyggst varðveita húsið með innbúi sem safngrip og hafa þar til sýnis myndir tilheyrandi Njarðvíkingum. Telst það hluti af Vatnsnessafninu og er undir sömu stjórn.
Næsta verkefni mun verða að opna það til sýnis fyrir almenning. Í stjórn Vatnsnessafnsins eru Ólafur Þorsteinsson, Áki Grënz og Guðleifur Sigurjónsson, starfsmaður þess er Skafti Friðfinnsson.
VatnsnesEins og áðan var drepið á er ekki hægt að hafa nema takmarkaðan hluta safnmuna til sýnis í Vatnsneshúsinu sem er eins og venjulegt íbúðarhús að stærð. Allir stærri munir, svo sem stærri innbúsmunir og munir tengdir útgerð, verða að bíða þess að stærra húsnæði fáist.

Vatnsnesi fylgdi afgirt land umhverfis húsið og forgangsréttur til leigu eða kaupa á frekari lóð næst húsinu. Keflavíkurbær hefur notfært sér þann rétt og keypt 5.093 fermetra lands undir væntanlega safnbyggingu. Leyfi hefur fengist til teikninga og er ráðgert að hafist verði handa um framkvæmdir á fyrsta áfanga hússins á næsta ári. Áætlað er að það rísi í vinkil kringum Vatnsneshúsið.
VatnsnesMargt merkra muna er í Vatnsnessafninu. Má þar t.d. nefna einn elsta mun safnsins sem er fundagerðabók Skotfélags Keflvíkinga sem var stofnað 1869. í bókinni eru fundargerðir skrifaðar bæði á dönsku og íslensku.
Þá er í safninu mynd af kirkju sem byggð var í Keflavík fyrir aldamótin en fauk áður en hún var fullgerð. Fram að þessu vissu menn ekki nákvæmlega hvar sú kirkja stóð en fyrir nokkru rákust forráðamenn safnsins á mynd af kirkjunni á Þjóðminjasafninu. Er mynd af þessari kirkju í Vatnsnesssafninu.
VatnsnesÁ efri hæð hússins dveljast gestir lengst. Í einu herbergjanna er elsti uppdráttur af Keflavík, frá því árið 1920. Hann hefur verið stækkaður upp og öll hús í bænum númeruð. Síðan hefur verið komið fyrir albúmum þar sem í eru myndir af húsunum eins og þau voru og þá einnig eins og þau eru í dag. Þá eru þar einnig myndir af fólki því sem í húsunum bjó og afkomendum þeirra fram á þennan dag.
Eitt herbergið í safninu er tileinkað gefandanum og hennar fjölskyldu. Eru þar munir úr þeirra eigu og myndir þeim tilheyrandi.

„Dýrmætustu minjar Keflvíkinga hafa verið eyðilagðar“

Vatnsnes

Vatnsnes – loftmynd 1954.

„Áhugi Suðurnesjabúa á safninu er mikill og það hefur verið vel sótt síðan það opnaði,“ sögðu þeir Ólafur Þorsteinsson formaður stjórnar safnsins og Skafti Friðfinnsson starfsmaður þess er blaðamenn litu inn í safnið fyrir nokkrum dögum.
„Hingað sækja fyrst og fremst eldri Keflvíkingar, þeir sem muna eftir gamla tímanum. Þeir njóta sín hér best, ekki síst við það að skoða hér myndir sem sýna þróun og vöxt Keflavíkurbæjar. Þá hafa skólar sótt safnið nokkuð, sérstaklega nemendur á ferðalögum.“
— Hvers vegna hefur þessu safni ekki verið komið upp fyrr?
„Það verður að segjast eins og er að vilji ráðamanna hefur ekki verið mikill. Eiginlega hefur það verið eyðilagt sem hefði verið dýrmætast fyrir Keflvíkinga að varðveita. Þetta er Stokkavörin, Duushús, Gamlabúðin svonefnda Bryggjuhúsið, en allt þetta var í eigu Duus kaupmanns.

Duus

Duus – Gamla búðin.

Gamlabúðin er nú að hruni komin, Duus-húsið var rifið í þögn og bryggjuhúsið er nú notað undir saltfiskverkun. Í raun hefði átt að byggja safnið upp í kringum þessar byggingar.
Við opnuðum þennan vísi að safninu til þess hreinlega að reyna að vekja áhuga hjá fólki, ekki síst ráðamönnum bæjanna. Okkur finnst sú ætlun okkar hafa tekist vel og við ætlum okkur að halda ótrauðir áfram uppbyggingu þessa fyrsta byggðasafns á Suðurnesjum,“ sögðu þeir Ólafur Þorsteinsson og Skafti Friðfinnsson að lokum.“ – rmn.

Vatnsnes

Vatnsnes í Keflavík fyrir miðri mynd.

Segja má, að teknu tilliti til forsögunnar, þ.e. Vatnsnesgjöf Bjarnfríðar Sigurðardóttur til Keflavíkurbæjar, hafi hún litlar virðingar notið lengi vel meðal forsvarsfólks bæjarins, en með einhverjum óútskýrðum hætti, ratað í eigu fyrrum bæjarfulltrúa bæjarins, eiganda Hótels Keflavíkur?
Hins vegar má segja að bærinn hafi á síðari árum gert framangreindum Duushúsabyggingum verulega hátt undir höfði!
Sennilega hefur framangreind ráðstöfun orðið til þess að húsið Vatnsnes grotnaði hreinlega niður og eyðilegðist.

Heimildir:
-Morgunblaðið. 166. tbl. 26.07.1980, bls. 22-23.
-https://timarit.is/page/1529509?iabr=on#page/n21/mode/2up

Vatnsnes

Vatnsnes.