Um okkur
FERLIR stóð upphaflega fyrir FErðahóp Rannsóknardeildar Lögreglunnar Í Reykjavík. Áhugasamt lögreglufólk um útivist og hreyfingu frá hversdagsins
önn, krefjandi rannsóknum og jafnvel kyrrsetu þeirra á millum, tók sig saman árið 1999 og ákvað að líta í kringum sig – víttka sjóndeildarhringinn og kynnast betur sínu nærtækasta umhverfi; fyrrum landnámi Ingólfs. Upplifunina má m.a. sjá á vefsíðunni…
Árni Torfason setti upp fyrstu, einfalda, vefsíðu FERLIRs árið 2000 með styrk frá Rannsóknarsjóði Seðlabankans. Í honum fólst kaup á fartölvu. Vefsíðan var endurnýjuð árið 2007 í Webman með stuðningi góðra aðila og síðan uppfærð í þessa WordPressútgáfu árið 2019 með styrk úr Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar með þessari uppfærslu veffyrirtækisins Premis. Mjög mikil vinna hefur bæði falist í innsetningu efnisins sem og endurgerð þess millum uppfærslna.
Um 3.300 skipulegar vettvangsferðir liggja til grundvallar lýsingunum á vefsíðunni.
Forsíðumyndin er af minjasvæðinu í Lónakoti í Hraunum.
Fyrir þá, sem vilja hafa samband, er bent á netfangið ferlir@ferlir.is.
Síður
Viltu styrkja þessa síðu?
Framlag FERLIRs á vefsíðunni er unnið í sjálfboðavinnu. Ef þú vilt styrkja þetta framtak til áframhaldandi uppbyggingar er hægt að leggja inn á:
Reikningsnr.: 0334-13-201056
Kennitala: 200854-3499
Fyrsta FERLIRsferðin… Helgafell…
Tilgangur Ferðahóps rannsóknardeildar lögreglunnar í Reykjavík (FERLIR) var að stuðla að, undirbúa og skipuleggja sjálfbærar hollferðir starfsmanna á fæti um helgar í sumar (þ.e.a.s. þeirra sem ekki eru á helgarvöktum) – þeim að kostnaðarlausu. Þátttakendur gátu einnig verið aðstandendur í boði þeirra (konur og börn) og í vissum tilvikum skjólstæðingar, auk útvalinna lögfræðinga og yfirmanna. […]
FERLIR – fyrstu ferðirnar
Föstudaginn 1. maí árið 2020 varð FERLIR tuttugu og eins árs. Þennan dag fyrir jafnmörgum árum hittust nokkrir starfsfélagar í Lögreglunni í Reykjavík við Kaldársel. Ætlunin var að skoða nærumhverfið með tillliti til sögu svæðisins, minjar og náttúru þess; hvort sem varðaði flóru eða fánu. Jafnframt var takmarkið að nýta áhugavert svæði, Reykjanesskagann (fyrrum landnám […]
Ferlir – sagan
FERLIR stóð upphaflega fyrir FErðahóp Rannsóknardeildar Lögreglunnar Í Reykjavík. Áhugasamt lögreglufólk um útivist og hreyfingu frá hversdagsins önn, krefjandi rannsóknum og stuttum kyrrsetum þeirra á millum, tók sig saman árið 1999 og ákvað að líta svolítið í kringum sig – víttka sjóndeildarhringinn og kynnast betur sínu nærtækasta umhverfi. Umræðan um svonefnt “Burn out”; úti í heimi, nú […]