Gjábakkahellir

Haldið var í Gjábakkahelli – um vetur. Snjóalög voru það mikil að það tók 3 klst og 3 mín. að moka frá opinu og koma þátttakendum niður í fordyrið. Biðin kom ekki að sök því haft var ofan af fyrir þeim með leikjum á meðan.
Í GjábakkahelliGjábakkahellir milli Þingvalla og Laugarvatns hefur óneitanleg tengsl við Reykjanesskagann. Björn Hróarsson segir eftirfarandi í stórvirki sínu “Íslenskir hellar” um Gjábakkahelli: “Gjábakkahellir hefur einnig verið nefndur Helguhellir og Stelpuhellir. Björn Th. Björnsson (1984) segir Stelpuhelli upprunalegasta nafnið. Nú má hins vegar fullyrða að nafngiftin Gjábakkahellir hafi náð yfirhöndinni og hin nöfnin fallið í gleymsku.
Hellirinn liggur undir veginn milli Gjábakka og Laugarvatns um tvo kílómetra frá eyðibýlinu Gjábakka. Hellirinn er opinn í báða enda og er neðra opið rétt neðan vegarins og merkt með lítilli vörðu. Efra opið opnast í dálitla laut nokkru ofan við veginn. Meginlína hellisins er um 310 metrar en heildarlengdi hans er um 364 metrar.
Hellirinn er töluvert hruninn en hefur samt margt að bjóða hellaförum, til dæmis er þar allajafna töluvert um ísmyndanir. Þá eru þar separ, totur, spenar, storkuborð og ýmsar aðrar hraunmyndanir sem gleðja augað. Á einum stað er hellirinn á tveimur hæðum og á kafla mmá velja tvær leiðir áfram. Önnur lokast þó fljótt svo enginn ætti að villast, í það minnsta kosti hvorli lengi né illa.
Í GjábakkahelliHellirinn hefur verið þekktur lengi. Matthías Þórðarson þjóðminjavörður skoðaði hann árið 1919. Til er þjóðsaga sem segir að stúlka frá Gjábakka hafi farið í hellinn og aldrei komið út aftur eða þá að hún hafi komið upp úti á Reykjanesi og þá hafi skór hennar verið fullir af gullsandi. Þjóðsagan skýrir nafngiftina Stelpuhellir. Gjábakkahellir var kortlagður af Eichbauer, E. og Fritsch, E. þann 27. júní 1985.”
Gjábakkahellir uppgötvaðist fyrst er verið var að leggja Kóngsveginn svonefnda fyrir heimsókn Friðriks VIII Danakóngs árið 1907. Á þeim tíma voru einungis um 30 þekktir hraunhellar á landinu. Í dag eru þeir um 500 talsins.
Segja má með sanni að hraunhellarnir séu hinir einu sönnu undir- og undraheimar Íslands. Þar er myrkrið svartara og tíminn afstæðari en annarstaðar. Góð leiðsögn og búnaður gera hverjum sem er kleift að upplifa þessa undraveröld óháð veðri eða dagsbirtu. Vanir hellaleiðsögumenn ábyrgjast jafnan gott “veður” í hellaferðum á Reykjanesskaganum allt fram til ársins 2750!
Á leiðinni út hinum meginGjábakkahellir er hluti af geysimikilli hrauná sem rann neðanjarðar í síðasta gosi á Þingvöllum. Hellirinn er stór en nokkuð seinfarinn, enda eina ástæðan, sem þörf er á að fylgja, er að flýta sér hægt.
Ónefndur starfsmannastjóri sem fór í þessa ferð með fyrirtæki sínu sagði að fyrri ferð um Gjábakkahelli með starfsfélögum sínum kæmi oft upp í hugann þegar unnið væri að krefjandi verkefnum hjá fyrirtækinu. “Fyrst við réðum við Gjábakkahelli, -þá förum við nú létt með þetta…” varð honum að orði.
Þrátt fyrir að hitastigið úti hafi verið -2°C var hitastigið í hellinum um 5°C. Við hellaskoðun er mest um vert að hafa augun bæði límd við gólfið, en huga að hverju skrefi, og gæta þess að reka höfuðið ekki upp undir. Ferðin í gegnum hellinn að þessu sinni tók u.þ.b. eina klukkustund.

Endaopið

Gjábakkahellir er þó töluvert hruninn þannig að það var um mikið stórgrýti að fara með tilheyrandi klifri og klöngri. Og ekki bætti úr skák að fyrstu um 70 – 100 metrana voru allir steinarnir og veggirnir þaktir blautum ís og því verulega erfitt að fóta sig. Eftir um 2/3 af leiðinni skiptist hellirinn í þrjú op hvert ofan á öðru. Á miðhæðinni er bara lítill skúti sem endar með gatiniður á neðstu hæðina. Efsta hæðin nær svipað langt inn, en þar var líka hægt að fara til baka út með veggnum þar til komið er að þröngu gati og þaðan niður á “svalir”. Um 6 metra fall er niður af “svölunum” svo það er vissara að fara varlega. Skríða þarf til baka. Þegar farið var að nálgast hinn endan á hellinum fór aftur að kólna svo hálkan fór aftur að gera vart við sig. En síðustu 30 metrana gat að líta mjög fallegar ísmyndanir og grílukerti. Opið í þessum enda er stórt og mikið og því auðvelt að finnan þennan munna.
Eins og fyrr sagði var upphaflegi vegurinn um Lyngdalsheiði lagður fyrir komu Friðriks VIII Danakóng sumarið 1907 og þess vegna í eina tíð kallaður Kóngsvegur. Þó hann sé í dag kallaður Lyngdalsvegur eða Lyngdalsheiðarvegur þá er það rangnefni. Hann liggur nefnilega fyrir norðan Lyngdalsheiði, um Gjábakkahraun og um Reyðarhraun. Hvað um það – hér var um alvöru hellaferð að ræða, en ekki þrasferð um örnefni og tilefni þeirra.
Frábært veður. Hér má sjá örsutt myndbrot úr ferðinni. Hafa ber jafnan í huga að “náttúran er ævintýri”.

Heimildir m.a.:
-Hraunhellar á Íslandi. Björn Hróarsson. Mál og Menning. 1991.
-Björn Hróarsson – Íslenskir hellar -2006, bls. 347
-Á ferð um landið. Björn Hróarsson. Mál og Menning. 1994.
-Uppsveitir Árnessýslu, Kort.
-Á ferð um Ísland. Nesútgáfan. 1997.
-Árbók Ferðafélags Íslands 1961.
-Íslandsmetabók Arnar og Örlygs. Steinar J. Lúðvíksson. 1983.

Í opi Gjábakkahellis