Guddulaug

Guddulaug

Í Mosfellsdal var lítil laug…

Laxnestungulækur

Laxnestungulækur neðan Guddulaugar.

Halldór Laxness var mikill útivistarmaður og gekk mikið í nágrenni Gljúfrasteins enda umhverfið fagurt. Tíðum hefur hann gengið niður með Köldukvísl, yfir Laxneslæk og upp með litlum læk neðar, Laxnestungulæk. Í lækinn rennur (rann) vatn úr kaldavermsl norðan hans. Þau voru nefnd Guddulaug. Halldór segir frá lauginni í einni bóka sinna og taldi vatnið sérlega heilnæmt. Vatnsveita Mosfellsbæjar tekur vatn úr Guddulaug og öðru nálægu vatnsbóli, Laxnesdýjum.
Formlegur vatnsveiturekstur hófst í Mosfellssveit árið 1966. Vatnsveitan rekur nú eigið vatnsból í Laxnesdýjum. Vatni úVatnr Laxnesdýjum er dreift um Mosfellsdal, Helgafellshverfi og til Reykjalundar. Auk Laxnesdýja ræður Vatnsveitan yfir fyrrnefndu vatnsbóli, Guddulaug, sem aðeins er notað þegar vatnsbólið í Laxnesdýjum fullnægir ekki þörfum. Annað neysluvatn er keypt af Vatnsveitu Reykjavíkur.
Á skilti nálægt „Guddulaug“ segir: „Guddulaug er kaldavermsl, sem gefur af sér um 10 sekúndulítra af 4 gráðu heitu vatni, og var laugin virkjuð af Mosfellshreppi um 1980. Skammt hér fyrir austan stóð kotbýlið Laxnestunga en engar menjar sjást lengur um þann bæ.

SkiltiÍ endurminningasögunni „Í túninu heima“ gerir Halldór Laxness Guddulaug að himneskum heilsubrunni og segir: „Í dalnum trúðu allir á þessa lind; einlægt ef einhver var hættulega sjúkur var sótt vatn í þessa lind. Faðir minn trúði á þessa lind. Ég trúði líka á þessa lind. Þegar faðir minn var hætt kominn í lúngnabólgu í fyrra sinnið var ég látinn sækja vatn handa honum í þessa lind tvisvar á dag og honum batnaði. Þegar hann fékk lúngnabólgu næst, átta árum síðar, þá var ég í bænum að láta prenta Barn náttúrunnar og einginn til að sækja honum vatn í þessa lind og hann dó…
Afrennslið úr Guddulaug var neðanjarðar, jarðvegurinn gróinn yfir lækinn. en sumstaðar voru holur niður gegnum jarðveginn oní lækinn; þar dorguðum við lángtímum saman og drógum lítinn fallegan fisk; sem betur fór ekki of oft.“

Í túninu heima

Á þessu nesi
á þessu túni
stóð bær.
Brúnklukka í mýri?
Nei, ekki meir. En altær lind og ilmur af reyr.
Og þegar þú deyr þá lifir reyr
á þessu nesi
við þessa lind
í þessu túni þar sem stóð bær.

Halldór Laxness.

Guddulaug

Guddulaug.