Hlið á Álftanesi
Um Álftanes hefur verið mikið ritað bæði um landslag og nytjar en einnig sögu svæðisins og fólksins sem þar bjó. Þessi kafli fjallar þó að mestu um bæinn Hlið og ábúendur þar. Uupplýsingarnar eru fengnar úr „Uppgraftarskýrslu um Hlið á Álftanesi“ frá árinu 2016.
„Álftaneshreppur hefur verið til frá landnámsöld og náði yfir þau svæði sem nú skiptast í Bessastaðahrepp, Garðabæ og Hafnarfjörð. Árið 1878 bjuggu um 600 manns í Bessastaðahreppi og um 1880 voru íbúarnir orðnir um 670. Upp úr aldamótum fór fólki að fækka en þá fór íbúafjöldi niður í 117 þegar fæst var árið 1941.
Þessa íbúahnignun má að mestu rekja til þess að smábátaveiði leið undir lok við tilkomu togaranna á 20. öld og fólk neyddist til að flytjast búferlum.
Í dag tilheyrir Álftanes sveitafélaginu Garðabæ.
Láglendi einkennir Álftanesið en hæst er það um 25 metrar á Garðaholti í Garðabæ, en í Bessastaðahreppi stendur Sviðholt hæst, 15 metra yfir sjávarmáli. Tvær tjarnir voru á nesinu þar sem nú eru litlar víkur, það er Skógtjörn sem gengur inn í nesið að suðvestanverðu og Lambhúsatjörn að norðaustanverðu. Bessastaðatjörn varð svo til árið 1953 þegar vogurinn var stíflaður við Dugguós. Syðsti hluti Álftaness kallast Hliðstangi en ysti og syðsti hluti hans nefnist Melshöfði. Þar var helsti útróðrastaður á Suðurnesinu í margar aldir.
Á 20. öld fór fram [skipulögð] þurrkun á mýrunum á Álftanesi og breytti það landslaginu til muna, þar sem áður hafði verið mýrlendi voru nú tún og skurðir.
Í Landnámabók segir að Ásbjörn nokkur Össurarson, bróðursonur Ingólfs Arnarsonar, hafi numið land milli Hraunholtslækjar og Hvassahrauns og allt Álftanes. Hann hafi síðan búið á Skúlastöðum.
Ekki er vitað hvar Skúlastaðir hafi verið upphaflega en Brynjúlfur Jónsson fer um Gullbringu- og Árnessýslu árið 1902 og veltir fyrir sér þessari staðsetningu landnámsbæjarins.

Skúlatún og Skúlatúnshraun. Helgafell fjær. Í Skúlatúni er engar fornleifar að sjá. Skúlatúnshraunið er umlykur túnhólinn rann um árið 950.
Í því samhengi nefnir hann Skúlatún, hrauni þakinn grasblett uppi undir Lönguhlíð og að þar sjáist til rústa (hann hefur þetta eftir einhverjum í sveitinni en nær ekki að fara sjálfur og rannsaka tóftirnar). Einnig að rústir sjáist á yfirborði í Helgadal, suður frá Helgafelli.
Jafnframt segir hann: „En sennilegt virðist að Skúlatún sé sama sem Skúlastaðir og sé dregið saman úr: Skúlastaðatún; því líklegt er að bletturinn hafi verið nefndur svo, eftir að hraun hafði flotið yfir alla landareignina í kring og því ekki eftir af Skúlastöðum nema túnið eða nokkuð af því.
Árið 1395 fór jörðin Hlið undir Pál ábóta í Viðey. Strax tveimur árum síðar, 1397, er jörðin sögð í eigu Garðakirkju á Álftanesi sem á ennþá jörðina árið 1477. Árið 1558 verður svo breyting á og umboðsmaður Danakonungs hefur jarðaskipti við kirkjuna og því verður Hlið þá í eigu konungs.
Samkvæmt Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns frá árinu 1703 er jörðin ennþá konungseign og greint frá því að jarðardýrleiki sé óviss og fóðrar naumlega fjórar kýr. Þar er stunduð torfrista og stunga og fjörugrasatekja.
Þar er jafnframt hrognkelsfjara, skelfiskfjara (til beitu) og sölvafjara. Heimræði er árið um kring en lending sögð vera slæm, skip ábúanda ganga þó eftir hentugleikum. Ábúandinn er skráður Jón Pétursson lögréttumaður í Kjalarnessþingi en heimilismenn eru skráðir alls sjö á Hliði.
Jón á einnig hluta af jörðinni Ási, með konungi og ábúandi þar þarf að greiða landsskuld bæði til Jóns á Hliði og til Bessastaða.
Ýmsar kvaðir hvíldu á Jóni líkt og öðrum ábúendum á konungsjörðum og breytti þar engu þótt hann hafi verið lögréttumaður. „Hann þarf að leggja til mann til sláttar tvo daga á sumri.
Tvo hestburði af hrísi þarf hann að leggja til höfuðbólsins. Þá á hann að útvega mann til veiða í Elliðaánum þrjá daga á sumri og mann á ferðabát Bessastaða, oft margar ferðir á ári, og sjá þeim manni fyrir fæði. Þá þarf ábúandinn í Hliði að leggja mann til fálkaflutninga, svo og hestburð af heyi til að fóðra búpening þann er notaður var í fálkafóður. Um tíma þurfti einnig að leggja mann til starfa á Bessastöðum þegar átti að brugga þar.
Á jörðinni eru skráðar fjölmargar verbúðir, tómthús og hjáleigur, margar ónafngreindar en eru kenndar við ábúanda sinn sem þar býr hverju sinni:
„Búðir á jörðin tvær þar sem heitir Hliðsnes, kallast önnur Gudniarhus, það er tómthús.
Húsleiga er x álnir. Hússmaðurinn Hólmfastur Árbjartsson með móður sinni heilsuveikri.
Guðnýjarhús og Bjarnabúð eru í sama stað, áföst og einn veggur undir báðum. Önnur Biarnabud, öðru nafni Sandbud.
Þetta er verbúð alleina, sem ábúandinn á Hliði hefur uppgjört og viðheldur, til þess alleina að hýsa hjer verfólk af inntökuskipum, sem hann ljær þessa búð um vertíð og tekur undirgift af.
Tómthúsin á Melshöfða hafa líklegast öll orðið sjónum að bráð því nú gengur sjórinn langt yfir höfðann og hefur tekið leifar húsanna með sér á haf út líkt og á svo mörgum stöðum við Íslandsstrendur. Sjávargangur hefur lengi brotið af landinu á nesinu og um tún jarðarinnar í Jarðabókinni segir að það sé að brotna af þeim vegna sjávargangs og vatnsbólið bíði einnig hnekki vegna þessa og þurfi margoft að sækja ferskvatn, sumar sem vetur á aðrar jarðir.
Selstöð Hliðs var í Norðurhellum (Selgjá) í landi Garðastaða og var ábúandi þar ekki all sáttur með það.
Í Sjósókn (1945), endurminningum Erlends Björnssonar frá Breiðabólsstöðum segir Erlendur frá lífi fólksins á Álftanesi um miðja 19. öld og eru lýsingar hans persónulegar og einlægar. Hann fjallar um allt frá hversdagsverkum og vinnu til landhátta og persónulýsinga. Hann nefnir einnig alla bændur, þurrabúðamenn og húsmenn sem bjuggu í Bessastaðahreppi á áttunda áratug 19. aldar. Þar segir m.a. um Hlið á Álftanesi:
„Á Neðra-Hliði bjó Ketill Steingrímsson, stórmerkur og skemmtilegur maður. Hann var heilsulítill og dó ungur. Kona hans var Sigríður Bjarnadóttir, systir Ingibjargar, konu Þorláks í Þórukoti. Ketill hafði alltaf mikla útgerð, þetta tvö og þrjú skip. Hjá Neðra-Hliði var Pétursbúð, er var þurrabýli. Á Efra-Hliði bjó Kristján Mathiesen, ríkur maður og um leið einn merkasti maður sveitarinnar. Hann hafði útgerð mikla, venjulegast fjögur skip, tvo áttæringa og tvö sexmannaför. Kona hans hét Elísabet og var fyrr ekkja á Hliði og stórrík, og gekk Kristján að eiga hana.
„Reglusemi og hirðusemi Kristjáns var orðlögð að öllu því, er að búrekstri laut, bæði til sjós og lands. Hann átti jarðir víða, bæði í Borgarfirði og í Árnessýslu. Heimili hans var stórt, einkum á vertíðum, er sjómenn voru margir. Hjá Kristjáni bjó þurrabúðarmaður, er Árni hét. Var hann formaður fyrir Kristján í mörg ár. Á Gamla-Hliði voru fjögur þurrabúðarbýli, gerðu þeir bændurnir út í félagi tvö skip.
Það er skiljanlegt að Erlendur lýsi Kristjáni Mathiesen á Efra Hliði sem ríkum manni en hér eru tvær sögur er tengjast honum: Kristján Mathiesen í Hliði gaf peninga til þess að kaupa hálfa jörðina að Bjarnastöðum svo hægt væri að byggja þar skóla, ásamt fleirum er gáfu jarðirnar Móakot og Útmóa.

Bjarnastaðir er eitt þeirra skólahúsa sem voru reist í kjölfar fyrstu fræðslulaganna er kváðu á um fjögurra ára skólaskyldu fyrir öll börn á Íslandi. Það var teiknað af Rögnvaldi Ólafssyni og Einari Erlendssyni og byggt á fimm mánuðum. Skólahald var á Bjarnastöðum til 1978, eftir það var skrifstofa hreppsins þar uns sveitarfélagið sameinaðist Garðabæ 1. janúar 2013.
Skólahúsið að Bjarnastöðum var notað fram til ársins 1914.
Vorið 1873 kom skútan Dagmar frá Rönne í Danmörku með vörur til verslunar Þorsteins Egilssonar að Eyvindarstöðum. Honum leist svo vel á skútuna og keypti hana, ásamt fleirum, þar með Kristjáni Mathiesen, bónda í Hliði en nýta átti skipið til þorsk-og hákarlaveiða. Um afskipti þeirra félaga var ort:
Jóhannes alla ýsuna sleikir,
Egilsen hirðir steinbítinn,
Þórarinn séra þorskinn steikir,
þá er hann Páll með riklinginn,
keilu og skötu Kristján fær,
en karfann Reykjavíkurbær.
Samkvæmt túnakorti frá 1917 er Hlið tvíbýli og er það sem áður hét Gamla Hlið, var það skráð sem tóftir einar. Vestari bæjarhúsin ættu þá að vera Neðra Hlið. Húsin sem eru austar á kortinu tilheyra þá Efra Hliði.
Í lokakafla Erlends fjallar hann um þær miklu breytingar sem hafa orðið á Álftanesi: „Útvegsbændurnir, þurrabúðarmennirnir og húsmennirnir í hinum gamla stíl eru horfnir og margt merkilegt með þeim öllum, enda þótt um nýja framfaraöld og betri afkomu manna sé nú að ræða. Undanfarandi vertíðir hafa tvö skip flotið úr sveitinni á vetrarvertíð, annað frá Breiðabólsstöðum, hitt frá Gesthúsum, en á fyrri tímum munu þau hafa verið frá sjötíu til hundrað, stór og smá, er þau voru flest.
Má af því marka hve gamli tíminn, sem á margan hátt var farsæll og skemmtilegur, er liðinn í aldanna skaut og kemur aldrei aftur“.
Séra Árni Helgason ritar í sóknarlýsingum um Garðaprestkall árið 1842 og þar svarar hann spurningunni um reisulegustu bæina í sókninni. Hann telur þá upp Bessastaði, Eyvindarstaði, Brekku, Sviðholt og Akrakot í Bessastaðasókn, einnig hjáleigu á Hliði sem fékk nafnið Steingrímsstaðir viku fyrir úttektina. Í Garðasókn telur hann enga bæi jafnast á við þessa, nema bæinn Garða. Annars segir hann um alla þessa bæi „að þeir til skiptist upphefjast og niðurlægjast. – „Í þessu plátsi er hverki að fá rekavið né raft til bygginga“.

Hlið – Röð torfhúsa með fimm burstum og þremur húsum þvert á við enda hennar. Tvö útihús standa stök neðan við bæinn. Grjótgarður neðan við bæinn og grjótgarðar hjá útihúsum. Stakt upphátt lítið hús á bak við útihúsin. Aftan á bakspjald ramma hefur verið skrifað: „Hlið á Álftanesi, málað af Benedikt Gröndal“.
Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal (1826-1907).
Áhugavert að þarna nefnir hann ekki bæinn Hlið, heldur hjáleigu á jörðinni sem að hans mati er reisulegra hús.
Þann 30. nóvember árið 1927 brann Hlið til kaldra kola og er greint frá atburðarrásinni í Morgunblaðinu daginn eftir þar sem segir að eldurinn hafi farið hratt um og því fór svo að litla timburhúsið brann en það tókst að bjarga skúr og heyi sem í honum var, ásamt hlöðu. Einnig tókst að bjarga lausamunum úr litla húsinu. Heimildamaður blaðsins nafngreinir bóndann er Lárus hét.
Í fréttinni er ekkert nánar tekið fram um staðsetningu þessa litla íbúðarhúss í Hliði og hljómar eins og þar sé einungis eitt býli og ekki lengur tvö eins og áður samkvæmt túnakorti sem gert var aðeins 10 árum áður.
Það er óhætt að segja að margt hefur verið um manninn í Hliði í gegnum aldirnar enda útgerð mikil á staðnum. Fjölmörg hús af ýmsum toga hafa verið þar á sama tíma en afar lítið hefur verið skrifað um þau.“
Húsráðandi á Hliði er nú Jóhannes Viðar Bjarnason Fjörukrárgoði. Á staðnum rekur hann m.a. umfangsmikla gistihúsa- og veitingaþjónustu.
Heimild:
-Uppgraftarskýrsla um Hlið á Álftanesi 2016.






















