Hveragerði – silfurreynir; skilti
Í skrúðgarði Hveragerðis, Fossflöt, er lítill steinn með áföstum litlum platta framan við ca. 3. metra háa hallandi trjáhríslu. Á plattanum má lesa eftirfarandi:
„Blóm í bæ 2019 – Þessi silfurreynir er gjöf frá Garðyrkjufélagi Íslands til Hveragerðisbæjar í tilefni af 125 ára afmæli félagsins. Hann er beinn afkomandi elsta trés landsins sem talið er að hafi verið gróðursett 1884 við hús Schierbech landlæknis við Suðurgötu í Reykjavík“.
Á og við Fossflöt er jafnframt ýmiss upplýsingaskilti um bæði eldri skáld og listafólk sem búið hafa í Hveragerði og gert bæinn frægan. Auk þess er flötin fallegur skrautgarður sem er alveg þess virði að berja augum.











