Nýrri eldgos á Reykjanesskaga – Þorsteinn A. Þorgeirsson

Sogin

Eldvirkni Íslands á rætur að rekja til þess að landið situr ekki aðeins á úthafshrygg, heldur einnig á öflugum möttulstrók úr iðrum jarðar, svokölluðum heitum reit. Vegna þessa eru jarðskjálftar og eldgos tíðir vágestir á landinu og þetta hefur haft í för með sér að innan gliðnunarbeltisins hafa myndast um 35 aðskilin eldstöðvarkerfi.

Reykjaneshryggur

Reykjaneshryggur.

Úthafshryggurinn, kenndur við mið-Atlantshaf, markar flekaskil Norður-Ameríku- og Evrasíu flekanna svonefndu. Hryggurinn teygir sig langleiðina á milli heimskautanna, allt frá Norður-Íshafi, þvert yfir Ísland og suður að 60. gráðu suðlægrar breiddar. Sá hluti mið-Atlantshafshryggsins sem liggur suðvestur af Íslandi kallast í daglegu tali Reykjaneshryggur og í framhaldi af honum kemur Reykjanesskagi, sem er um 1700 km2 að flatarmáli. Skaginn er fremur láglendur að undanskildum Reykjanesfjallgarðinum, sem er samfellt fjallendi frá Henglinum í austri að Grindavík í vestri en telst ná allt vestur að Valahnúkum á Reykjanesi. Fjallgarðurinn samanstendur að mestu af lágreistum móbergshryggjum, á borð við Bláfjöll, Lönguhlíðar, Undirhlíðar og Selsvallarháls, sem flestir eru taldir hafa myndast í gosum undir jökli á síðustu ísöld. Fjallgarðurinn á skaganum rís mest í 621 metra hæð yfir sjávarmáli í Brennisteinsfjöllum og í 803 metra hæð í Henglinum.

Kleifarvatn

Kleifarvatn – dýpi.

Á skaganum er tæpast hægt að tala um ár og stöðuvötn vegna þess að jarðlögin eru að mestum hluta ung og gropin hraun sem úrkomuvatn sígur auðveldlega í gegnum en af sömu ástæðu myndast í kjölfarið miklir grunnvatnsstraumar á svæðinu. Stærsta stöðuvatnið á Reykjanesskaga er Kleifarvatn, sem liggur á milli Núpshlíðarháls og Sveifluháls en það er afrennslislaust á yfirborði, um 8km2 að flatarmáli og mesta dýpi þess er 97 metrar. Meðal annarra stöðuvatna á skaganum má nefna Hlíðarvatn, Grænavatn og Djúpavatn. Þá er ótalið sjálft Bláa lónið, manngert lón sem samanstendur úr jarðsjó frá jarðvarmavirkjuninni við Svartsengi. Á Reykjanesskaga eru nokkur háhitasvæði, þar á meðal á Reykjanesi, Krýsuvík, Brennisteinsfjöllum og við Svartsengi.

Landnám Ingólfs

Landnám Ingólfs – Reykjanesskaginn.

Reykjanesskaginn er umlukinn hafi nema í austri, þar sem mörk hans eru ekki skilgreind sérstaklega, en gjarnan er átt við landsvæðið sunnan Esjunnar og vestan Hengilsins. Innan þessara marka eru þéttbýlustu svæði landsins, höfuðborgarsvæðið og nágrannasveitarfélög, þar með talið Grindavík. Íbúar svæðisins telja því tæplega 225.000 talsins, eða rúmlega 70% íslensku þjóðarinnar.

Frá jarðvísindalegum sjónarhóli hefur Reykjanesskaginn reynst vísindamönnum hreinasti dýrgripur, þar sem hann er einn aðgengilegasti hluti hins virka gosbeltis og gott dæmi um hvernig hryggir á plötuskilum byggjast upp.

Eldborg

Stóra-Eldborg.

Eldgos á Reykjanesskaga eru ekki jafndreifð í tíma, heldur virðast þau gerast í hrinum. Á Reykjanesskaganum koma goshrinur á um 1.000 ára fresti og stendur hver hrina í 200-350 ár en síðasta hrina hófst á níundu öld og lauk á þeirri þrettándu.
Síðasta gosskeið á Reykjanesskaga stóð yfir á tímabilinu frá 9.öld til 1240 og þá kom upp eldur í öllum eldstöðvakerfum Reykjanesskagans, að undanskildu Hengilskerfinu, sem gaus síðast fyrir um það bil 2.000 árum. Í sögulegum heimildum má finna lýsingar á fjölda eldgosa í þremur af þeim fjórum eldstöðvakerfum sem teljast til Reykjanesskaga. Hættan á því að jarðeldur komi upp er mjög mismunandi eftir kerfum, sem hafa verið misvirk síðastliðið árþúsund. Eldvirknin virðist þó hafa verið stöðug síðustu 100.000 árin. Dyngjugos voru algeng á fyrri hluta nútíma, fyrir 5.000-10.000 árum, en síðustu 5.000 árin hafa nær öll gos verið á gossprungum, sem einkennast einkum af hraunflæði.

Páll Imsland

Kortskissa af Suðvesturlandi sem sýnir helstu þætti náttúruhamfara á svœðinu og
hvernig þeitn er fyrirkomið í jörð og andrúmslofti með tilliti til Straums. R stendur fyrir Reykjanes-, G fyrir Grindavíkur-, K fyrir Krísuvíkur-, B fyrir Brennisteinsfjalla- og H fyrir
Hengilssprungurein.

Grindavíkurbær er á sunnanverðum Reykjanesskaga og fjölmennasti byggðarkjarni Reykjanesskagans að frátöldum Reykjanesbæ og sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins, en íbúar Grindavíkur telja nú 2.825 manns. Talið er að landnámsmenn hafi fyrst sest að þar sem nú er Grindavík á fjórða áratug 10. aldar. Grindavík hefur í gegnum tíðina verið þekkt fyrir öflugan sjávarútveg, sem hefur lengst af verið höfuðatvinnuvegur bæjarbúa sem smíðuðu fley úr rekaviði fram á 18. öld. Sjósóknin tók litlum breytingum næstu aldirnar eða allt framundir aldamótin 1900, þegar íbúar voru 357 talsins. Þá fór Grindvíkingum að fjölga, þorpið tók að myndast, vegir voru lagðir til bæjarins og íbúar fóru að stofna félög og samtök til að létta sér lífsbaráttuna og átökin við náttúruöflin. Dugmiklir aðilar réðust í framkvæmdir sem skiptu sköpum fyrir þróun byggðarlagsins, atvinnulífið tók kipp, fólkinu fjölgaði enn meira, enn fleiri hús voru reist og ýmiss konar nútímaþægindi urðu sjálfsögð. Á síðustu árum hefur ferðamönnum fjölgað verulega í Grindavík, enda fjölbreytt afþreying í boði.

Grindavík

Grindavík.

Grindavík stendur fyrir opnu hafi og liggur fremur lágt, en langstærsti hluti bæjarins liggur lægra en 20 metra yfir sjávarmáli. Af þessum sökum hafa Grindvíkingar oft orðið fyrir tjóni af völdum sjávarflóða, sem eiga sér stað þegar krappar lægðir og stórstreymisflóð fara samtímis um strandsvæði. Samkvæmt skýrslu Siglingastofnunar Íslands um Grindavíkurhöfn urðu tólf stór sjávarflóð í Grindavík á 20. öld. Þar kemur einnig fram að tvö þeirra hafi einkum skorið sig úr, sjávarflóðin 1925 og 1990, sem bæði ullu bæjarbúum miklu efnahagslegu tjóni. Í sjávarflóðinu þann 21. janúar 1925 eyðilögðust mörg hús við sjóinn og einnig þær þrjár jarðir, sem lágu næst sjónum.

Greindavík

Grindavík – eldgos 2024.

Þann 9. janúar 1990 varð mikið stormflóð sem olli gríðarlegu tjóni í Grindavík sem og á Stokkseyri og Eyrarbakka. Í Grindavík varð stórtjón á bryggjum, sjór gekk langt upp á land og vegurinn út á Reykjanes rofnaði á um 150 metra kafla, þrátt fyrir að sá kafli hafi legið um 400 metra frá ströndinni.
Ummerki eldvirkni eru augljós í bæjarlandi Grindavíkur. Yfir bænum norðanverðum gnæfir bæjarfjallið, Þorbjörn, sem er móbergsfjall, myndað í gosi undir jökli. Norðan Þorbjarnarfells er háhitasvæðið Svartsengi, þar sem Bláa lónið hefur aðsetur. Þar í grenndinni er að finna Illahraun og Arnarseturshraun, sem runnu á sögulegum tíma. Þau liggja ofan á miðaldarlaginu sem féll árið 1226 og það er talin hafa runnið mjög skömmu eftir þann tíma. Óljóst er hvort þeirra sé yngra, en þau eru sennilega þau hraun sem yngst eru á Reykjanesskaga. Rúmum fjórum kílómetrum norðaustan við bæinn eru Eldvörp, gígaröð sem gaus einnig á sögulegum tíma og mesti hluti bæjarins er byggður á hraunum sem ekki eru nema 1900 til 2400 ára gömul, sem verður að teljast mjög ungt á tímakvarða jarðfræðinnar.

Brennisteinsfjöll

Brennisteinsfjöll – loftmynd.

Síðasta gosskeið á Reykjanesskaga var í Brennisteinsfjöllum (9.-11.öld). Eins og áður kom fram virðast öll þrjú eldstöðvarkerfi skagans verða virk hvert á eftir öðru og síðasta goshrinan hófst sennilega á 9.öld með eldgosum í Brennisteinsfjallakerfinu. Fyrsta heimild um gos á þeim svæðum sem tilheyra eldstöðvarkerfunum á Reykjanesskaga er að finna í Kristnisögu. Talið er að þar hafi runnið Svínahraunsbruni, einnig þekkt sem hið svokallaða Kristnitökuhraun við Hellisheiði. Í þessari hrinu komu einnig upp stórir hraunflákar í Húsfellsbruna frá Kóngsfellsgígum og Eldborg við Bláfjöll, sem og Tvíbollahraun og Hellnahraun, sem runnu frá Tvíbollum í Grindaskörðum. Einnig komu upp mikil hraun úr gígaröðum í Brennisteinsfjöllum, hið sögulega Stakkavíkurhraun og annað, stærra og lítið eldra hraun, sem nefnist Hvammahraun að norðan- og vestanverðu en Háahraun þar sem það rann til sjávar í Herdísarvík. Það er talið hafa runnið á 9.öld og ekki hefðu landnámsmenn mátt vera mikið fyrr á ferðinni til þess að það hefði náð að teljast til sögulegra hrauna.

Sogaselsgígur

Sogaselsgígur – Trölladyngja fjær.

Í eldgosahrinu þeirri, sem reið yfir í Krýsuvíkurkerfinu (einnig kennt við Trölladyngju) á 12.öld, betur þekkt sem Krýsuvíkureldar, rann meðal annars hraun sem nefnist Ögmundarhraun. Það hefur vakið meiri áhuga vísindamanna en önnur hraun á skaganum vegna þess að það rann yfir byggt svæði og þar eru í óbrunnum eyjum varðveittar minjar húsa, rétta og garða sem hraunið hefur að hluta til runnið yfir eða ekki náð að til. Krýsuvíkureldar hafa nafn sitt frá því að í þeirri goshrinu tók af bæinn Krýsuvík.

Húshólmi

Húshólmi (Gamla-Krýsuvík) áður en en Ögmundarhraun rann ~ 1151-1180.

Bærinn Krýsuvik stóð ekki við sjávarbakka, eins og flest býli sem kennd eru við víkur hér á landi. Í bók Bergsveins Skúlasonar, Útskæfur frá árinu 1974, er fjallað um ástæður þess að bæjarstæðið í Krýsuvík fluttist að suðurenda Kleifarvatns. Þar segir að bærinn hafi áður staðið niður við sjó, í samnefndri vík en þar hafi allt land blásið upp og farið í auðn. Bærinn hafi því verið færður inn á milli fjallana, í gróðursældina og jarðhitann við Kleifarvatn og að sjálfsögðu fylgdi nafnið með. Í þjóðsögum Jóns Árnasonar er þó önnur saga sögð af örlögum Krýsuvíkurbyggðar. Þar segir að fyrst hafi bærinn staðið við Krýsuvíkurberg en lagst af þegar eldur kom upp í fjöllunum og hraunkvíslar hafi runnið fram milli hálsanna. Ennfremur segir að túnið og bærinn í Krýsuvík hafi staðið ósködduð þar sem nú er Húshólmi. Þar sem þangað var nánast ófært eftir að hraunið var storknað, hafi bærinn verið færður þangað sem nú er Krýsuvík. Það væri því hægt að telja það sem gott dæmi um eldsumbrot á skaganum sem hafa haft mikil og varanleg áhrif á búsetuval manna.

Ögmundarhraun

Ögmundarhraun – yfirlit.

Talið er að Krýsuvíkureldar hafi staðið yfir á 12. öld en ritaðar heimildir geta til eldvirkni í Trölladyngjum á árunum 1151 og 1188. Í eldsumbrotunum árið 1151, sem hefur verið stærsti atburður Krýsuvíkurelda, er talið að áðurnefnt Ögmundarhraun og Kapelluhraun sunnan Hafnarfjarðar hafi runnið og Krýsuvíkureldum telst síðan hafa lokið með gosinu 1188 þegar talið er að Mávahlíðahraun hafi runnið. Gossprunga Krýsuvíkurelda er ekki samfelld, en milli enda hennar er hún um 25 km löng, flatarmál hraunanna er um 36,5 km2 og áætlað rúmmál þeirra er um 0,22 km3.

Goshrina varð í Reykjaneskerfinu á fyrri hluta 13. aldar, frá um 1210 til 1240, með hámarki á þriðja áratug þeirrar aldar, samkvæmt ýmsum annálum þess tíma. Þekktasta gjóskulagið frá eldvirkni á sögulegum tíma á Reykjanesskaga er hið svokallaða miðaldalag. Lagið er þykkast yst á sjálfu Reykjanesinu þar sem það er um 20 cm þykkt og hægt er að rekja það austur eftir. Hraun runnin á síðasta gosskeiði, á 9.-13. öld. 1: Svínahraunsbruni (Kristnitökuhraun); 2: Húsfellsbruni; 3: Tvíbollahraun (Hellnahraun); 4: Stakkavíkurhraun; 5: Háahraun; 6: Hvammahraun; 7: Kapelluhraun; 8: Mávahlíðahraun; 9: Ögmundarhraun; 10: Arnarseturshraun; 11: Illahraun; 12: Eldvarpahraun; 13: Yngra-Stampahraun.

Stampar

Stampahraun í mótun.

Síðastnefnda gosstöðin, sem þetta lag er komið frá, er að finna í sjó við Reykjanestá, en leifar gígsins má sjá sem stakan dranga skammt frá landi, sem nefnist Karl og hluti gígbarmsins er skammt norðvestan af Valahnúk. Þar hefur annað hraun frá sögulegum tíma, yngra Stampahraunið, runnið upp að honum. Miðaldarlagið var kannað og heimfært uppá eldgos í rituðum heimildum af Gunnari Ólafssyni árið 1983 og síðar tekið saman og endurskoðað af Hauki Jóhannessyni og Sigmundi Einarssyni (1988). Ekki verður lagt mat á sannleiksgildi ritaðra heimilda hér en í annálum frá árunum 1226-1227 er talað um „sandvetur“ og „myrkur um miðjan dag“ (Oddverjaannáll bls. 479, annáll Flateyjabókar bls. 315, Íslendinga Saga bls. 311, Annálabrot Gísla Oddsonar bls.10, o.fl.).

Krýsuvík

Gróðureyðing á Krýsuvíkurheiði.

Það er ljóst að til þess að valda myrkri um hábjartan dag þarf allmikið gjóskufall. Talið er að samspil ösku úr gosinu 1226, kuldaskeiðs á 13. öld og aukin beiting húsdýra á svæðinu í kjölfar þess að beitarlönd töpuðust vegna myndunar Ögmundarhrauns (1151) hafi leitt til aukins uppfoks á Krýsuvíkurheiði. Þetta jók álagið á vistkerfi svæðisins, sem þó var orðið viðkvæmt í kjölfar undangenginnar landbúnaðarnýtingar í þær þrjár aldir sem liðið höfðu frá landnámi. Það gefur því augaleið að þetta lag hefur eflaust verið eitthvað þykkara á þeim tíma sem það féll. Í þessari hrinu runnu einnig þau hraun sem talin eru vera yngst á Reykjanesskaganum, Illahraun, Arnarseturshraun runnin eftir 1226 (liggja ofan á miðaldarlaginu) og ekki síðar en 1240.

Heimildir:
-Eldgosavá á Reykjanesskaga, Þorsteinn A. Þorgeirsson, Háskóli Íslands, Reykjavík 2012.

Sveifluháls

Sveifluháls á Krýsuvíkureldasvæðinu – Folaldadalir.