Selvogur

Gefið hefur verið út minja- og örnefnakort fyrir Selvog í Sveitarfélaginu Ölfus. Undirbúningur og gerð kortsins hefur staðið yfir um langt skeið, en í góðu samstarfi við “gömlu mennina” og aðra kunnuga hefur tekist að ljúka verkinu.

Selvogur

Fulltrúi FERLIRs ræðir við Þórarinn Snorrason á Vogsósum.

Til hafa verið örnefnalýsingar fyrir Selvog, en þær eru mjög misvísandi. Þegar Kristófer Bjarnason frá Þorkelssgerði lést á síðasta ári [2010], en hann hafði farið með FERLIR nokkrum sinnum um svæðið, var ákveðið að fá þá tvo menn, Þórarinn Snorrason á Vogsósum og Þórð Sveinsson frá Bjargi, er enn voru á lífi og þekktu gleggst til staðhátta á svæðinu til að koma saman heildstæðum uppdrætti. Og með stuðningi sveitarfélagsins og þolinmæði prentarans tókst að fullkomna verkið, sem nú hefur litið dagsins ljós. Á kortinu má auk þess sjá ljósmyndir af gömlu bæjunum.

Selvogur

Frá Selvogi.

Kort þetta þjónar a.m.k. tvennu; í fyrsta lagi að stuðla að varðveislugildi örnefnanna og staðsetningu minja frá fyrri tíð og í öðru lagi að minnka líkur á að verðmæti fari forgörðum vegna þekkingarleysis. Þá gefur uppdrátturinn ágæta yfirsýn yfir þróun byggðar í Selvogi. Sjá má hvar gömlu bæjunum hafði verið raðað ofan við ströndina. Verbúðir og fjárborgir voru við sjóinn og á milli lágu götur; kirkjugata og brunngata. Ofar má enn sjá leifar af hjáleigunum.
Ætlunin er að fá sóknarnefnd Strandarkirkju í samvinnu við Biskupsstofu til að setja kortið upp við bílastæðið nálægt kirkjunni til glöggvunar og upplýsinga fyrir hina fjölmörgu ferðamenn, sem sækja Selvog heim árlega.

Ölfus

Selvogur – Minja- og örnefnaskilti (ÓSÁ).