Strandarkirkja – skilti I
Við bifreiðastæðið sunnan Strandarkirkju í Selvogi er skilti. Á því er uppdráttur af Selvogi með tilheyrandi örnefnum og minjum frá fyrri tíð. „Uppdrátturinn er byggður á örnefnalýsingum fyrir Selvogsbæina (Örnefnastofnun Íslands) og heimildum Þórðar Sveinssonar (f: 1930) frá Bjargi, Þórarins Snorrasonar (f: 1931) frá Vogsósum og Kristófers Bjarnasonar (f: 1930), d. 2010) frá Þorkelsgerði.
Uppdráttur; Ómar Smári Ármannsson, Sérleg aðstoð; Jóhann Davíðsson, Vinnsla og prentun; Stapaprent. Gert með stuðningi Sveitarfélagsins Ölfuss árið 2011. Höfunarréttur; Ómar Smári Ármannsson.“
Á skiltinu er eftirfarandi upplýsingar:
Strandarkirkja
„Strandarkirkja er vinsæl til áheita og um tilurð kirkjunnar hafa myndast helgisagnir sem vitna um þann lífsháska sem sjómönnum var búinn fyrir klettóttri og hafnlausri úhafsströnd.
Kirkjan á Strönd er að stofni til frá árinu 1200. Núverandi kirkja er frá 1888. Hún var endurvígð eftir endurbætur 1968 og enn endurbætt og endurvígð í núverandi mynd 1996.“
Selvogur
„Í Selvogi var fyrr á öldum fjölmennt útvegsbændasamfélag þrátt fyrir takmarkað gróðurlendi og erfiðar lendingar. Byggðin var öll rétt ofan við ströndina eins og sjá má á uppdrættinum. Sveitin var lengst af fremur afskekkt og einangrað byggðarlag. Húsarústir, tættur og túngarðar gæjast hér upp úr jörðinni og gefa glögga sýn í búsetu- og atvinnuhætti fyrri alda.“
Biskupsstofa kostaði prentun skiltisins. FERLIR afhenti það endurgjaldslaust og hefur séð um viðhald þess.












