Færslur

Járngerðarstaðir
Grindavíkurbær og Saltfisksetur Íslands hafa gefið út  Örnefna- og minjakort fyrir einstök svæði bæjarins með stuðningi Pokasjóðs. Þegar hafa komið út kort fyrir Járngerðarstaðahverfi (sögusvið Tyrkjaránsins Kort1627), Þórkötlustaðahverfi, Þórkötlustaðanes, Staðarhverfi og Hóp. Unnið er að sambærilegum kortum fyrir Hraun og Stórubót (sögusvið Grindavíkurstríðsins 1532).
Kortin eru unnin með hliðsjón af örnefnalýsingum sem og bestu upplýsingum elstu núlifandi manna og kvenna í Grindavík. Á þeim er getið um helstu örnefni á svæðunum og reynt að draga upp allar sýnilegar minjar frá fyrri tíð. Þá hefur verið reynt að endurvekja eldri minjar, sem nú eru horfnar.
Útgefnum kortum hefur verið komið fyrir á sérstökum upplýsingaskiltum á sérhverjum stað. Þar er fjallað nánar um búsetu- og atvinnusöguna og tengsl minjanna og örnefnanna við hvorutveggja.
Kortin fást í Saltfisksetri Íslands.

Grinndavík

Grindavík – sögu og minjakort.

Herdísarvík

Laugardaginn 15. júní 2013, kl 14:00, var afhjúpað minningarskilti um búsetu þjóðskáldsins Einars Benediktssonar og Hlínar Johnson, síðustu ábúendur í Herdísarvík í Selvogi. Nemendafélagið Grimmhildur, félag HÍ-nemenda (e. mature students) á Hugvísindasviði við Háskóla Íslands, hafði með stuðningi hollvina Herdísarvíkur látið útbúa minningarskiltið.

Einar Ben-229

Sama dag, skömmu síðar, var og afhjúpað örnefna- og minjaskilti sem gönguhópurinn FERLIR hafði veg og vanda að – án þóknunar. Skiltastandurinn var hannaður hjá Martak í Grindavík að beiðni hópsins og myndflöturinn álprentaður hjá Stapaprenti í Keflavík. Á skiltinu er að finna margvíslegan fróðleik sem FERLIR hefur aflað á löngum tíma um staðhætti, tóftir sjóbúða og búskap á jörðinni, bæði með aðstoð örnefnalýsinga og staðbundnum leiðarlýsingum hinna elstu manna, s.s. Þórarins Snorrasonar á Vogsósum og Þórðar Sveinssonar úr Selvogi, er enn muna þá tíð er búskapur var í Herdísarvík. Auk þess veitti Ingólfur Árnason, barnabarn Hlínar góðar upplýsingar um svæðið.

Einar Benediktsson ánafnaði Háskóla Íslands jörðina Herdísarvík, sem í hans tíð var afskekkt. Með tilkomu Suðurstrandarvegar er Herdísarvík komin í alfaraleið. Við það opnast nýir möguleikar til að sinna verndun viðkvæmra sögu- og menningarminja sem þar eru. Uppbygging Herdísarvíkur getur orðið mikilvægt skref í átt til þess að minningu skáldsins sé haldið á lofti.

Á minningarskiltinu má m.a. lesa eftirfarandi: “Hér stendur síðasta heimili þjóðskáldsins Einars Benediktssonar og sómakonunnar Hlínar Johnson. Bæði voru þau sannir heimsborgarar sem fluttu til Herdísarvíkur, í lítið hús við sjóinn í afskektri sveit, þar sem útsærinn er á aðra hönd og klettahamrarnir á hina. Einar ánafnaði Háskóla Íslands jörðina með gjafarbréfi árið 1935.
Einar Benediktsson var fæddur 31. október 1864 að Elliðavatni, sonur hjónanna Benedikts Sveinssonar, sýslumanns og alþingismanns, og Katrínar Einarsdóttur frá Reynistöðum í Skagafirði. Einar nam við Lærða skólann og las síðan lög við Hafnarháskóla. Hann kvæntist Valgerði Zoëga (1881-1955) og varð þeim sex barna auðið. Þau skildu.
Einn þekktastur varð Einar Benediktsson fyrir skáldskap sinn en hann var einnig kunnur sem stórhuga frumkvöðull og lífskúnstner. Hann starfaði sem Hlin johnsson-229lögfræðingur og sýslumaður og var bæði fyrsti dagblaðsútgefandi og fasteignasali á Íslandi. Einar þótti örlátur og gjafmildur gleðinnar maður. Einar Benediktsson hefur verið kallaður “…einhver jötunefldasti andi sem fæðst hefur á Íslandi ” [Guðjón Friðriksson, 2000]. Síðustu átta árin dvaldi hann í Herdísarvík ásamt Hlín. Hér lést hann 12. janúar árið 1940.
Hlín Johnson (f. 16.11.1876, d. 15.10.1965) fæddist að Sandhaugum í Bárðardal. Hún giftist Ingólfi Jónssyni frá Jarlsstöðum í sömu sveit og varð þeim átta barna auðið. Þau skildu. Hlín þótti listagóð saumakona, sem saumaði bæði kven- og  karlmannsföt. Þau Einar og Hlín kynntust árið 1927 og fluttu til Herdísarvíkur í júlí 1932 og tók Hlín við bústjórninni. Hér í Herdísarvík var búskapur með kýr, sauðfé, hænsni og endur. Fiskur var veiddur úr tjörninni og seldur til erlendra sjómanna, ásamt lagnaðarís úr tjörninni sem geymdur var í sérstöku íshúsi [nú horfið] hér á staðnum. Lambakjöt og bleikja var reykt í reykofni og var frægt að gæðum, ekki síður en göróttur landinn sem Hlín bruggaði.
Halldór Laxness lýsti Hlín með þessum orðum: “…lík fornkonu, þolir ekki annað lögmál en sjálfrar sín, og þess vegna fer strandleingjan og fjallið og einveran og úthafið henni best” [Björn Th. Björnsson]. Hlín bjó í Herdísarvík allt fram um 1960.
Höfundarverk Einars er æði mikið. Eftir hann liggja meðal annarra verka: Sögur og kvæði, Hafblik, Hrannir, Vogar og Hvammar, ásamt þýðingum, ritgerðum og fleiru. Margir íslenskir málshættir eiga rætur sínar í ljóðum Einars”.
Athöfnin var öllum opin. Erindi fluttu m.a. Halldór Blöndal, fyrrum alþingismaður, ráðherra og forseti Alþingis og Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra. Komst þeim báðum vel að orði, bæði til minningar um Einar og Hlín sem og tengsl þeirra við Herdísarvíkina á síðustu æviárum skáldsins. Lét Illugi þau orð falla í kjölfar tölu sinnar “að hann væri enn ekki búinn að venjast því að tala sem ráðherra”, en að teknu tilliti til tölunnar lærist honum það vonandi aldrei – því talan var bæði einstaklega einlæg og efnisrík.

Hlin - herdisarvik

Jafnframt var á þessum degi afhjúpað örnefnaskilti í Herdísarvík.
Jóhann Davíðsson hélt “velkomst” við sögu- og minjaskiltið og bauð síðan Guðrúnu Ásmundsdóttur, leikkonu að afhjúpa það. Að orðum hennar loknum var eins og við manninn mælt; tók þá svo til samstundis sólin að skína með tilheyrandi yl og hlýju.
Jóhann þakkaði sérstaklega Ómari Smára Ármannssyni fyrir hans framlag við gerð uppdráttarins. Sjá upptökuna HÉR.

Herdísarvík

Jóhann við athöfnina.

Í lok formlegrar afhjúpunar leiddi FERLIR stutta göngu um svæðið. Að henni lokinni var boðið upp á kaffihressing í húsi skáldsins og Hlínar.

Frá 1895 til 1927 bjó í Herdísarvík með fjölskyldu sinni Þórarinn Árnason, sonur Árna Gíslasonar stórbónda í Krýsuvík og fyrrum sýslumanns Skaftfellinga. Hafði Þórarinn gagnsamt bú og bjó við rausn að fornum hætti.

Herdísarvík

Ómar Smári Ármannsson við athöfnina.

Árið 1908 eignast Einar skáld Benediktsson Herdísarvík (ásamt Krýsuvík, sem hann átti þó með erlendum mönnum), en mun lítt hafa skipt sér af högum landseta sinna. Árið 1927 leigir hann jörðina Ólafi Þorvaldssyni, síðar kunnum fræðimanni og rithöfundi, sem þar bjó með sinni fjölskyldu fram til 1933 en leigumáli hans var ekki endurnýjaður eftir það. Hafði Ólafi búnast prýðisvel á jörðinni og hefði, að eigin sögn, feginn vfljað vera þar lengur.

Herdísarvík

Guðrún Ásmundsdóttir afhjúpaði minja- og örnefnakort FERLIRs við Herdísarvík.

Í júlímánuði 1932 fluttist eigandi jarðarinnar, Einar Benediktsson, þá viðurkennt höfuðskáld þjóðarinnar með litríkan afhafna- og umsvifaferil að baki, til Herdísarvíkur ásamt sambýliskonu sinni, Hlín Johnson. Hófst þá smíði nýs íbúðarhúss (járnvarins timburhúss) á jörðinni, norðarlega í túninu og allnokkurn spöl frá gamla bænum. Var húsið fullbúið snemma í septembermánuði það ár. Stendur það enn, nú uppgert, og hefur um allmörg ár verið notað sem sumarorlofshús háskólastarfsmanna. Meðan á byggingu hússins stóð höfðust Einar og Hlín við í gamla bænum ásamt fjölskyldu Ólafs, en fluttu síðan inn í húsið nýja jafnskjótt og það varð íbúðarhæft. Yfirsmiður hússins var Sigurður Halldórsson úr Reykjavík, en allt byggingarefni var flutt sjóleiðina frá Reykjavík að Herdísarvík á strandferðaskipinu Skaftfellingi, en síðan á opnum báti frá skipshlið í lendingarvör. Bjuggu þau Einar og Hlín síðan í húsi þessu þar til Einar andaðist 12. janúar 1940, sem fyrr er getið, þá farinn að heilsu og kröftum eins og kunnugt er, en Hlín síðan, mest ein en stundum með aðkeyptri hjálp, nokkuð á annan tug ára, þar til hún brá búi og byggð lagðist af í Herdísarvík.”

Heimild:
-Morgunblaðið 15. janúar 2000, bls. 34-35.

Herdísarvík

Herdísarvík – skilti nemendafélags Grimmhildar.

Hóp

Um var að ræða menningar- og sögutengda ferð í boði Grindavíkurbæjar og Saltfiskssetursins.

Söguskilti

Ferðin hófst við Saltfisksetrið, Hafnargötu 12a. Gengið var að tóftum gamla Hópsbæjar og Neðri-sundvörðu. Þar var vígt fimmta söguskiltið sem sett er upp í Grindavík og nú í Hópshverfi. Þar mátti má sjá ýmsar minjar, s.s. tóftir gamla torfbæjarins á Hópi og jafnvel minjar um landnámsskála Molda-Gnúps, landnámsmanns Grindavíkur.
Gengið var með strandlengjunni að Eyjagarði, hafnarbakkanum sem reistur var í Vestmannaeyjagosinu, og að minjum á Hópsnesi. Í ferðinni var og ýmislegt skoðað sem fyrir augu bar á leiðinni.
Á söguskiltinu við Hóp stóð m.a: “
Þú ert ofan við Vatnstanga norðan við Hópið, núverandi hafnarlægi Grindvíkinga. Til hægri handar eru tóftir gamla bæjarins á Hópi. Í Manntali 1880 var bæjarstæðan nefnd Stóra-Hóp og Litla-Hóp, en í Manntali 1910 nefndist hún Austur-Hóp og Vestur-Hóp. Þar var þríbýli frá 1850 og fram í byrjun 20. aldar. Gamli bærinn mun hafa verið rifinn um 1930. Tröð lá upp með vestanverðum bænum upp að túngarðinum. Önnur tröð lá frá bænum áleiðis niður á Vatnstanga. Fjaran var rétt neðan við bæinn, en gerð var uppfylling á henni eftir miðja 20. öld þar sem nú er vegurinn (Bakkalág).
Húsið Hóp var byggt árið 1935 af Einari Einarssyni í Garðhúsum og húsið Sjónarhóll var byggt af Guðmundi Þorsteinssyni árið 1951.
Á túnakorti frá 1918 var hlaðin sundvarða þar sem íbúðarhúsið er nú. Rétt neðan við Við Miðaftanshólhúsið Hóp er rúst. Hún mun vera leifar þurrabúðar sem byggð var ábúanda um tíma frá Þórkötlustöðum fyrir aldamótin 1900. Útihús var þarna skammt vestar.
Í Manntölum frá ýmsum tímum má sjá bæði tengsl og nöfn íbúanna á ýmsum tímum. Frændsemi hefur löngum verið mikil og náin milli íbúa hverfanna í Grindavík. Fremsta tóftin (suðvestanvert) við gamla Hóp er svonefnt Goðhús eða Goðatóft. Hún var friðlýst 1930. Nafnið bendir til þess að tóftin sé mjög gömul. Hún hefur verið endurbyggð til annarra nota líkt og flest önnur mannvirki á svæðinu.
Í túninu við Hóp eru leifar gamalla mannvirkja, s.s. gerðið og Gerðishúsið (Gerðatóft), sem ekki hafa verið rannsökuð, svo og gamlar götur. Enn má sjá leifar gömlu Hópsbæjanna, Melbæjar, Hópskots, Hópsness og Ness (síðasta íbúðarhúsið var flutt yfir Hópið á bát og er nú Túngata 9), auk minja verbúðar frá Hópi ofan við Hópsvör, þurrkgarða og ískofa. Elsta bryggjan neðan við Hópskot er sýnd á uppdrættinum, en hún er nú horfin og aðrar nýrri teknar við hlutverki hennar.
Auk örnefnanna má sjá ýmiss gömul mannvirki í Hópinu á þessu sögu- og minjakorti.

Landnám

Hóp

Hóp – minjar gamla bæjarins.

Molda-Gnúpur nam land í Grindavík, en hvar…..? Bjó Molda-Gnúpur að Hópi? Eða kannski einhver sona hans?
Í Landnámu segir að „Maður hét Hrólfur höggvandi; hann bjó á Norðmæri, þar sem hét Moldatún. Hans synir voru þeir Vémundur og Molda-Gnúpur; þeir voru vígamenn miklir og járnsmiðir …. Gnúpur fór til Íslands fyrir víga sakir þeirra bræðra… En um vorið eftir fóru þeir  Molda-Gnúpur vestur í Grindavík og staðfestist þar; þeir höfðu fátt kvikfjár. Þeir voru þá fulltíða synir Molda-Gnúps, Björn og Gnúpur, Þorsteinn hrungnir og Þórður leggjaldi.”
Hér að framan er einungis sagt Grindavík en ekki nákvæmlega hvar. Í önefnalýsingu um Hóp í Grindavík sem Ari Gíslason skráði segir m.a. um jörðina Hóp, „sem hefur um langt skeið hefur verið miðsvæðis og ein af lykiljörðum byggðalagsins: Hóp í Grindavík er næsta jörð vestan við Þórkötlustaðahverfi. Bærinn stendur niður við sjó, við Hópið, sem hann dregur nafn af. Sagt er, að hann hafi upphaflega verið nefndur Hof, og er hér gömul goðatóft til. Sagt er, að Hofsnafnið finnist og í gömlum heimildum.
HópskotVestan við túnið á Hópi er Eystri-Vikradalur. Vestan hans er stór hóll, sem heitir Miðaftanshóll. Hann er eyktamark frá gamla bænum.”
Á túninu umhverfis gamla bæinn eru jarðlægar tóftir og garðar svo til við hvert sjónmál. Garðarnir eru greinilega misgamlir og hafa flestir þeirra eldri verið sléttaðir út. Ofan við gamla bæjarhólinn, norðvestan fjárhúsanna má greina 5 tóftir, auk matjurtargarða. Heimtröðin sést vel vestan við hólinn og suðvestan við Goðatóftina fyrrnefndu. Jarðlægur vörslugarður hefur verið í boga ofan við gamla bæinn, en hann síðan verið færður út og stækkaður og auk þess hefur verið hlaðinn garður til norðurs. Innan gamla garðsins og ofan gamla bæjarhólsins er forvitnileg jarðlæg rúst með görðum til beggja átta er teygja sig að gamla garðinum. Við norðvesturhornið hefur verið hlið. Nokkru vestar í túninu eru tóftir nýrri útihúsa. Forvitnilegasta rústin er þó sú minnst sýnilega í túninu. Hún virðist vera leifar af fornum skála er snýr til SV og NA. Stærðin á mannvirkinu er svipuð skála þeim er sjá má í Húshólma og lögunin er áþekk. Um er að ræða áhugaverðar minjar, sérstaklega með hliðsjón af framangreindri lýsingu í Landnámu.

Hóp

Skiparétt í Nesi

Í Jarðabókinni 1703 segir að „öngvar engjar” séu á Hópi. Þar var þá tvíbýli. „Flæðihætt er fyrir sauð, og líka brýtur sjófargángur túnið, og er hætt við enn meira landbroti.” Þá eru þarna kýr, hestar og fé hjá báðum ábúendum. „Heimræði árið um kring og lending hin besta sem hjer í sveit er, en ærið lángt að setja, nema með flóði verði lent. Þar gánga vetur og sumar skip heimabænda. Item áttrætt skip stólsins og fylgir því búð og vergögn, sem hvorutveggja er innkomið í tíð Mag. Brynjólfs, en var ekki fyrr.” Þá segir að „fjörugæði eru mikil til beitar fyrir fje á Hópi.”
Bærinn varð snemma eign Skálholtsstaðar. Verminjarnar ofan við Hópsvör virðast skv. þessu því geta tengst útveri Skálholtsstóls á staðnum. Árið 1840 er „Miklar innnytjar eru við jörð þessa af Hópinu, ef notkaðar væru. Í því veiðist mergð hrognkelsa eftir Jónsmessu, einnig silungur og mikill áll, en við ekkert þetta er sú ástundun höfð sem skyldi, og engir viðburðir við tvennt það síðarnefnda. Veiðst hefir þar líka selur og lax, þótt minna fengist með jafnri viðleitni sem hið þrennt fyrst talda; þegar fiskur gengur grunnt, hefir þar inni þorskur fengist og þyrsklingur, en sú veiði er samt ekki teljandi.”

Í Nesi

Í Landnámi Ingólfs segir að „á bæ þessum bagar vatnsleysi til neyslu.” Þar stingur skökku við því ferskvatnsuppspretta kemur undan landinu í fjörunni við Vatnstanga. Í fjöruborðinu hefur því verið mikið og fjölbreytt lífríki frá náttúrunnar hendi þar sem ferskvatnið kemur undan berginu og sameinast sjónum.
Árið 1847 var jörðin seld í tvennu lagi (Stóri- og Litliparturinn) eftir afsalsbréfum 8. ágúst 1787 og 26. janúar 1791. Tvíbýli var á Hópi alla 19. öldina, en frá 1850 þríbýli og var þriðji parturinn nefndur Litla-Hóp frá 1880, sem fyrr er lýst.
Inn á Túnakort 1918 er býlið Hópsnes merkt. Bærinn mun hafa staðið á hól, sem notaður var í vegagerð á 7. áratugnum og er bæjarstæðið sjálft því horfið. Skv. lýsingu Huldu D. Gísladóttur (f:1918) stóð bærinn ofan við núverandi smábátahöfn, sunnan við Skiparéttina. Hann hafi jafnan verið nefndur Hópsnes, en ábúandinn í hennar tíð gjarnan kenndur við „Nes”, t.d. Guðmundur í Nesi.

Nes á Hópsnesi

Í bréfi um byggingu jarða Skálholtsstóls í Grindavík frá 1563 er boðið að breyta bænhúskúgildum þeim sem voru á Hrauni, Þórkötlustöðum og Hópi í leigukúgildi. Gæti það verið vísbending um bænhús á Hópi. Í manntali 1703 er getið um hjáleigu á Hópi, en hennar er ekki getið í Jarðabók frá sama ári eða öðrum heimildum.
Melbær er merktur inn á túnakort frá 1918. Þar var um 160 m norðnorðvestan við bæ. Bærinn stóð rétt norðan við þar sem gamalt bárujárnshús stendur nú, rétt norðan við íbúðarhúsið á Hópi I. Nú er þar sléttað tún. Gerðatóft, útihús, er fast norðan við bæjarhólinn. Það er merkt á túnkort 1918. Þrátt fyrir að sléttað hefur verið yfir húsið má greinilega merkja útlínur þess. Það hefur verið 12×18 m að stærð og virðist hafa verið einfalt. Út frá vesturhlið má grein garðlag sem og út frá austurhlið þess. Mun þetta vera gerðið sem húsið var kennt við.
Gengið um borðAustanvert við túnið er svonefnt Vatnsstæði. Milli þess og Skiparéttar er hraunhryggur eða strýta, sem heitir Álfakirkja. Kletturinn er í mosa- og grasigrónu hrauni. Hann er aflíðandi og grasivaxinn að norðan en að sunnan skín í klöppina. Frá jafnsléttu er kletturinn um 3 m á hæð. Skiparéttin er suður af Vatnsstæðinu. Þetta var grjótrétt, sem skipin voru sett upp í. Hún sést enn og er 12×12 m að stærð. Veggir hennar eru nokkuð hrundir. Tóftin er einföld ef frá er talinn krókur, sem er á henni austarlega. Loftur Jónsson segir um Vatnsstæðið: „Þar sem mýrin sunnan við þar sem fyrirtækið Stakkavík er nú var vatnsstæði þar sem sjór rann í á flóði. Þetta var þó nokkuð stór tjörn. Ósinn inn í vatnsstæðið var það mikill að ekki var hann fær þurrum fótum á flóði. Einhverntíma þegar dýpkun fór fram í höfninni var botndrullu dælt í þetta vatnsstæði og það fyllt upp. Smám saman greri þetta upp.”
Langhóll er austan við Síkin, fast vestan við veginn er liggur suður á Hópsnes. “Álfarnir sem þar bjuggu, sóttu Einn sjóvarnargarðurinnkirkju í Álfakirkjuna,” segir í örnefnaskrá. Nyrst á Langhól er tóft og bogadregin grjóthleðsla liggur yfir Síkið. Önnur tóft er sunnar á hólnum. Þetta eru leifar frá því að Hóp hafði útgerð ofan við Hópsvör. Hleðsluleifar eru í hrauninu á Hópsnesi. Þetta voru herslugarðar. Fyrir neðan Hóp eru Vötnin og Vatnatangi (Vatnstangi), en í Vötnunum var þveginn þvottur frá Hópi. Í Vatnatanga sóttu húsfreyjur að Hópi vatn í kaffið og þótti hvergi betra vant á þessum slóðum,” segir í Sögu Grindavíkur.
Öskuhóll er hóll, fullur af gamalli ösku. Hann er beint norðan við eystri Hópsbæinn. Hóllinn er í sléttuðu túni, grasi gróinn. Hann er 25×15 að stærð. Gömul rudd leið liggur úr túni á Hópi til austurs óræktina, í átt að Þórkötlustöðum. Leiðin liggur til austurs í svipaðri hæð í túninu og Hópsbæirnir standa nú. Slóðinn liggur í jarðri túnsins og í um 50 m áður en hann kemur að girðingu, sem girðir af Hópstún, og vegi sem liggur þar til suðurs að Bakkavör. Slóðinn er svo aftur greinilegur austan vegarins og þar liggur hann út hraunið til austurs.

Hús

Gömul þjóðleið liggur ofan við Hóp áleiðis í Voga. Um var að ræða svonefnda Skógfellsleið, sem einnig var nefnd Vogavegur. Leiðin milli byggðalaganna liggur að mestu um hraunlendi, en kaflinn milli Skógfellanna er djúpt markaður í slétta hraunklöppina. Hann er um 16 km, en bæði greiðfær og áhugaverð gönguleið.

Hafnargerð
Á fyrri öldum, og allt undir síðari heimsstyrjöld, ýttu Grindvíkingar bátum sínum á sjó og lentu í vörum. Var þá oftast svo, að ein vör a.m.k. fylgdi hverju lögbýli. Þær voru flestar við vík eða víkur, sem gengu inn í ströndina. Í þeim var eilítið meira skjól en utar, brimaldan sumstaðar lítið eitt minni og setningurinn nokkru hægari. Í flestum þeirra var þó lending bæði bág og hættuleg.
Engum sögum fer af lendingabótum í Grindavík fyrir 1800. Bændur hafa vafalaust hreinsað varirnar eftir því sem þörf krafði og kostur var, en meira gátu þeir ekki. Gefur og auga leið, hve mikil og erfið vinna það hefur verið að halda vörunum sæmilega hreinum. Hafið er á sífelldri hreyfingu og skolar sandi og grjóti upp á ströndina, og þegar gerði stórbrim og flóð, bárust oft stórgrýtisbjörg upp í varirnar svo þær urðu ónothæfar.

Gamla bryggjan

Engar heimildir eru um að hugað hafi verið að hafnargerð fyrr en kom fram á síðari hluta 18. aldar. Þá lét Guðmundur Runólfsson, sýslumaður, mæla Hópið og ósinn, en ekkert varð af framkvæmdum. Hefur verkfæraleysi og e.t.v. skortur á mannafla, að líkindum valdið mestu.
Á 20. öld hafa gríðarlegar breytingar orðið í hafnarmálum í Grindavík og mun vart ofsagt, að hvergi annarsstaðar á landinu hafi skipt svo mjög um til hins betra í þessum efnum. Árið 1902 fól hreppsnefnd þeim Einari Jónssyni, hreppsstjóra, og Erlendi Oddsyni, að mæla dýpi og stærð Járngerðarstaðavíkur og ef unnt er að gera uppdrátt af höfninni. Ári síðar ákvað hreppsnefndin að skoða Hópið og kanna hvað mundi kosta að gjöra innsiglingu fyrir haffær skip svo þar gæti orðið öruggt skipalægi. Ljúka átti því verki fyrir alþingi 1905.
Fjórtán árum síðar (1917) komust hafnarmálin aftur á Hópsnesdagskrá í Grindavík. Einar G. Einarsson, kaupmaður í Garðhúsum, tók sér penna í hönd og skrifaði Stjórnarráði Íslands. Í bréfinu óskaði hann eftir því, að varðskip yrði fengið til að gera frumkönnun á innsiglingu og höfn í Grindavík. Sumarið 1919 voru gerðar mælingar í Járngerðarstaðavík og lagt til að byggður yrði lítill steypugarður á rifið suðaustur af Akurhúsanefi til skjóls fyrir lendinguna. Þessari álitsgerð fylgdi uppdráttur, er sýndi legu garðsins. Dýrara var talið að dýpka Hópið og gera innsiglingu inn í það, og reyndar óvíst, hvort hugmyndin væri framkvæmanleg.
Árið 1925 gerði mikið sjávarflóð í Grindavík er eyðilagði allmikið af húsum og skemmdi stórkostlega uppsátrið. Einar G. Einarsson hélt áfram að ýta á Stjórnarráðið um úrbætur. Athuganir voru gerðar og tillögur lagðar fram. Einar lét gera teikningu af bryggju við varirnar í Járngerðarstaðahverfi og sendi Alþingi með beiðni um fjárstyrk. Benti hann m.a. á að allar vörur, sem fluttar voru til Grindavíkur sjóleiðis hafi orðið að bera á bakinu og klöngrast með langa leið yfir hált og óslétt fjörugrjót. Bryggjusmíði hófst þó ekki fyrr en á árunum 1931-1933, en þá voru gerðar þrjár bátabryggjur, ein í hverju hverfi. Þörf fyrir bryggju hafði vaxið mjög í víkinni er vélbátaútgerð hófst þar árið 1928.

Hópið 1945

Bryggjan í Járngerðarstaðahverfi var byggð á árunum 1931-1932. Hún var með steyptum veggjum og þekju, grjótfyllt og hallaði í sjó fram. Náði endi hennar u.þ.b. einn metra út fyrir stórstraumsfjöruborð. Alþingi greiddi þriðjung kostnaðarins en heimamenn tvo þriðju hluta. Þrátt fyrir mikinn fögnuð Grindvíkinga með bryggjuna þótti hún helst til of stutt. Árið 1933 var bryggjan lengd.
Sem fyrr varð að setja bátana í naust að kvöldi. Næsta skref var að gera varanlega höfn, þar sem allur bátaflotinn ætti öruggt lægi í öllum veðrum. Enn tók Einar G. Einarsson sig til árið 1938 og ritaði vitamálsstjóra bréf. Bað hann um hæfan mann til að athuga hvort tiltækilegt væri að grafa skurð í gegnum grjót og malarrif það, sem lokar Hópinu. Einnig lagði hann til endurbætur á bryggjunni.
ÁHópið 1955rið 1939 hófust framkvæmdir við að opna Rifósinn. Get var ráð fyrir að reisa bráðabirgða stíflugarð við efra mynni væntanlegrar rásar, þannig að vatnið héldist inni í Hópinu um fjöru svo hægt væri að vinna 4-5 tíma að dýpkun um hverja fjöru. Handverkfæri voru notuð til að losa grjót og handbörur til að flytja það til. Í september var búið að gera 10 m breiða rás í gegnum eiðið og svo djúpt niður, að fiskibátarnir flutu inn og út um hálffallinn sjó. Hinn erfiði setningur bátanna eftir hvern róður heyrði þá sögunni til. Eftir affermingu voru bátarnir færðir inn í Hópið og lágu þar til næsta róðurs.
Árið 1945 var “grafvél” Reykjavíkurhafnar notuð til að breikka og dýpka innsiglinguna og um leið grafin renna upp að bryggju í Hópinu, sem gerð var 1944. Árið 1947 var gerður skjólgarður frá svonefndum Svíra og fram á Rifið, auk þess sem byggð var ein bryggja af þremur, sem áætlun hafði verið gerð um í Hópinu. Fé til framkvæmdanna var tekið að láni og þótti sumum nóg um. Aðkomubátum fjölgaði hins vegar svo ört við úrbæturnar að krafa var gerð um enn frekari framkvæmdir í höfnini. Síðan hefur stöðugt verið unnið að úrbótum og betrumbótum á hafnaraðstöðinni í Grindavík.
InnsiglinginByggingar- og framkvæmdarsaga Grindavíkurhafnar er ævintýri líkust. Árið 1939, þegar hafist var handa um dýpkun innsiglingarinnar, bjuggu grindvískir sjómenn enn við hafnleysi. Frá árinu 1939 hefur hver stórframkvæmdin rekið aðra, og þegar lauk því tímabili, sem hér er til umfjöllunar, áttu Grindvíkingar eina bestu og fullkomnustu höfn á suðurströnd landsins.

Sjávarútvegur og fiskvinnsla
Fyrstu grindvísku bátarnir hafa sjálfsagt verið mjög litlir. Jafnvel aðeins fyrir tvo til fjóra enda ekki ætlunin að veiða mjög mikið heldur aðeins í soðið. Skipin hafa verið smátt og smátt að stækka og talið er að um miðbik 14. aldar hafi tólfæringar verið mjög algengir í Grindavík. Strax á 15. öld sóttust erlendir menn mjög eftir fiski í Grindavík og lögðu útvegsmenn mikið kapp á að auka útgerð sína. Mikið var um að bændur í öðrum landshlutum sendu vinnumenn sína í verið á Suður-og Vesturlandi á vetrarvertíð. Fiskur var allur þurrkaður og ef ekki viðraði til að þurrka var fiskurinn settur í kös og var þá fiskinum staflað á ákveðinn hátt.
AðkomanÁrið 1780 gengu til veiða úr Grindavík á vetrarvertíð 27 heimabátar, 8 áttæringar, 13 sexæringar og 6 feræringar. Aflinn hjá þessum bátum voru 105.280 fiskar. Upp úr 1860 fór bátum að fjölga verulega í Grindavík og sést það á að 1871 voru 18 bátar í Grindavík, en árið 1898 voru þeir orðnir 62. Eftir 1900 voru menn farnir að veiða í net og jókst aflinn til mikilla muna. Ekki eru netin aðalástæðan fyrir auknum afla, heldur er talið að óvenjumikill þorskur hafi verið á miðum Grindvíkinga á árunum 1912- 1927.
Vélbátaútgerð hófst í Grindavík árið 1924 og er það langt á eftir öðrum. Ástæðan fyrir því að Grindvíkingar tóku ekki vélbáta fram yfir árabátana fyrr, var sú að lendingarskilyrði voru mjög slæm. Fyrstu vélbátarnir voru áttæringar sem breytt var og vél sett í. Það hefur verið gífurleg bylting fyrir sjómenn að komast á vélbát og losna við allann róðurinn.
Árið 1928 var síðasta árið þar sem árabátar voru notaðir við veiðar í Grindavík og nú voru vélbátar eingöngu við líði og aflabrögð voru mjög góð. En eitt skyggði þó á og það var hafnleysið sem fyrr er lýst.
Með öllum eftirfarandi Hópiðframkvæmdum gjörbreyttust aðstæður til útgerðar í Grindavík og nú risu upp fyrirtæki sem keyptu og ráku stóra báta. Hafist var handa við að byggja Hraðfrystihús rindavíkur og var fyrsta  verkefni þess frysting beitusíldar. Nokkrum árum síðar var svo stofnað hraðfrystihús í Þórkötlustaðahverfi. En með auknum fiski að landi fylgdi meiri úrgangur og eitthvað varð að gera við hann. Þörfin jókst til muna þegar var farið að salta síld í Grindavík, en fyrsta síldin var söltuð þar hinn 19 september 1945. Úr varð að byggð var beinavinnslu og lýsisbræðsla sem hlaut nafnið Fiskimjöl og Lýsi og var það almenningshlutafélag.
Miklar framkvæmdir urðu í hafnargerð á næstu árum. Sumarið 1957 var byggð 80 metra bryggja. Var hún hugsuð sem viðlegukantur fyrir báta sem þegar hafði verið landað úr. Hafnargarðurinn var líka lengdur um fimmtíu metra árið 1958. Þetta hélt svo áfram smátt og smátt. Haldið var áfram við bryggjusmíði og eins við gerð skjólgarða. Árið 1969 var viðlegu bakkinn orðinn 276 metrar samtals og bryggjurými í höfninni 560 metrar. Í janúar 1973 þurfti að finna Eyjaflotanum höfn í kjölfar eldgoss á Heimaey og varð Grindavík fyrir valinu. Árið 1973 var gerð viðlegubryggja og árið 1974 var svo gerð bryggja við svonefndan Eyjabakka.

Þorbjörn

Eftir allar þessar framkvæmdir á fimmta áratugnum var orðið mögulegt að koma stærri bátum inn í höfnina. Öll helstu útgerðarfyrirtæki á Grindavík ráku síldveiðar og söltun. Einnig lögðu aðkomubátar upp afla sinn í Grindavík. Þegar mest var lönduðu yfir hundrað bátar í Grindavík á degi hverjum. Á árunum 1975-1988 voru Grindvíkingar meðal umsvifamestu síldarsaltenda sunnanlands. En það var ekki bara síld sem barst til lands í Grindavík. Mikið var um loðnuveiði og þegar humarveiðar hófust voru Grindvíkingar fljótir að senda báta á vettvang. Allt þetta gerði það að verkum að Grindavík breyttist úr litlu svávarplássi í ört vaxandi útgerðarbæ.

Við gerð uppdráttarins var m.a. stuðst við „Örnefni á Hópi“, sem séra Ari Gíslason skráði, Örnefnalýsingu Lofts Jónssonar, Jarðabók ÁM 1703, Manntöl frá 1880 og 1910, örnefni skv. upplýsingum Guðsteins Einarssonar, hreppsstjóra, sóknarlýsingu Geirs Backmanns frá 1840, Sögu Grindavíkur og upplýsingum og heimildum núlifandi Grindvíkinga.

Grafið

Sérstakar þakkir eru færðar þeim Lofti Jónssyni, Tómasi Þorvaldssyni, Guðmundir Þorsteinssyni, Birgi Guðmundssyni, Huldur Dagmar Gísladóttur og Jóni Guðlaugssyni fyrir aðstoðina við gerð uppdráttarins. Þá er Gunnari Tómassyni þökkuð afnot af meðfylgjandi ljósmyndum.”

Frá “Nesi” var siglt með Oddi V. Gíslasyni út Hópið, um Ósinn og út á Járngerðarsundið. Þar var stefnan tekin á Bótina utan við Þórkötlustaðanes. Sjólag var eins og best getur orðið. Útsýnið til landsins var ekki síðra. Vel var hægt að ímynda sér heimleiðir útvegsbændanna fyrrum. Aldan virtist há, en útlegð. Þótt handtök stjórnenda og áhöfnar Odds væru bæði örugg og traustvekjandi var auðvelt að sjá fyrir hvernig forfeður vorir fyrrum hafa þurft að hafa vara á sér og afl til að komast síðasta sjólagið að vörinni á öldum áður, hvort sem um var að ræða Fornuvör, Suðurvör, Norðurvör, Staðarvör eða Hópsvör (Gvendarvör).

Uppdráttur af svæðinu er á skiltinu, sem er allt hið vandaðasta. Eins og fram kom hér að framan er um að ræða fimmta Minja- og söguskiltið af sex slíkum í Grindavík. Segja má með sanni að þetta framtak Saltfisksetursins og Grindavíkurbæjar verður bæði að teljast til mikillar fyrirmyndar og á án efa eftir að efla til muna vitund bæjarbúa sem og annarra á sögu Grindavíkur og hinum miklu minjum sem sveitarfélagið hefur að geyma.

Frábært veður.

Hóp

Hóp – tóftir gamla bæjarins.

Járngerðarstaðir

Í tilefni að uppsetningu söguskiltis á atburðarsviði “Tyrkjaránsins” við Járngerðarstaði var efnt til menningar- og sögutengdrar göngu um gamla Járngerðarstaðahverfið (2006). Skiltið, sem staðsett er við horn Verbrautar og Víkurbrautar, á auk þess að minna á sögulegt upprunahlutverk Járngerðarstaða í þróun byggðar í Grindavík. Ætlunin er að setja svipuð skilti upp á fleiri sögustöðum í byggðarlaginu, s.s. Þórkötlustaðahverfi, Hópi, Stórubót og jafnvel Þórkötlustaðanesi og Staðarhverfi. Allt eru þetta staðir, sem telja verður til þeirra markverðari í forsögu bæjarins, auk þess sem vonandi fást sérstök tækifæri síðar til að vekja athygli á hinu merka mannlífi, búskap, útgerð og verslun í Grindavík áður fyrr.
JárngerðarstaðahverfiGangan var í boði Grindavíkurbæjar og Saltfisksetursins. Eftir stutta athöfn þar sem forstöðumaður Saltfisksetursins, Óskar Sævarsson, kynnti tilurð og tilgang skiltisins var tekið til við að lýsa atburðarrás “Tyrkjaránsins” um Jónsmessubil árið 1627. Rifjaður var upp sá hluti hennar er gerðist þarna á sjónrænu sögusviði. Oft koma upp efasemdaraddir um nákvæma staðsetningu atburðarrásarinnar, einkum vegna þess að staðhættir hafa breyst á þeim nær 380 árum, sem liðnir eru frá atburðinum. Það er þó aðallega þrennt, sem styrkir fólk í þeirri trú að þetta geti verið staðurinn; a) frásögn þátttakenda og heimildamanna við skráningu atburðarrásarinnar, b) lýsing Brynjúlfs Jónssonar frá Minna-Núpi þar sem sagt er frá því að “barist hafi verið í fiskigörðum Járngerðarstaða” og c) þjóðsagan um Tyrki í þjóðsögusafni Jóns Árnasonar þar sem segir að “þyrnir hafi sprottið upp þar sem blóð heiðinna manna og kristinna blönduðust” eftir bardagann. Þyrnir þessi, sem reyndar er þystill, vex einmitt við gatnamót Verbrautar og Víkurbrautar.
Í tilefni afhjúpunar upplýsingarskiltisins var talið vel við hæfi að þakka Guðjóni í Vík og Tómasi frá Núpi sérstaklega fyrir þeirra þátt við gerð þess. Báðir sýndu áhuga á verkinu og voru fúsir til að gefa allar þær upplýsingar er dygðu til að ljúka því með sómasamlegum hætti. Fleirri komu að verkinu. Eiga þeir allir verulegar þakkir skyldar.
Á nýja skiltinu eru m.a. eftirfarandi upplýsingar:

Þú ert hér
Járngerðarstaðahverfi“Þú stendur á slorþró Hafrenningshússins. Það var einnig nefnt Grindvíkingahúsið um tíma. Aftan við þig eru nokkur gömul hús (byggð um og eftir aldarmótin 1900). Elst er Flaggstangarhúsið (Flagghúsið), byggt 1890. Nokkur hús eru horfin, t.a.m. Einarsbúð.
Framundan eru Járngerðarstaðir og nálægir bæir. Svæðið, sem þú hefur nú yfirsýn yfir, var vettvangur “Tyrkjaránsins” í júnímánuði árið 1627.
Uppdrátturinn byggir á örnefnalýsingu frá árinu 1967, lýsingum Guðjóns Þorlákssonar í Vík, Tómasar Þorvaldssonar o.fl. á staðháttum. Hafa ber m.a. í huga að heiti túnbletta og einstakra húsa hafa tekið breytingum frá einum tíma til annars.

Járngerðarstaðir
Járngerðarstaðahverfið er einn þriggja byggðakjarna í Grindavík. Austast er Þórkötlustaðarhverfi og vestast er Staðarhverfi.
Talið er að Grindavík hafi byggst mjög snemma. Í landnámsbók er talað um að Molda-(G)Núpur Hrólfsson hafi numið hér land (í kringum 934). Gera má ráð fyrir því að bæjarkjarnar hafi byrjað að myndast á 10. eða 11. öld. Ekki er ólíklegt að staðsetning þeirra hafi ráðist af graslendi, aðgengi að vatni og aðstöðu til sjósóknar á þessum stöðum.
Talið er að þingstaður Grindvíkinga hafi frá upphafi verið á Járngerðarstöðum. Það bendir til þess að búið hafi verið þar allt frá landnámsöld.

Járngerðarstaðahverfi Heimildir um um sögu jarðarinar og ábúendur fyrir 1700 eru mjög af skornum skammti. Helst er getið um fjöruréttindi, en þó er sýnt, að jörðin hefur komist í eigu Skálholtsstaðar ekki síðar en um miðbik 15. aldar.
Grindavík var verslunarstaður allt frá miðöldum og fram á 18. öld. Þjóðverjar og Englendingar höfðu aðstöðu við Járngerðarstaði á 15. og 16. öld. Sögulegur atburður gerðist hér aðfaranótt 11. júni 1532 við virki Englendinga ofan við Stóru bót. Þá voru 15 þeirra vegnir vegna ágreinings. Sá atburður breytti verslunarsögu landsins.
Af Jarðabókinni 1703 má sjá að Járngerðarstaðir voru taldir hin mesta kostajörð, en hún var þá enn í eigu Skálholtsdómkirkju.

Strax um aldamótin 1800 var þegar kominn vísir að þéttbýli. Það samanstóð af tveimur býlum, sem þar voru, auk hjáleiganna sem byggðar voru í landi jarðarinnar. Um aldarmótin 1900 bjuggu flestir í Járngerðarstaðarhverfi, 59 manns, en mun færri í hinum hverfunum. Á árunum 1840 og 1841 voru aðeins 7 aðalbýli í sókninni og 13 hjáleigur.
Á 19. öld hélt byggðin áfram að vaxa og Járngerðarstaðahverfi varð miðstöð byggðar í Grindavík. Upphaf kaupstaðarins sem nú stendur má rekja til Einars Einarssonar frá Garðhúsum en hann setti upp verslun í húsi sem hann byggði árið 1897. Einarsbúð var síðan reist hér skammt frá 1917.

Um aldamótin 1900 voru íbúarnir 357 talsins en árið 2006 voru þeir um 2600. Árið 1931 var gerð bryggja hér niður undan gömlu húsunum. Leifar hennar sjást enn. Árið 1939 var grafið skipalægi inn í Hópið þar sem aðalhöfnin er nú. Árið 1974 fékk bærinn kaupstaðarréttindi.
Grindavík er einn öflugasti útgerðarbær landsins með fjölda báta og togara og sterkum sjávarútvegsfyrirtækjum.

“Tyrkjaránið”
JárngerðarstaðahverfiAtburðurinn hafði mikil áhrif á alla landsmenn. Í langan tíma á eftir voru Íslendingar mjög á varbergi. Þeir óttuðust endurkomu sjóræningjanna.
Það var um Jónsmessuna 1927 að skip kom að Grindavíkurströndum. Íbúafjöldinn var nálægt 180 manns. Búðir kaupmannsins danska stóðu þá í Járngerðarstaðalandi.
Á Járngerðarstaðavíkinni lá danskt kaupskip. Lauritz Bentson, Grindavíkurkaupmaður, sendi átta Íslendinga að aðkomuskipinu. Þegar þeir komu um borð voru þeir umsvifalaust herteknir. Upplýst varð að fátt væri um varnir í landi. Foringi “Tyrkjanna”, Amorath Reis, fór frá skipi sínu með þrjátíu vopnaða menn. Þeir byrjuðu á því að hertaka danska skipstjórann og tvo menn með honum, rændu kaupmannsbúðina, en kaupmaður flúði og með honum aðrir Danir.

Þá gerðist margt á örfáum klukkustundum. “Tyrkirnir” snéru sér að Grindvíkingunum. Þeir skunduðu eftir sjávargötunni heim að Járngerðarstöðum. “Tyrkjunum” lá á því þeir gátu alveg eins átt von á að kaupmaðurinn sneri aftur með lið manns. Í bænum gripu þeir Guðrúnu Jónsdóttur, konu Jóns Guðlaugssonar. Hún var borin nauðug frá bænum. Í götunni kom þar að bróðir Guðrúnar, Filippus. Þegar hann reyndi að koma henni til hjálpar var hann barinn og skilinn eftir hálfdauður. Annar bróðir Guðrúnar, Hjálmar, bar þá þar að ríðandi. Tóku “Tyrkir” hestinn af honum og stungu. Lá Hjálmar óvígur eftir.
“Tyrkir” rændu fé úr bænum á Járngerðarstöðum, tóku Halldór Jónsson, bróður Guðrúnar og tvo sonu hennar, Helga og Héðinn, en bróðir hennar, Jón, hafði verið einn af þeim átta, sem fóru út í skipið í upphafi. Jón Guðlaugsson, bónda á Járngerðarstöðum ráku “Tyrkir” til strandar með sonum hans og Halldóri, en vegna þess að Jón var þá orðinn aldraður maður og veikur gáfu þeir hann lausan er hann féll við í fjörunni. Stúlku eina, Guðrúnu Rafnsdóttur, tóku þeir með húsfrúnni og færðu til skips.
Þennan örlagaríka morgun var 12 Íslendingum, þarf af helmingur Grindvíkingar, og þremur Dönum, rænt í Grindavík.

Járngerðarstaðahverfi Á útleið ginntu “Tyrkir” hafskip á leið til vesturs til sín með fölsku flaggi. Þeir hertóku það skip.. Áður en “Tyrkir yfirgáfu Grindarvíkursjó gáfu þeir tveimur mönum, sem höfðu verið um borð í skipsbátnum, burtfararleyfi. Þeir náðu bát sínum og réru til lands. Eftir þetta fóru ræningjarnir burt frá Grindavík. Loks héldu þeir til heimahafnar í borginni Salé í Marokkó.
Afdrif Grindvíkinganna, sem rænt var, urðu með ýmsu móti. Þau Guðrún Jónsdóttir og Halldór bróðir hennar voru aðeins skamma hríð í þrældómi í Alsír. Komust þau til Danmerkur 1628 og heim til Íslands með vorskipunum sama ár. Halldór samdi rit um Tyrkjaránið. Um afdrif Guðrúnar Rafnsdóttur er ekki vitað. Árið 1630 skrifuðu þeir bræður Jón og Helgi foreldrum sínum bréf og voru þeir þá þrælar. Helgi varð frjáls eftir fjársöfnun 1636. Komst hann heim setti ásamt eiginkonu sinni saman bú á Járngerðarstöðum.
Jón bróðir hans, Héðinn og Jón Jónsson, móðurbróðir þeirra, hvíla sennilega í afrískri mold. Sama gildir um bátsverjana fimm, sem reru út að ræningjaskipinu þennan morgun 1627.

Þótt sjóræningarnir hafi jafnan verið nefndir “Tyrkir”, sem var þá samheiti yfir alla múslima í grennd við Miðjarðarhafið, hafa þeir að öllum líkindum verið Evrópubúar.

Sagan segir að: “Í bardaganum veitti landsmönnum miður. Særðu Tyrkjar suma, en tóku suma; þó féllu margir af Tyrkjum.
Helgi hét maður; hann barðist með kvíslarfæti og drap fimmtán Tyrkja, en var síðan tekinn. Hann var keyptur út löngu seinna og er sú sögn eftir honum höfð, að hann hafi drepið tvo eigendur sína, hvorn eftir annan.” Í þjóðsögum Jóns Árnasonar segir auk þess: “En svo segja Grindvíkingar og fleiri að þar vaxi þyrnir síðan þar kom saman kristið blóð og heiðið.”

Á árinu 2007 eru, sem fyrr segir, liðin 380 ár frá þessum sögulega atburði í Grindavík. Það væri því vel við hæfi að minnast hans sérstaklega, t.d. með því að gera þá staði, sem gætu hafa tengst atburðinum, sýnilega og aðgengilega áhugasömum íbúum og gestum þeirra.
ÓSÁ hannaði útlit upplýsingaspjaldsins, Martak í Grindavík bjó til standinn og Stapaprent annaðist prentun. Skiltagerðin er styrkt af Pokasjóði.

Járngerðarstaðahverfi Genginn var hringur um hverfið, þangað sem “blóðþyrnirinn” vex og síðan að dys Járngerðar og Járngerðarstaðabæjunum. Gengið var til baka meðfram strandlengjunni, með Járngerðarstaðavíkinni og vörunum að gömlu bryggjunni og ýmislegt skoðað sem fyrir augu bar á leiðinni. Reynt var að gera gönguna bæði skemmtilega og fræðandi fyrir alla fjölskylduna. Uppákomur s.s harðfisks- og hákarlamakk o.fl. var í boði á leiðinni. Gangan endaði síðan við gamla Flaggstangarhúsið (Flagghúsið, sem verið er að endurreisa og var til sýnis í tilefni dagsins. Einn eigandi þess, Erling Einarsson, bauð gesti velkomna, sagði frá forsögu hússins, lýsti tilkomu nafngiftarinnar sem og notkun þess. Fram kom að ætlunin er að hýsa krambúð í húsinu, sem verður að teljast bæði áhugavert, einkum í ljósi þess að Einarsbúð, afurð og afkoma forfeðra hans, var lengi framan af í næsta húsi að vestanverðu, og áskorun, bæði til bæjarstjórnarfólks er þarf nú að taka ákvörðun um markvissa uppbyggingu og nýtingu þessa fyrrum upphafs byggðaþróunar í Grindavík og viðhalds hennar til lengri framtíðar. Ljóst er að allflest húsanna á svæðinu eru í niðurníðslu. En þegar haft er í huga að þarna uxu fáeinir bæir og nokkur ver fyrrum upp í hverfi og síðan heilt samfélag kaupstaðar verður ekki hjá því komist að meta þetta afmarkaða svæði með tilliti til lengri framtíðar. Ekki verður langs að bíða að kaupstaðurinn (unglingurinn) verði borg (fullorðinn). Þá er ekki verra að til verði áþreifanleg merki upprunans – hjartans.

Og þá aftur að göngunni. Eftir að hafa gengið að “blóðþyrninum”
var Verbrautinni fylgt að “Járngerðardys”. Hún mun vera í vestanverðri (túnmegin) beygjunni á milli Hliðs og Víkur. Tómas Þorvaldsson, 85 ára, tók á sínum tíma á móti FERLIR í Grindavík. Þegar staðsetja átti dys Járngerðar, sbr. söguna, gekk hann hikalust að framangreindum stað. Gatan liggur til suðurs frá Garðhúsum, sem Einar kaupmaður byggði 1918.
Járngerðarstaðahverfi Brynjúlfur Jónsson lýsir dysinni í frásögn sinni (1903). Segir hann að gamla sjávargatan hafi fyrrum legið til suðurs frá Járngerðarstöðum, en það var samheitið á torfunni, og yfir þar sem nú er Helgavöllur. Vergatan er yfir gömlu götunni. Þar sem gatan beygir á móts við Garð, á milli Víkur og Hliðs, var Járngerður dysjuð. Í þjóðsögunni segir að dysin hafi verið einn faðmur á breidd og þrír á lengd. Hafi dysin hækkað til austurs. Framhjá henni hafi vermenn gengið til skips. Vergatan hefur verið lögð yfir dysina, sem fyrr segir, en ef grannt er skoðað má sjá í suðvesturhorn dysjarinnar, sjávarmegin, undan veginum.
Brynjúlfur segir frá því að hann hafi grafið í dysina en þá hafi þar visrt vera gamall öskuhaugur. Hafa ber í huga að Rafnshús voru þarna skammt suðaustar, Syðri Gjáhús skamt norðar og Gjákot fast við. Gamli Víkurbærinn var svo örskammt norðar. Þarna gæti því verið um að ræða öskuhól frá hverjum þessara bæja, hvort sem hóll (dys) hafi verið þar fyrir eður ei.
Þjóðsagan segir að “Þorkatla bjó á Þorkötlustöðum í Grindavík, en Járngerður á Járngerðarstöðum. Báðar voru þær giftar.
Einu sinni sem oftar voru karlarnir þeirra báðir á sjó. Nú gjörði mikið brim og héldu báðir til lands. Þorkötlu karl fekk gott lag á Þorkötlustaðasundi og komst af. Þá varð Þorkatla fegin og mælti hún svo fyrir að á því sundi rétt förnu skyldi aldrei skip farast ef formann þess brysti hvorki hug né dug, og menn vita ekki til að þar hafi farizt skip á réttu sundi.
Það er að segja frá Járngerðar karli að hann drukknaði á Járngerðarstaðasundi. Þá varð Járngerður afar grimm og mælti svo um að þar skyldu síðan farast tuttugu skip á réttu sundi. Segja menn að nú sé fyrir víst nítján drukknuð, en þá er eitt eftir og má búast við að það farist þá og þá. Á götu þeirri sem til skips var gengin frá Járngerðarstöðum er leiði Járngerðar.”

Járngerðarstaðahverfi Vestan við Garðhús eru Járngerðarstaðir. Næsta hús að vestan er Valdabær, síðan Járngerðarstaðir og loks Vesturbær.

Gamla kirkjan var reist árið 1909 (-1982), að mestu leyti úr efni kirkjunnar að Stað (1858). Hún var afhelguð 1982 og nýtt sem barnaheimili eftir 1988. Nálægt henni er Krosshús, þar sem Halldór Laxnes skrifaði Sölku Völku, læknisbústaður Sigvalda Kaldalóns og Garðhús Einars G. Einarssonar, fyrsta kaupmanns Grindavíkur.
Árið 1803 var Nyrðra-Garðshorn orðin hjáleiga frá Járngerðarstöðum. Í Landnámi Ingólfs III, segir m.a. að 1840 er “eigi fagurt á Járngerðarstöðum, því þó þar ei sé ýkja illa húsað, þá stendur bærinn og allt hverfi þetta nema Krosshús niður í dæld eða dalverpi, og er þaðan hvergi víðsýnt. Þýfð hafa tún verið á Járngerðarstöðum, en eru mikið sléttuð í seinni tíð af bóndanum Þórði sál. Einarssyni og þar núverandi bónda sr. Einari Jónssyni. Hafa og nokkrir hjáleigubændurnir í seinni tíð þessa jarðarbót eftir þeim upp tekið. Bæði í túninu og utanhúss eru djúpar vatnsgjár, í hverjar sjór fellur að í og út; í sumum þeirra er oft veiddur áll, og mætti þó mikið meira veiða, ef atorka og rækt við höfð. Það hafa Járngerðarstaðir til landkosta fram yfir Stað og Húsatóptir og meiri en nokkurt annað býli í þessari sókn, að fyrst er þar nóg vatn í gjám þessum handa fénaðinum, og svo í öðrum smá stöðutjörnum, eins líka þar er grasgefnast utantúns, þó eigi megi hagar heita. Mætti þó halda þar fáum skepnum heima á sumardag, hvað ekki má heita mögulegt á Stað og Húsatóptum.”

Árið 1847 voru hjáleigurnar; Kvíhús, Rafnshús, Akurhús, Krosshús, Hóll, Lángi, Gjáhús, Garðhús og Vallhús. Stundum er þá talað um Járngerðarstaðahverfi.
Árið 1840 var skv. sóknarlýsingu tvíbýli á heimajörðinni og fylgdu hverjum parti 5 hjáleigur. Elsta úttekt bæjarins er af Vesturbænum frá 1882. Þar voru þá baðstofa, göng, bæjardyr, skáli, eldahús, búr í norðurenda baðstofu, fjós með 3 básum, hesthús fyrir 3 hesta, heyhús, smiðja, sjómannabúð, fiskhjallur, húsagarður með bæjarrönd, túngarður 160 fðm, traðargarður 85 fðm og kálgarður. Fyrir sumu þessu mótar fyrir enn í dag.
Járngerðarstaðahverfi Íbúðarhúsið, sem nú stendur á Járngerðarstöðum (Vesturbær) var byggt á síðasta áratug 19. aldar. Húsið er nýlega uppgert og byggt hefur verið við það. Um er að ræða járnbáruklætt timburhús með hlöðnum kjallara. Að sögn eiganda er húsið elsta hús Grindavíkur, sem enn er búið í.
Hlaðhús voru hjáleiga árið 1703. Hennar er ekki getið í tali Johnsens 1847. Ekki er vitað hvar Hlaðhús stóðu og örnefnið er nú týnt. Helst er að giska á að húsið hafi verið í námunda við hlað Járngerðarstaða þar sem nú er malbikaður vegur.

Dalurinn er tjörn í suðaustanverðu heimatúni Járngerðarstaða. Í henni eru brunnar á a.m.k. tveimur stöðum, frá Vallarhúsum og Hólshúsi, jafnan nefndir holur. Sölvhóll er gróin hraunhæð sunnan Dalsins. Jórunn í Njarðvík, uppalin á Járngerðarstöðum, sagði Guðmundi Finnbogasyni þá sögu að húsfreyjan í Vallarhúsum (Vallhúsum) hafi bent á að huldufólk byggi í Sölvhól. Hann mætti ekki slá. Eitts inn sló bóndinn í Vallarhúsum Sölvhól og rapst þá kýrin á bænum.

Staðnæmst var við Tíðarhliðið, bent á hin ýmsu örnefni, s.s. Píkuskarðsklett, Vatnsstæðið, Bóndastakkatún, Hliðartún, Kjöthól o.fl., auk þjóðsagnakennda staði, t.a.m. Þjófagjá í Þorbjarnarfelli, Silfru, Junkaragerði, Sölvhól, Járngerðardys, “blóðþyrnirinn” og fleiri staði þarna í nágrenninu eða í sjónmáli.
Við girðinguna sunnan við Tíðarhliðið eru strompleifar af togaranum Ásu sem fórst utan við Litlubót 1926. Togarinn var í eigu Duus-verslunar. Fyrirtækið átti þrjú skip með Ásunafninu og fórust þau öll, en mannbjörg varð í öll skiptin. Þau voru í raun undirstaðan undir veldi Duus, en sagan segir að þegar átti að reis hús fyrir verslunina í Kaplaskjóli í Reykjavík hafi eiganda hennar birst kona í draumi. Sú hafi sagst heita Ása. Bað hún hann um að reisa ekki hús á þessum stað, ella myndi hann hafa verra af. Húsið var reist og afleiðingarnar urðu framangreindar.

Járngerðarstaðahverfi Vatnsstæðið er afurð gjánna er liggja við grindavík ofanverða, en lágu einnig fyrrum í gegnum þorpið. Þær hafa nú verið fylltar.
Þetta voru (og eru) hyldjúpar gjáarsprungur með vatni í sem á yfirborði er að mestu ósalt og flæðir og fjarar í þeim eins og í sjónum. Silfurgjáin er einna stærst, skammt fyrir ofan túngarðinn á Járngerðarstöðum. Í gjá þessari segir sagan, að fólgin sé kista full af silfurpeningum. Hafa allar tilraunir til þess að hefja þennan fjársjóð upp strandað á því að þá er menn hafa náð kistunni upp á gjáarbarminn, þá hefir mönnum sýnzt allt Járngerðarstaðaþorpið standa í björtu báli og hafa menn því jafnan sleppt kistunni aftur. Síðasta tilraunin fór á þá leið að þeir slepptu ekki einungis kistunni heldur fylltu gjána upp með mold. Svo að nú er yfir kistunni grasi gróin brekka.

Skaldan var kynnt til sögunnar. Hún var orðið eyðikot 1840. Í sóknarlýsingu segir að það hafi legið í útnorður út við túngarðinn. Líklegast er að Skjalda hafi verið þar sem seinna var byggt steinhlaðið útihús við túngarð. Útihúsið var sambyggt við túngarðinn vestan við bæinn, norðvestan við heimreiðina. Enn má greina hvar húsið hafði staðið þó að sléttað hafi verið yfir það. Tómas Þorvaldsson, sem fæddur er á Járngerðarstöðum sagði Skjöldu hafa verið eitt fyrsta fátækraskjólið í Grindavík og til merkis um velvild Járngerðisstaðabænda sem og samfélagsins, sem þá var.

Tómas segir Hraunstekki vera austan við Gerðisvallabrunna. Sunnan við þá er hlaðinn stekkur og tótt undir grónum hól. Þar voru lömbin höfð um vorið þegar ærnar voru reknar í sel innan við Þorbjörn (Baðsvallasel).
Við Gerðisvallabrunna eru garðar hlaðnir í ferkantað gerði. Þar er Junkaragerði. Þýskir og heimamenn áttu í gerðinu með sér marga glettuna fyrr á öldum. Innan þess má sjá gamlar tóttir. Eftir að Englendingar höfðu verið hraktir frá Grindavík 1532 sátu Hansamenn nánast einir að verslun við Íslendinga um sjö áratuga skeið, eða þangað til Danir tóku að sauma að þeim og einokuðu verslunina. Líklegt má telja að Hansamenn hafi sest að þarna í búðum Englendinga eftir að þeir voru flæmdir á brott. Gerðið sést vel og gaman er að ganga um svæðið með hliðsjón af sögunni.
Járngerðarstaðahverfi Junkarar bönnuðu t.d. heimamönnum að fara inn fyrir gerðið á meðan þeir voru í róðrum, en þeir læddust nú samt þar inn fyrir og náðu sér í ýmislegt nýtanlegt. Junkarar reyndu að hefna sín á Grindvíkingum, en þeir svöruðu fyrir sig með því að saga í sundur árar, gera gat á báta o.s.frv.
Einar Ól. Sveinsson segir svo frá því í útgáfu sinni á Íslenskum þjóðsögum og ævintýrum:
“Einhvern tíma í fyrri daga höfðu nokkrir menn – tólf eða átján – hafst við í óbyggðinni milli Grindavíkur, Hafna og Njarðvíka. Áttu þeir sitt skip í hverri þessari veiðistöð og höfðu þar rammgjört gerði til að geyma í skipið og það, er til þess heyrði. Enn heitir bær einn í Höfnum Junkaragerði, og gömul girðing, er leifar sjást af á Gerðavöllum milli Járngerðarstaða og Húsatófta í Grindavík, er líka kölluð Junkaragerði. Eiga þeir að hafa haldið sig þar, er þeir voru í Grindavík, og róið út úr Stóru-Bót, sem þar er hjá. Þar er að vísu ekki ræði, nema brimlaust sé og vindur standi af landi. En Junkarar reru heldur aldrei nema þar, sem vindur stóð af landi og þá er svo var hvasst, að aðrir reru ekki. Þá er logn var, voru þeir á landi, komu þá til bæja og réðu einir öllu hjá konum, meðan karlmenn voru á sjó. Höfðu menn illan hug á þeim, en þorðu ekki á þá að ráða, því að þeir voru mestu garpar.
Og þó að menn kæmust í gerði þeirra, þá er þeir voru eigi þar, þorðu menn eigi að láta Junkara sjá þess nein merki; þá var við hefnd að búast. Menn vildu samt fyrir hvern mun ráða þá af dögum og leituðu ýmsra bragða til þess.
Einu sinni boruðu menn göt á skip þeirra upp við hástokk, þar sem ekkert bar á, fyrr en skipið var orðið hlaðið. Þá rann sjór inn um götin; en Junkarar flöttu þá fisk og lögðu fyrir þau og björgðust svo til lands.
Járngerðarstaðahverfi Í annað sinn voru dregnir af keiparnir, keipanaglarnir sagaðir sundur til hálfs og keiparnir svo reknir á aftur. Naglarnir brustu þá, er í land skyldi róa, því að þá var mótvindur. Þá reru Junkarar við hné sér til lands.
Í þriðja sinn voru skautarnir dregnir af árum þeirra, árastokkarnir svo sagaðir sundur til hálfs eða meira, skautarnir síðan negldir á aftur, svo að ekki bar neitt á neinu. Nú reru Junkarar, er vindur stóð af landi; en í það sinn komu þeir ekki að landi aftur. Sagt er, að hverjir fyrir sig; Grindvíkingar, Hafnamenn og Njarðvíkingar hafi lengi eignað sér það, að þar hafi Junkarar verið af dögum ráðnir.”
Í upphafi sögunnar er getið um stað í “óbyggðinni milli Grindavíkur, Hafna og Njarðvíkur”, sem Junkarar höfðust við í. Ekki er ólíklegt að hér geti verið átt við byrgin í Sundvörðuhrauni þar sem þeir hafi geymt byrgðir sínar. Hafa þeir getað flutt og falið þær þar og verið jafnlagt fyrir alla að sækja þangað aðdrætti þegar þurfa hefur þótt.
Staldrað var ofan við Litlubót, Hvítisandur barinn augum sem og Fúlatjörn og önnur örnefni austur með ströndinni. Af Hádegishól var litið yfir sögusviðið, rifjuð upp nöfn hinna gömlu bæja, bæði þeirra sem enn sjást sem og þeirra er hafa horfið. Vellir flutu t..a.m. upp í flóðinu mikla 1925. Hólsgarður, hlaðinn úr grjóti, við hjáleiguna Hól er enn svo til óraskaður. Þá sést Hólsholan enn í Dalnum.
Þeginn var hákarl hjá Óskari við hákarlahjall Gísla og Guðjóns. Þá var “reykofn” (reykgámur) Víkurbænda kynnt til sögunnar. Verið er að endurnýja kyndinguna, en í hana er einungis notað úrvals tað, þriggja ára gamalt, úr Víkurfjárhúsunum. Þarna er því að mörgu leyti rekin einn sjálfbærasti búskapur bæjarfélagsins. Heimaslátrun var ekki hafin þegar gangan átti sér stað, sem betur fer.
Járngerðarstaðahverfi Ofan við gömlu varirnar var farið yfir nöfnin á þeim frá vestri til austurs; Fornavör, Suðurvör, Stokkavör og Norðurvör (Skökk) innan við gömlu bryggjuna, sem byggð var 1931. Átta árum síðar var grafið inn í Hópið og varanleg bryggja gerð þar um 1950.
Ofan við gömlu bryggjuna eru enn nokkur gömul hús, s.s. Varir, Sæmundarhús, Bakki og Flagghúsið.
Flagghúsið er eitt elsta hús Grindavíkur, talið vera byggt árið 1890. Erling Einarsson, einn eiganda hússins, áformar að koma húsinu í upprunalegt horf og eru framkvæmdir vel á veg komnar. Hann hafði húsið opið í tilefni dagsins og bauð þátttakendur velkomna. Ljóst er að mikið verk er enn fyrir höndum. Erling er þegar búinn að endurbyggja skemmda hluta burðarvirkis hússins, skipta um gólf beggja hæða einnig er búið að skipta um þak og þaksperrur einangra húsið utanvert á gömlu klæðninguna og bárujárnsklæða að utan. Alla nýja viðarhluta hefur Erling gert gamla í útliti með sérstakri bæsunaraðferð.
Flagghúsið fékk viðurnefni sitt af því að það þjónaði sjófarendum á Járngerðarstaðasundi. Dagbjartur Einarsson frá Ásgarði (1876-1944) hætti formensku fimmtugur að aldri og tók þá að sér það hlutverk að gefa sjófarendum leiðbeiningar ú landi um veðurhofur og lendingaraðstæður. Járngerðarstaðarsund var erfitt, jafnvel vönum mönnum og landtaka oft erfið og illfær. Á tímabilinu frá 1925 framundir 1940 var notað sérstakt merkjakerfi sem Dagbjartur sá um.
Í fyrstu var hengt á suðurgafl Sæbóls hvítt merkjaflagg en síðar var sett á Flagghúsið mikil stöng á norðurgaflinn. Þá var hífður upp einn belgur ef vá var í vændum t.d veðrabrigði og tveir belgir þýddi aðgát á sundi og brim í lendingu.
Járngerðarstaðahverfi Gifta fylgdi þessu starfi hans og færðu formenn í Járngerðastaðahverfi honum silfurskjöld er hann lét af þessum starfa sem viðukenningu fyrir hjálp á hættustundum.
Húsnúmer í Grindavík eru miðuð við þann stað, sem Flagghúsið er nú. Flagghúsið hefur gegnt marg­víslegum verkefnum meðal annars verið íbúðarhús, verbúð, samkomustaður, beitu­skúr, pakkhús, salthús, veiðafærageymsla og netaloft. Auk þess er þarna sögusvið nóbels­verðlauna­skáldsins og leiksvið kvikmyndarinnar “Sölku Völku”. Þarna er upp­spretta myndlistar málarans Gunnlaugs Scheving enda miðja margra mynda hans.
Erling hafði séð til þess að gestir gengu ekki beint inn á gólf Flagghússins á skítugm skónum. Hann hafði farið ásamt nokkrum öðrum á heimalendur Íslólfsskálalands, inn á Hraunssnes vestan Mölvíkur, og sótt þangað stóra og slétta hraunhellu. Mjög var haft fyrir því og mikið vandað við að koma henni heilli á þar til sniðna kerru. Þegar stöðvað var síðan við áfangastaðinn kom í ljós að stóra slétta hellan hafði brotnað í tvennt – ekki þolað flutninginn í kerrunni. Það er sem sagt skýringin á sprungunni í dyrahellu Flagghússins. Þetta þurfti að skrá því bæði er það að heimildir þurfa jú að vera fyrir öllu, ekki síst ef einhverjum dytti í hug að spyrja síðar.
Í máli Erlings, eftir að hafa boðið, innkomna gesti velkomna, kom fram að Flagghúsið, sem var byggt árið 1890, varð að pakkhúsi verslunar Einars í Garðshúsum eftir að Einarsbúð var byggð norðan við það árið 1917. Á milli hennar og pakkhússins var var vegur milli húsanna. Afgirt port var austan Einarsbúðar. Sunnan við pakkhúsið var lítill kofi, jafnan nefndur Lubbi. Erling kvaðst hafa áhuga á að endurbyggja hann svo hann geti gegnt þar nýju hlutverki salernisaðstöðu og fleiru frá Flagghúsi framtíðarinnar. Ekki stæði til að breyta neinu í Flagghúsinu sjálfu, enda mátti þar innan dyra sjá hinar gömlu áletranir pakkhússhlutverksins á veggjum, súðum og bitum.
Loft er í Pakkhúsinu. Því er haldið uppi með hluta af mastri og bugtspjóti skútu er strandaði við Þórkötlustaðavík út frá Leifrunarhól, sama ár og húsið var endurbyggt. Hvorutveggja eru hinar ágætustu minjar um skútuöldina, afleiðingar sjósóknar og þá samtvinnuðu sögu er var óhjákvæmileg hlutdeild í lífi fólks í Grindavík fyrrum.
Járngerðarstaðahverfi Erling benti á gamlar bækur er tilheyrðu bókhaldi Einarsverslunar og hafa varðveist. M.a. er þar um að ræða færslur er varða lagningu Grindavíkurvegarins á árunum 1913-1918. Þá fengu Grindvíkingar, að þeirra frumkvæði, fé frá Alþingi til vegalagningarinnar gegn því að formenn Grindavíkurbátanna legðu hluta lifrapeninga áhafnar þeirra á móti. Það varð til þess að vegurinn var lagður.
Sami háttur var hafður á er kvenfélagshúsið í Járngerðarstaðahverfi var byggt á sínum tíma.
Með endurbyggingu Flagghússins er kominn grundvöllur til að endurgera hluta gamla bæjarins, ofan við gömlu Norðurvörina, í Járngerðarstaðahverfi. Það myndi án efa setja mikinn svip á bæinn, fylla bæjarbúa stolti og jafnframt gera Grindavík að áhugaverðari kosti fyrir ferðamenn – ekki síst innlenda.
Aðgengið og umhverfið þarfnast lagfæringar, sem fyrr sagði. Vel væri við hæfi að steinleggja helstu samgönguæðar og gangstéttir, gerða ráð fyrir endurbyggingu gamalla húsa á svæðinu (að sjálfsögðu að uppfylltum nútímakröfum) frá “Resikó” að Hópsnesi og gera þarna lítið þorpsgildi er um leið yrði nokkurs konar minnismerki um það sem var – og verður.
Flagghúsið mun nú ganga í endurnýjun lífdaga. Þar verður krambúð og e.t.v. eitthvað fleira áhugavert. Mikilvægt er að ráðafólk í Grindavík skoði, meti og ákveði hver eigi að verða framtíð þess gamla byggðakjarna er ávöxtur bæjarfélagsins er sprottin upp af, leifum þess liðna, en jafnframt áþreifanlegum minnismerkjum er sýna þarf tilhlýðilega virðingu – þar sem gömlu húsin eru annars vegar.
Grindavík, líkt og önnur byggðalög landsins, á sér merka sögu.
Frábært veður.

Heimild m.a.:
-Einar Ól. Sveinsson – Íslenskar þjóðsögur og ævintýri – 1952.
-Guðjón Þorláksson.
-Tómas Þorvaldsson.
-Erling Einarsson.
-Færslubækur Einarsverslunar 196 og 1917.
-Saga Grindavíkur – Jón Þ. Þór – 1994.
-Öldin okkar – Öldin sautjánda; 1601-1800; 1966.
-Guðsteinn Einarsson – 1960.
-Íslenskar bókmenntir 1550-1900 – Kristinn Kristjánsson.
-Helgi Þorláksson, Sjórán og siglingar, Mál og menning, Reykjavík, 1999.
-Þorsteinn Helgason, “Hverjir voru Tyrkjaránsmenn”, Saga 1995, bls. 110-34.
-Þjóðsögur Jóns Árnasonar.
-Frásagnir Brynjúlfs frá Minna-Núpi.
-Rauðskinna.
-Rit Björns Jónssonar frá Skarðsá um Tyrkjaránið.
-Sagnir, munnmæli, frásagnir og leiðbeiningar elstu núlifandi manna í Grindavík.

Skiltið

Þórkötlustaðanes

Um var að ræða menningargöngu á vegum Saltfiskseturs Íslands, Grindavíkurbæjar og Björgunarsveitarinnar Þorbjörns.
Frá göngunniAf því tilefni var ætlunin að afhjúpa nýtt örnefna- og söguskilti á Þorkötlustaðanesi.
Genginn var hringur á Nesinu frá skiltinu að rústum Þórshamars og fleiri húsa sem voru á Nesinu, spölkorn með ströndinni og horft yfir Þórkötlustaðasund þar sem fornkonan Þórkatla mælti svo fyrir, að á því sundi rétt förnu skyldi aldrei skip farast. Gengið verður að gömlu þurrkbyrgjunum í Strýthólahrauni og í áttina að vitanum. Ýmislegt var skoðað sem fyrir augu bar á leiðinni. M.a. var boðið upp á brim af bestu gerð.
Í lok göngu var boðið upp á afmæliskaffi hjá Björgunarsveitinni Þorbirni við Seljabót, en björgunarsveitin hefur bjargað 232 mannslífum frá stofnun. Þess má geta að jafnframt var um að ræða tólfhundruðustu gönguferð FERLIRs frá upphafi um fyrrum landnám Ingólfs – sem telja verður sögulega út frá þrautseigju á upprifjun gamalla heimilda og uppgötvun nýrra, áður óþekktra.
Örnefna- og sögukort á ÞórkötlustaðanesiÖrnefni á Þórkötlustaðanesi eru mörg og mannvistarleifar víða. Nesið varð til þegar hraun rann til sjávar undan Hagafelli. Heimildir segja að hraun þetta sé að einhverju leyti runnið eftir landnámsöld (sbr. Árb. Fornl.fél. 1903, 47), en aldursgreining á því hefur gefið til kynna að það hafi runnið fyrir um 8000 árum. Meginhraunstraumurinn var um Gjána, langa hrauntröð eftir miðju Nesinu. Upphafl ega hefur það verið mun stærra því sjórinn hefur brotið smám saman utan af því í árþúsundirnar. Vestasti hluti Nessins nefnist Hópsnes.
Eitt helsta auðkennið á svæðinu er Nesvitinn, sem reistur var árið 1928. Svæðið geymir fjölmargt annað, sem bæði má lesa um hér og sjá á meðfylgjandi uppdrætti.
Bryggjan úti í Járngerðarstaðahverfi var byggð á árunum 1931-1932. Hún var steypt með veggjum og þekju, grjótfyllt og hallaði í sjó fram. Náði endi hennar u.þ.b. einn metra út fyrir stórstraumsfjöruborð. Þrátt fyrir mikinn fögnuð Grindvíkinga með bryggjuna þótti hún of stutt. Árið 1933 var bryggjan lengd. Sama ár voru gerðar samskonar bryggjur í Þórkötlustaðahverfi og Staðahverfi.
Spil ofan við Nesvör
Sjósókn og útgerð
Minjarnar, sem eru ofan við Nesvörina (bryggjuna), eiga sér merka sögu mannlífs, atvinnuhátta; útgerðar og búskapar. Um er að ræða gamla þurrkgarða, þurrkbyrgi, fjárskjól, gerði og gamlar tóftir, auk fiskhúsa, ískofa, lifrabræðslu, saltþróa, vara, bryggju, grunna og veggi íbúðarhúsa, gólf beitningaskúra og innsiglingamerki frá fyrri hluta síðustu aldar.

Höfn og bátar í nausti ofan við Nesvörina - fiskskúrar millum

Á Þórkötlustaðanesinu voru þrjú íbúðarhús, sem enn má sjá leifar af; Arnarhvoll (nyrst), Höfn og Þórshamar (syðst). Húsin voru byggð í kringum 1930. Vöxtur útgerðar í Nesinu byrjaði á árunum 1927-28. Byggð voru fiskhús ofan við vörina. Að staðaldri voru gerðir út 12-14 bátar þegar mest var. Þeir voru m.a. frá Hrauni, Þórkötlustöðum, Klöpp, Buðlungu, Einlandi og öðrum Þórkötlustaðahverfisbæjum.
Aðalútgerðin stóð yfir frá miðjum febrúar og mars og síðan var vorvertíðin í maí. Sumir réru líka svo til allt árið, s.s. frá Hrauni, og þá á færi. Á sumrin var venjulega róið á minni bátum.
Útgerðarmennirnir uppi í hverfi og á Hrauni komu gangandi suður í Nes snemma á morgnana þegar gaf á sjó og fóru síðan fótgangandi heim aftur á kvöldin. Fólk kom víðar að á vertíð, jafnvel frá Vestjörðum. Vermennirnir bjuggu á viðkomandi bæjum. Í Höfn var t.a.m.um 25 manns þegar mest var.
Uppdráttur af svæðinu ofan við NesvörinaÁður lentu bátarnir í Nessvörinni og var fiskurinn þá áður seilaður á Bótinni, aflinn síðan dreginn í land og honum síðan skipt á skiptivellinum ofan við vörina. Hver varð síðan að bera sinn afla upp að skúrunum, sem voru í röðum ofan malarkambsins. Mörg handtökin voru við fiskinn eftir að honum hafði verið komið í land. Allur þorskur og ufsi var t.d. flattur og saltaður. Einnig var eitthvað um að fiskur væri þurrkaður þegar vel veiddist. Miklir þurrkgarðar eru beint upp af bryggjunni, svonefndir Hraunsgarðar.
Þegar steinbryggjan var byggð, um 70 metra löng og 10 metra breið, til að mæta vélvæðingu bátanna, var fiskinum kastað upp á bryggjuna og af henni upp á bíla. Lifrarbræðsla var byggð hér á árunum 1934-1935. Útveggirnir standa enn.
Ískofi á ÞórkötlustaðanesiÞegar snjóaði á vetrum hlupu menn út og veltu snjóboltum og rúlluðu inn í ískofana. Snjórinn var notaður í kæligeymslurnar. Þær voru tvöfaldir hólfaðir kassar. Hólfin, sem voru ca. 20 cm breið, voru fyllt af snjó og salti stráð í. Með því var hægt að halda bjóðum og beitu frosinni. Bætt var á snjó og salti eftir því sem bráðnaði.
Áður en bryggjan var byggð voru bátanir dregnir á land upp á kambinn norðan hennar. Þegar stokkarnir við bryggjuna voru byggðir um 1938-1939, skömmu áður en bryggjan var lengd, voru bátanir dregnir upp á þeim og raðað á kambinn ofan við þá. Spilið, sem enn sést, var notað til að draga bátana. Það var drifið með Ford-vél, sem var knúin bensíni. Vélarhúsið við spilið er nú horfið. Grunnurinn sést enn. Járnkengir framan við spilið voru til að stýra uppsetningunni. Þá var blökk hengd í hvern kenginn á eftir öðrum og bátanir dregnir upp eftir því sem þeir komu að landi.
Eftir að grafið hafði verið inn í Hópið í Járngerðarstaðahverfi árið 1939 og hafnargerð hófst þar innan við eftir 1944, voru flestir hættir að gera út frá Nesinu. Vegurinn náði fyrst að húsunum, en hestvagnsvegur var þá út að vita og síðan lengra til vesturs, að vörðunni Siggu.
Segja má að útgerðin hafi verið aflögð hér árið 1946. Íbúðarhúsið Höfn var flutt út í Járngerðarstaðahverfi árið eftir. Arnarhvoll var flutt þangað árið eftir. Það stendur nú að Arnarhrauni 2.
Örnefnakort á ÞórkötlustaðanesiAustan við Strýthólahraun má sjá tóftir og minjar í kringum Þórshamar, en útveggir hússins standa enn við Flæðitjörnina. Jóhann vitavörður bjó þar síðastur manna. Suðaustan við húsið er manngerður hóll. Hann virðist hafa verið fjárborg eða tóft, miklu eldri en minjar umhverfis. Sunnan við húsið er heillegt fjárgerði og fjárhústóft. Suðvestan við það eru minjar eina skrautblómagarðsins er þá var til í Grindavík. Eflaust hefur hann vakið mikið umtal og margar vangaveltur á þeim tíma er lífið snerist aðallega um þurrfisk og síðan saltfisk.
Fiskbyrgin og garðarnir fjölmörgu í Strýthólahrauni voru notaðir löngu fyrir tíð búsetu á Nesinu. Þar má enn sjá u.þ.b. 40 hlaðin þurrkbyrgi, líkum þeim er sjá má á Selatöngum og í Slokahrauni.
Mikil vegghleðsla var ofan við uppsátrið. Hún var hirt upp á vörubíla, líkt og margar hleðslur og garðar í og við Grindavík þegar verið var að gera bryggjuna í Hópinu. Við vegginn var hlaðinn djúpur brunnur, sem sjór var sóttur í fyrir fiskþvott. Nú er búið að hylja brunninn með möl.
Rekinn hefur löngum verið Þorkötlustaðabændum notadrjúgur. Örnefni á Nesinu gefa m.a. til kynna hvaða hluti strandarinnar tilheyrði hverjum þeirra.

Sjóslys og  björgun
Hér fyrr á öldum gátu sjómennirnir, sem fóru í róður að morgni, aldrei verið vissir um að komast heilir og höldnu að landi að kveldi. Mörg dæmi eru um það. Sem betur fer eru einnig mörg dæmi og merkar sagnir um mannbjörg eftir ófarir manna á hafi úti. Veður gat breyst snögglega. Stundum urðu sjómenn að bregða á það ráð að leita annað en ætlað var. Þannig gátu sjómenn frá Járngerðarstöðum oft treyst á var í Þórkötlustaðabótinni þegar þannig skipaðist veður í lofti.
Þann 24. mars 1916 fóru 24 árabátar í róður frá Grindavík að morgni. Óveður skall skyndilega á og komust bátsverjar fjögurra báta ekki að landi. Þeim var hins vegar öllum bjargað, 38 mönnum, af áhöfn kútters Esterar frá Reykjavík. Þurrkbyrgi í Strýthólahrauni

Þegar komið var með skipverja að landi þremur dögum síðar urðu miklir fagnaðarfundir í plássinu. Sumir segja það hafi verið mesti gleðidagur, sem Grindvíkingar hafi upplifað.
Árið 1940 lenti Aldan frá Vestmannaeyjum upp á skerjum á Hellinum, en svo nefnist klettahlein, sem gengur suðvestur úr Nesinu. Mannbjörg varð, og báturinn náðist út aftur.
Vélbáturinn Grindvíkingur GK 39 fórst utan við Nesið 18. janúar 1952. Fimm menn fórust.
Sjá má enn járnbrak úr Hrafni Sveinbjarnarsyni, sem strandaði þarna utan við 1988. Mannbjörg varð, en þegar reyna átti að ná bátunum út aftur gerði vonskuveður með þeim afleiðingum að bátinn tók í tvennt og sést brakið ofan  við kampinn.
Frá göngunniFlutningaskipið Mariane Danielsen fór upp á Hópsnesið í vonsku veðri eftir að hafa verið siglt út úr Grindavíkurhöfn þann 20. janúar 1989. Átta mönnum úr áhöfninni var bjargað í land með aðstoð þyrlu, en yfirmennirnir neituðu að yfirgefa skipið. Þeir voru síðan dregnir í land með björgunarstól daginn eftir.
Eldhamar GK 13 lenti uppi í grynningum þann 22. nóvember 1991. Sjórinn kastaði skipinu fram og til baka uns það steyptist með stefnið niður í djúpa gjá. Af sex skipverjum um borð komst einn lífs af. Þetta óhapp varð neðan við vitann á Nesinu.
Nokkrir bátar hafa strandað við Þórkötlustaðabótina, t.d. frönsk skúta um miðja 19. öld. Áhöfnin gat gengið í land og heim að Einlandi þar sem hún knúði dyra eftir að skipstjórinn hafði fallið í hlandforina framan við bæinn.
Austast í Bótinni varð enn eitt sjóslysið. Það var nóttina áður en Aldan rak upp í Nesið að vestanverðu að annan vélbát frá Vestmannaeyjum, Þuríði formann, rak upp í skerin. Ekki varð mannbjörg það sinnið.
Brak á HópsnesiGjafar VE 300 fórst fyrir utan Nesið 27. febrúar árið 1973. Tólf manna áhöfn var bjargað frá borði með aðstoð meðlima björgunarsveitarinnar Þorbjörns. Björgunarsveitin Þorbjörn var formlega stofnuð árið 1947. Saga sveitarinnar er samofin sjóbjörgunarsögu Grindavíkur, allt frá stofnun slysavarnardeildarinnar Þorbjörns árið 1930. Fáar björgunarsveitir á landinu hafa bjargað jafn mörgum sjómannslífum. 
Frábært veður. “Þegar veðrið er gott er það hvergi jafn gott og hér”, sagði Guðbergur Bergsson, rithöfundur. Þátttakendur voru rúmlega 80 talsins. Sjá svolítið meira um 1200.

Framangreindur texti og uppdráttur er byggður á örnefnalýsingum, Sögu Grindavíkur, eftir Jón Þ. Þór, Árbók Sögufélags Suðurnesja 1996-1997, og frásögnum Péturs Guðjónssonar frá Höfn sem og Lofts Jónssonar og Tómasar Þorvaldssonar.
Þórkötlustaðabót - Ísólfsskáli og Skála-Mælifell fjær