Færslur

Skötufoss

Árið 1704 bjó að hálfum Árbæ maður er Sæmundur hér, Þórarinsson, 41 árs gamall, grímsneskur að ætt. Kona hans hét Steinunn Guðmundsdóttir, 43 ára, og var Sæmundur þriðji eiginmaður hennar. Hjá þeim voru þrjú börn hennar af fyrra hjónabandi.

Skötufoss

Skötufoss.

Á móts við þau bjuggu Sigurður Arason, 26 ára gamall, ókvæntur, og móðir hans. Kærleikar munu hafa verið með þeim Sigurði og Steinunni og eggjaði hún hann til að fyrirkoma bónda sínum með einhverju móti.

Sunnudagskvöld eitt í septembermánuði fóru þeir Sæmundur og Sigurður til veiða í Elliðaánum. Er þeir voru staddir við Skötufoss, sem er skammt fyrirneðan Ártún, gekk Sigurður aftur að Sæmundi, sló hann með trébarefli, sem hann hafði meðferðis og hratt honum fram í hylinn.
Daginn eftir lét Sigurður þau boð út ganga til sveitunga sinn að Sæmundar væri saknað. Söfnuðust menn saman til leitar og fannst lík Sæmundar fljótlega í ánni. En hann var ekki bólginn eins og þeir er drukkna og þótti sýnt að hann hefði dáið á þurru landi. Líkið var nú grafið og leið síðan nokkur stund.

Elliðaárdalur

Skötutjörn.

Smám saman kom upp orðrómur um að Sigurður væri annaðhvort valdur að dauða Sæmundar eða byggi yfir vitneskju um endalok hans. Var nú gengið á hann og er hótað var að grafa upp líkið gekkst hann við morðinu. Var nú einnig gengið á Steinunni og viðurkenndi hún þátttöku sína eftir nokkrar umtölur yfirvaldsins. Fengu þau bæði líflátsdóm og voru tekin af lífi í Kópavogi skömmu síðar. Sigurður var höggvinn en Steinunni drekkt. “Fengu þau bæði góða iðran og skildu vel við” segir í Vallaannál.

-Elliðaárdalur – ÁH, HMS og RV – 1998.

Elliðaárdalur

Skötufoss.

Skötufoss

Í Lesbók Morgunblaðsins árið 1995 birtist eftirfarandi grein eftir Helga M. Sigurðsson um “Morð við Skötufoss”:
“Gömlu bæjarhúsin í Árbæ, býlinu þar sem minjasafn Reykjavíkur nú stendur, þykja fara vel þar sem þau lúra á hæðarbrún með gróin þök og þunglamalega, hæfilega skakka grjót veggi. Þegar gestir líta þau augum á björtum sumardegi dettur víst fáum í hug að þar hafi ríkt annað en friðsæld og kærleikur í aldanna rás, kannski í bland við örlítil vanefni á köflum. Fólska og illvirki virðast víðs fjarri. Samt sem áður komst bærinn í annála fyrir mannvíg sem þar var bruggað, ástríðumorð, og þótti einhver óhugnanlegasti atburður þess tíma. Áður en vikið er að morðinu sjálfu verður farið nokkrum orðum um baksviðið.
skotufoss-1Líklegt er að búskapur hafi byrjað í Elliðaárdal fljótlega eftir landnám, bæði vegna gróðursældar og hlunnindanna sem fólust í laxveiðinni. Árbær er þó ekki nefndur í heimildum fyrr en á 15. öld og var þá hjáleiga í eigu Viðeyjarklausturs. Hafði hann líkast til verið færður klaustrinu gefandanum til sáluhjálpar. Konungsjörð varð bærinn síðan við siðaskiptin, 1550. Fyrstu glöggu myndina af Árbæ og búendum hans er að finna í jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns frá árinu 1704. Vill svo til að þá bjó þar hið ógæfusama fólk, sem kom við sögu fyrrgreinds mannvígs. Lýsing á Árbæ og kvöðum sem honum fylgdu ber ekki með sér að hann hafi verið eftirsóknarverður til búsetu. Meðal annars segir orðrétt í jarðabókinni: “Tún meinlega grýtt og þýfð. Engi mjög lítið . . . Torfskurður til húsagjörðar nægur, en til eldiviðar tekur hann mjög að þverra.” Samt sem áður var tvíbýli í Árbæ. Annar ábúandinn hafði þrjár kýr, kvígu og tvo hesta. Hinn ábúandinn hafði einnig þrjár kýr, naut, kálf og einn hest. Hvorugur þeirra hafði sauðfé. Af bæjarhúsum eru lýsingar litlar, en þó ljóst að húsin sem nú eru í Árbæ eru líkust höll miðað við það sem þá var.
Álögur á búendur voru þungar þrátt fyrir að ekki virtist af miklu að taka. Kaþólska kirkjan hafði þótt óvægin í skattpíningu á leiguliðum sínum, en verri reyndust þó konungsmenn á Bessastöðum. Landskuld, þ.e. leiga af jörðinni sjálfri, var greidd með fé á fæti eða fiski. Af bústofninum, sem einnig var konungseign, greiddist leiga í smjöri. Ofan á þetta bættust umtalsverðar vinnukvaðir: Við sjóróðra frá Örfirisey, veiðar í Elliðaánum, heyskap í Viðey, mótekju, hrístekju og fleira. Einnig bar landsetum að lána hross til ýmissa verka. Konungur hafði slegið eign sinni á laxveiði í Elliðaánum og lágu þung viðurlög við veiðiþjófnaði þar.
skotufoss-2Á þesum tíma, árið 1704, bjó að hálfum Árbæ maður er Sæmundur hét, Þórarinsson, 41 árs gamall, grímsneskur að ætt. Kona hans hét Steinunn Guðmundsdóttir, 43 ára, og var Sæmundur þriðji eiginmaður hennar. Hjá þeim voru þrjú börn hennar af fyrra hjónabandi. Á móts við þau bjuggu Sigurður Arason, 26 ára gamall, ókvæntur, og móðir hans. Um fólk þetta er mjög lítið vitað annað en það sem varðar ytri hagi. Og vafalaust hafði það hugann að mestu leyti við að framfleyta sér frá degi til dags. Þó er ljóst að sterkar tilfinningar leyndust undir yfirborðinu, því að kærleikar miklir urðu með þeim Sigurði og Steinunni. Fór svo að hún eggjaði hann til að fyrirkoma bónda sínum með einhverju móti. Heimildir greina hins vegar ekki frá því hvað rak hana til slíks örþrifaráðs.
Sunnudagskvöld eitt í septembermánuði fóru þeir Sigurður og Sæmundur til veiða í Elliðaánum. Ekki verður betur séð en þeir hafi gert það í heimildarleysi, sbr. eignarhald konungs á ánni og veiðibann sem fyrr greinir. Er tvímenningarnir voru staddir við Skötufoss, neðarlega í ánum, gekk Sigurður aftan að Sæmundi, sló til hans með einhverju barefli og hratt honum fram í hylinn. Við yfirheyrslu síðar sagðist hann einungis hafa ýtt Sæmundi fram af fossinum með svonefndu dútré, sem er lítil tréfjöl, og hefur sjálfsagt með því viljað draga úr óhugnaði verknaðarins.
hjonadysjar-5Daginn eftir að þetta gerðist lét Sigurður þau boð ganga til sveitunga sinna að Sæmundur væri saknað. Söfnuðust menn saman til leitar og fannst lík Sæmundar fljótlega í ánni. En hann var ekki bólginn eins og þeir er drukkna og þótti sýnt að hann hefði dáið á þurru landi. Líkið var nú grafið og leið síðan nokkur stund.
Smám saman kom upp orðrómur um að Sigurður væri annaðhvort valdur að dauða Sæmundar eða byggi yfir vitneskju um afdrif hans. Var nú gengið á hann og er hótað var að grafa upp líkið gekkst hann við morðinu. Var þá einnig gengið á Steinunni og viðurkenndi hún þátttöku sína eftir nokkrar umtölur yfirvaldsins. Athyglisvert er hve auðvelt virtist að fá játningu þeirra því að hún jafngilti líflátsdómi. Játning Sigurðar rennir stoðum undir að hann hafi verið verkfæri í höndum Steinunnar og iðrast gerða sinna. Einnig ber að hafa í huga að á þessum tíma var fólk guðhrætt í orðsins fyllstu merkingu og trúði á elda vítis. Þau voru tekin af lífi í Kópavogi skömmu síðar. Sigurður var höggvinn en Steinunni drekkt. “Fengu þau bæði góða iðran og skildu vel við” segir í Vallaannál.
Ekki er ljóst hvar þau Sigurður og Steinunn voru grafin. Árið 1938 gerðist það hins vegar að vegagerðarmenn rákust á dys við Kópavog, örskammt fyrir austan Hafnarfjarðarveg, þar sem voru tvö lík. Var annað þeirra síðhært, en hitt höfuðlaust.”

Heimild:
-Lesbók Morgunblaðsins 21. október 1995, bls. 11.

Elliðaárdalur

Skötutjörn.