Þjóðleiðir í þúsund ár – skilti
Við Gamla Kambaveginn (1895-1972) er skilti. Á því má lesa eftirfarandi:
„Frá því að land byggðist hefur Hveragerði verið í þjóðleið, þó að þéttbýli sé ekki eldra en frá 1930. Í og undir Kömbum má finna ummerki um þrjár kynslóðir þjóðvega en auk þess liggur núverandi þjóðvegur, sem lagður var 1972, um sveitarfélagið. Því er að finna á litlu svæði innan sveitarfélagsins fjórar kynslóðir af þjóðvegum allt frá landnámi.
Elsta þjóðleiðin liggur um land Hrauntungu fyrir neðan núverandi Kambaveg og niður í Ljóðalaut. Hún var farin frá landnámi og fram til 1880.
Ágangur í margar aldir hefur grafið djúpa rák í hraunið og er það sérstaklega merkilegt fyrir ofan Ljóðalaut. Þegar ofan af Hellisheiði kom lá leiðin meðfram Hamrinum, eftir svokölluðu Sandskeiði sem var gömul sandfjara, og dregur líklega nafn sitt af því að þar hefur verið hægt að hleypa hestum á skeið þegar komið var úr grýttu hrauninu.
Um 1880 var ákveðið að leggja nýjan veg yfir Svínahraun og Hellisheiði og niður kamba. Vegavinnustjóri var Eiríkur Ásmundsson í Grjóta í Reykjavík og hefur vegurinn verið kenndur við hann, ýmist nefndur Eiríksvegur eða Eiríksbrú.
Vegurinn var steinlagður og einkenni hans var að hann var lagður þráðbeinn yfir hæðir og lautir. Í Kömbunum gat vegurinn því orðið nokkuð brattur. Vegna þessa og að sjaldan var borið í hann var vegurinn sjaldan notaður og fékk Eiríkur á sig nokkra gagnrýni fyrir. Enn sést móta fyrir Eiríksvegi þar sem hann liggur þráðbeinn ofan af Kömbunum.
Nýr vegur var lagður yfir Hellisheiði og niður Kamba árin 1895-1896 og var sá vegur í notkun allt til ársins 1972 þegar núverandi þjóðvegur var tekin í notkun. Með því var til vagnfær vegur upp kamba og yfir Hellisheiði. Gamli Kambavegurinn var fyrst lagður fyrir bílaöld og voru því margar og krappar beygjur á Kömbunum og þurftu bílstjórar oft að sýna færni við að ná beygjunum. Árið 1937 gaf Bjarni Eggertsson þessa lýsingu á Kambavegi:
Krókana á Kambaveg
henni að fornu og nýju,
tólfta apríl taldi ég
tvo og fjörutíu.
Síðar var hluta af gamla Kambavegi breytt til að gera beygjurnar víðari og auðveldari fyrir bílaumferð.
Þegar núverandi Kambavegur var lagður 1972 voru akreinarnar þrjár, ein niður brekkuna og tvær upp til að greiða fyrir umferð vegna þungaflutningabifreiða. Árið 2014 var vegurinn breikkaður og tvær akreinar liggja nú bæði upp og niður Kambana. Á sama tíma voru sett undirgöng undir Kambaveg fyrir gangandi vegfarendur og vinsælt er að ganga gamla Kambaveginn og þá sérstaklega upp að Skífu sem vo er kölluð.“














