Upplýsingaskilti – endurnýjun
FERLIRsfélagar sóttu „Selvogsskiltið“ við Strandarkirkju af gefnu tilefni.
Skiltið var upphaflega sett upp 2010 eftir heimildarvinnu með innfæddum, að viðstöddum fulltrúa Biskupsstofu er styrkti gerðina. Það var endurnýjað 12 árum síðar, en var nú, einungis u.þ.b. þremur árum seinna, farið að bólgna óeðlilega, enda samþykkti prentarinn er hann fékk skiltið í hendur í morgun að þarna hefði ekki verið nægilega vel að verki staðið.
Nýtt endurnýjað „Selvogsskilti“ verður komið á standinn framan við Strandarkirkju innan tíðar.
Hugsanir fylgdu í kjölfarið; þau eru mörg ólæsulegu skiltin í nágrenninu, sem upphaflega höfðu verið sett upp í góðum tilgangi, en ekkert hefur verið hugsað um í framhaldinu og eru ekki nokkrum lengur til nokkurs gagns…











