Svínaskarð

Halldór H. Halldórsson skrifaði um „Fornar reiðleiðir“ á vefinn „lhhestar.is“

Hellisheiði

Hellisheiði – forn gata.

„Hvenær er reiðleið skilgreind sem forn reiðleið, ég hef velt þessu nokkuð fyrir mér, en ekki komist að neinni áþreifanlegri niðurstöðu. En líklegt þætti mér að miða við komu bílsins til landsins, akvegir almennt lagðir um landið og bíllinn orðin almenningseign.
Fornar reiðleiðir og þjóðleiðir eru sem sagt þær leiðir sem voru almennt farnar á milli staða og landshluta fótgangandi eða ríðandi fyrir tilkomu bílsins sem almenningsfarartækis.

Hvaða lög eða hefðir ná yfir þessar leiðir til almennra nota í dag, oft liggja þessar leiðir um eignarlönd manna. Þá er oft um að ræða þéttbýlisbúa, eða aðra sem hafa eignast þau lönd þar sem þessar leiðir liggja um. Fyrir kemur að girt er fyrir þær og ekki hirt um að setja hlið á girðinguna þar sem viðkomandi leið liggur um, sá sem ferðast eftir þessum leiðum lendir þá í ógöngum. Hvað segja lögin um þetta?

Langastígur

Langastígur á Þingvöllum.

Lög um náttúruvernd 1999 nr. 44 22. mars, þar segir:
23. gr. Óheimilt er að setja niður girðingu á vatns-, ár eða sjávarbakka þannig að hindri umferð gangandi manna. Þegar girða á yfir forna þjóðleið eða skipulagðan göngu-, hjólreiða- eða reiðstíg skal sá sem girðir hafa hlið á girðingunni eða göngustíga.

Fornagata

Fornagata í Selvogi.

Vegalög 2007 nr. 80 29. mars, styðja þetta ákæði í þeim segir (tóku gildi 1. janúar 2008):
53. gr. Girðingar og hlið yfir vegi.
Enginn má gera girðingu yfir veg með hliði á veginum án leyfis Vegagerðarinnar nema um einkaveg sé að ræða. Sama bann gildir þar sem mælt og markað hefur verið fyrir vegi enda hafi Vegagerðin tilkynnt jarðarábúanda hvar mælt hefur verið.

55. gr. Vegir sem ekki tilheyra vegflokki.
Nú liggur vegur, stígur eða götutroðningur yfir land manns og telst eigi til neins vegflokks samkvæmt lögum þessum og er landeiganda þá heimilt að gera girðingu yfir þann veg með hliði á veginum en eigi má hann læsa hliðinu né með öðru móti hindra umferð um þann veg nema sveitarstjórn leyfi. Ákvörðun sveitarstjórnar skv.1. mgr. má leggja undir úrskurð ráðherra.

Jónsbók

Texti í Jónsbók.

Vitnum í viðtal við Sigurð Líndal lagaprófessor sem birtist í Eiðfaxa 2003 þar sem hann vitnar í Jónsbók frá árinu 1281, landsleigubálk 24. Þar segir að mönnum sé heimilt að ríða um annara manna land og almenning og æja þar. Þessi túlkun Jónsbókar er svo staðfest í náttúruverndarlögum þar sem í þriðja kafla laganna er nánar fjallað um einstök atriði og takmarkanir þessa almannaréttar, einkum í 12. – 16. grein þeirra.

Meginreglan er sem sé sú að mönnum er heimil för um landið, þar á meðal um eignarlönd og heimil dvöl á landi í lögmætum tilgangi.

Vífilsstaðahlíð

Vífilsstaðahlíð – reiðstígur.

Ekki er þörf á að fá sérstakt leyfi til að fara um óræktað land og heimilt er að hafa lausa hesta með í för. Ferðamenn, þ.m.t. hestaferðamenn, skulu sýna landeiganda eða rétthafa lands fulla tillitssemi einkum er varðar búpening, hlunnindi eða ræktun. Á eignarlöndum má að fengnu leyfi slá upp aðhaldi eða næturhólfi, enda valdi hrossin ekki landspjöllum. Á hálendinu er heimilt að æja á ógrónu landi og hafa skal fóður í næturstað. Þegar farið er um náttúruverndarsvæði ber mönnum að hafa samráð við landverði og fylgja leiðbeiningum þeirra.

Þingvallavegur

Gamli-Þingvallavegurinn.

Landeigandi getur unnið eignarhefð á tilfæringum bundnum við fornar þjóðleiðir og þeir sem hafa farið um slíkar þjóðleiðir geta unnið afnotahefð og þannig helgað sér rétt til umferðar. Þar kæmi til 20 ára hefðartími, hugsanlega 40 ára, ef slíkur réttur teldist til ósýnilegra ítaka.
Mikilvægasta heimildin fyrir hefðbundnum og fornum reiðleiðum eru dönsku herforingjaráðskortin (atlaskortin ) frá fyrsta áratug síðustu aldar. Hafi leiðum á þeim ekki verið mótmælt í orði eða verki, má líta svo á að þær séu verndaðar af hefðarrétti, en undantekningar geta þó verið á því. Ef einhver vill véfengja reiðleiðirnar á herforingjaráðskortunum, sem kortlagðar voru í góðri trú, þá hvílir á honum sönnunarbyrði um að hún sé ekki hefðbundin þjóðleið, ekki á þeim sem vilja fara þessa leið ríðandi eða gangandi.

Búrfellsgjá

Búrfellsgjá – Gjáarrétt og leiðir.

Hér meðfylgjandi má sjá tvær myndir, annars vegar frá Langastíg í Þingvallaþjóðgarði, þar hefur verið borið í stíginn og honum viðhaldið sem reið- og göngustíg af Þingvallanefnd. Hins vegar er mynd frá vígslu nýs reiðvegar inn með Vífilsstaðahlíð 2004. Um Vífilsstaðahlíð liggur gömul þjóðleið sem liðar sig áfram um Búrfellsgjá á Selvogsgötu. Hestamenn notuðu þessa leið fram eftir síðustu öld, en fyrir 1990 var henni breytt í göngustíg og hestamönnum bannaður aðgangur. Það var ekki fyrr en 2004 sem tókst, eftir harða baráttu, að fá reiðveg samþykktan á skipulag á þessu svæði. Þar er nú einn besti reiðvegur á höfuðborgarsvæðinu í óviðjafnanlegu umhverfi.“

Hafa ber í huga að allt tal um „fornar reiðleiðir“ fyrir hestamenn í gegnum aldirnar eru ofmetnar. Leiðirnar voru jafnt fyrir þá sem og gangandi fólk.“

Samantekt,
Halldór H. Halldórsson – www.lhhestar.is › Fornar_reidleidir

Reykjanes - fornar leiðir

Reykjanes – fornar leiðir.

Halldór Laxness

Í Faxa árið 1982 birtist hugvekja í tilefni af áttræðisafmæli Haldórs Laxness þar sem hann m.a. mærir Grindavík – og það ekki að ástæðulausu.

Grindavík

Grindavík 1939.

Á árunum 1937—1939 gaf Lestrarfélagið í Grindavík út tímarit, sem nefndist Mímir. Markmiðið með útgáfu ritsins var, eins og segir í 1. tölublaði, að reyna að vekja af dvala Lestrarfélagið Mími, er sofið hafði svefni hinna réttlátu um nokkurt skeið. Var ritið selt til ágóða fyrir félagið, á 10 aura eintakið. Ritstjórar voru Einar Kr. Einarsson, skólastjóri, Jochum Eggertsson og
Einar Einarsson í Krosshúsum.

Mímir

Mímir, 4. tbl. 1937.

Í 4. tölublaði Mímis frá 1937 er viðtal við Halldór Laxness. Viðtalið hefur Einar Einarsson í Krosshúsum að líkindum átt við skáldið og í tilefni þess að
Halldór Laxness er áttræður um þessar mundir. Þótti við hæfi að fá það birt hér í Faxa nú. Fer viðtalið hér á eftir:

„Tíðindamaður blaðsins heimsótti Halldór Kiljan Laxness þar sem hann dvelur nú [í Krosshúsum] yfir páskana, önnum kafinn yfir ritvél sinni. Þrátt fyrir mikið annríki var skáldið svo vingjarnlegt að svara nokkrum spurningum, sem tíðindamaður lagði fyrir hann.
Kemur framhald af „Ljósi heimsins“?
-Já, næsta ár mun koma út ný bók, framhaldssaga af niðursetningnum, sem nú er ekki lengur niðursetningur, eins og þér vitið. Hvers vegna nefnduð þér bókina „Ljós heimsins“? Bókin skýrir frá baráttu skáldsins við heimskuna og tregðuna.

Halldór Laxness

Halldór Laxnes.

Þér notið alveg sérstakt mál í bók yðar, haldið þér ekki, að það geti aflagað mál hinnar yngri kynslóðar?
-Ég vona að mál bókarinnar sé auðvelt aflestrar og spilli ekki málsmekk neins.
-Á hve mörg mál hafa bækur yðar verið þýddar?
-Dönsku, þýsku, sænsku, ensku og hollensku og verið að vinna að þýðingu á frönsku.
-Mörgum finnst þér vera svartsýnn í bókum yðar?
-Það er alltaf sagt að raunsæishöfundar séu svartsýnir. Lífið er ströng barátta, og sögur mínar eru raunsæar. Þegar lífsskilyrði alþjóðar batna verður skáldskapurinn ósjálfrátt bjartsýnni.
-Haldið þér ekki að útlendingar geti fengið of slæmar hugmyndir um Ísland við að lesa bækur yðar?
-Það held ég ekki, vesaldómur almennings er í flestum löndum meiri en á Íslandi, svo það er ekkert nýtt fyrir útlendinga að heyra um fátækt fólk.

Grindavík

Grindavík 1954 – loftmynd.

Annars er fólkið allsstaðar eins, aðeins ofurlítið breytt á yfirborðinu. Þegar maður er búinn að tala dálitla stund við mann frá t.d. Buenos Aires er maður óðar kominn inn á sama umræðu etni og í samtali við fólk hér í Grindavík.
-Viljið þér segja ofurlítið frá þessu ferðalagi, sem þið fóruð í sumar?
Ég hefi skrifað ofurlítið um það annarstaðar, og ég er líka ónýtur að segja ferðasögur. Það koma náttúrlega fyrir ýms atvik á ferðalagi, en þeim hef ég mest gaman af þegar ég er búinn að skrifa um þau í skálsögum, kannski í ofurlítið breyttri mynd.
-Sumir hneykslast á ýmsu í bók yðar „Ljós heimsins“ t.d. 16. kap.
-Það er með bók eins og jólaköku, jólakökur mega ekki vera eintómar rúsínur, en ef engin rúsína er í þeim, er það heldur engin jólakaka.
-Hvernig líst yður á Grindavík?

Krosshús

Krosshús.

-Mér líst afar vel á Grindavík. Þar vinn ég betur en víðast hvar annarstaðar, hér skrifaði ég seinni hlutann af „Fuglinn í fjörunni“ og „Napóleon Bónaparte“ og gerði uppkast að „Ljós heimsins“. Eftir kynningu minni af öðrum íslenskum sjóþorpum, held ég, að Grindavík sé með bestu plássum landsins. Húsin eru rúmgóð og falleg, mættu kannski standa skipulegar. Sjáið þér börnin þama úti á túninu, öll vel klædd með höfuðföt og sko. Þið ættuð að sjá pláss eins og Ólafsvík og Bíldudal og Eskifjörðog víðar þar sem fólk varla hefur eldsneyti til að kynda undir pottinum með.
Vér þökkum herra Laxness fyrir samtalið, óskum honum gleðilegra páska og kveðjum.“

Heimild:
-Faxi, 4. tbl. 01.05.1982, Í tilefni áttræðisafmælis Halldórs Laxness, bls. 92.

Grindavík 1958

Grindavík (Járngerðarstaðarhverfi) 1958.

Fagradalsfjall

Á vefsíðunni „Views of the World – rediscovering the world“ (Útsýni yfir heiminn – að enduruppgötva heiminn) má lesa grein; „Where the lava flows: Volcano update from Iceland“ (Þar sem hraunið rennur: Uppfærsla um eldgos frá Íslandi). Hún fjallar um eldgosin þrjú í Fagradalsfjalli á árunum 2021 til 2023, þ.e. í Geldingadölum, í Meradölum og við Litla-Hrút. Greinin birtist 1. ágúst 2023:

Fagradalsfjall

Fagradalsfjall – Geldingadalir.

„Þann 19. mars 2021 hófst eldgos í Geldingadölum á Fagradalsfjalli á Reykjanesskaga á Suðvesturlandi. Eldfjallið er staðsett um 30 km frá höfuðborg landsins, Reykjavík. Aðalgostímabilið stóð frá mars til september 2021. Annað gos hófst 3. ágúst 2022 í Meradölum við norðurenda fyrsta gossins og stóð yfir í rúmar tvær vikur. Í nýjustu atburðunum opnaðist ný sprunga norðar við hliðina á Litla-Hrútum þann 10. júlí 2023. Hraun þaðan hélt áfram að breyta landslaginu á nærliggjandi svæðum í kjölfarið.

Fagradalsfjall

Fagradalsfjall- Geldingadalshraun (gult).

Kortlagning á yfirstandandi eldgosi er áskorun: Þegar kort hefur verið búið til er það þegar orðð úrelt. Því þarf reglulega að uppfæra stöðuna til að skilja hvernig gosið þróast. Eftirfarandi kort getur aðeins gefið innsýn í stöðuna á svæðinu. Það sýnir staðsetningu Fagradalshrauns, sem nefnt er hraunbreiður eldfjallsins, ásamt upprunalegum útrásarkerfum þeirra í landfræðilegu samhengi eins og þau komu fram á virka gostímabilinu árið 2021. Ennfremur inniheldur þetta kort nú einnig nýja gosið sem hófst 3. ágúst 2022 í Meradölum við norðurenda fyrri hraunrennslis. Eftirfarandi kort sýnir fyrstu myndina af nýja og yfirstandandi gosinu og sýnir hraunrennsli frá og með 17. júlí 2022:

Fagradalsfjall

Fagradalsfjall

Helstu hraunrennslin sem sýnd eru á þessu korti eru byggð á gögnum sem Landmælingar Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands og Jarðvísindastofnun hafa safnað og unnið úr. Aðferðir við hraunkortlagningu eru byggðar á nýlega birtri vinnu Pedersen o.fl., 2022.

Athugasemdir um staðnöfnin sem sýnd eru á kortinu hér að ofan: Fagradalshraun var ákveðið sem heiti á nýju hraunbreiðunum sem þekja nokkra af dölunum í kringum gossvæðið.

Fagradalsfjall

Fagradalsfjall – Meradalahraun (rautt).

Nokkur nöfn hafa verið í gangi á fyrstu mánuðum gossins, sem vísa til hinna ýmsu landfræðilegu einkenna á svæðinu sem öll eru merkt á þessu korti. Fagradalsfjall er heiti á hásléttunni vestan við dalinn þar sem gosið hófst. Gosið sjálft hófst í Geldingadölum. Þó að Geldingadali séunotaðir sem staðnefni á þessu nýjasta korti, hefur áður verið notað -dalur, sem er eintala af íslenska orðinu fyrir dalir sem einnig er stundum notað (bæði á íslensku og ensku). Miðað við lögun dalsins virðist þetta vera rökréttara landfræðilega séð (og í íslenskum almenningi eru bæði nöfnin notuð reglulega). Ákveðið var að lokum að breyta þessu á kortinu í -dalir þar sem örnefnaskrá Landmælinga Íslands hefur þetta nafn skráð sem eina nafnið í gagnagrunni sínum (sjá Landmælingar Íslands – Örnefnasjá).

Fagradalshraun

Fagradalshraun – Litla-Hrútshraun (rautt).

Dalirnir í austri heita Meradalir (takið eftir fleirtölu, bókstaflega „tjarnadalir“). Þetta er svæðið þar sem hraunið rann fyrst yfir, eftir að annað útrásarkerfið opnaði í byrjun apríl. Einnig var bætt við Nátthaga, dalnum þar sem hraunið gat runnið ef verndarveggirnir sem byggðir höfðu verið héldu því ekki aftur fyrir sig. Þessi dalur myndi þá leiða hraunið að aðalveginum og myndi því hafa áhrif á innviði ef það héldi áfram að renna til suðurs. Fleiri landslagsþáttum hefur verið bætt við ef þeir verða viðeigandi í samhengi við eldgosið.

Kortið á þessari vefsíðu er uppfært eftir því sem eldgosið líður og hraunrennslið heldur áfram að breytast. Eftirfarandi listi gefur yfirlit yfir allar útgáfur af þessu korti sem voru birtar á þessari síðu. Hver útgáfa inniheldur uppfærða umfjöllun um hraunrennsli sem og viðbótarleiðréttingar eins og fram kemur jafnóðum.

Efnið á þessari síðu hefur verið búið til af Benjamin Hennig úr rannsóknarhópnum um rúmfræðilega greiningu og jarðfræði við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskólans Íslands, sem notar eigin vettvangsathuganir og gagnaheimildir eins og vísað er til á kortinu.“

Geldingadalir

Fagradalsfjall

Fagradalsfjall – eldgos í Geldingadölum.

Í Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu, er m.a. fjallað um eldgosin. Um Geldingadali segir::

„Geldingadalir eru dalir eða dældir á Reykjanesskaga austan undir Fagradalsfjalli. Dalirnir voru grunnir með breiðri grasflöt fyrir jarðhræringar á svæðinu. Að kvöldi 19. mars árið 2021 hófst eldgos úr stuttri sprungu í dölunum, fyrsta eldgosið á Reykjanesskaga í 800 ár. Dalirnir fylltust af hrauni að miklu leyti.

Í Geldingadölum var fyrir eldgos þúst eða dys á flötinni er sagt var að þar sé Ísólfur á Skála grafinn, en hann bjó á Ísólfsskála í fornöld. Í örnefnaskrá Hrauns í Grindavík segir að hann hafi látið dysja sig í dalnum. Í Geldingadölum hélt Ísólfur geldingum sínum og öðru geldfé. Vildi hann vera grafinn, þar sem geldingarnir hans hefðu það best – sjá meira.

Fagradalsfjall

Fagradalsfjall – eldgos í Geldingadölum.

Þess ber að geta að Ísólfur er ekki nefndur í Landnámu og Ísólfsskáli ekki heldur. Sagan um hann er fengin úr örnefnaskrám. Geldingadalir draga nafn sitt af þeirri tilhögun sauðfjárbænda að halda geldfé aðskildu frá ám með lömb vegna mjólkurinnar. Ærnar voru mjólkaðar við fráfærur og þá var mikilvægt að eyða ekki tíma og orku í geldfé því það mjólkar ekki. Í Jónsbók var ákvæði um að geldur peningur skyldi vera farinn úr heimahögum þegar tveir mánuðir væru liðnir af sumri og ekki mátti reka fé aftur heim fyrir tvímánuð (síðustu viku í ágúst) en í réttarbót Eiríks konungs Magnússonar frá 1294 var því breytt þannig að hreppsstjórnarmenn ákváðu hvenær fé yrði rekið á fjall og heim eftir því sem hentaði.“

Geldingadalur

Í Geldingadal – Dys Ísólfs fyrir gosið (ÓSÁ).

Hið skondna er þó að bæjarstjórn Grindavíkur hljóp á sig; að nefna bara hina fyrstu hraunupplausn „Fagradalshraun“. Í fyrsta lagi má geta þess að fyrrnefnt hraun kom upp í Geldingadölum. Í öðru lagi að Fagridalur sá, er fjallið er nefnt eftir, er langt norðan Geldingadala og tengist nafngiftinni nákvæmlega ekkert (nema ef vera skyldi nafngiftinni). Nær hefði verið að heiðra örnefnið sem slíkt, ekki síst í hinu sögulega samhengi þess, og nefna hraunið „Geldingadalshraun“.

Meradalir

Fagradalsfjall

Fagradalsfjall – eldgos í Meradölum.

„Meradalir eru dalir á Reykjanesskaga, austan við Geldingadali og voru gróðurlitlar leirflatir áður en hraun fyllti dalina árið 2021. Norður af þeim eru Meradalshlíðar og vestur frá þeim er Kistufell. Meradalir liggja lægra en Geldingadalir. Þann 5. apríl árið 2021 tók hraun að renna í Meradali sem barst úr sprungu sem opnaðist hafði sama dag við Fagradalsfjall ekki langt frá þar sem upphaflega tók að gjósa. Í júní hafði hraunið náð um allan dalinn.
3. ágúst 2022 hófst gos í norðanverðum dölunum.

Fagradalsfjall

Fagradalsfjall – eldgos í Meradölum.

Þann 3. ágúst árið 2022, rúmum tíu mánuðum eftir að eldgosinu í Geldingadölum lauk opnaðist um 300 metra löng sprunga við norðanverða Meradali, við norðurenda hrauns sem rann 2021, og nálægt Meradalahnjúkum. Jarðskjálftahrina var vikurnar áður og 3 dögum áður var skjálfti upp á 5,5 nálægt Grindavík. Sprungan sem opnaðist var lengri og gosið öflugra en í síðasta gosi þegar það hófst. Hún þéttist í nokkur gosop og einn aðalgíg fyrstu vikuna. Gosið stóð í um 18 daga. Það var 8% rúmmáls gossins í Geldingadölum og fjórðungur flatarmáls þess.

Litli-Hrútur

Fagradalsfjall

Fagradalsfjall – eldgos við Litla-Hrút.

Eldgosið við Litla-Hrút 2023 er eldgos sem hófst þann 10. júlí, síðdegis, við Litla-Hrút sem er á milli Keilis og Fagradalsfjalls. Sprunga opnaðist norðan við fjallið sem stækkaði ört og varð 900 metra löng. Eftir sólarhring minnkaði virknin og einangraðist hún í gíga og að lokum í einn gíg. Mikil gasmengun var á svæðinu og lokuðu yfirvöld aðgang að vegum fyrst um sinn. Litlu síðar urðu miklir gróðureldar og svæðinu var lokað aftur. Það varð mesti mosabruni síðan skráningar hófust. Gosmóðan náði allt til Vestfjarða.

Fagradalsfjall

Fagradalsfjall við lok goshrinanna 2023.

Þann 14. júlí sameinaðist hraunið úr gosinu hrauninu úr Meradölum. Fyrstu vikuna var framleiðsla gossins 2-3 sinnum meiri en í Geldingadölum 2021. Í byrjun ágúst hafði hraunframleiðsla minnkað verulega og ályktuðu jarðfræðingar að stutt væri í goslok. Frá 5. ágúst var engin virkni í gígnum.
Hraunflæði í gosinu þakti 1,5 ferkílómetra.

Eftir að framangreindum goshrinum í Fagradalsfjalli lauk 5. ágúst 2023 hófust aðrar goshrinur í framhaldinu á svonefndri Sundhnúkagígaröð ofan Grindavíkur þann 18. desember 2023 .

Sjá myndir; Geldingadalshraun, Meradalahraun og Litla-Hrútshraun.

Heimildir:
-https://www.viewsoftheworld.net/?p=5783
-https://is.wikipedia.org/wiki/Geldingadalir
-https://is.wikipedia.org/wiki/Meradalir
-https://is.wikipedia.org/wiki/Eldgosi%C3%B0_vi%C3%B0_Litla-Hr%C3%BAt_2023

Fagradalsfjall

Fagradalsfjall – eldgos í Meradölum.