Markavarða – útvörður Straums
Í skrá Gísla Sigurðssonar fyrir Þorbjarnarstaði í Hraunum segir um „Markavörðuna“ yst á landamerkjunum til austurs:
„Úr Hafurbjarnarholtsvörðu lá landamerkjalínan um Nyrztahöfða og um Norðurhöfðaslakka, á Mjóhöfða og um Miðhöfðaslakka, þaðan í Fremsthöfða á móti Straumslandi í Þrívörður“. Gísli Sigu
rðsson segir, að þær hafi verið nefndar Lýritti. Ljóst er að markalínan lá austur og ofan við Brunatorfur (Brunntorfur) og kom þar á Stórhöfðastíg, sem lá svo áfram vestur að Fjallinu eina suðvestan Fremstahöfða.
Hvað sem öllum örnefnum í þessu annars kennilauslega hábungusvæði Hrútargjárdyngjuhrauns stendur Markavarðan þessi enn sinn vörð og undirstrikar þannig ystu landamerki Þorbjarnarstaða og Straums þarna efst á hraunbrúninni.
Markavarðan er mjög vel sýnileg frá Krýsuvíkurvegi í vestri.
Heimild:
-Örnefnalýsing fyrir Þorbjarnarstaði, Gísli Sigurðsson.











