Hamrafell (Úlfarsfell) – Herkampar við Leirtjörn
Í „Fornleifaskráninu fyrir Leirtjörn vestur“ frá árinu 2023 er m.a. fjallað um herkampana við Leirtjörn vestan Úlfarsfells (Hamrafells):

Úlfarsfell – Samsett kort hersins af herskálahverfum við Leirtjörn og á Lambhagamelum „Belvoir & Tientzin
Camps“ dagsett 18. ágúst 1942.
„Í suðvesturhlíðum Úlfarsfells við Leirtjörn og á Lambhagamelum voru á tímum hersetunnar þrjú herskálahverfi. Tientzin var sunnan við Leirtjörn með 78 bröggum og 5 öðrum byggingum, Montezuma var vestan og norðan við tjörnina, síðar nefnt Belvoir North, þegar það sameinaðist Belvoir árið 1942 sem var suðvestar á Lambhagamelum. Í Montezuma og Belvoir voru 266 braggar og 38 aðrar byggingar.
Leirtjörn er á mörkum jarðanna Lambhaga og Úlfarsár, austan við grjóthólinn Skyggni sem er efst á Lambhagamelum. Leirtjörnin náði áður yfir stærra landsvæði en hún gerir nú, fyllt var upp að suðurhluta tjarnarinnar árið 2018. Í örnefnalýsingunum kemur fram að tjörnin hafi verið mikið leirflag á sumrum en tjörn á vetrum.
Fyrri tíðar búskapur hefur ekki skilið eftir ummerki á eða við svæðið en suðaustan við er skráður einn minjastaður eftir heimildum, akur sem var fyrirhugaður á
tjarnarsvæðinu. Jón Kristjánsson prófessor í Reykjavík eignaðist jörðina Úlfarsá árið 1918 og lét þá þurrka upp tjörnina sem var 18 dagsláttur að stærð. Þar ætlaði hann, ef honum hefði enst aldur til, að sá í hana höfrum. Framkvæmdin hafði ekki varanleg áhrif á vatnasvæði tjarnarinnar því vatn virðist hafa safnast í hana aftur og var mikið vatn í henni á árunum 1975-84. Sunnan við svæðið eru skráðar tvær fornleifar eftir heimildum, gömul gata sem lá að bænum Úlfarsfelli og landamerkið Tvísteinar sem voru á merkjum en talið er að þeir hafi horfið við jarðrask á stríðsárunum.
Á tímum hersetunnar hafði herinn töluverð umsvif við Leirtjörn og á Lambhagamelum og um tíma voru þar þrjú herskálahverfi. Belvoir var á Lambhagamelum suðvestan við Leirtjörnina, Tientzin sunnan við og Montezuma var norðan og vestan við tjörnina. Montezuma rann síðar saman við Belvoir og var þá stundum nefnt Belvoir North. Þegar Bandaríkjamenn tóku við hervörslu á Íslandi árið 1941 notuðu þeir orðið Camp á undan staðarheitum á herbúðum sínum ólíkt Bretum.
Töluverð ummerki eru eftir herinn á svæðinu, vegir sem margir hverjir hafa verið notaðir áfram, ummerki eftir hús og bragga, grunnar og steypuleifar, niðurgröftur af ýmsu tagi, lagnaleiðir og skotgrafir. Skammt norðvestan við svæðið, þar sem Montezuma var áður, var síðar hundaræktarbú sem Carl Anton Carlsen, kallaður Carlsen minkabani, sá um á sjöunda og áttunda áratugnum. Carlsen var starfsmaður landbúnaðarráðuneytisins sem ferðast um landið með hunda sína og vann að útrýmingu minksins.“
Heimild:
-Leirtjörn vestur, Fornleifaskrá, Reykjavík 2023.













