Vogastapi – Vogavík – Vogafjara; skilti

Vogar

Á skilti í Vogum ofan Vogafjöru má finna eftirfarandi fróðleik um „Vogastapa, Vogavík og Vogafjöru„:

Stapagata

Gengin Stapagatan um Reiðskarð.

„Vogastapi er gamalt grágrýti sem ísaldarjökull og sjórinn hafa mótað. Gamla þjóðleiðin frá Vogum til Njarðvíkur liggur upp úr Reiðskarði og síðan eftir Stapanum þar sem hann er hvar hæstur. Margar þjóðsögur tengjast Vogastapa og Grímshól, hæstu bungu hans. Undir Stapabrún voru fengsæl fiskimið, Gullkistan.
Þangi vaxnar klappir í fjörum frá Vogastapanum að Kúagerði eru hluti af Þráinsskjaldarhrauni sem rann fyrir 10.000 árum og byggðin stendur á. Mundur á flóði og fjöru er hér um 4.5 m. Brimið brýtur smám saman af ströndinni og auk þess sígur landið hér um 1 mm á ári. Þang og mór úr fjörunni var nytjað áður fyrr. Ferskvatn sprettur víða upp úr fjörunni og dregur Vatnsleysuströnd nafn sitt af því.
Á skilti þessu er nokkrum algengum lífverum í fjörunni gerð skil. Nánari upplýsingar á www.vogar.is.“

Vogar

Vogar – Vogafjara; skilti.