Skátar í Hafnarfirði í 100 ár

Hraunbúar

Í takmarkaðri umfjöllun í tilefni af sögu eitt hundrað ára afmæli Hafnarfjarðarskáta má m.a. pússla saman saman eftirfarandi:
Skátar„Í dag, 6. febrúar 2025, eru 100 ár síðan fyrsti skátafundurinn var haldinn í Hafnarfiði. Jón Oddgeir Jónsson stofnandi skátafélagsins ásamt 9 strákum úr Hafnarfirði hittust fyrst laugardaginn þann í febrúar 1925. Ákveðið var að þeir myndu hittast öll laugardagskvöld þar sem Jón Oddgeir myndi kenna þeim fyrir 2. fl. próf skáta. Beðið var með stofnfund félagsins til 22 febrúar, fæðingardag Baden-Powells. Félagið fékk nafnið Skátafélag Hafnarfjarðar en árið 1946 er nafninu breytt í Skátafélagið Hraunbúar.

Á áttatíu ára afmæli Hafnarfjarðarskáta skrifaði félagsforinginn, Ásgeir Ólafsson, m.a. eftirfarandi í málgagn Hraunbúa:

Ásgeir Ólafsson

Ásgeir Ólafsson, félagsforingi.

„LXXX“ – Þannig má rita töluna áttatíu með rómverskum tölum. Hvers vegan dettur mér í hug að gera það? Svarið er einfalt en kemur samt á óvart. Skátastarf í Hafnarfirði á áttræðisafmæli á þessu ári, en fyrsta hafnfirska skátafélagið var stofnað 22. febrúar árið 1925. Af hverju kemur það á óvart? Það á sér einnig einfalda skýringu. Skátastarfið er öflugt og alltaf jafn ungt og skátarnir sem starfa í skátafélaginu okkar.
Í átta áratugi hafa skátastörfin styrkt og auðgað líf hafnfirskra barna og unglinga auk þess að vera eini félagsskapur ungs fólks sem er undir stjórn og ábyrgð unglinganna sjálfra þar sem leiðtogaþjálfun og jafningjafræðsla eru daglegt brauð og engin þörf á afþreyingu. Skátar vinna að því að efla sjálfa sig til þess að takast á við daglegt líf. Þeir læra að leysa úr verkefnum, vinna með öðrum, breyta hugmyndum í fullunnið verk. Vinna verkin sjálfir og ljúka þeim.

Skátar

Kröfunganga á leið niður Strandgötu, húsið er Suðurgata 24 var áður Strandgata 52 betur þekkt sem Bristol, fyrsta afdrep Hafnarfjarðarskáta 1925.

Hafnfirðingar eiga mikinn fjársjóð í skátastarfinu sem hefur auðgað bæjarlífið þennan langa tíma. Skátarnir hafa unnið þrotlaust uppeldisstarf í þágu samborgara sinna með brosi á vör og undir stjórn sjálfboðaliða sem við eigum ævilanga þakkarskuld að gjalda. Við leiðum ekki oft hugann að því hversu margt við eigum að þakka því fólki sem er löngu farið úr þessum heimi. En vegur skátaforingjanna í Hafnarfirði er merkur og mikilvægur áfangi þess að byggja upp öflugt fólk, marga sem til forystu eru fallnir og hafa tekist á við mörg forystuhlutverk. Um leið hefur mikill fjöldi fólks notið skátauppeldisins sem kemur sér jafnan vel, bæði þegar vel gengur og eins er á móti blæs.

Skátar

Hraunbúaskátar.

Skátahreyfingin hefur haft skýr markmið, vel afmarkað þjálfunarkerfi til persónulegrar þjálfunar skátans og styður starf sitt siðferðilegum grundvelli skátalaganna og skátaheitisins. Skátaheitið er sameiningarafl allra skáta. Á grundvelli þess hefur skátahreyfingin staðist átök heimsstyrjalda og eflst með hverju ári.
Ég þakka forystufólki Hafnarfjarðarbæjar stuðning þess við skátastarfið og þá viðurkenningu sem í þeim stuðningi felst. Ungir skátaforingjar hafa alltaf borið hitann og þungann af starfinu og viðurkenning samfélagsins er þeim ómetanleg stoð í kröfuhörðu sjálfboðastarfi.“ – Með skátakveðju, Ásgeir Ólafsson, Félagsforingi Hraunbúa.

Í blaðinu er grein með yfirskriftina „Heiður og þökk sé þeim, sem stigu fyrstu skátasporin í Hafnarfirði„:
Skátar„Skátastarf í Hafnarfirði byrjaði 22. febrúar 1925, en þá var fyrsti skátaflokkurinn í Hafnarfirði stofnaður. Það var Jón Oddgeir Jónsson, síðar þjóðkunnur maður fyrir störf sín í Slysavarnarfélagi Íslands og kennslu í hjálp í viðlögum, sem var þar í forystu. Hann átti heima í Reykjavík, var félagi og foringi í Skátafélaginu Væringjum í Reykjavík.
Jón Oddgeir var skáti af lífi og sál og tók þátt í störfum Væringja með elju og áhuga. Þar bar það á góma meðal skátafélaganna í Væringjum, að skátahreyfingin ætti erindi við Hafnfirðinga, ekkert síður en Reykvikinga. Þar væru dugmiklir og hæfileikaríkir drengir starfandi í KFUM Hafnarfirði, drengir sem væru góð skátaefni. Og Jón Oddgeir sat ekki aðgerðarlaus. Hann hófst handa með að kynna hafnfirskum drengjum skátastarfið. Hann valdi í samráði við forystumenn KFUM í Hafnarfirði 9 hafnfirska drengi og stofnaði með þeim skátaflokk. Það var 22. febrúar 1925, eins og áður er sagt, á afmælisdegi Róberts Baden Powells, stofnanda skátahreyfingarinnar.

Skátar

Leitarflokkur Hraunbúaskáta 1955.

Undir leiðsögn Jóns Oddgeirs fetuðu þessir drengir sig eftir skátabrautinni, lærðu skátafræðin og tileinkuðu sér skátaandann. Vikulega kom hann á hjólinu sínu í Hafnarfjörðinn og stjórnaði flokksfundum, kenndi og æfði það sem skátum var ætlað að kunna.
Fjórir nýir flokkar voru stofnaðir í Hafnarfirði og fyrsta hafnfirska skátasveitin varð til. Drengirnir sem stofnuðu fyrsta hafnfirska skátaflokkinn urðu flokksforingjar í nýju skátaflokkunum. Grundvöllurinn að starfi Hraunbúa var lagður.
Þökk sé þeim og heiður sem stigu fyrstu skátasporin í Hafnarfirði.“

Horft um öxl

Skátar

Hraunbúar á 100. ára afmælinu.

Skátafélagið Hraunbúar hefur náð 100 ára aldri. Heiður og þökk sé þeim, sem stigu fyrstu skátasporin í Hafnarfirði.

Horft til framtíðar 
„Framtíðin er björt. Þannig sjáum við það allavega. Fyrir okkur hefur verið gaman að starfa í Hraunbúum hingað til og við vitum að það verður ekkert síðra ef ekki bara enn skemmtilegra í framtíðinni. Það er margt spennandi á döfunni. Við höfum mikinn metnað til handa skátafélaginu okkar. Við stefnum hátt og markmiðið er að innan fárra ára verði Hraunbúar stærsta skátafélag á landinu. Okkur langar að sýna í verk,i að hjá okkur fari fram æskulýðsstarf í hæsta gæðaflokki.

Robert Baden Powell

Robert Baden Powell (1857-1941).

Árið 2007 var 100 ára afmæli skátahreyfingarinnar. Það var árið 1907 sem Robert Baden Powell fór með vaskan hóp drengja í útilegu á Brownsea eyju. Varð sú útilega upphafið að stærstu æskulýðshreyfingu í heiminum í dag. Við Hafnfirðingar höfum því greinilega verið frekar fljót að tileinka okkur þetta nýja og spennandi starf þar sem Hraunbúar eru 80 ára í ár. Það þætti kannski langur tími í dag þar sem tölvur eru allsráðandi og fréttir af hinum stóra heimi eins sjálfsagðar og að draga andann, heil átján ár. En fyrir 80 árum voru ekki tölvur eða sjónvarp.
Til að skátastarfið geti vaxið og dafnað eins og blóm í eggi þarf að hlúa að því og búa því bestu mögulegu vaxtarskilyrði. Við búum svo vel að eiga virkilega eiga fallegt og gott skátaheimili þar sem fer býsna vel um okkur. En skátastarfið fer bara fram svo miklu víðar en í einu húsi við Víðstaðatún í Hafnarfirði.

Skátar

Skátamót í Helgadal ofan Hafnarfjarðar.

Skátastarfið fer fram upp um fjöll og firnindi í tjöldum og skálum, á skátamótum um allt land og allan heim og kannski síðast enn hreint ekki síst í okkar yndislegu Krýsuvík. Í Krýsuvík eigum við okkur örlítið athvarf, ja kannski ekki beint athvarf því það er ekki að miklu að hverfa. Við eigum þarna lítinn skála, reyndar er hann ónothæfur núna, en það er líka hluti af okkar framtíðarsýn að gera hann upp svo við getum nýtt hann eins og okkur svo virkilega langar til. Hvað gæti verið yndislegra en einmitt að vera í skálaútilegu með skátaflokknum sínum í miðjum janúar, labba út á pall í myrkrinu og horfa á norðurljósin og kannski læra að þekkja nokkur stjörnumerki? Ég segi fyrir mína parta að það er eitthvað sem aldrei gleymist. Hversu lánsöm og rík erum við að eiga möguleika á að njóta slíkrar náttúrufegurðar. Í Krýsuvík höldum við líka okkar árlega vormót á hverju ári.

Skátar

Vormót Hraunbúa í Krýsuvík 1967.

Og á hverju ári er það sama sagan, okkur langar svo að geta boðið litlu skátunum okkar og gestunum okkar upp á betri aðstöðu, þið sem hafið komið vitið hvað ég á við. Ekki það að aðstaðan eða öllu heldur aðstöðuleysið slái okkur alveg út af laginu, en mikið væri samt lífið yndislegt ef við þyrftum ekki að skammast okkur fyrir aðstöðuna sem við bjóðum upp á. Svæðið gæti líka svo hæglega nýst fleirum en bara skátum.
Okkur hefur gengið vel veginn að byggja upp gott æskulýðsstarf og framtíðin er björt og spennandi. Við viljum gera það sem við getum til að bjóða hafnfirskri æsku upp á áhugavert og heillandi æskulýðsstarf með áherslu á þroska einstaklingsins á hans eigin forsendum, samvinnu og sjálfstæði, okkur öllum til heilla.“

Skátaskálar

Hverahlíð

Skátaskálinn í Hverahlíð.

„Hraunbúar hafa frá því um 1945 átt skála við enda Kleifarvatns og notað hann mikið fyrir margskonar uppákomur í gegnum árin enda eiga mjög margir góðar minningar frá þessum sérstæða stað við hverinn.
Skátaskálinn Hverahlíð er annar af tveimur skálum félagsins. Hinn skálinn er í Krýsuvík og er í sínu verra ástandi og fjöllum við ekki sérstaklega um hann hér.
Eins og gefur að skilja hefur þurft að halda skálanum við og fyrir c.a. 10-15 árum var hann tekinn nokkuð vel í gegn með aðstoð félagsmanna í sjálfboðavinnu.
Ástand skálans undanfarin ár er þó orðið nokkuð bágborið aftur og þá sérstaklega eftir að við urðum fyrir innbroti þar sem mikið var skemmt inni sem úti.“
Skálinn í Krýsuvík brann og skálinn í Hverahlíð var rifinn vegan lélegs ástand.

100 ára afmælið

Skátar

Hafnarfjarðarskátar fagna 100 ára afmæli Hraunbúa í Hraunbyrgi.

Í Fjarðarfréttum, blaði allra Hafnfirðinga, árið 2025 var fjallað um 100 ára afmæli skátastarfs í Hafnarfirði undir fyrirsögninni „Fagna 100 ára skátastarfi í Hafnarfirði„:
„Skátafélagið Hraunbúar varð 100 ára 22. febrúar 2025. Stofnendur Skátafélags Hafnarfjarðar árið 1925 voru: Hilmar Þorbjörnsson, Róbert Schmidt, Benjamín Eiríksson, Oddgeir Magnússon, Þráinn Sigurðsson, Sverrir Magnússon, Hallgrímur Sigurðsson, Jón Ingi Guðmundsson, Guðmundur Egilsson undir leiðsögn Jóns Oddgeirs Jónssonar. Þetta voru bráðungir menn sem margir urðu þekktir í þjóðfélaginu.

Skátar

Nýskátar á 100 ára afmælinu.

Fyrsta skátaútlegan var farin í Kaldársel þetta ár en skátastarfið barst til Íslands árið 1912, aðeins 5 árum eftir að Baden Powell lagði grunninn að skátastarfinu.
Hafnfirskar stúlkur hófu skátastarf árið 1934 en fljótlega sameinaðist starfið í einu félagi.
Saga skátastarfs í Hafnarfirði er ekki óbrotin en segja má að frá 1937 hafi verið mjög öflugt skátastarf og Skátafélagið Hraunbúar eru nú eitt öflugasta skátafélagið á landinu.“

Sjá meira um skátastarf í Hafnarfirði HÉR.

Heimildir:
-https://hraunbuar.is/wp-content/uploads/2018/03/hraunbuar_afmaelisblad.pdf
-https://vefblad.fjardarfrettir.is/p/fjardarfrettir/fjardjarfretti-6-februa-2025/a/fagna-100-ara-skatastarfi-i-hafnarfirdji/6849/1829157/60491029

Skátar

Skátar, ungir og aldnir, á 100 ára afmæli Hraunbúa.