Kirkjuvogsbrunnur í Höfnum

Hafnir

Kirkjuvogsbrunnur var sögulegur brunnur staðsettur í Hafna- og Kirkjuvogshverfi Reykjanesbæjar á Reykjanesskaganum. Samkvæmt sögulegum heimildum var brunnurinn byggður um eða fyrir árið 1750 af Tómasi Arasyni frá Fuglavík. Hann var niðurgengur líkt og brunnurinn á Merkinesi.

Hafnir

Hafnir – túnakort frá 1919 lagt yfir loftmynd frá 2023. Á myndinni sést Kirkjuvogsbrunnur.

Vatnsöflun var gríðarlega mikilvæg og krefjandi áskorun á Suðurnesjum fyrr á öldum og því var mannvirkið mikilvæg lífæð fyrir stórbýlið í Kirkjuvogi. Í dag eru helstu leifar brunna og tengdra mannvirkja á svæðinu að finna í nágrenni við gömlu bæjarhólana og túngarðana, ekki síst í Höfnum. Fyrir 1900 var svo að segja grafinn brunnur eða vatnsstæði við sérhvern bæ á Skaganum, sumsstaðar jafnvel fleiri en einn.

Þegar túnakortið yfir Kirkjuvogshverfið frá 1919 er skoðað má sjá staðsetningu einstakra bæja er þá voru í byggð sem og nokkrar götur.

Hafnir

Kirkjuvogshverfi – túnakort 1918.

Ein af þeim var brunngatan frá Kirkjuvogi er endaði í suðri við Kirkjuvogsbrunninn. Frá honum til norðausturs liggur önnur gata, að Kotvogi. Þegar loftmynd af Höfnum var skoðuð með hliðsjón af túnakortinu virtist brunnstæðið ekki sérstaklega augljóst, en þegar túnakortið var sett yfir nýlega loftmynd birtist nákvæm staðsetning hans.

Í dag, 2026, hefur brunnsvæðið á einhverju tímabili, hlaupið í sandskafla sem síðan hefur gróðið yfir. Engar hleðslur sjást því í brunnstæðinu.

Hafnir

Hafnir – Kirkjuvogsbrunnur.