Útskálar – prestshúsið

Útskálar

Guðjón Friðriksson skrifaði um prestshúsið að Útskálum á Rosmhvalanesi á Facebook þann 14. okt. 1926:

Jens Pálsson

Jens Pálsson (1851-1912).

„Hús dagsins er Prestshúsið Útskálum í Garði, nú Suðurnessjabæ. Þetta myndarlega timburhús með fallega skreyttum bjórum og fjölum yfir gluggum og undir þakskeggi er eitt af fallegustu gömlum húsum á Suðurnesjum enda ekki langt síðan það var gert upp og raunar byggð viðbót aftan við það. Þess skal getið að grind hússins var gerð úr viðum sem komu með skipinu Jamestown sem strandaði mannlaust í Höfnum árið 1881. Úskálar voru jafnan taldir eitt af bestu prestaköllum landsins enda á miklu útgerðarsvæði.
Sá sem stóð fyrir að reisa prestshúsið var séra Jens Pálsson, mikill áhugamaður um framfarir og meðal annars alþingismaður um árabil. Þarna bjó hann ásamt konu sinni Guðrúnu Sigríði Gudjohnsen. Þau stóðu hins vegar ekki lengi við því hann fékk annað brauð, Garða á Álftanesi árið 1889.

Útskálar

Útskálar – Jón Helgason 1925.

En húsið var áfram prestssetur næstu hundrað árin eða svo og ýmsir þekktir prestar sátu þar með fjölskyldum sínum. Nefna má hjónin Idu Halldórsdóttur og séra Kristinn Daníelsson sem sat Útskála 1903 til 1916 og var einnig alþingismaður og hjónin Guðrúnu Guðmundsdóttur og séra Eirík Brynjólfsson sem sat Útskála 1928 til 1952. Við af honum tók séra Guðmundur Guðmundsson og var hann síðasti presturinn sem sat alfarið á prestsetrinu eða allt til ársins 1986. Kona hans var Steinvör Kristófersdóttir.

Útskálar

Útskálar – prestshúsið fyrrum.

Eftir að húsið var aflagt sem prestssetur hrörnaði það fljótt og varð niðurnítt. Árið 2004 var stofnað Menningarsetrið að Útskálum ehf með það m.a. að markmiði að endurbyggja það í upprunalegum stíl og ári síðar sérstakt Hollvinafélag hússins. Sóknarnefndin undir forystu Jóns Hjálmarssonar beitti sér á næstu árum fyrir endurgerðinni þó að hægt gengi. Viðbygging var gerð við húsið aftanvert og inngangshúsið að norðanverðu endurbyggt og nokkuð stækkað. Ekki tókst þó að ljúka því að gera húsið upp að innanverðu. Á endanum keypti Suðurnesjabær húsið og er enn í gangi endurgerð þess. Í framtíðinni mun húsið væntanlega verða notað til ýmis konar samkomuhalds og funda, m.a. á vegum Útskálakirkju.“

Heimild:
Guðjón Friðriksson, Facebook 14.10.1926.

Útskálar

Útskálar fyrrum.