Álfsnes – Vogar

Álfsnes - Vogar

Kotbýlið Vogur, eða réttara sagt leifar þess, norðan Leiruvogs, vestan Fitjakots, lætur ekki mikið yfir sér. Fyrrum virðist þar hafa útvegsbýli; bæjarhús með þremur burstum, lítilli rétt, brunni og fjárborg, auk varar með tilheyrandi mannvirkjum.

Vogar

Vogar.

Í Örnefnalýsingu yrir Víðines, næsta bæ vestan Vogs, segir: „Selalækur er í jarðfalli í mýrinni. Þar utar eru holt,sem nefnd eru Stóru-Smáholt. Þau eru þar utar fyrir ofan Voga, en Vogar er býli, sem Gísli Pálsson reisti niður við Leiruvoginn aðeins vestar Selalækjar, Litlu-Smáholt eru þar utar og ofar. Þetta er stórt samfellt mýrlendi og fátt um nafntilefni. Þar er næst Svartibakki, sem er bakki alveg niður við Leiruvog, mitt á milli holtanna, sem fyrr var getið.

Vogar

Vogar á Kjalarnesi (Álfsnesi).

Vestur af Svartabakka er svæði, holt, sem nefnt er Svörður. Ekki mun það vera gamalt nafn, heldur síðan hlutafélag var stofnað í Reykjavík til mótekju. Þar utar er eyri fram við sjó, sem heitir Slétteyri, og er þá komið rétt heim undir bæ [Víðinesi]. Bærinn stendur rétt upp frá vognum sunnan í Glóruholtinu.
Vestan við bæ er vík, sem heitir Nesvík. Þar utar tekur við nes, sem heitir Gunnunes, bungumyndað, gróðurlítið og afmarkast af Nesvík. Norðan þess er lægð þvert yfir. Í henni eru rústir eftir Sundakot, öðru nafni Niðurkot; þar var býli fram undir aldamót.

Vogar

Vogar – rétt.

Rétt vestur af oddanum á Gunnunesi og norðan í nesinu er Stekkur. Hann er hlaðinn, og túnblettur er þar í kring. Merkin móti Álfsnesi eru að vestan í svonefndar Fornugrafir. Milli Gunnuness og Þerneyjar er Þerneyjarsund.“

Þórður Kristjánsson, Drápuhlíð 15, kom í Örnefnastofnun 3. júní 1980, las örnefnalýsingu Víðiness og gerði við hana athugasemdir. Þórður er fæddur í Álfsnesi 1. nóv. 1917 og ólst þar upp til 1925, en þá fluttist faðir hans að Víðinesi og bjó þar til 1932.

Vogar

Vogar – brunnur.

„Leiruvogur var nefndur svo í máli gamals fólks, en sjálfur kallar Þórður hann Leirvog. Stóru- og Litlu-Smáholt hefur Þórður aldrei heyrt nefnd. En Þorlákur bróðir Þórðar var miklu eldri en hann og hefur því vel getað þekkt þessi nöfn.
Nafnið Svörður er frá stríðsárunum fyrri. Þá var þurrkaður þarna mór og síðan fluttur á bátum til Reykjavíkur. Nesvík heyrði Þórður aldrei nefnda.

Sundakot

Sundakot (Niðurkot). Þerney fjær.

Sundakot eða Niðurkot er nú friðlýst.
Hið merkilega er að hér er nefndur bærinn Vogar undir Stóru-Smáholtum. Tóftir bæjarins (kotsins) sjást enn sem og hringlaga mannvirki ofan við vörina. Auk þess ákveður skrásetjari að kynna Víðines sem „jörð í Kjalarneshreppi næstan vestan Fitjakots“. Fitjakot var hins vegar austast við norðanverðan Leiruvog. Engin örnefnalýsing er hins vegar til um kotið þrátt fyrir að túnakort hafi verið gert þar 1912.“

Heimild:
-Önefnalýsing fyrir Víðines. Ókunn. skrán.
-Örnefnastofnun. Athugas. Þórðar Kristjánssonar um Víðines.

Álfsnes

Álfsnes – loftmynd 2024.