Dimmadalsvarða

Dimmidalur

Á barmi Dimmadals ofan Breiðabólstaðar í Ölfusi er varða. Þessi varða er hvorki í Fornleifaskráningu né í örnefnalýsingu af svæðinu.

Dimmidalur

Varða ofan Dimmadals (ASS).

Varðan er ekki á landamerkjum Breiðabólstaðar og Litlalands og ekki við forna leið. Varðan virðist því fyrst og fremst vera ætluð til að vekja athygli á hinum athyglisverða Dimmadal [Dimmadalsvarða]. Skv. Jarðfræðikorti ÍSOR er dimmidalur forn gígur, hluti af stórri dyngju ofan Breiðabólstaðar.

Í örnefnalýsingu Eiríks Einarssonar fyrir „Vindheima og Breiðabólstað“ segir m.a.: „Bæirnir fyrir utan enda Hjallafjalls nefnast Hlíðarbæir. Þeir standa undir hlíðinni þar sem hún er aftur einföld, en tvöföld er hlíðin frá Þurá að Kerlingarbergi. Hér verður fjallað um örnefni beggja jarðanna í einum kafla. Bæirnir standa í breiðum hvammi undir hlíðinni. Mikil hæð er upp frá bæjunum og heitir Ásar. Þessir bæir eru nefndir Austur-Hlíðarbæir, og Austurbæirnir, sé miðað við Litlaland og Hlíðarenda, sem eru utar með hlíðinni.
Ofan dals þess, eða hvamms sem Austurhlíðarbæirnir standa í, er mikil hæð, allt inn að Krossfjöllum, og heitir Ásar, eins og áður er nefnt.

Breiðabólstaður

Breiðabólstaður ofanverður.

Skammt norður frá Hákarlsbyrgi er dálítil hæð sem heitir Rella. Uppi á henni stendur varða. Norður frá Rellu eru lægðir í röð, í stefnu suðaustur til norðvestur. Þær heita Fremsta-Vatnsstæði, Mið-Vatnsstæði og Innsta-Vatnsstæði. Suður frá Vatnsstæðunum, en vestan við Rellu er Rjúpnavarða á lítilli hæð. Norðvestar er Sauðabrekknavarða. Vestan við hana eru Sauðabrekkur, grösugar brekkur og smáhvammar móti suðvestri. Suðvestan við Sauðabrekkur er grasflöt ein, sem heitir Grútarbeyla, og litlir gilskorningar sunnan við hana. Vestan við Sauðabrekkur og Grútarbeylu er mikið mólendi, sem heitir Leirdalsmóar. Ná þeir vestur að Litlalandsmörkum og niður að Borgarlágum.

Dimmidalur

Dimmidalur.

Ofantil á Ásum, miðsvæðis, er þröngur dalur og hæðir kring um hann. Dalurinn heitir Dimmidalur, og er raunar gígur og Ásar hraundyngja. Hæðin kringum Dimmadal heitir Dimmadalshæð, gígbarmarnir. Austur frá Dimmadal, austan í Ásum, eru brekkur móti suðaustri. Þær heita
Merabrekkur, Innri-Merabrekka og Fremri-Merabrekka. Sunnan við Merabrekkur er mishæð dálítil sem heitir Ásahnúkur“.

Í lýsingu Jóns Svanþórssonar eftir ferð hans um Ólafsskarðsveg segir m.. um Dimmadal: „Dimmidalur er fallegur gígur og hluti af Ásum, sem eru móbergsásar og hraundyngja staðsett ofantil við bæinn Breiðabólstað í Ölfusi. Þetta svæði er ofan við Hlíðardal, í næsta nágrenni við Þorlákshöfn.Hér eru helstu staðreyndir um svæðið.

Ólafsskarðsvegur

Ólafsskarðsvegur – ÓSÁ.

Dalurinn sjálfur er í raun eldstöðvar/gosgígur sem er hluti af eldri jarðmyndunum á svæðinu (t.d. eldri en eldvarpið). Svæðið liggur ofan og norðaustan við Breiðabólstað. Þegar gengið er eftir gamla Ólafsskarðsvegi liggur leiðin framhjá hæðinni Ásum og ofan við Dimmadal. Svæðið og örnefni þess eru ítarlega skráð í örnefnasöfnunum sem varðveitt eru hjá Árnastofnun. Hægt er að kynna sér gönguleiðir og nákvæma staðhætti á svæðinu í skráningum Ferðafélags Íslands um Ólafsskarðsveg.
Ásar eða Dimmadalshæð er gamall eldgígur dyngja sem blasir við af Þrenslavegi. Í toppi dyngjunar er gígurinn Dimmidalur og við hann há varða sem sést bæði úr vestri og austri t.d. af Þrengslavegi. Rás er frá Dimmadal niður undir brún ofan við Vindheima sem var hjáleiga frá Breiðabólstað. Báðum megin við Ása myndast dalir. Austan megin er Torfdalur og Fagridalur að vestan. Önnur og minni dyngja er suðvestur af Ásum. Hún heitir Ás eða Litlalandsás með gíg í toppi. Heitir þar Stekkjardalur. Hlíðardalur er á milli Ás/Litlalandsás áð vestan og Lyngbrekkna að austan. Á mörkum Breiðabólsstaðar og Litlalands skammt ofan vegar, er dálítill hóll og í honum er Draugshellir. Þar hafast við draugur, ungur piltur sem glettist við ferðamenn, en rétt austan hellisins var áningarstaður langferðamanna í Rifjabrekkum. Fyrir nokkrum árum tóku nokkrir vaskir menn sig til og mokuðu út úr hellinum mold sem hafði lokað honum eins og hægt er að kynna sér á Ferlir.is (Draugshellir).

Heimildir:
-Örnefnalýsing fyrir Vindheima og Breiðabólstað – Eiríkur Einarsson 17. nóv. 1968.
-Jón Svanþórsson.
-Aðalskráning fornleifa í sveitarfélaginu Ölfusi, Áfangaskýrsla I, Reykjavík 2015.

Breiðabólstaður

Breiðabólstaður – jarðfræðikort ISÓR.