Eldstöðvakerfið sem kennt er við Fagradalsfjall

Fagradalsfjall

Eftirfarandi svar við spurningunni um „Eldstöðvakerfið sem kennt hefur verið við Fagradalsfjall“ birtist á Vísindavef Háskóla Íslands árið 2018:

Fagradalsfjall

Fagradalsfjall – kort.

„Fagradalsfjallskerfið er fyrst nefnt hjá Mary Gee.Hún dregur fram öll helstu einkenni þess, en það er um flest ólíkt öðrum eldstöðvakerfum á Reykjanesskaga. Kerfið er um fimm kílómetra breitt á milli Svartsengis- og Krýsuvíkurkerfanna. Lengdin er um 15 kílómetrar milli Keilis í norðaustri og Húsafjalls í suðvestri. Sérstaða þess felst í því að eiginlegur sprungusveimur tengist því ekki, og fátt er um misgengissprungur og gjár með norðaustur-suðvestur stefnu. Þar er ekki heldur að finna langar gossprungur. Hins vegar eru þar allmargar skjálftasprungur með norð-suðlæga stefnu. Háhitasvæði tengist því heldur ekki.

Jarðfræðikort

Fagradalsfjall – Jarðfræðikort ÍSOR.

Einkennandi gosmyndanir eru dyngjur eða ígildi þeirra, það er stapar, bólstrabergs- og móbergsstrýtur, sem og stuttar gossprungur og snubbóttir móbergshryggir. Langihryggur er þeirra lengstur, um tveir kílómetrar. Tvær stórdyngjur eru í kerfinu, Fagradalsfjall, raunar stapi, vart eldri en frá síðasta jökulskeiði, og Þráinsskjöldur frá síðjökultíma, sjá mynd. Aldursgreiningar á skeljum næst undir breksíuhluta Þráinsskjaldar á Vatnsleysuströnd gáfu aldurinn 12.620±55 og 12.605±50 kolefnisár sem samsvarar um 14.100 almanaksárum.

Ísland - ísöld

Ísaldarjökull síðasta jökulskeiðs náði hámarki fyrir um 20.000 árum. Spor eftir jökla sýna að einn stór jökulskjöldur hefur þá legið yfir öllu Íslandi og skriðið til allra átta frá hábungu á sunnanverðu hálendinu. Jökullinn fór yfir hæstu fjöll og rispaði kolla þeirra. Hann var allt að 1500 m þykkur um miðbik landsins en þynnri við ströndina. Nokkrir fjallatoppar gætu hafa staðið upp úr ísnum á Vestfjörðum, Mið-Norðurlandi og Austfjörðum. Yfir Reykjavík lá allt að 900 m þykkur jökull en óvíst er hvort Esjan var öll á kafi í ís.
Á þessum tíma var svo mikið af vatni Jarðar bundið í jöklum að sjávarborð var 120 m lægra en það er nú og þurrlendi þeim mun stærra um allan heim. Jökulskjöldurinn yfir Íslandi náði samt langt út í sjó og var því miklu stærri en allt landið er nú. Jökulgarðar sýna hve langt skriðjöklarnir náðu og jökulrispur á klöppum í hvaða átt þeir skriðu. Jöklar grófu djúpa dali og firði út á landgrunnið. Jökulbreiðan náði allt að 200 km út fyrir núverandi strönd og yfir eyjar við Ísland. Borgarísjakar brotnuðu frá jökulþiljum í jaðri breiðunnar og þá rak jafnóðum burt út á haf.

Land á Reykjanesskaga utanverðum hefur orðið íslaust á Bølling-Allerød hlýskeiði. Það hófst fyrir um 14.500 árum og lauk fyrir 12.500 árum. Eftir fylgdi 1000 ára kuldaskeið, yngri Dryas, með nýrri framrás jökuls. Þetta 3000 ára tímabil er oft nefnt síðjökultími og þá runnu elstu hraunin á utanverðum Reykjanesskaga, þar á meðal Þráinsskjöldur. Þegar hann myndaðist hefur sjávarborð verið um 35 metrum lægra en nú, en skilin milli hrauns og breksíuhluta í honum eru á því dýpi.
Að frátöldum stórdyngjunum eru 30-40 smáfell í Fagradalsfjallskerfinu. Þau eru þó ekki endilega mynduð í jafnmörgum gosum. Sex þeirra, þar á meðal Skála-Mælifell, eru úr öfugt segulmögnuðu, ólivínríku bergi. Aldursgreiningar sýna þau um 90.000 ára, frá segulflöktstíð sem kennd hefur verið við Skála-Mælifell. Af öðrum goseiningum kerfisins má nefna Festarfjall. Þar má sjá gosganginn í sjávarhömrum, Festina sem fæddi það. Gangur úr pikríti með stefnu á Lyngfell (einnig úr pikríti) sést í fjörustálinu nokkru austar en Festin, efalaust aðfærsluæðin. Gossprungan hefur í því tilviki verið um 700 metra löng. Bergið í goseiningum kerfisins er þóleiít, ólivínbasalt og pikrít.
Í kerfinu eru tólf gígar og stuttar gígaraðir frá eftirjökultíma, allt í því vestanverðu, nema ein dyngja á austurjaðrinum, norðan í Hraunsels-Vatnsfelli. Óvíst er hvort gos hafi verið jafnmörg.

Hnyðlingur

Hnyðlingur í Hrólfsvík.

Elst hraunanna er sennilega Hrólfsvíkurhraun, frægt fyrir fjölda hnyðlinga sem aðallega sjást í einu belti. Líklega hefur gosið byrjað í sjó og þá myndast túffbingurinn í Berjageira upp af Hrólfsvík. Sjór hefur eytt honum að hluta áður en hraunið úr Vatnsheiði lagðist að og varði hann fyrir frekara rofi.
Aðalgosreinin frá eftirjökultíma nær frá Vatnsheiði norðaustur fyrir Fagradalsfjall með tíu hraunum. Stærst þeirra, að undanskildum Þráinsskildi, eru smádyngjan Vatnsheiði, að mestu leyti úr pikríti, og Borgarhraun úr þóleiíti. Borgarhraun er upprunnið í fjórum gígum suðvestan í Fagradalsfjalli. Önnur hraun eru lítil, en erfitt er þó að ákvarða stærð þeirra, því að yngri hraun hafa lagst yfir þau vestan frá.

Björn Gunnlaugsson

Björn Gunnlaugsson – Suðvesturland á 19. öld.

Yngsta hraunið í kerfinu mun vera Beinavörðuhraun, en það er eldra en Reykjanesgjóskan R~6000.“

Hafa ber í huga að Reykjanesskaginn leit allt öðru vísi út fyrir 14.000 árum en hann gerir í dag. Þá var hann nánast samansafn af eyjum og hólmum, sem hraunin náðu síðar, smám saman, að sameina í þá samfellu, nesið, sem við þekkjum í dag. Samskonar myndun varð á Snæfellsnesi árþúsunum fyrr. Líklegt má telja að næsti skagi landsins verði frá virku gossvæðunum á Suðurlandi og nái að sameina eyjar Vestmannaeyjar í samfelldan skaga, þ.e. eftir u.þ.b. 2000 ár.

Heimild:
-https://www.visindavefur.is/svar.php?id=65697
-Kristján Sæmundsson, jarðfræðingur og fyrrverandi deildarstjóri á Orkustofnun.
-Magnús Á. Sigurgeirsson, jarðfræðingur.

Fagradalsfjall

Fagradalsfjall 2024.