Fjallið eina – hraunin umleikis
Fjallið eina er móbergshnjúkur (223 m.y.s.) skammt vestan við Krýsuvíkurveg, norður af Sveifluhálsi fyrir sunnan eða suðvestan Óbrinnishólabruna, neðan við gígsvæði Hrútagjárdyngju. Efst á kolli þess er grágrýtishraunsstapi, ágætt dæmi þess að fjallið hafi orðið til undir jökli síðasta jökulsskeiðs en gosið náð upp úr ísbreiðunni og kollurinn þá myndast.
Stórhöfðastígur liggur frá Ási um Hádegisskarð og Dalinn (Ásflatir), sniðhallt yfir Bleiksteinsháls, út á Selhraunið að Stórhöfða, upp með honum að vestanverðu uns hann beygir yfir Hellnahraunið yngra og Brunann í átt að Snókalöndum. Þar fer hann yfir Krýsuvíkurveginn og síðan suður hraunið upp að Fjallgjá, fylgir misgengisgjánni að Fjallinu eina, upp með því að austanverðu að austurjaðri Hrútagjárdyngju og með upprisuvegg hennar að Undirhlíðaleið.
Hrútagjárdyngjuhraun (um 5000 ára) umlykur Fjallið eina. Umleikis það til vesturs, norðurs og austurs eru yngri hraun. Fjallgjá er austari hluti landsigsmisgengis milli hennar og Sauðabrekkugjár.
Vestari snið þetta má sjá í gegnum Smyrlabúð, yfir mót Selgjár og Búrfellsgjár og um Hjallamisgengið í Heiðmörk. Austari sniðið liggur um Fjallsgjá, Helgadal, miðja Búrfellsgjá og Löngubrekkur. Ásýndin er ekki ólík því sem sjá má á Þingvöllum eða milli Hrafnagjár og Aragjánna í Vogaheiðinni.
Gígarnir ofan og vestan við Sauðabrekkugjá, en svo nefnist stórbrotin misgengissprunga með áberandi hamraveggjum sem eru lægri að austanverðu. Í lýsingu segir m.a.: „Sauðabrekkugígarnir urðu til við gos allnokkru eftir að Hrútagjárdyngjuhraunið rann. Hrauntungustígurinn liggur því sem næst yfir miðja gígaröðina“. Taka ber þessu með hæfilegum fyrirvara. Augljóst má telja að hraunið hafi runnið eftir Hrútargjárdyngjuhraunsgosið, enda um sprungureinagos að ræða. Þá hefur gosið verið bæði stutt og svolítið sætt, án þess þó að nokkur lifandi maður ætti þess kost að verja það augum fyrir u.þ.b. 1.600 árum. Hluti þess rann til stutt til norðurs og annar til austurs. Það náði að fylla gjá, sem þar er a.m.k. að hluta, en þó ekki alveg.
Kapelluhraun (syðsti hluti þess nefnt Nýibruni) er hluti af hraununum sem runnu á tímabilinu frá árið 1151 til um 1180 í Krýsuvíkureldum. Kapelluhraun er úfið apalhraun og rann úr gossprungu sem var alls um 25 km löng. Sunnan á skaganum rann þá einnig Ögmundarhraun í sjó fram. Kapelluhraun rann aðallega frá gígum við Vatnsskarð sem nú heyra sögunni til vegna gjallvinnslu. Í sama gosi rann hraun frá röð minni gíga sem liggur meðfram Undirhlíðum og norður um Gvendarselshæð, auk annarra smærri nálægra jaðarsettra hrauna líkt og sjá má austan og norðan við Fjallið eina. Dæmi um eina slíka staka „smáhraunslettuna“ norðan Fjallsins eina. Þótt hraunssvæðið sé ekki umfangsmikið er það tilkomumikið og sérstaklega áhugavert til nánari skoðunar.
Fjallið eina (Grétar Ó. Fells):
Leita ég afdreps um sléttunnar slóð.
Slétturnar engu leyna.
Ég þarf að fela mig fyrir þjóð,
finna mig sjálfan og yrkja ljóð,
minnast við mold og steina.
Þess vegna kýs ég að flýja á þinn fund
Fjallið mitt góða eina,
láta þig geyma mig, stytta mér stund
stirðnuðu vængjunum lyfta’ yfir grund,
gróðurreit mannlegra meina.













