Glymur – skilti
Við bílastæði ofan Stóra-Botns í Botnsdal er skilti með yfirskriftinni „Gönguleið að útsýmisstöðum við Glym„. Þar segir:
„Glymur í Botnsá er hæsti foss Íslands, um 198 metra hár. Botnsá rennur úr Hvalvatni og steypist úr um 300 m hæð yfir sjó niður í stutt en mjög djúpt gljúfur niður í Botnsdal. Hvalvatn er annað dýpsta stöðuvatn landsins, um 160 metra djúpt.
Gestum er velkomið að ganga – á eigin ábyrgð – eftir merktum stígum upp að útsýnisstöðunum Steðjanös og Hellupalli, þaðan sem fallegt er að horfa á fossinn falla niður í Gllymsgljúfur. Þeir sem vilja skoða gljúfrið og efri hluta fossins geta gengið áfram upp með glúfrinu. Fossinn sést ekki allur þótt nær sé farið, en heildarsýn ofan í gljúfrið er betri ofar við fossinn. Síðan er annað hvort gengið sömu leið niður eftir stígnum eða vaðið yfir ána um 300 m fyrir ofan fossinn. Þaðan er gengið niður vestan gljúfursins, eða auðveldari slóða vestur heiðarbrúnina og niður Svartahrygg.
-Góðir gönguskór eru nauðsynlegir.
-Leiðin að Glym er ekki hættulaus, þar sem bergið er víða laust í sér. Göngumenn ferðast á eigin ábyrgð.
-Víða er falhætta, sérstaklega þegar hált er og snjór og bleyta.
-Staur liggur yfir ána frá vori fram á haust, þannig að hægt er að ganga yfir þurrum fótum, nema í vatnavöxtum þarf að vaða að staurnum vestanmegin, þegar það er hægt. Hann er þó tekinn niður yfir veturinn vegna hálkuhættu á stígnum vegna snjóa, íss og aurbleytu og flóða sem gætu brotið hann. Staurinn getur verið blautur og háll – á öllum árstímum – og er ekki fyrir lofthrædda.

Þvottahellir (2). Í örnefnalýsingu fyrir Stóra Botn segir: „Austan við Gamlastekk í árgljúfrinu er Þvottahellir. Stór steinn á gljúfurbarminum vísar veginn að hellisopinu. Í þessum helli var stundum í ótíð þurrkaður þvottur“.
-Fossin sést aðeins austan árinnar og því þarf að fara yfir hana til að sjá hann.
-Áætlaður göngutími að Þvottahelli – og til baka; 1 klst.
-Áætlaður göngutími að útsýnisstöðunum Steðjanös og Hellupalli – og til baka; 3 klst.
-Mögulegt er að vaða yfir grýtta ána um 300 m fyrir ofan fossinn. Þá er gott að hafa vaðskó meðferðis. Síðan er gengið niður vestan gljúfursins, eða auðveldari slóða vestur heiðarbrúnina og niður Svartahrygg.
-Að bílastæðinu frá vaðinu er jafnlangt, um 3.5 km, hvort sem farið er vestan gljúfursins eða vestur slóðann Svartahryggsleiðina. Gönguleið um vaðið er 7.1 km.
-Frá bílastæði að vaði eru 3.6 km ef farið er austan árinnar að Glym.
-Göngum vel um landið.“












