Litla-Botnsel II

Litla-Botnssel

Í „Fornleifaskráningu í Hvalfjarðarstrandarhreppi“ frá árinu 2003 segir um annað sel frá Litla-Botni í Hvalfirði en Litla-Botnssel. Þetta sel á að hafa verið við Selá skv. uppgefnu hniti:

Litla-Botnssel

Litla-Botnssel II – loftmynd.

„Norður af Selfjallinu heyrði ég talað um, að hefði verið annað sel, en ekki veit ég , hvar það var, og er þess nú engin merki.“, segir í örnefnaskrá. Leitað var en ekkert fannst. Toppur Selfjalls er um rúmlega 1,5 km norðnorðvestur af bæ. Gil er á milli Selfjalls, sem er vestan við, og Háafells. Heybandsvegur lá fast austan við þetta gil, í hlíðum Háafells.
Land er aðeins gróið neðst í gilinu en austurhlíð Selfjalls er brött og gróðurvana þegar ofar dregur. Norðan við fjallið er tiltölulega flatlent og mosagróður með mýrarflóum á milli hálfgróinna ása og klapparholta.“

Litla-Botnssel I

Litla-Botnssel I.

Tóftir selsins sjást reyndar vel, en eru mun norðvestar en sagt er frá í fornleifaskráningunni, við litla nafnlausa tjörn af tveimur slíkum í Selflóa milli Brunnártjarnar og Fálkagilstjarna, vestan Einstökutjarnar. Sunnar er Selá og suðvestar Selfjall. Þarna nálægt eru einnig örnefnin Selfjallsdrög, Selfjallsenni, Selfjallsflói, Selfjallshali, Selfjallsnípa og Selgilsdrög. Um er að ræða eina stóra tóft og tvær minni.

Sjá meira um Litla-Botnssel I HÉR.

Heimild:
-Fornleifaskráning í Hvalfjarðarstrandarhreppi, Rvík 2003.

Litla-Botnssel

Litla-Botnssel – varða við selstígnum ofan Selárgils.