Gönguleiðakort af Reykjanesskaga – FSS

Ferlir

Í Morgunblaðinu 30. júní 2004 segir af „Nýju útivistarkorti af Reykjanesi„, útgefið af Ferðamálasamtökum Suðurnesja (FSS). Kortið er byggt á ljósmyndum og sýnir fornar gönguleiðir og áhugavera staði, reyndar ekki einungs á Reykjanesi heldur og á Reykjanesskaganum. Loftmyndir ehf gáfu út útivistarkortið, en það er unnið í samvinnu við gönguleiðahóp Ferðamálasamtaka Suðurnesja. Með stuðningi sveitarfélaga og fyrirtækja var kortinu dreift inn á öll heimili á Suðurnesjum.

Reykjanesskagi

Nýtt útivistarkort af Reykjanesi er byggt á ljósmyndum Loftmynda ehf. hafa gefið út útivistarkort af Reykjanesi. Kortið er unnið í samvinnu við gönguleiðahóp Ferðamálasamtaka Suðurnesja. Með stuðningi sveitarfélaga og fyrirtækja verður kortinu dreift inn á öll heimili á Suðurnesjum. Kristján Pálsson, Arnar Sigurðsson og Reynir Sveinsson sýna nýtt útivistarkort af Reykjanesi. Því verður dreift á heimili Suðurnesjamanna.

„Stjórn Ferðamálasamtaka Suðurnesja skipaði hóp til að vinna að gerð gönguleiðakorts fyrir svæðið. Í framhaldinu var tekin upp samvinna við Loftmyndir ehf. sem tóku að sér að gefa kortið út. Kortið er byggt á loftljósmyndum af Reykjanesskaganum og færðar inn á það ýmsar upplýsingar. Þar eru sýndar 22 númeraðar fornar gönguleiðir auk Reykjavegarins og fjölda smærri gönguslóða. Merktir eru 39 áhugaverðir staðir auk 33 fornra selja og 24 hella. Á bakhlið kortsins eru hagnýtar upplýsingar um gönguleiðirnar og staðina auk jarðfræðiupplýsinga um svæðið.
Kristján Pálsson, formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja, tók fram á fundinum að upplýsingarnar væru allar unnar af fólki sem gengið hefði þessar leiðir og væru þær því áreiðanlegar.

Reykjanesskagi

Gönguleiðakort um Reykjanes (á reyndar að vera „Um Reykjanesskaga“).

Kortið verður til sölu í verslunum Pennans og víðar. Ferðamálasamtökin, Hitaveita Suðurnesja, Reykjanesbær, Sveitarfélagið Garður og Sandgerðisbær kaupa ákveðið upplag og dreifa frítt til sex þúsund heimila á Suðurnesjum í næstu viku. Reynir Sveinsson, varaformaður Ferðamálasamtakanna, segir að markmiðið með því sé að hvetja Suðurnesjamenn til að ganga um svæðið og upplifa einstæða náttúru þess. Ánægðir heimamenn muni síðan láta það spyrjast út.
Arnar Sigurðsson hjá Loftmyndum ehf. segir að fólk fái mun betri tilfinningu fyrir staðháttum með korti sem byggist á ljósmyndum heldur en teiknuðum kortum og þau séu nákvæmari og því öruggari.

Reykjanesskagi

Reykjanesskagi – loftmynd Loftmynda ehf.

Loftmyndir munu halda áfram að þróa kortið og upplýsingarnar í samvinnu við Ferðamálasamtökin.“

Þann 09.06. 2006 birtist eftirfarandi frétt á Víkurfréttum:
„Nýlega var gefið út í samstarfi við Loftmyndir ehf. og sveitarfélög á svæðinu útivistarkort til að kynna fjölbreyttar stikaðar gönguleiðir um Reykjanesskagann. Kortið sýnir tugi kílómetra af stikuðum leiðum þar sem notast er við einkennandi appelsínugula stika samtaka og samstarfsaðila.

Samkomulag um vöktun gönguleiða á Reykjanesi

Reykjanesskagi

Mynd frá vinstri: Þórhallur Ólafsson forstjóri Neyðarlínunnar, Kristján Pálsson, formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja og framkvæmdastjóri Girðis.

Ferðamálasamtök Suðurnesja, Neyðarlínan og Girðir ehf hafa undirritað samkomulag um að Neyðarlínan taki að sér vöktun stikaðra gönguleiða á Reykjanesinu. Ferðamálasamtökin hafa haft forgöngu um að stika gönguleiðir á Reykjanesinu og er það verk komið vel á veg um þessar mundir.
Þegar verkefninu lýkur verða 23 gönguleiðir stikaðar með stikum Ferðamálasamtakanna samtals um 357 km að lengd.
Stikurnar eru appelsínugular að lit og er hver stika merkt með upphafsstöfum gönguleiðarinnar og númeri stikunnar.

Skógfellavegur

Skógfellavegur.

Leiðirnar eru mjög misjafnlega langar og sem dæmi þá er Ketilstígur sem liggur frá Seltúni í Krýsuvík að Reykjavegi 4,5 km langur merktur með 56 stikum frá 1-56 og á hverri stikur eru upphafsstafir stígsins KETIL.

Annað dæmi er Skógfellavegur milli Grindavíkur og Voga sem er 16 km langur með 228 stikur frá 1-228 hver stika með upphafsstöfunum SAND. Bilið á milli stika er um 70 metrar. Allar stikurnar á leiðunum eru mældar út með GPS tæki og stígarnir hnitaðir niður eftir stikunum. Það er fyrirtækið Girðir ehf sem hefur tekið að sér að setja stikurnar niður, mæla þær út og merkir.

Fornagata

Fornagata í Selvogi.

Neyðarlínunni hafa verið afhent hnitin af öllum þeim stikum sem komnar eru og mun Neyðarlínan hér eftir aðstoða þá sem lenda í villu eða óhappi á fyrrnefndum gönguleiðum og hringja í númar Neyðarlínunna 112.

Frekari upplýsingar um gönguleiðirnar fást á Upplýsingamiðstöð Reykjaness, hjá Ferðamálasamtökum Suðurnesja, Saltfisksetrinu í Grindavík, Byggðasafninu í Garði, Fræðasetrinu í Sandgerði og á www.reykjanes.is. Gönguleiðirnar eru merktar á gönguleiðakorti Ferðamálasamtakanna, Reykjanes, sem selt er í bókabúðum og upplýsingamiðstöðvum.“

Sjá meira HÉR.

Heimildir:
-https://timarit.is/files/42050234
-mbl, 30.06.2004, Útivistarkort af Reykjanesskaga, bls. 16.
-https://www.vf.is/frettir/samkomulag-um-voktun-gonguleida-a-reykjanesi

Hellugata

Helllugatan vestan Vogsósa.