Grændalahellir – Grændalavarða
Í „Aðalskráning fornleifa í Sveitarfélaginu Vogum – Áfangaskýrslu III“ frá árinu 2016 er m.a. fjallað um „Grændalahelli“ og „Grændalavörðu„. Þar segir m.a.:
„Norðaustur af Virkishólum eru Draugadalir. Þar eru einnig Grændalaflatir, Grændalir og Grændalavarða,“ segir í örnefnaskrá.
„Á einum hraunhólnum er varða sem heitir Grændalavarða og við þennan hól sunnanverðan er fjárskjól með hleðslum sem heitir Grændalahellir eða Loftsskúti og snýr op þess í suðurátt,“ segir í bókinni Örnefni og gönguleiðir.
„Í síðari heimildinni er Loftsskúta og Grændalahelli slegið saman í eitt en Loftsskúti er 1,2 km sunnan við Grændalahelli og er um tvo aðgreinda staði að ræða. Fjárskýli eru á þeim báðum. Grændalahellir er norðan í hólnum sem Grændalavarða er á og gengið er inn að norðan til suðurs.
Hellirinn er um 100 m suðaustan við steyptan stöpul frá Landmælingum sem sést greinilega frá Reykjanesbraut. Hann er um 2 km ANA við Hvassahraunsbæinn. Umleikis er gróið hraun. Fjárskýlið er að mestu náttúrulegt. Hellirinn er 11-12 m á lengd og 3-4 m á breidd. Hæstur er hann 1,6-1,8 m en hallar mikið inn á við. Fyrir framan hellinn er náttúruleg hraunbrún sem afmarkar hann en ofan á henni er grjót og hleðslur á stöku stað. Skarð er í hraunbrúnina á einum stað.
Grændalavarðan er alveg hrunin og ekki sést steinn yfir steini. Varðan hefur líklega vísað á fjárskýlið í Grændalahelli en hún er líka á eða nærri merkjum og kann að hafa gegnt hlutverki landamerkjavörðu.“
Sjá meira HÉR.
Heimild:
-Aðalskráning fornleifa í Sveitarfélaginu Vogum – Áfangaskýrsla III, 2016.












