Hrauntún – Litla Hrauntún
Eftirfarandi fróðleikur um Hrauntún og Litla-Hrauntún er ritaður af Gunnari Grímssyni, fengin af vefsíðunni „Þingvellir.is„:
„Hrauntún er eyðibýli í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Það er staðsett í miðri sigdældinni í norðanverðu Þingvallahrauni milli Sleðaásgjár og Hlíðargjár og tæpum tveimur kílómetrum sunnan Ármannsfells.
Við skrif Jarðabókar Árna Magnússonar og Páls Vídalíns 1711 var Hrauntún aðeins örnefni í skóginum. Þar var að sögn búið til forna en bærinn lagðist samkvæmt munnmælum í eyði í plágunni miklu og þar hafi síðar verið selstaða frá Þingvallabæ. Annað Hrauntún – síðar nefnt Litla-Hrauntún – hafi þá og verið nokkuð norðaustar og „skammt eitt þar í frá“; var það einnig talið aflagt í plágunni.
Nýbýli var stofnað í Hrauntúni 1830 sem hjáleiga Þingvallabæjar. Það hélst í byggð í rúm 100 ár en var aflagt 1935 í kjölfar þjóðgarðsmyndunar. Þar bjuggu þrjár kynslóðir sömu fjölskyldu sem ræktuðu sæmilegt býli úr nánast engu, hlóðu mikla grjótgarða og varðveittu um leið stóran hluta þekktra örnefna í og við þjóðgarðinn á Þingvöllum.
Hrauntúnsbærinn
Sigurveig Guðmundsdóttir, sem dvaldi ásamt móður sinni í Hrauntúni sumarið 1919, lýsir húsakynnum Hrauntúnsbænda í grein sinni Sumar í Hrauntúni sem kom út í Lesbók Morgunblaðsins 26. desember 1984: „Mitt í þessu fagra ilmandi grængresi reis bærinn Hrauntún, hlýr og vinalegur eins og torfbæir einir gátu orðið. Tvær burstir sneru til suðurs fram á hlaðið og bæjargöngin á milli. Baðstofan var með einum sexrúðu glugga á stafni og tveggja-rúðu glugga til vesturs. Stofan var með þrísettum glugga og klædd bárujárni. Baðstofan með eldhúsið og fjósið afturaf var allt klætt torfi.
Vandlega hlaðin stétt úr hraunhellum var fyrir framan bæinn. Hlaða, fjárhús og skemma með þvottahjalli lágu við heimtraðirnar sem lágu í norður í átt að Ármannsfelli. Þrennir fjárhúskofar voru dreifðir um túnið. Austur af túninu var afgirt gerði sem notast var við sem kúahaga. Brunnhola var vestan undir baðstofuveggnum.“
Um stofuna í bænum ritar Sigurveig: „Virðulegasti staður Hrauntúnsbæjar var stofan. Hún var svo virðuleg að fyrstu dagana þorði ég ekki að líta þar inn. Við veggi hinnar blámáluðu stofu stóðu bókaskápar frá gólfi til lofts, bækur á borði, bækur á kistum, allt fullt af bókum, margar í skínandi nýju skinnbandi, gamlar bækur, sögubækur, fræðibækur, tímarit, guðsorð, nýtt og gamalt.“
Staðhættir og örnefni í túni
Rústir Hrauntúnsbæjarins standa í miðju túninu. Inngangur er á suðurhliðinni, við stóran matjurtagarð sem er áfastur húsgrunninum að framan. Brunnur er hjá vesturhliðinni; þar er enn hægt að nálgast regnvatn á vorin. Skammt vestan við brunninn eru óljósar mannvirkjaleifar á lágum grasbölum.
Heimreiðin liggur að norðausturhorni bæjarins og eru grjóthlaðnar traðir meðfram henni. Þær eru nú nokkuð kjarrgrónar. Flóruð stétt er við traðarendana við bæinn og þar glittir í húsgrunna ýmissa skúra. Sunnan við stéttina eru stórar mannvirkjaleifar með niðurgröfnum kjallara og suðaustan þeirra er útihús.
Hrauntún er umgirt tilkomumiklum, ferhyrndum grjótgarði, ríflega 200×200 m á stærð, víða mannhæðarháum en sums staðar hefur hann látið undan trjágróðri. Garðurinn hefur að líkindum verið hlaðinn og færður út í mörgum áföngum og má glöggt greina legu eldri garðbúta í túninu, sérstaklega að norðan- og sunnanverðu. Nokkrar grjóthrúgur eru í túninu og eru þær líklegast þar vegna túnræktar.
Innan þessa grjótgarðs er þvergarður sem aðskilur eystri þriðjunginn frá túninu. Þar var hagi fyrir kýr.
Norðaustast í honum er grjóthlaðin rétt og mannvirkjabrot. Þar sunnan við eru forvitnilegar þústir og er ekki óhugsandi að þar leynist forn mannvirki, þótt ekkert verði fullyrt um það að sinni.
Suðaustan í túninu er hóll sem kallast Birgishóll og sunnan hans, upp við túngarðinn, stendur lítið útihús með hlöðu. Vestan túngarðsins er smáhóll og á honum er Litlavarða, um 120 cm há. Suðvestan af henni er Hellishóll og í honum er jarðfall og afar grunnur skúti, tveggja til þriggja metra djúpur. Þar við eru aðrar tvær vörður.
Ítök og nytjar
Hrauntún var hjáleiga í landi Þingvalla og deildi því óskiptum landgæðum milli Þingvallabæjar og annarra hjáleigna hans. Skógarnytjum milli Hrauntúnsbænda og Skógarkotsbænda var þó skipt við Markavörðu, hér um bil mitt á milli bæjanna. Hrauntún átti ekki veiðirétt í Þingvallavatni.
Hrauntúnsbændur söfnuðu mestmegnis kalviði úr skóginum til eldsneytis en skammt austan Hrauntúns er örnefnið Kolgerðir. Þar hefur eflaust verið gert til kola áður fyrr. Norðaustan Kolgerða eru sjónarhólar frá bænum sem nefnast Skyggnirar og Háskyggnirahólar.
Slægjur áttu Hrauntúnsbændur á Hofmannaflöt við Ármannsfell. Einnig hafa bændurnir slegið Sláttubrekku í Ármannsfelli og Biskupsflöt inn við Mjóafell, auk fjölda annarra grasbletta í skóginum. Stundum var farið lengst inn í Sæluhúsaflóa og Brunna til slægna.
Tveir stekkir voru notaðir frá Hrauntúni. Annar þeirra hét Gamli-Stekkur, 900 metrum austan bæjarins. Hinn hét Nýi-Stekkur, neðan við Stóragil í Ármannsfelli í tveggja kílómetra fjarlægð. Fjárgeymslu átti Hrauntún í Lambagjá, rétt norðan bæjarins. Það er þó ekki gjá heldur aflöng, sprungin hraunklöpp með grjóthleðslum fyrir báða enda.
Fjárhellir bæjarins var við Gapahæðir suðaustan Hrauntúns, [nefndur Gapi. Í Gapahæðum er einnig Gapahæðahellir, ílangt frjárskjól]. Engar selstöður eru kenndar við Hrauntún en sunnan Gapahæða eru tveir hólar sem kallast Selhólar. [Þar er Sigurðarsel].
Samgöngur til og frá Hrauntúni
Hrauntún var úr alfaraleið fram til 1910, þegar Nýja-Hrauntúnsgata var rudd fyrir vagna og bifreiðar. Gata þessi liggur frá Skógarkoti og norður til Hrauntúns, sveigist þar meðfram norðvestanverðum túngarðinum og að bæjartröðunum.
Áður fyrr var farið til Skógarkots um Hrauntúnsgötu; hún liggur ögn austar í landinu og hefst við suðausturhorn túngarðsins í Hrauntúni. Þar við er einnig upphaf Gaphæðaslóða sem liggja í suðaustur að fjárhelli bæjarins við Gapahæðir.
Stekkjargata bæjarins – sem ber ekkert nafn – liggur beint austur frá Hrauntúni að Gamla-Stekk undir Stórhólum. Gatan er vörðuð að hluta til og heita tvær þeirra næst bænum Skyggnisvarða og Hálfavarða. Frá Gamla-Stekk virðast einhverjir slóðar liggja áleiðis að Prestastíg.
Heybandsvegur Hrauntúnsbænda heitir Víðivallagata og liggur norðaustur af bænum um Víðivelli inn að Hofmannaflöt, þar sem heyjað var. Gatan er nú gróin og illgreinanleg á köflum en hefur verið endurheimt inn að Brúnavörðu.
Norður af bænum liggur malarslóði og kallast Réttargata. Liggur hún að gömlu skilaréttinni við Sleðaás en nyrðri hluti hennar er ekki malarboinn. Leiðir tvístrast miðja vegu milli Hrauntúns og Ármannsfell og liggur eystri gatan, sem er malarborin, til norðausturs að Sandskeiðum.
Vestur af Hrauntúni, norðan Þrívarðna, liggur ógreinileg leið í gegnum Þrívarðnaskóg og niður bergrima á Sleðaásgjá sem nefnist Jónsstígur. Leiðin er almennt kennd við stíginn og liggur áleiðis að Leynistíg á Almannagjá.
Norðan leiðarinnar má sjá móta fyrir öðrum götuslóðum sem virðast stefna í átt að Sleðaási og Ármannsfelli um Löngulág. Hér gæti forn alfaraleið hafa legið niður til Þingvalla. Á þessum slóðum er Stóravarða og skammt austar, nálægt Réttargötu, er Gráavarða.
Að lokum liggur Leiragata frá Hrauntúni í suðvestur og fer um Leirastíg á Leiragjá. Hana fóru Hrauntúnsbændur er þeir þvoðu þvott og ull við Leiralæk, þá er hann rann óbeislaður um Leirar. Leiragata sameinast Nýju-Hrauntúnsgötu skammt vestan Hrauntúns.
Hraunbúarnir í Hrauntúni – Halldór Jónsson
Hrauntún var byggt að nýju 1830 af Halldóri Jónssyni (1796–1872) frá Eyrarsveit á Snæfellsnesi, vinnumanni séra Björns Pálssonar Þingvallaprests sem hafði þá nýtekið við prestkallinu.
Halldór er sagður hafa reist býlið ofan á gömlu seltóftum Þingvallabænda en gamla bæjarstæðið – Gamla-Hrauntún – hafi verið skammt norðaustar. Engin frekari vitneskja hefur varðveist um þær mannvirkjarústir. Halldór var kvæntur Maríu Jónsdóttur (fædd um 1782, dáin milli 1845–1850) og síðar Guðrúnu Gísladóttur (1816–1867).
Búskapurinn á Hrauntúni einkenndist af miklum harðindum fyrstu áratugina.
Bústofninn hafi í fyrstu talið þrjár ær og túnbletturinn gaf aðeins fimm hestburði af töðu.
Halldór ræktaði landið síðan af kostgæfni næstu 40 árin og lagði grunninn að sæmilegu meðalbýli, með háum grjótgörðum og túnbletti sem var ræktaður úr nánast engu. Halldór var sæmdur heiðurspeningi („Ærulaun iðni og hygginda“) af Danakonungi árið 1868 fyrir dugnað og hagsýni í búskap og sinnti Halldór hreppstjórastörfum fyrir Kristján Magnússon í Skógarkoti seinustu æviárin.
Jónas Halldórsson
Við andlát Halldórs Jónssonar 1872 var Hrauntún gert að tvíbýli. Tók sonur Halldórs, Jónas Halldórsson (1853–1922), við öðrum helmingnum aðeins 18 ára að aldri. Hinn helmingurinn fór alls til fjögurra annarra bænda. Enginn þeirra dvaldist þar langdvölum. Einn af þeim hét Tómas Jónsson, áður bóndi á Kárastöðum til áratuga. Hann varð úti í kafaldsbyl í janúar 1883.
Eftir það hefur Jónas Halldórsson séð alfarið um búskapinn í Hrauntúni og var þar bóndi næstu 50 árin.
Hann var kvæntur Hólmfríði Jónsdóttur (f. 1845).
Jónas var rammur að afli og atorkusamur. Hreppstjóri Þingvallasveitar varð hann 25 ára gamall og sinnti því nær alla sína tíð. Fyrir þrítugt vann hann að meiri háttar vegbótum á Kjalvegi og hlóð veginn upp Sandkluftir. Einnig vann hann þreytulaust að grjótgarðinum mikla í Hrauntúni. Jónas var þekktur fyrir sérlyndi og var svo mikill bókasafnari að gestir áttu ekki orð er þeir komu í stofu bæjarins.
Halldór Jónasson
Halldór Jónasson (1878–1969) tók við Hrauntúni að föður sínum látnum 1922 og hélt þar búskap fram til 1935, þegar byggð lagðist af í Þingvallahrauni í kjölfar þjóðgarðsmyndunar. Húsakynnin voru rifin þremur árum síðar. Halldór rak síðar fornbókaverslunina Bókaskemmuna í Reykjavík; hann lést 1969 og er grafinn í Þingvallakirkjugarði.
Halldór vann um 20 ára skeið að vegabótum á hálendinu og var um það rætt (sbr. Árbók Ferðafélags Íslands 1930, bls. 65), að enginn hafi dvalið lengur í óbyggðum – 500 nætur – en Halldór, að Fjalla-Eyvindi undanskildum. Halldór varðaði Kjalveg, ruddi Kaldadal, Uxahryggi og Leggjabrjót sem og Arnarvatnsheiði og Grímstunguheiði.
Ásgeir Jónasson
Vert er að minnast á bróður Halldórs, Ásgeir Jónasson skipstjóra, í þessari umfjöllun. Ásgeir var þaulkunnugur sínum heimahögum og ritaði tvær greinar í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags á 4. áratug 20. aldar. Sú fyrri, Örnefni í Miðfellshrauni og á Miðfellsfjalli í Þingvallasveit, kom út 1932 og hin, Örnefni í Þingvallahrauni, árið 1939. Örnefnaskrár þessar – og sérstaklega hin síðarnefnda – eru einstaklega áreiðanlegar og geta lesendur hæglega notað þær sem leiðarvísa á göngu sinni í hrauninu. Með skrifum þessum tryggði Ásgeir Jónasson áframhaldandi varðveislu örnefna í og við þjóðgarðinn á Þingvöllum.
LITLA-HRAUNTÚN
Fram kemur í skrifum Gunnars að „Litla-Hrauntún er eyðibýli í norðanverðum úthjörum Bláskóga. Það er staðsett hér um bil miðja vegu á milli Ármannsfells og Hlíðargjár, rétt sunnan við varnargirðingu þjóðgarðsins á Þingvöllum og þremur kílómetrum fyrir norðaustan eyðibýlið Hrauntún. Litla-Hrauntún er jafnframt sagt vera upp við hluta af hinum forna Hrafnabjargavegi sem liggur á milli Víðivalla og Prestastígs.
Munnmæli úr Þingvallasveit herma að búið hafi verið í Litla-Hrauntúni til forna, en þar má einnig finna vísbendingar um seljabúskap.
Bakgrunnur
Í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns frá 1711 er getið um tvö Hrauntún í Þingvallaskógi. Annað Hrauntúnið var talið hafa farið í eyði í plágunni miklu en þar hafi síðar verið reist selstaða frá Þingvöllum. Hitt Hrauntúnið, sem hér kemur við sögu, var sagt vera „í skóginum í norðaustur af þessu og skammt eitt þar í frá“ og þar sjáist til „girðinga svo sem af túngarði.“ Þar hafi byggð að sögn einnig lagst af í plágunni miklu, en að öðru leyti hafa engar áreiðanlegar sögur varðveist af staðnum. Ekki kemur fram hvers vegna tvö aðskild eyðibýli í skóginum gengu undir sama nafni eða hvort að þau hafi kallast eitthvað annað til forna.
Í sóknarlýsingu séra Björns Pálssonar Þingvallaprests frá 1840 er Hrauntúnið síðarnefnda sagt „suður af Mjóafelli“ og kallað Litla-Hrauntún, eflaust til aðgreiningar frá syðra Hrauntúninu sem þá var komið í byggð á nýjan leik.
Sigurveig Guðmundsdóttir, sem dvaldist á barnsaldri í Hrauntúni sumarið 1919, minnist þess að hafa verið bent á Litla-Hrauntún einu sinni. Sigurveig minnist þess einnig að ganga um engjaveginn milli Hrauntúns og Hofmannaflatar til að færa sláttumönnum kaffi í brúsa. Henni var bannað að stíga út af veginum, því þá myndi hún villast í hrauninu.
Sigurveigu fannst það einnig óráðlegt, „því að þarna úti í hraunhólunum voru fornar rústir, enginn vissi hve gamlar. Þar gat verið reimt og hollast að halda sig sem lengst frá slíkum stöðum.“ Líklegt er að þar hafi hún átt við Litla-Hrauntún.
Guðmundur Davíðsson, umsjónarmaður á Þingvöllum á þriðja áratug 20. aldar og síðar fyrsti umsjónarmaður þjóðgarðsins, segir Litla-Hrauntún vera „langt norður á Þingvallahrauni, um það bil mitt á milli Ármannsfells og Hlíðargjár,“ nánar tiltekið í útjaðri skógarins og að þar séu leifar tveggja fornra bæjarstæða, sem heita hvort tveggja Litla-Hrauntún.
Séra Guðmundur Einarsson, sóknarprestur á Þingvöllum 1923–1928, telur sig hafa séð skálabyggingu fornmanna „norðaustur í hrauninu frá Hrauntúni að sjá“, sem hann telur „víst að sé innan girðingarinnar“. Ekki er ljóst hvort hann eigi þar við um Litla-Hrauntún eða allt annan stað.
Samkvæmt örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar frá Hrauntúni er Litla-Hrauntún sunnan á Mjóafellshrauni, sem er betur þekkt sem Skjaldbreiðarhraun, og þar sjást „auðsjáanleg tóftarbrot og grasblettur.“ Engin örnefni hafa varðveist í næsta nágrenni við Litla-Hrauntún fyrir utan tvö refagreni.
Matthías Þórðarson þjóðminjavörður lýsir mannvirkjum Litla-Hrauntúns stuttlega í bók sinni Þingvöllur – alþingisstaðurinn forni frá 1945. Nefnir hann fyrst bæjarstæði sem hann telur vera seltóftir frá síðari öldum. Um 40 metrum norðan við þær greinir Matthías frá mjög fornlegum tóftum, líklega seltóftum, sem skiptast í tvö hólf og hringlaga mannvirki við hliðina á þeim. Að lokum minnist hann á fornlega, þrískipta bæjartóft um það bil 100 metrum austar. Matthías friðlýsti Litla-Hrauntún 1927.
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, sem skrásetti á sjöunda hundrað örnefna í Þingvallasveit á 9. áratug 20. aldar, segir Litla-Hrauntún á milli gömlu og nýju varnargirðinga þjóðgarðsins og skammt austan Víðivalla sem eru við rætur Ármannsfells. Þar að auki liggi forn leið fram hjá bæjarrústunum í átt að Hrafnabjörgum og þaðan yfir Hrafnabjargaháls [Prestastígur].
Leitin að Litla-Hrauntúni
Litla-Hrauntún var merkt inn á öll helstu kort af Þingvallasveit á 20. öld, en á mörgum mismunandi stöðum. Nákvæm staðsetning Litla-Hrauntúns var því lengi vel á reiki og var það í raun talið týnt í byrjun 21. aldar. Ekki var hlaupið að því að staðsetja Litla-Hrauntún, því Þingvallahraun er erfitt yfirferðar og vandasamt getur verið að greina ummerki fornleifa innan um birkiskóga og lynggróður. Ekki bætir úr skák að eyðibýlið er langt frá alfaraleiðum. Auk þess á það sér enga ritaða sögu og gæti því hafa fallið í skuggann af öðrum minjastöðum í nágrenninu.
Hekla Þöll Stefánsdóttir fornleifafræðingur merkti hluta af rústum Litla-Hrauntúns sumarið 2012 í óbirtri skráningarvinnu fyrir Margréti Hrönn Hallmundsdóttur fornleifafræðing og þjóðgarðinn á Þingvöllum. Fjórum árum áður hafði félagið FERLIR merkt Litla-Hrauntún á öðrum stað tæpum kílómetra austar, skammt norðan við varnargirðingu þjóðgarðsins og upp við efri hluta Hrafnabjargavegar [Prestastígs] sem liggur milli Hlíðargjár og Hofmannaflatar.
Gunnar Grímsson, þá nemi í fornleifafræði, staðsetti Litla-Hrauntún í sjálfstæðri leit sumarið 2018, en hann vissi þá ekki af skráningu Heklu Þallar.
Gunnar notaði flygildi til að myndmæla stórt landsvæði milli Ármannsfells og Hlíðargjár og útbjó síðan samsetta loftmynd og hæðarlíkan úr fjölda loftljósmynda. Túlkun hans á myndþekjunum leiddi í ljós útlínur fornra mannvirkja sem voru í samræmi við lýsingar Matthíasar Þórðarsonar af Litla-Hrauntúni frá 1945.
Uppgötvun Gunnars varð hvati að borkjarnarannsókn haustið 2019 undir stjórn Margrétar Hrannar Hallmundsdóttur fornleifafræðings, sem vann þá að rannsóknum í þjóðgarðinum. Borað var í nokkrar mögulegar rústir sem höfðu greinst á myndgögnum og staðfest að þar eru fornleifar.
Litla-Hrauntún – staðarlýsing
Rústir Litla-Hrauntúns eru í 200 metra hæð yfir sjávarmáli og standa á kjarr- og lynggróinni hraunbreiðu sem hallar lítillega til suðurs. Óljós götuslóði liggur til suðausturs fram hjá rústunum og gæti hann verið hinn forni Hrafnabjargavegur [Prestastígur].
Litla-Hrauntún í frumheimildum
Svo segir í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns frá 1711 (útg. 1981, bls. 366): „Hrauntún hefur kallað verið örnefni eitt í skógnum, sem munnmæli eru að bygt hafi verið fyrir pláguna, meinast síðan í plágunni í eyði lagst hafa og allajafna síðan í auðn verið. Hefur hjer í þessu takmarki selstaða verið frá Þingvöllum svo lángt fram sem menn til muna og er enn nú, og vita menn ekkert framar hjer um að undirrjetta.
Annað Hrauntún hefur og kallað verið í skóginum í norðaustur frá þessu og skamt eitt þar í frá, og sjer þar til girðinga svo sem af túngarði. Meinast þetta Hrauntún eins bygt verið hafa fyrir pláguna sem hið fyrra, en hvert bæði Hrauntúnin hafi undir eins bygð verið, eður hafi bærinn fluttur verið og bíhaldið svo nafninu, það hafa menn ekki heyrt, og meinast þetta Hrauntúnið með sama móti eyðst hafa í plágunni sem hið fyrra. Hjer um vita menn ekki heldur framar að segja.“
Séra Björn Pálsson Þingvallaprestur segir Litla-Hrauntún vera „suður af Mjóafelli“ í sýslu- og sóknarlýsingu Þingvallaprestakalls 1840 (útg. 1979, bls. 186).
Brynjúlfur Jónsson fornfræðingur getur Litla-Hrauntúns í samhengi við eyðibýlin Grímsstaði og Hrafnabjörg í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1905, bls. 45: „Önnur forn bæjarrúst er í hrauninu langt suðvestur frá Kluftum. Þar heitir Litla-Hrauntún. Eigi sér þar vatnsból og eigi er þar heldur túnstæði.“
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939: „Sunnan á Mjóafellshrauni eru auðsjáanleg tóftarbrot og grasblettur. Það heitir Litla-Hrauntún, og hefur þar líklega bær verið.“
Matthías Þórðarson þjóðminjavörður segir svo í riti sínu Þingvöllur – alþingisstaðurinn forni, 1945, bls. 81–82: „Gömul eyðibýli eru allmörg í Þingvallasveit, og skal hér getið nokkurra, sem eru í Þingvallalandi. Nyrzt er Hrauntún, nefnt Litla-Hrauntún. Sér þar fornar tóftir á 3 stöðum.“
Matthías vitnar síðan beint í Jarðabókina, en bætir við athugasemd í neðanmálsgrein um selstöðuna í Hrauntúni: „Tóftirnar bera nú með sér, að þar hafi ekki verið sel æði lengi.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, segir svo í sveitarlýsingu Gunnars Þórissonar frá Fellsenda um Þingvallasveit í Sunnlenskum byggðum III, 1983, bls. 182: „Niður með Ármannsfelli, tiltölulega stutt frá Hofmannaflöt, eru […] Víðivellir. Leiðin af Víðivöllum lá í suðausturátt í stefnu á Hrafnabjörg. Skammt fyrir austan Víðivelli er gamalt eyðibýli sem farið var hjá og hét Litla-Hrauntún. Engar heimildir eru til um það hvenær búið var þar. Áfram liggur leiðin austur að Hlíðargjá og yfir hana á Prestastíg.“
Pétur segir þá í Þingvallaþönkum sem hann ritaði í kringum 1984–1985, bls. 14: „Litla-Hrauntún er gamalt eyðibýli, sem var skammt austan Víðivalla við gömlu leiðina frá Ármannsfelli um Prestastíg og suður yfir Hrafnabjargarháls.“
[FERLIRsfélagar staðsettu tóftir Litla-Hrauntúns við Prestastíg árið 2008, auk tófta suðvestan undir lágum aflöngum klapparhól skammt innan varnargirðingar um þjóðgarðinn.]
Hekla Þöll Stefánsdóttir fornleifafræðingur gengur að vesturhluta Litla-Hrauntúns í júlí 2012 og skráir tóftir sem Matthías Þórðarson kallaði „mjög fornlega“.
Gunnar Grímsson fornleifafræðingur finnur Litla-Hrauntún með fjarkönnun í júní 2018. Hann lýsir leitinni að Litla-Hrauntúni í BA-ritgerð sinni Kortlagning eyðibyggðarinnar á Þingvöllum með flygildum og hitamyndavél sem út kom árið 2020. Gunnar birtir uppfærða túlkun á staðnum í greininni Týndu eyðibýlin í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags árið 2024.“
Niðurlag
Þingvöllum er gjarnan lýst sem mesta sögustað landsins, en sagan af Litla-Hrauntúni hefur fyrir löngu gleymst. Helstu ummerki sögunnar eru nú varðveitt í rústum staðarins. Aðeins verður hún lesin á ný með nákvæmum fornleifarannsóknum. Miðað við útlit rústanna og gömul munnmæli mætti álykta að Litla-Hrauntún hafi verið í byggð oftar en einu sinni á miðöldum og ýmist notað sem býli eða sel.
Ekki er fyllilega ljóst hvers vegna fólk festi rætur í Litla-Hrauntúni miðað við landshætti nú til dags. Svæðið virðist harðbýlt og afskekkt, vatnslaust og rýrt. Það gæti þó ekki alltaf hafa verið raunin.
Þótt Litla-Hrauntún sé nú staðsett í útjaðri skógarins, þá herma gömul munnmæli í sveitinni að skógurinn hafi náð enn lengra inn til landsins og að fleiri býli hafi verið reist upp til fjalla. Litla-Hrauntún hefur jafnframt verið upp við alfaraleið þegar Hrafnabjargavegur var í notkun, og landfræðileg einangrun því minni en nú.
Reikna má með að skógurinn hafi verið aðalforsenda byggðar í Litla-Hrauntúni, líkt og á öðrum býlum og seljum í Þingvallasveit, og nýttur til eldsneytis og beitar. Saga Litla-Hrauntúns er því samofin sögu skógarins og hefur hann nú fest rætur sínar kyrfilega í rústum þess að sinni.“
Ljóst er, af fyrirliggjandi minjum að dæma, að framangreind „Litla-Hrauntún“ hafa verið á að m.k. tveimur stöðum, þ.e. við alfaraleiðina Hrafnabjargarveg (Prestastíg) sem og skammt sunnan hans.
Heimild:
-https://www.thingvellir.is/fraedsla/ornefni/h/hrauntun/
-https://www.thingvellir.is/fraedsla/ornefni/l/litla-hrauntun/













































